- Published on
Mascarpone er þykkur rjómaostur, upprunninn frá héraðinu Lombardia og má rekja sögu hans allt aftur til 16. aldar. Hann er framleiddur úr kúamjólk, nánar tiltekið með því að hleypa rjóma með sýru, t.d. sítrónusafa eða vínsýru. Mascarpone er notaður í fjöldann allan af réttum frá svæðinu í kringum Mílanó, t.d. er hann ómissandi í hið dásamlega tiramisu og eins er hann mikið notaður til að þykkja risotto í stað smjörs eða parmesan. Macarpone er virkilega góður rjómaostur sem alltaf er gott að hafa við höndina í eldamennskunni.
Það er í rauninni ansi auðvelt að búa til þennan ost í eldhúsinu heima hjá sér, hérna er eitt myndband sem gott er að skoða og svo er hérna annað myndband.
- Published on
Það eru einhverjir töfrar við þessa samsetningu: rjómi, pestó og tómatar. Penne með rjóma, pestó og tómötum er réttur sem lætur í rauninni lítið yfir sér í upphafi en springur út og kemur sífellt á óvart. Þetta er réttur sem er allt í senn auðveldur, bragðgóður og tilbúinn á augabragði. Fullkominn sem fljótlegur réttu fyrir fjölskylduna eða þegar gesti ber skýndilega að garði.
Hráefni
1) 200 ml rjómi 2) 1 dós af tómötum í dós 3) 2 msk af pestó 4) 400 gr penne 5) 40 gr parmesan 6) salt
Aðferð
1) Hitið rjómann ásamt tómötunum og látið kraum við lágan hita í 10 mínútur. 2) Takið af hellunni og hrærið pestóið saman við blönduna góðu. 3) Sjóðið pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. 4) Látið renna af pastanu þegar það er hæfilega soðið og blandið því saman við sósuna. 5) Bætið við parmesan og berið réttinn strax fram.

Pesto alla genovese er víðfræg sósa sem upprunin er frá héraðinu Lígúría, nánar tiltekið borginni Genóa. Þessi sósa samanstendur af hvítlauk, basilíku, furuhnetum, salti, ólífuolíu, parmesan og pecorino romano. Nafnið kemur frá ítölsku sögninni "pestare" sem þýðir "að merja" en í gegnum tíðina hefur þessi sósa oftast verið gerð í kvörn, marin með handafli.
Það er alltaf gott að eiga pestó í ísskápnum en þar geymist hún fersk í u.þ.b. vikutíma. En síðan er mjög hentugt að fyrsta hana í litlum kubbum og taka þá fram eftir þörfum, þannig getur hún geymst í langan tíma.

1) 50 gr basilíkublöð 2) 2 hvítlauksrif 3) 100 ml ólífuolía 4) 40 gr furuhnetur 5) 70 gr parmesan 6) 30 gr pecorino romano 7) salt
Aðferð
1) Setjið basilíkublöðin í kvörn eða matvinnsluvél ásamt olíu, furuhnetum, hvítlauk og ögn af salti og maukið í pínulitla stund, blandan má alveg vera ögn gróf. 2) Bætið við rifnum ostinum, maukið aftur í pínulitla stund og sósan er tilbúin.

Pizza með bresaola, rucola og parmesan er pizza þar sem dúndur álegg fá að njóta sín til hins ítrasta, þ.e. bresaola, klettasalat og parmesan. Endilega lesið allt sem þú þurfið að vita um bresaola með því að ýta hér. Hægt er að nálgast flott bresaola t.d. í Hagkaup í Kringlunni en þangað fór ég og lét skera fyrir mig 100 grömm í þunnar sneiðar af fallegum vöðva. Frábær pizza þar sem áleggin njóta sín fullkomlega.
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Bresaola, c.a. 100 gr 5) Klettasalat 6) Parmesan 7) Ólífuolía.
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 5) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 6) Takið pizzuna úr ofninum og raðið fyrst á hana bresaola, svo klettasalatinu og stráið að lokum yfir grófrifnum parmesanostinum.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.

