ABRUZZO - 150 KM AF GEGGJAÐRI STRANDLENGJU
Abruzzo er staðsett á miðju stígvélinu fyrir austan Lazio, liggur að Marche í norðri og Molise í suðri. Abruzzo skiptist í fjórar sýslur: L’Aquila, Pescara, Teramo og Chieti. Höfuðborg héraðsins er L’Aquila í samnefndri sýslu en aðrar borgir héraðsins eru Pescara, Teramo, Chieti og Avezzano.
Miklar andstæður einkenna Abruzzo, annars vegar blár sjór með sendinni strandlengju í austri og hins vegar há snævi þakin fjöll Appenníufjallgarðsins í vestri. Mikið fjalllendi einkennir héraðið með Gran Sasso sem hæsta tind, 2.914 metrar yfir sjávarmáli. Fjölmargar ár renna um héraðið, sumar þeirra eru árstíðabundnar en margar renna árið um kring, tvær stærstu árnar eru Pescara og Sangro.
Á 150 kílómetra langri ströndinni við Adríahafið eru margir vinsælir strandbæir, þ.á.m. Vasto, Silvi Marina, Giulianova, Francavilla al Mare, Pineto, Alba Adriatica og Martinsicuro.

ÁHUGAVERÐIR STAÐIR
Campli - Caramanco Terme - Gran Sasso - L'Aquila - Majella - Navelli Plain - Pacentro - Scanno - Sulmona - Teramo - Tollo - Vasto - Villa Santa Maria
ELDHÚS HÉRAÐSINS
Það er mikil munur á loftslaginu í Abruzzo, annars vegar við ströndina og hins vegar til fjalla. Þrátt fyrir að réttir beggja svæðanna eru undir suðrænum áhrifum þá er sjávarfang undirstaðan við ströndina en svína-og lambakjöt upp til fjalla.
Landbúnaður er ein mikilvægasta atvinnugreinin í héraðinu og mikið framleitt af vínþrúgum, ólífum, hveiti, kartöflum, hveiti, maís, sykurrófum, saffran, óreganó og tóbaki. Í Abruzzo er mesta saffranræktun á Ítalíu en til að fá eitt kíló af saffrani þarf 130.000 blóm af saffrankrókusi, enda er saffran eitt dýrasta krydd veraldar. Sumir vilja meina að Saffranið sem ræktað er nálægt höfuðborg héraðsins, Aquila, sé einfaldlega það besta.
Chilli-pipar er mikið notaður í héraðinu, talinn vera hin mesta heilsubót og fáir réttir frá Abruzzo taldir vera fullkomnir án þess.
Pasta er algengt í Abruzzo líkt og í öðrum héruðum Ítalíu. En framlag Abruzzo til ítalskrar pastagerðar er chitarra, gítarlaga áhald úr viði og vír sem myndar þykkt og teningslaga pasta. En vegna þess hve gott hveitið er og hve vatnið er hreint í Abruzzo er framleitt þar sumt af besta pasta Ítalíu.

VÍNGERÐ HÉRAÐSINS
Það eru einungis fjögur héruð á Ítalíu sem framleiða magn af rauðvíni en Abruzzo en það eru Sikiley, Puglia, Veneto og Emilia-Romagna. Nærri 80% af vínframleiðslu héraðsins er framleidd af stórum vínsamlögum sem bæði bjóða upp á sín eigin vín en selja líka mikið magn af víni til annarra vínhéraða innan Ítalíu og einnig Frakklands.
Frá Abruzzo kemur eitt DOCG-vín, Montepulciano d’Abruzzo Colline Teramane og að auki koma þrjú DOC-vín frá héraðinu, þ.e. Controguerra, Montepulciano d’Abruzzo, Trebbiano d’Abruzzo. Þær þrúgur sem eru mest áberandi í héraðinu eru Montpulciano og Trebbiano ásamt þrúgum á borð við Chardonnay, Cabernet Sauvignon, Merlot, Sangiovese, Passerina, Pecorino og Cococciola.