MINITALIA
  • HEIM
  • MATUR
    • ÍTÖLSK MATARGERÐ
    • ÍTALSKAR UPPSKRIFTIR >
      • FORRÉTTIR
      • PASTA
      • RISOTTÓ
      • PIZZUR
      • FRITTATA
      • AÐALRÉTTIR
      • EFTIRRÉTTIR
      • BRAUÐ OG KÖKUR
      • SÓSUR OG PESTÓ
    • HRÁEFNI
  • VÍN
    • ÍTÖLSK VÍNGERÐ
    • ÍTÖLSK VÍNHÉRUÐ >
      • PIEMONTE
      • SIKILEY
      • TOSKANA
      • ÚMBRÍA
      • VENETO
    • GÓÐ ÍTÖLSK VÍN >
      • RAUÐVÍN
      • HVÍTVÍN
  • FERÐALÖG
    • ABRUZZO
    • BASILICATA
    • CALABRÍA
    • CAMPANÍA >
      • AMALFÍ
      • CAPRI
      • MINORI
      • POSITANO
      • RAVELLO
    • EMILIA - ROMAGNA >
      • BOLOGNA
      • PARMA
    • FRIULI - VENEZIA GIULIA >
      • TRIESTE
    • LAZIO
    • LÍGÚRÍA >
      • CINQUE TERRE
      • GENÓA
      • PORTOFINO
      • SAN REMO
    • LOMBARDÍA >
      • MÍLANÓ
    • MARCHE
    • MOLISE
    • PIEMONTE >
      • TÓRÍNÓ
    • PUGLIA
    • SARDINÍA
    • SIKILEY
    • TOSKANA >
      • LUCCA
      • PISA
      • SAN GIMIGNANO
      • SIENA
      • VIAREGGIO
    • TRENTINO - ALTO ADIGE
    • ÚMBRÍA
    • VALLE D'AOSTA
    • VENETO >
      • BERGAMO
      • FENEYJAR
      • VERONA
  • LÍFSTÍLL
  • HÖFUNDURINN

Pizza Bismarck - gómsæt og pínulítið skemmtileg

4/17/2014

0 Comments

 
Pizza Bismarck er gómsæt og líka pínulítið skemmtileg pizza þar sem egg eru spæld á henni síðustu mínúturnar. Það er síðan í valdi hvers og eins hversu mikið hann vill láta eggin spælast en mér finnst best að hafa rauðuna mjúka, skera svo í hana og dreifa henni að lokum yfir alla pizzuna.
Picture
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Skinka 5) 1-2 egg 6) Ólífuolía

Aðferð
1)
Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Setjið síðan skinkuna á pizzuna. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 6) Þegar nokkrar mínútur eru eftir af bökunartímanum þá takið þið pizzuna út úr ofninum, brjótið 1-2 egg yfir hana og látið hana síðan aftur inn í ofninn. 7) Látið pizzuna bakast þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og eggin líta út eins og ekta spælegg.

Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill  og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.

Pizzur eru yndislegt fyrirbæri og verða alltaf betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.
0 Comments



Leave a Reply.

© 2013 Minitalia.is - Allur réttur áskilinn - kjartan@minitalia.is