Caprese-salat kemur upprunanlega frá eyjunni Capri sem tilheyrir héraðinu Campania. Það er erfitt að ímynda sér mikið einfaldari rétt en hann samanstendur af tómötum, mozzarella og basilíku ásamt slettu af ólífuolíu og svörtum pipar. Rétturinn er oft hafður sem léttur forréttur, léttur hádegisverður eða meðlæti með kvöldverði. Fullkominn sem hádegisverður á íslenskum sumardegi ásamt glasi af góðu freyðivíni. Munið að skála, cin cin!!!
Hráefni
1) 1 stk Mozzarella 2) 1 stk tómatur 3) 10-15 blöð af Basilíku 4) Ólífuolía. 5) Svartur pipar úr kvörn
Aðferð
1) Skerið tómatinn og mozzarellakúluna í c.a. 1 cm þykkar sneiðar 2) Stingið mozzarellasneiðunum á milli tómatssneiðanna ásamt 1-2 blöðum af basilíku með hverri sneið af mozzarella, sjá mynd hér að ofan 3) Hellið ólífuolíu af góðri tegund yfir herlegheitin og piprið eftir smekk.

Bragðsterkur matur er kannski ekki það sem fyrsta kemur upp í hugann þegar minnst er á ítalska matargerð. Upp í hugann kemur miklu frekar atriði eins og fjölbreytni, einfaldleiki og áhersla á gæði hráefnanna. Þetta er raunin í norðurhluta landsins og allt suður til Rómar. En þá er eins og eitthvað breytist, maður fer að finna fyrir biti chilipiparsins, bæði á pizzunum og í pastaréttum á borð við Spaghetti all‘amatriciana og Penne all‘Arrabbiata. Og þegar haldið er áfram suður á bóginn eykst chilibragðið til muna og maturinn verður sífellt sterkari. Svo þegar komið er í héruð á borð við Basilicata, Calabria og Puglia finnur maður chilibragðið af öllum réttum, einungis mismikið. Allt fær sinn skerf af chillipiparnum, hvort sem við erum að tala um salami, ólífuolíu, súkkulaði, grappa eða jafnvel ítalska ísinn sem fer ekki varhluta af þessari miklu notkun.
Þegar líður að hausti má víða á Suður-Ítalíu sjá búntin af chilipipar hangandi fyrir utan hvert einasta hús. Íbúar þessara héraða þurrka náttúrulega heilan helling til að safna í sarpinn fyrir veturinn, allt spurning um að eiga nóg. Í upphafi byrjaði fólkið á Suður-Ítalíu að bryðja chilipiparinn til þess að halda malaríu í skefjum. En þó hættan af malaríusmiti sé ekki til staðar í dag þá hefur fólkið í þessum héruðum haldið áfram að háma í sig chilipiparinn eins og enginn sé morgundagurinn. Margir vilja meina að peperoncino piccante, eða sterkur chilipipar, sé allra meina bót enda kallaður "Il Viagra Calabrese"
Nokkrir réttir á MINITALIA sem innihalda Peperoncino, eða chilipipar: Spaghetti all'amatriciana - Penne all'Arrabbiata - Pollo alla cacciatora - Spaghetti aglio, olio e peperoncino.

