LOMBARDÍA - FJÖLMENNASTA HÉRAÐ LANDSINS
LombardÍa er fjölmennasta og auðugasta hérað Ítalíu. Héraðið liggur að Sviss í norðri, Piemonte í vestri, Emilia-Romagna í suðri og Veneto og Trentino-Alto Adige í austri. Héraðið skiptist í 11 sýslur; Milano með samnefnda höfuðborg héraðsins, Bergamo, Como Cremona, Lecco, Mantova, Pavia, Sondrio og Varese. Héraðið er tæpir 24.000 ferkílómetrar að stærð og íbúarnir telja 10 milljónir.
Landslagið í Lombardía er fjölbreytt þar sem héraðið liggur frá Alpafjöllunum í norðri og niður að bökkum árinnar Pó í suðri en héraðinu er hægt að skipta í þrjú meginsvæði, þ.e. fjöllin, hæðirnar og svo sléttuna. Upp í fjöllunum getur skíðafólk fundið skíðasvæði í algjörum sérflokki, t.d. Tonale, Bormio, Livigno og Madesimo. Á hæðunum er að finna svæðið Franciacorta sem þekkt er fyrir vínekrur og framúrskarandi vínframleiðslu. Þar eru ennfremur að finna vötnin Lago di Garda, Lago Como og Lago Maggiore sem njóta sín vel í sínu gríðarlega fallega umhverfi. Niður á sléttunni tekur við einstaklega frjósamt landsvæði þar sem korn- og hrísgrjónaakrarnir njóta sín en í þessum frjósama jarðvegi hefur uppskeran verið hlutfallslega mest í samanburði við önnur svæði landsins.

ÁHUGAVERÐIR STAÐIR
BERGAMO - HEILLANDI BORG SEM ALLIR ÆTTU AÐ HEIMSÆKJA
Bergamo er heillandi borg, staðsett við rætur ítölsku alpanna í héraðinu Lombardía. Íbúar borgarinnar telja í kringum 120.000 sem gerir hana að fjórðu stærstu borg héraðsins. Borgin skiptist í tvo hluta, annars vegar gamla hlutann sem kallast „città alta“ og hins vegar nýja hlutann sem kallast „città bassa“. Svo miklu meira hér.
MÍLANÓ - ALLT SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA UM HÁTÍSKUBORGINA
Mílanó er næst fjölmennasta borg Ítalíu á eftir Róm en Mílanó hefur stækkað mikið á undanförnum árum og áratugum. Þrátt fyrir það að það búi eingöngu 1,3 milljónir manna í borginni sjálfri þá búa rúmlega 4,6 milljónir manna á borgarsvæði hennar (metropolitan area). Mílanó er nútímalegasta borg Ítalíu, að margra mati táknmynd fyrir hina nýju Ítalíu. Þeirri Ítalíu sem er á fljúgandi ferð út úr gömlum viðjum, tekur opnum örmum á móti nýjum hugmyndum og grípur öll tækifæri sem gefast til framþróunar. Það er einhvern veginn allt að gerast í borginni og allt á fullri ferð en á sama tíma er hún svo afslöppuð og notaleg. Svo miklu meira hér.
ÍTÖLSKU VÖTNIN - Í ALLRI SINNI DÝRÐ
Þar sem Alparnir teygja sig suður til Ítalíu kúra ítölsku vötnin í allri sinni dýrð milli fjallanna og fegurðin er engu lík. Sum vatnanna eru stór, önnur minni, sum tilheyra alfarið Ítalíu en önnur eiga að auki landamæri að Sviss. Ítölsku vötnin hafa haft mikið aðdráttarafl hjá ferðamönnum og má segja að þau séu meðal vinsælustu ferðamannastaða landsins. Ítölsku vötnin eru paradís fyrir göngu-, hjólreiða- og útivistarfólk með endalausum útivistarmöguleikum í gríðarlega fallegri náttúru. Þekktustu vötnin eru Lago di Garda, Lago di Como, Lago Maggiore, Lago di Lugano, Lago d‘Iseo og Lago d‘Idro og liggja þau frá landamærum Lombardia og Piemonte í vestri að landamærum Lombardia og Veneto í austri. Svo miklu meira hér.
AÐRIR ÁHUGAVERÐIR STAÐIR
Brescia - Cremona - Desenza del Garda - Franciacorta - Gogonzola - Livigno- Mantova - Monza - Pavia - Po - Salò - Sirmione - Val Taleggio - Valtellina - Vigevano - Val di Magra

