MINITALIA
  • AFTUR HEIM
  • HÉRUÐ ÍTALÍU
    • ABRUZZO
    • BASILICATA
    • CALABRÍA
    • CAMPANÍA
    • EMILIA - ROMAGNA
    • FRIULI - VENEZIA GIULIA
    • LAZIO
    • LÍGÚRÍA
    • LOMBARDÍA
    • MARCHE
    • MOLISE
    • PIEMONTE
    • PUGLIA
    • SARDINÍA
    • SIKILEY
    • TOSKANA
    • TRENTINO - ALTO ADIGE
    • ÚMBRÍA
    • VALLE D'AOSTA
    • VENETO
  • UPPSKRIFTIR
    • FORRÉTTIR
    • PASTA
    • RISOTTÓ
    • PIZZUR
    • AÐALRÉTTIR
    • EFTIRRÉTTIR
    • BRAUÐ OG KÖKUR
    • SÓSUR OG PESTÓ
  • FERÐALAGIÐ
    • AMALFÍ
    • BERGAMO
    • BOLOGNA
    • CAPRI
    • CINQUE TERRE
    • FENEYJAR
    • FLÓRENS
    • GENÓA
    • LUCCA
    • MINORI
    • MÍLANÓ
    • PARMA
    • PISA
    • PORTOFINO
    • POSITANO
    • RAVELLO
    • SAN GIMIGNANO
    • SAN REMO
    • SIENA
    • TÓRÍNÓ
    • TRIESTE
    • VERONA
    • VIAREGGIO
  • UM MINITALIA

CECCHI NATIO CHIANTI ORGANIC 2015 - virkilega flott lífrænt vín frá TOSKANA

1/10/2017

0 Comments

Vínhúsið Cecchi er eitt af þessum gamalgrónu í Toscana, stofnað árið 1893 af Luigi Cecchi og fljótlega fór sonur hans, Cesare Cecchi, að starfa við hlið föður síns. Orðspor vínhússins fór ekki á flug á alþjóðavisu fyrr en undir stjórn annars Luigi Cecchi, barnabarns stofnandans sjálfs. Í dag er fjórða kynslóðin við stjórnartaumana í vínhúsinu Cecchi en það eru bræðurnir Andrea og Cesare Cecchi. Vínhús Cecchi-fjölskyldunnar hefur ávallt lagt mikla áherslu á að framleiða klassísk og vönduð vín sem fullkomlega eru trú uppruna sínum.
Picture

Cecchi Chianti Natio Organic DOCG 2015 er virkilega aðlaðandi vín sem framleitt er úr þrúgunum Sangiovese (90%) og Colorino (10%). Þetta vín er framleitt einvörðungu úr lífrænum þrúgum á svæði í Toskana sem kallast Colline del Chianti. Þetta vín er fyrst látið þroskast á stáltönkum í u.þ.b. 6 mánuði og síðan látið þroskast í að minnsta kosti tvo mánuði á flösku áður en það er sett á markað.

Þetta rúbínrauða vín tekur á móti manni með nokkuð áköfum angan af ferskum ávexti, vottur af kryddi. Ávaxtaríkt vín þar sem kirsuber, bláber og plómur spila aðalhlutverkin. Þetta er mjúkt vín í góðu jafnvægi með nokkuð flottan strúktúr.

Cecchi Chianti Natio Organic DOCG 2015 fær þrjár og hálfa stjörnu – MJÖG GÓÐ KAUP á þessu verði en það kostar einungis kr. 2.290 í vínbúð allra landsmanna.

Þetta er virkilega gott matarvín sem passar vel með bragðmiklum ítölskum pastaréttum, t.d. Spaghetti all‘amatriciana eða Spaghetti alla puttanesca, smellpassar líka með réttum á borð við Kjúklingi veiðimannsins og Eggaldin með parmesan.
0 Comments

Leave a Reply.

    Picture
© 2013 Minitalia.is - Allur réttur áskilinn - [email protected]