Pizza alla Carbonara, eða pizza kolagerðarmannsins, er byggð á geysilega vinsælum pastarétti, Spaghetti alla Carbonara, sem upprunninn er frá héraðinu Lazio, nánartiltekið Róm. Hérna er einfaldlega pastanum skipt út fyrir pizzabotn en allt annað við það sama. Niðurstaðan er bragðgóð og matarmikil pizza sem steinliggur.
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) 150 gr beikon 5) 50 gr parmesan 6) Ólífuolía 7) 1 egg 8) sletta af rjóma 9) Slatti af pipar.
Aðferð
1) Þeytið egginu ásamt rjómanum og helmingnum af rifnum parmesanostinum saman í skál ásamt ögn af salti. 2) Hitið olíu og smjör í stórum potti, setjið beikonið útí í litlum bitum og látið það malla hægt þar til fitan er orðin glær 3) Fletjið út pizzudeigið 4) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 5) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 6) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið hana inn í brennandi heitan ofninn. 7) Þegar u.þ.b. 2 mínútur eru eftir af eldunartímanum, takið pizzuna út úr ofninum, dreifið beikoninu yfir pizzuna áður en þið hellið eggjablöndunni góður yfir hana og stingið henni aftur inn í ofninn. 8) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn, eggjablandan búin að taka sig og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 9) Að lokum skulið þið bæta afganginum af parmesanostinum og piprið eftir smekk.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) 150 gr beikon 5) 50 gr parmesan 6) Ólífuolía 7) 1 egg 8) sletta af rjóma 9) Slatti af pipar.
Aðferð
1) Þeytið egginu ásamt rjómanum og helmingnum af rifnum parmesanostinum saman í skál ásamt ögn af salti. 2) Hitið olíu og smjör í stórum potti, setjið beikonið útí í litlum bitum og látið það malla hægt þar til fitan er orðin glær 3) Fletjið út pizzudeigið 4) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 5) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 6) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið hana inn í brennandi heitan ofninn. 7) Þegar u.þ.b. 2 mínútur eru eftir af eldunartímanum, takið pizzuna út úr ofninum, dreifið beikoninu yfir pizzuna áður en þið hellið eggjablöndunni góður yfir hana og stingið henni aftur inn í ofninn. 8) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn, eggjablandan búin að taka sig og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 9) Að lokum skulið þið bæta afganginum af parmesanostinum og piprið eftir smekk.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.
- Published on
Sítrónukjúklingur, eða Pollo al limone upp á ítölskuna, má finna í óteljandi myndum út um alla Ítalíu. Þetta er einn af þessum réttum þar sem hver fjölskylda hefur sína útgáfu, sitt tvist. Hverjum þykir sinn fugl fagur. Í þessari útgáfu er haldið tryggð við einfaldleikann í sinni skýrustu mynd og útkoma dásamleg. Óendanlega mjúkur, ferskur og safaríkur. Buon appetito!!!
Hráefni
1) 1 stk kjúklingur, skorinn í stóra bita 2) 2 stk hvítlauksrif, heil en kramin með hníf 3) 1stk sítróna 4) safi úr 1 sítrónu 5) 25 gr smjör 6) 2 msk ólífuolía 7) steinselja 8) salt 9) pipar
Aðferð
1) Hitið ofninn í 180 gráður. 2) Nuddið kjúklinginn varlega að innan með öðrum helmingnum af sítrónunni 3) Skerið hinn heminginn af sítrónunni í sneiðar og setjið þær inn í kjúklinginn ásamt helmingnum af smjörinu og hvítlauksrifunum. 4) Leggið kjúklingin á steikarfat með ólífuolíunni og því sem eftir er af smjörinu, saltið og piprið og steikið í ofni í 35 mínútur. 5) Þegar 35 mínútur eru liðnar þá þarf að taka kjúklinginn úr ofninu, hella sítrónusafanum úr hinni sítrónunni yfir hann og setja hann aftur inn í ofninn og steikja í 45 mínútur í viðbót uns kjötið er meyrt og gegnsteikt. 6) Skerið bak og bringu fuglsins í fjóra hluta, takið vængi og leggi af og setjið kjötið á heitt fat. 7) Stráið steinselju yfir og berið réttinn strax fram.

Á Ítalíu er gamlársdagurinn kenndur við hinn helga páfa San Silvestro. Þessi síðasti dagur ársins er almennur vinnudagur, rétt eins og aðfangadagur, en aftur á móti er nýársdagur almennur frídagur á Ítalíu. Sjálf áramótin eins og við köllum þau kallast á Ítalíu „capodanno“ sem dregið er af orðunum capo di anno sem myndu útleggjast á íslensku „upphaf árs“.
Við þessi tímamót halda Ítalir að sjálfsögðu stórar veislur fyrir vini og vandamenn sem kallast La Festa di San Silvestro. Matur og vín spila ávallt stórt hlutverk þegar Ítalir halda veislur og hér er engin undantekning gerð á þeirri reglu. Um kvöldið er borðaður margréttaður kvöldverður þar sem mikilvægasti rétturinn er bjúgnabaunasúpa sem á ítölsku nefnist Cotechino di lenticchie en baunirnar eiga að gefa manni ríkidæmi og heppni á nýju ári.
Að miðnætti er venjan að fagna nýju ári með flugeldasýningum. Flestir bæir á Ítalíu skipuleggja flugeldasýningu á bæjartorginu en að sjálfsögðu er flugeldum einnig skotið upp í einkasamkvæmum um gjörvalla Ítalíu. Í mörgum bæjum er dansað á bæjartorginu á undan flugeldasýningunni og ennfremur eru haldnir stórir útitónleikar í borgum á borð við Róm, Mílanó, Bologna, Palermo og Napolí.
Að sjálfsögðu fagna Ítalir nýju ári með því að skála í Vino spumante eða Prosecco. Þessar veislur á gamlárskvöld standa yfirleitt yfir fram undir morgun til þess að geta horfa á fyrstu sólarupprás ársins.
Og síðast en ekki síst má alls ekki gleyma að klæðast rauðum nærfötum um áramót þar sem það boðar heppni á nýju ári.