ELDHÚS HÉRAÐSINS
Matargerðin í Lombardía er undir margvíslegum áhrifum, t.d. frá Frakklandi, Þýskalandi og Austurríki. Notkun smjörs og rjóma er algengari í Lombardií en öðrum héruðum landsins líklega þar sem Frakkar réðu yfir Lombardía í mörg ár fyrr á öldum. Germönsk áhrif má finna í réttum eins og Cotoletta alla Milanese sem svipar að mörgu leyti til vínarsnitzels.
Polenta var mikið borðað af þeim sem unnu erfiðisvinnu til sveita þar sem kjöt var sjaldan fáanlegt og eins voru súpur á borð við Minestrone mikilvægur þáttur í daglegum neysluvenjum sveitafólksins. Aftur á móti má rekja risotto frá hinum ríku landeigendum en hrísgrjón eru enn í dag mjög algeng í matargerð héraðsins, bæði notuð mikið í súpur sem og risotto. Einn frægasti réttur héraðsins er Risotto alla Milanese sem bragðbættur er með saffran og oft hafður sem fyrsti réttur á undan aðalrétti máltíðarinnar. Þess má geta að pasta festi sig í sessi í matargerð héraðsins mun síðar en í öðrum héruðum landsins.
Bresaola, sérréttur Valtellina-svæðisins ásamt Pizzoccheri, er loftþurrkað fitusnautt nautakjöt sem oftast er borið fram í þunnum sneiðum ásamt klettasalati, parmiggiano og sítrónu.
Fjölmargir stórkostlegir ostar eru framleiddir í Lombardia, þ.á.m. gorgonzola, bel paese, grana padano, robiola, crescenza og taleggio.
Með fjölbreyttum hráefnum héraðsins eru búnir til dásamlegir ábætis- og eftirréttir, t.d. Panettone sem er sætt og létt brauð sem nýtur mikilla vinsælda um jólahátíðina, upprunið í Mílanó.
Réttir úr héraðinu: Risotto allo Zafferano

VÍNGERÐIN Í LOMBARDÍA
Í fallegum sveitum Lombardía drýpur smjör á hverju strái og m.a. stunduð mikil korn-og hrísgrjónarækt í frjósömum jarðvegi héraðsins. Þrátt fyrir mikla áherslu á korn- og hrísgrjónarækt er að finna virkilega góð vínræktarsvæði í héraðinu þar sem framleidd eru vín sem orðið hafa þekkt víða um heim á undanförnum misserum.
Svæðið Oltrepó Pavese, fyrir sunnan borgina Pavia, er þekkt fyrir mörg gæðavín, þ.á.m. DOCG-hvítvínið Oltrepo Pavese Metodo Classico og DOC-rauðvínið Oltrepo Pavese Pinot Grigio. Eitt alla þekktasta vínræktarsvæði héraðsins er Franciacorta, milli Brescia og Lago Iseo, en þar eru framleidd DOCG-freyðivín með kampavínsaðferðinni sem af mörgum eru talin bestu freyðivín landsins, gerð úr þrúgunum Chardonnay, Pinot Blanc, Pinot Noir og Pinot Gris. Að auki má nefna vínræktarsvæðið Valtellina en það koma tvo DOCG-vín, annars vegar Valtellina Superiore og hins vegar Sforzato di Valtellina.