MINITALIA
  • AFTUR HEIM
  • HÉRUÐ ÍTALÍU
    • ABRUZZO
    • BASILICATA
    • CALABRÍA
    • CAMPANÍA
    • EMILIA - ROMAGNA
    • FRIULI - VENEZIA GIULIA
    • LAZIO
    • LÍGÚRÍA
    • LOMBARDÍA
    • MARCHE
    • MOLISE
    • PIEMONTE
    • PUGLIA
    • SARDINÍA
    • SIKILEY
    • TOSKANA
    • TRENTINO - ALTO ADIGE
    • ÚMBRÍA
    • VALLE D'AOSTA
    • VENETO
  • UPPSKRIFTIR
    • FORRÉTTIR
    • PASTA
    • RISOTTÓ
    • PIZZUR
    • AÐALRÉTTIR
    • EFTIRRÉTTIR
    • BRAUÐ OG KÖKUR
    • SÓSUR OG PESTÓ
  • FERÐALAGIÐ
    • AMALFÍ
    • BERGAMO
    • BOLOGNA
    • CAPRI
    • CINQUE TERRE
    • FENEYJAR
    • FLÓRENS
    • GENÓA
    • LUCCA
    • MINORI
    • MÍLANÓ
    • PARMA
    • PISA
    • PORTOFINO
    • POSITANO
    • RAVELLO
    • SAN GIMIGNANO
    • SAN REMO
    • SIENA
    • TÓRÍNÓ
    • TRIESTE
    • VERONA
    • VIAREGGIO
  • UM MINITALIA

PIZZA MEÐ SKINKU OG ÆTISÞISTLUM - SLÓ Í GEGN OG SKILDI MIKIÐ EFTIR SIG

8/10/2017

1 Comment

 
Stundum þarf ekkert að vera að flækja hlutina, oft er það einfaldleikinn sem blífur. Skinka og ætisþistlar eru fullkomin fyrir hvort annað, dásamlegt hjónaband. Niðurstaða er æðisleg pizza sem sló í gegn og skildi mikið eftir sig.
Picture
Hráefni
1
) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Ætisþistlar 5) Skinka 7) Ólífuolía

Aðferð
1) Fletjið svo út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Setjið fyrst skinkuna og síðan ætisþistlana á víð og dreif yfir pizzuna. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið hana inn í brennandi heitan ofninn. 6) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 7) Takið þá pizzuna úr ofninum og berið hana strax fram.

Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.

Pizzur eru náttúrulega yndislegt fyrirbæri og glas af léttu og ávaxtaríku rauðvíni í hópi góðra vina gera þær einungis yndislegri.
1 Comment
ryðfríu stáli baðherbergi blöndunartæki link
11/12/2020 11:55:01 pm

þessi grein er mjög gagnleg fyrir okkur takk fyrir að deila þessum upplýsingum með okkur…

Reply



Leave a Reply.

© 2013 Minitalia.is - Allur réttur áskilinn - [email protected]