Allegrini-fjölskyldan hefur frá 16. öld spilað stórt hlutverk í vínræktinni á Valpolicella-svæðinu í héraðinu Veneto á Ítalíu. Kynslóð eftir kynslóð hefur tekið við stjórnartaumunum í þessu virta vínhúsi sem einkennist af nútímalegri nálgun á vínræktina þó gömlum og góðum hefðum er ekki kastað á glæ. Vínin frá þessu virta vínhúsi hafa ekki sést í hillum vínbúðarinnar í ansi langan tíma og eru því kærkomnir endurfundir að eiga sér stað þessa dagana. Þetta eru vönduð vín frá vönduðum framleiðanda sem fegrar framboðið af góðum vínum í vínbúðinni svo um munar.
Vínið sem hér um ræðir heitir Allegrini Palazzo della Torre IGT 2012 og er einnar ekru vín sem staðsett er í kringum villu Allegrini-fjölskyldunnar sem heitir einfaldlega Villa della Torre. Þetta vín er aðallega framleitt úr héraðsþrúgunum Corvina Veronese (70%) og Rondinella (25%) en pínulítið af toskana-þrúgunni Sangiovese (5%). Þar sem er að finna þrúguna Sangiovese í blöndunni góðu er vínið skilgreint sem Veronese IGT en ekki sem Valpolicella DOCG. Vín er að hluta til framleitt eftir nýstárlegri nálgun á hina svokölluðu „ripasso“ aðferð, þ.e. ákveðinn hluti af þrúgunum er tekinn til hliðar og þær þurrkaðar. Vínið er látið þroskast í 15 mánuði á eikartunnum og síðan látið þroskast áfram í tvo mánuði á flöskum áður en það er látið á markað.
Rúbínrautt, jafnvel út fjólublátt tekur þetta flotta vín á móti manni með angan af ávöxtum og berjum, pínulítið af rúsínum og kakó. Hér er um að ræða silkimjúkt vín í góðu jafnvægi, góð sýra sem gerir þetta vín að afbragðs matarvíni. Hentar vel með mörgum klassískum ítölskum, t.d. Amatriciana og Carbonara, grilluðu kjöti og meðalþroskuðum ostum.
Allegrini Palazzo della Torre IGT 2012 fær fjórar stjörnur – ÁGÆTIS KAUP á þessu verði, kr. 2.990.
Í HNOTSKURN: Silkimjúkt vín í góðu jafnvægi, virkilega flott matarvín.