CALABRÍA - "TÁIN" Á ÍTALSKA STÍGVÉLINU
Calabria myndar “tána” á ítalska stígvélinu. Héraðið liggur að Basilicata í norðri en í suðri skilur einungis lítið sund héraðið frá Sikiley sem kallast Stretto di Messina en einungis 3.2 kílómetrar skilja héruðin, Basilicata og Sikiley, af þar sem styðst er á milli lands og eyjar. Héraðið er rúmir 15.000 ferkílómetrar að stærð og íbúarnir eru u.þ.b. 2 milljónir. Héraðið er 248 kílómetrar á lengd frá norðri til suðurs en einungis 110 kílómetrar þar sem það er breiðast frá austri til vesturs en þess má geta að strandlengja héraðsins er u.þ.b. 710 kílómetrar á lengd. Héraðið skiptist í fimm sýslur: Cosenza, Crotone, Catanzaro, Vibo Valentia og Reggio di Calabria. Höfuðborg héraðsins er Catanzaro í samnefndri sýslu og aðrar borgir eru Reggio di Calabria, Lamezia Terme, Cosenza og Crotone.
Calabria er þekkt fyrir öll fallegu þorpin, hvítar strendur, tæran sjó og fjörugt næturlíf. Annars er héraðið fjalllent og skógi vaxið með sína fallegu þjóðgarða með fjölbreyttum gróðri og miklu dýralífi, t.d. Pollino, Sila og Aspromonte. En Pollinofjöllin í norðurhluta héraðsins eru harðgerð og myndar náttúrulegan varnargarð sem aðgreinir Calabria frá restinni af Ítalíu.

ÁHUGAVERÐIR STAÐIR
Tropea - Capo Rizzuto - Cariati - Catanzaro - Cosenza- - Crotone - Pollino National Park - Reggio Calabria - Scilla - Vibo Valentia
ELDHÚS HÉRAÐSINS
Calabria er hérað sterkra og ákafra tilfinninga sem litar matargerð héraðsins. Chillipipar er í flestum réttum héraðsins, allt frá brauði með n’duja pylsum eða sardínum, oft kallaðar “kavíar fátæka mannsins” til svínapylsa, pastasósa og fiskrétta. Sterka bragð chillipiparsins kallast á við sæta bragð rauðlauksins frá Tropea, sem varinn er með evrópska gæðastimplinum PGI (Protected Geographical Indication). Rauðlaukurinn er notaður í marga rétti héraðsins og einnig í lækningaskyni. Í héraðinu eru einnig ræktaðar og nýttar margar tegundir grænmetis, þ.á.m. eggaldinn, sæt paprika, ætisþistlar, kúrbítur og sveppir.
Þrátt fyrir mikið framboð af túnfiski, sverðfiski, sardínum og anjósum ber mest á réttum frá fjöllum héraðsins og þá einkum réttum úr svínakjöti. Mikið er um pylsur og þær þekktustu eru n’duja pylsurnar sem eru búnar til úr svínafitu, lungum og nýrum ásamt, kryddaðar miklum rauðum chillipipar sem og svörtum pipar.
Í Calabria vaxa kastaníu-, ólífu- og sítrusávaxtatré vel í tempraða loftslaginu sem og möndlu- og fíkjutré. Héraðið er einnig þekkt fyrir Bergamots, lítinn perulaga sítrusávöxt sem nýttur er í ávaxtakökur og sætabrauð um alla Ítalíu. Einnig vex þar sérstöku tegund af appelsínum, “Arancia Calabrese” sem eingöngu vex í Calabria og er börkur ávaxtarins m.a. notaður í ýmiss sætabrauð.

VÍNGERÐIN Í HÉRAÐINU
Calabria hefur verið undir ýmsum áhrifum í gegnum aldirnar en það voru Grikkir sem framleiddu fyrstu vínin í héraðinu. Í margar aldir voru vínin frá Calabria ekki einungis fræg á Ítalíu heldur víða um Evrópu. Að lokum fór frægðarsól vínanna frá Calabria að síga vegna mikillar samkeppni frá vínræktarhéruðum á við Bordeaux í Frakklandi þar sem þau voru bæði landfræðilega og menningarlega nær lykil markaðssvæðum þess tíma, t.d. London og Amsterdam.
Þrátt fyrir að vínræktunin í Calabría hafi átt erfitt uppdráttar þá er þar að finna 12 DOC-svæði en ennþá er beðið eftir fyrsta DOCG-svæði héraðsins. Hvítvínin frá Calabría hafa vakið athygli, t.d. Greco di Bianco. Aftur á móti er rauða þrúgan Gaglioppo áberandi í rauðvínunum en hún er um margt áþekk þrúgunni Aglianico.