- Published on
Pizza með spínati, geitaosti og döðlum ásamt ristuðum furuhnetum er virkilega dásamleg samsetning á pizzu. Þessi pizza getur hreinlega ekki klikkað þar sem hvert áleggið er öðru betra og eiginlega algjört klúður ef þessi pizza slær ekki í gegn. Frábær pizza.
Hráefni
1) pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) mozzarella 4) 200 gr spínat 5) slatti af furuhnetum 6) Nokkrar döðlur, skornar í litla bita 6) ricottaostur 7) ólífuolía
Aðferð
1) Ristið furuhnetur á pönnu í fáeinar mínútur 2) Bætið spínatinu á pönnuna og steikið við miðlungshita þar til spínatið er orðið mjúkt. 3) Fletjið svo út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Setjið síðan áleggin á pizzuna, þ.e. fyrst spínatið, svo döðlurnar og að lokum ricottaostinum. Gott er að notast við teskeið þegar rjómaostinum er dreift á víð og dreif um pizzuna. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 6) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru náttúrulega yndislegt fyrirbæri og glas af léttu og ávaxtaríku rauðvíni í hópi góðra vina gera þær einungis yndislegri.

Penne með laxi og rjóma, á ítölsku Penne con salmone e panna, er bæði einfaldur og fljótlegur réttur. Fullkominn sem fljótlegur réttur fyrir fjölskylduna eða þegar gesti ber skyndilega að garði.
Hráefni fyrir fjóra
1) 400 gr penne 2) 200 gr reyktur lax 3) 250 ml rjómi 4) 3-4 greinar af fersku dilli eða samsvarandi af þurrkuðu 5) salt.
Aðferð
1) Sjóðið pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. 2) Hellið rjómanum í pott og hitið á miðlungshita á meðan pastað er að sjóða. 3) Skerið laxinn í litla bita. 4) Bætið helmingnum af laxinum út rjómann þegar hann er orðinn nokkuð heitur ásamt dillinu. 5) Takið rjómablönduna af hitanum þegar rjóminn fer að sjóða. 6) Maukið sósuna í matvinnsluvél eða notið töfrasprota en við það verður sósan falleg og silkimjúk. 7) Bætið nú hinum helmingnum af laxinum út í rjómasósuna. 8) Saltið eftir smekk 9) Nú er kominn tími til þess að láta renna af pastanum, blanda sósunni saman við og bera réttinn strax fram.

