Bergamo er heillandi borg, staðsett við rætur ítölsku alpanna í héraðinu Lombardía. Íbúar borgarinnar telja í kringum 120.000 sem gerir hana að fjórðu stærstu borg héraðsins. Borgin skiptist í tvo hluta, annars vegar gamla hlutann sem kallast „città alta“ og hins vegar nýja hlutann sem kallast „città bassa“.
„Città alta“
„Città alta“ er gamli hluti borgarinnar sem er umlukin borgarmúr sem reistur var á 16. öld. Það er virkilega gaman að ganga um þröngar götur gamla bæjarins, skoða litlar sérverslanir, og upplifa stemminguna. Það er upplifun að ganga eftir borgarmúrunum og virða fyrir sér stórkostlegt útsýni yfir héraðið Lombardia. Fasteignaverð í „Città alta“ er með því hæsta sem fyrirfinnst á Ítalíu en fermetraverðið í gamla bænum er frá 750.000 krónum og allt í 1.800.000 króna.

„Città bassa”
Nýi borgarhluti Bergamo kallast „Città bassa” en sá hluti borgarinnar skilgreinist sem nútímalegi hluti hennar. Þessi hluti borgarinnar varð til þegar byrjað var að reisa byggingar meðfram helstu leiðunum inn í borgina og með tímanum urðu til borgarhverfi sem nú hafa orðið þeim hluta sem í dag kallast „Città bassa” Helstu hverfin heita Borgo Palazzo sem myndaðist í kringum leiðina til Brescia, Borgo San Leonardo myndaðist meðfram leiðinni til Mílanó og Borgo Santa Caterina myndaðist meðfram leiðinni til Valle Seriana.

Áhugaverðir staðir
Torgið Piazza Vecchia er hjartað í gamla bænum, „Città alta“. Gullfallegt torg, umkringt fallegum byggingum á borð við Palazzo della Ragione og Campanone. Basilica Santa Maria Maggiore er gullfalleg kirkja sem lengi var talin ein allra mikilvægasta bygging borgarinnar. Að auki erum við að tala um byggingar á borð við Cappella Colleoni, La Rocca og La Cittadella. En það má með sanni segja að öll „Città alta“ sé áhugaverður staður og nánast hægt að minnast sérstaklega á hverja einustu byggingu.
Söfn og leikhús í borginni
Ekki er komið að tómum kofanum þegar kemur að söfnum en í borginni er að finna söfn á borð við samtímalistasafnið GAMeC, myndlistasafnið Accademia Carrara sem sérhæfir sig í málverkum frá endurreisnar- og barroktímabilinu og Museo Donizettiano en það safn er tileinkað frægasta syni Bergamo, sjálfum Gaetano Donizetti. Að auki er í borginni að finna leikhús á borð við Teatro Donizetti, nefnt í höfuðið á stórskáldinu, og Teatro Sociale.
Að versla í Bergamo
Í „Città alta“ er mikið um litlar sérverslanir með handverki, sælkeravörum og listmunum. Í „Città bassa” er aftur á móti að finna helstu verslunargötu borgarinnar sem heitir Via XX Settembre en þar er að finna verslanir á borð við Max Mara, Zara, Stefanel, Sisley, Furla, Benetton og Fratelli Rosetti. Rétt fyrir utan borgina, nálægt flugvellinum Orio al Serio, er að finna Oriocenter, stærstu verslunarmiðstöð Ítalíu með yfir 200 verslanir. En þar er að finna verslanir á borð við Diesel, H&M, Zara, Pull & Bear, Bershka, Hilfiger, Massimo Dutti og Replay.

Að komast til og frá Bergamo
Í Bergamo er að finna alþjóðaflugvöllinn, Orio al Serio, en þangað fljúga fjölmörg lággjaldaflugfélög, t.d. Ryanair. Það er því leikur einn að fljúga frá Íslandi til Bergamo með millilendingu í London. Að auki er innan við klukkustundar akstur til borgarinnar frá Mílanó, þangað sem bæði Wow Air og Icelandair fljúga í beinu flugi yfir sumarmánuðina.
Bergamo heillandi borg sem er svo sannarlega þess virði að heimsækja á auðveldan og ánægjulegan hátt.