Focaccia er ofnbakað ítalskt brauð sem er upprunanlega frá héraðinu Ligúría. Oft eru sett ofan á þetta brauð t.d. ýmsar tegundir af harðgerðum kryddjurtum, ólífur, tómatar og líka laukur.
Það er frábært að baka þetta brauð, skera það í hæfilega sneiðar og eiga það í frystinum. Síðan er tilvalið að taka nokkrar sneiðar, hita þær í mínútugrilli og borða t.d. með súpum, lasagna og pastaréttum.

Hráefni
1) 500 gr hveiti 2)500 gr semolinahveiti 3) 30 gr Þunnfljótandi hunang 4) 30 gr pressuger 5) 30gr fínt salt 6) 330 ml vatn vel heitt 7) 330 ml vatn volgt vatn 8) ólífuolíu 9) Maldon salt
Aðferð
1) Blandið saman hveiti og semolinahveiti í stóraskál. 2) Leysið gerið upp í volga vatninu. 3) Leysið
saltið upp í heita vatninu, bætið hunanginu saman við og hrærið saman. 4) Bætið öllum vökvanum saman við hveitið. 5) Hnoðið fyrst saman í skálinni en síðan á borði og hnoðið þessu vel saman. Hafið það í huga að deigið á að vera blautt. 6) Setjið deigið aftur í skálina og látið það hefast í u.þ.b. 60 mínútur. 7) Setjið vel af olíu á bökunarplötu, sláið deigið niður á plötuna og þjappið niður með fingrunum þar til deigið fyllir út í plötuna. Kryddið með salti og ólífuolíu og látið þetta hefast á nýjan leik volgum stað í 45 mínútur til viðbótar. 8) Setjið plötuna inn í ofn og bakið við 220 gráður í 15-20 mínútur eða þar til brauðið er fallega brúnað. 9) Leyfið brauðinu að kólna lítillega áður en það er skorið.