Þessa pizzu fékk ég fyrst á lítilli pizzeriu í Mílanó á árinu 2004. Pizzerian hét Yummi Yummi, rekin af rosknum hjónum sem nú eru hætt rekstri og í staðinn er kominn keðjustaður sem heitir Il Pomodorino. Þannig breytist allt, hverfur, fer og eitthvað allt annað kemur í staðinn. En þessi pizza er stórkostleg enda geta málin ekki farið á annan veg þegar maður er með pizzubotn, gráðost, grófsaxaðar valhnetur og rjóma. Þessi pizza er án sósu sem kallast á ítölsku "pizza bianca" eða hvít pizza. Frábær pizza í alla staði sem ég mæli eindregið með.
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Mozzarella 3) Valhnetur, grófsaxaðar 4) 150 gr gráðaostur, ég notast við gorgonzola piccante en að sjálfsögðu er hægt að notast við allar tegundir af gráðaosti 5) Ólífuolía 6) Rjómi
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Dreifið mozzarella yfir botninn. 4) Dreifið síðan grófsöxuðum valhnetunum og gráðaostinum í litlum bitum yfir pizzuna 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið hana inn í brennandi heitan ofninn. 6) Þegar u.þ.b. 2 mínútur eru eftir af eldunartímanum, takið pizzuna út úr ofninum, hellið yfir hana smá slettu af rjóma og stingið henni aftur inn. 7) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Mozzarella 3) Valhnetur, grófsaxaðar 4) 150 gr gráðaostur, ég notast við gorgonzola piccante en að sjálfsögðu er hægt að notast við allar tegundir af gráðaosti 5) Ólífuolía 6) Rjómi
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Dreifið mozzarella yfir botninn. 4) Dreifið síðan grófsöxuðum valhnetunum og gráðaostinum í litlum bitum yfir pizzuna 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið hana inn í brennandi heitan ofninn. 6) Þegar u.þ.b. 2 mínútur eru eftir af eldunartímanum, takið pizzuna út úr ofninum, hellið yfir hana smá slettu af rjóma og stingið henni aftur inn. 7) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
- Published on
Risotto með gráðaosti, á ítölsku risotto con gorgonzola, er virkilega bragðgóður réttur þar sem bragðið af gráðaostinum blandast vel saman við bragðið af gráðaostinum. Þetta er réttur sem bæði er einfalt og fljótlegt að búa til, akkúrat réttur sem hægt er að töfra fram á síðustu stundu. hérna er notast við hinn ítalska gorgonzola en að sjálfsögðu má einnig notast við þennan venjulega íslenska.
Hráefni fyrir fjórar
1) 400 gr risotto-grjón, t.d. arborio sem fást bæði í Víði, Krónunni og Hagkaup 2) ca. 1,5 líter af grænmetissoði 3) 2 stk. meðalstórir rauðlaukar 4) 2 msk ólífuolía 4) 60 gr smjör 5) Hálft hvítvínsglas (má sleppa en mæli ekki með því) 6) 150 gr gorgonzola 7) 60 gr parmesan (má sleppa) 8) salt 9) pipar
Aðferð
1) Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið smátt saxaðan rauðlaukinn við lágan hita í ca. 10 mínutur. Laukurinn má alls ekki verða brúnn heldur á að steikja hann þar til að hann verður mjúkur. 2) Bætið grjónunum á pönnuna, hækkið hitann, steikið í tvær mínútur og hrærið vel á meðan 3) Hellið hvítvíninu saman við og látið það sjóða upp. 4)Lækkið hitann og setjið út í eina ausu af soði á pönnuna og hrærið annað slagið. 4) Haldið áfram að bæta við soði eftir þörfum og hrærið annað slagið þar til grjónin eru tilbúinn, eftir ca 16-18 mínútur. 5) Saltið eftir þörfum. 6) Fjarlægið pönnuna af hitanum og hrærið fyrst smjörinu saman við og síðan gráðostinum. 7) Að lokum er það valkvætt hvort maður kjósa að bæta parmesan saman við blönduna góðu, örlítið magn af parmesan hefur nú oftast jákvæð áhrif á útkomuna.

Túnfiskur er enn þann dag í dag veiddur í hafinu suður af Ítalíu og fæst nýr túnfiskur á mörkuðum víða um Ítalíu. En þar sem nýr túnfiskur er mjög dýr þá eru ítölsku pastasósurnar oftast nær búnar til úr túnfiski úr dós. Þessi bragðgóði réttur heitir Spaghetti með túnfisk og tómötum, á ítölsku Spaghetti con tonno e pomodoro, er dæmi um hollan, bragðgóðan og matarmikinn rétt sem auðvelt er að búa til.
Hráefni
1) 500 gr spaghetti 2) 2 msk ólífuolía 3) 1 meðalstór laukur 4) 2 hvítlauksrif 5) 2 dósir af tómötum í dós frá góðum framleiðanda, t.d. Ciro eða Del Cecco 6) salt 7) pipar 8) 1 dós af túnfisk, ca. 200 gr 9) 2 msk saxað kapers 10) 4 msk söxuð steinselja.
Aðferð
1) Hitið ólífuolíuna á pönnu og mýkið í henni saxaðan lauk og hvítlauk. 2) Bætið saman við tómötum ásamt safa og látið þetta sjóða duglega í 10 mínútur. Hrærið öðru hverju. 3) Saltið og piprið eftir smekk. 4) Látið renna af túnfiskinum og skiptið honum í flögur. 5) Bætið túnfiskinum saman við ásamt smátt söxuðu kapersinu og látið þetta sjóða áfram í 10 mínútur. 6) Sjóðið pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. 7) Látið renna af pastanu, hellið sósunni út á og hrærið vel saman. 8) Bætið við saxaðri steinselju og berið réttinn strax fram.

