Cantucci eru heimsfrægar smákökur, upprunnar frá borginni Prato í hjarta Toskana. Þessar ílöngu smákökur eru oft ranglega kallaðar „biscotti“ hér á landi sem þýðir einfaldlega„tvíbakaðar“ og er lýsandi fyrir bökunaraðferðina, þ.e. að þær eru settar tvisvar inn í ofninn. Þessar smákökur hafa þann kost að þær geymast lengi og því tilvalið að eiga ávallt nóg af þeim þegar góða gesti bera að garði.
Á Ítalíu er hefð fyrir því að fá sér Cantucci ásamt glasi af Vin Santo sem er sætt eftirréttavín, upprunnið frá Toskana. Að auki hefur skapast sú hefð, sérstaklega fyrir utan Ítalíu, að gæða sér á Cantucci með góðum kaffibolla.
Hér er um að ræða uppskrift sem er mjög nálægt þeirri upprunalegu frá Prato í Toscana. En með tíð og tíma hafa orðið til ýmsar útfærslur af þessum dásamlegu kökum, t.d. með því að bragðbæta þær með anís, sítrónu- eða appelsínuberki, rúsínum, súkkulaði eða þurrkuðum ávöxtum. Allt er leyfilegt og einungis ímyndunaraflið sem setur manni einhverjar skorður.

Hráefni
1) 4 egg plús ein eggjarauða 2) 500 gr hveiti 3) 280 gr sykur 4) 100 gr smjör 5) 4 gr lyftiduft 6) 250 gr möndlur 6) Ögn af salti 7) Eitt egg til að pensla yfir deigið áður en það fer inn í ofninn.
Aðferð
1) Hitið ofninn í 190 gráður, setjið möndlurnar á ofnplötu og setjið inn í ofn í 3-4 mínútur. 2) Setjið sykurinn í skál 3) ásamt eggjunum og hrærið þetta saman í hrærivél ásamt ögn af salti. Ef þið viljið setja út í þetta börk af sítrónu eða appelsínu þá gerið það á þessu tímapunkti. 4) Bræðið smjörið í litlum potti, bætið því saman við blönduna góðu. Hrærið þetta saman ögn lengur.

5) Bætið hveitinu smám saman við blönduna ásamt lyftiduftinu 6) og hrærið þessu vel saman. 7) Að þessu loknu eru möndlunum bætt saman við. 8) Deigið er í eðli sínu blautt og nokkuð klístrað þannig að það er gott að strá smá hveiti yfir deigið til að gera það ögn meðfærilegra.
9) Takið ofnplötu með bökunarpappír og myndið 2-3 lengjur úr deiginu, c.a. 5-8 cm á breidd og 2-3 cm á hæð. Allt spurning hversu stórar maður vill hafa kökurnar. 10) Pískið saman fimmta egginu og penslið því yfir lengjurnar. Setjið svo plötuna inn í 190 gráðu heitan ofn og bakið í u.þ.b. 18-20 mínútur. 11) Skerið nú lengjurnar í c.a. 1,5-2 cm breiða bita með vel beittum hníf. 12) Leggið kökurnar á hliðina og raðið þeim aftur á plötuna. Setjið kökurnar inn í 170 gráðu heitan ofn og bakið í u.þ.b. 12-15 mínútur eða þangað til þær eru u.þ.b. að fara að taka lit. Takið kökurnar úr ofninum og leyfið þeim að standa í smá stund áður en þeirra neytt.
Njótið þessara lystisemda til hins ýtrasta þegar góða gesti ber að garði Þessar steinliggja bæði með kaffibollanum eða nokkrum tárum af Vin Santo.