Penne með kúrbít eða Penne con zucchine er einn af mínum uppáhaldsréttum. Þennan rétt eldaði ég fyrst í lítilli íbúð í Mílanó í kringum síðustu aldamót. Síðan þá hef ég eldað hann ótalsinnum, svo oft að gælunafnið "Kúrbíturinn" fór að festast við mig. En þess má geta að fáeinir meistarar kalla mig þessu nafni enn þann dag í dag. En burt séð frá þeirri sögu þá er hér um að ræða virkilega ferskan og bragðgóðan rétt sem tiltölulega fljótlegt er að matbúa, mæli eindregið með honum.
Hráefni
1) 500 gr penne 2) 1 kg kúrbítur 3) 1,5 dl ólífuolía 4) salt 5) pipar 6) 50 gr parmesan 7) 250 gr mozzarella, tvær kúlur 8) 2 egg
Aðferð
1) Skerið kúrbítinn í þunnar sneiðar, c,a, 3-4 mm en ekki afhýða hann. 2) Steikið hann í ólifuolíunni en ofsteikið þær ekki. Þær eiga aðeins að vera mjúkar og fagurgrænar. 3) Saltið kúrbítssneiðarnar þegar þær eru tilbúnar og haldið þeim heitum. Geymið ólífuolíuna. 4) Rífið parmesan og skerið mozzarellakúlurnar i litla teninga. 5) Sjóðið pastað í söltuðu vatni, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. 6) Þeytið eggin saman í skál. 7) Látið renna af pastanu um leið og það er soðið og setjið það brennandi heitt í heita skál. 8) Hrærið mozzarellaostinum saman við pastað og verið snögg svo osturinn nái að bráðna saman við heitt pastað. 9) Bætið nú eggjunum saman við ásamt kúrbítnum og ólífuolíunni og hrærið duglega svo eggin stirðni. 10) Að lokum er parmesanostinum bætt saman við ásamt því að salta og pipra eftir smekk. 11) Blandið þessu öllu vel saman og berið réttinn strax fram.

Pizza Diavolo sem útleggst Djöflapizza á íslensku er stórgóð pizza sem að sjálfsögðu á að vera svolítið sterk. Hérna notast ég við salame piccante frá Tariello sem er Ítali, búsettur á Íslandi, sem framleiðir stórkostleg kjötálegg eftir aldagömlum ítölskum hefðum.
Munið svo að panta ekki pepperoni á pizzeríu á Ítalíu ef ykkur langar í rauninni ekki í papriku, pantið endilega salame piccante þar sem peperone þýðir paprika á ítölsku.

1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Salame Piccante, hér er notast við álegg frá Tariello 5) Ólífuolía.
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna og því næst þunnskornum sneiðum af Salame Piccante 4) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 5) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru náttúrulega yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.

Risotto alla Parmigiana er bragðgóður réttur, ættaður frá héraðinu Emilia-Romagna. Það má segja að þessi réttur sé grunnurinn að öllum öðrum réttum sem tengja sig við risotto því út í þennan rétt er hægt að bæta nánast hverju sem, t.d. sveppum, aspas, tómötum, saffran o.s.frv.
Hráefni
1) 500 gr risotto-grjón, helst carnaroli en annars arborio 2) ca. 1,5 líter af kjötsoði 3) 1 laukur 4) 2 msk ólífuolía 4) 120 gr smjör 5) 100 gr Parmigiano Reggiano 6) salt
Aðferð
1) Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið saxaðan laukinn við lágan hita í ca. 10 mínutur. Laukurinn má alls ekki verða brúnn heldur á að steikja hann þar til að hann verður gegnsær. 2) Bætið grjónunum á pönnuna, hækkið hitann, steikið í tvær mínútur og hrærið vel á meðan 3) Lækkið hitann og setjið út í eina ausu af soði á pönnuna og hrærið annað slagið. 4) Haldið áfram að bæta við soði eftir þörfum og hrærið annað slagið þar til grjónin eru tilbúinn, eftir ca 16-18 mínútur. 5) Saltið eftir þörfum. 6) Fjarlægið pönnuna af hitanum og hrærið smjörinu saman við. 7) Að lokum er ostinum bætt við og öllu hrært vel saman.

Michelin-kokkurinn, Davide Scabin, eldar hér fallegan, girnilegan og nýstárlegan rétt, svolítið í anda Coteletta alla Milanese.
- Published on
Risotto alle verdure er hollur, ferskur og litríkur fyrsti réttur, bæði einfaldur og fljótlegur. Það er hægt að notast við flest grænmeti við gerð þessa réttar en hérna nota ég eggaldin, kúrbít, gulrætur og sellerí ásamt tómötum.
Hráefni
1) 340 gr risotto-grjón, ef þau eru ekki til þá er best að notast við arborio 2) 1-1,5 líter grænmetissoð 3) 100 gr eggaldin 4) 100 gr kúrbítur 5) allt að 100 gr gulrætur 6)100 gr paprika 7) 150 gr tómatar 8) 1 laukur 9) 2 hvítlauksgeirar 10) 6 msk ólífuolía 11) 20 gr smjör 12) 1 tsk sykur 13) 30 gr Parmigiano Reggiano 14) salt 15) pipar 16) steinselja
Aðferð
1) Best er að byrja á því að saxa allt grænmetið smátt, hversu smátt fer eftir smekk en best er að saxa gulræturnar sérstaklega smátt. 2) Skerið tómatana í fernt, setjið þá í skál og dreifið yfir þá einni teskeið af sykri. 3) Hitið annan helminginn ólífuolíunni á pönnu og steikið helminginn af saxaða lauknum við lágan hita í u.þ.b. 10 mínútur. Laukurinn má alls ekki verða brúnn heldur á að steikja hann þar til að hann verður gegnsær. 4) Bætið þá öllu grænmetinu á pönnuna, saltið og piprið eftir smekk og látið svo steikjast á meðalhita í 15 mínútur eða þar til grænmetið er orðið mjúkt en samt smá stinnt undir tönn, leggið til hliðar. 5) Hitið ólífuolíu á annarri pönnu og steikið hinn helminginn af saxaða lauknum við lágan hita í u.þ.b. 10 mínútur. Eins og áður má laukurinn alls ekki verða brúnn heldur á að steikja hann þar til að hann verður gegnsær. 6) Bætið grjónunum á pönnuna, hækkið hitann, steikið í tvær mínútur og hrærið vel á meðan 7) Lækkið hitann aftur og hellið nú hvítvíninu út á grjónin og látið það sjóða upp. 8) Setjið út í eina ausu af soði á pönnuna, hrærið vel. 9) Haldið áfram að bæta við soði og hrærið annað slagið í ca 10 mínútur eða þar til eldunartími grjónanna er hálfnaður. 10) Bætið þá öllu grænmetinu saman við grjónin og hrærið öllu vel saman. 11) Haldið áfram að bæta við soði og hrærið stöðugt í grjónunum. 12) Saltið eftir þörfum. 13) Þegar grjónin eru fullsoðin er tómötunum bætt út í blönduna góðu og öllu hrært vel saman. 14) Fjarlægið pönnuna af hitanum og hrærið fyrst smjörinu saman við, svo ostinum og að lokum smátt saxaðri steinseljunni og berið réttinn fram.