Published on
Pizzadeigið er eitt af aðalatriðunum til þess að búa til góða pizzu. Þetta deig finnst mér vera næstum því fullkomið þar sem það einfalt, fljótlegt og auðvelt er fletja það út, hvort sem þú vilt hafa pizzuna þunna eða þykka. Uppskriftin miðast við tvær þunnar 12 tommu pizzur.
Picture
Hráefni
1) 335 gr hveiti 2) 1 tsk sykur 3) 8 gr þurrger 4) 6 gr salt 5) 2 msk ólífuolía 6) 200 ml volgt vatn

Aðferð
1) Leysið gerið upp í helmingnum af volga vatninu. 2) Bætið sykrinum við og hrærið saman við. 3) Leysið saltið upp í hinum helmingnum af volga vatninu. 4) Bætið ólífuolíunni út í saltvatnið og hrærið vel saman. 5) Setjið hveitið í stóra skál 6) Setjið allan vökvann út í hveitið og hnoðið vel saman, fyrst í skálinni en síðan á borðinu. Hnoðið deigið þar til það er orðið slétt og mjúkt. 7) Myndið því næst bolta úr deiginu, leggið það aftur í skálina og látið hefast við stofuhita í 1-1,5 klst. Gott er að leggja rakan klút yfir skálina á meðan deigið er að hefast.
16 Comments
Gautur - 10 years ago
Sæll granni.
Ég hef prófað óteljandi uppskriftir af pizzapotnum en ég verð að segja að þessi uppskrift er sú allra besta sem ég hef gert.

Takk takk
Gautur GG
Kjartan - 10 years ago
Sæll nágranni,
Virkilega gaman að heyra að þér líki svona vel við uppskriftina af pizzabotninum :-)
Stefán - 10 years ago
Afar gott pizzadeig og einfalt að búa til. Finnst líka hægt að gera aðeins meira en 2 x 12 tommur, amk ef maður hefur þær extra þunnar eins og ég vill. Grillaðar heimabakaðir pizzur eru með því besta sem hægt er að bjóða upp á.
Takk fyrir frábæra síðu.
Dóri stóri - 9 years ago
Takk fyrir frábæra uppskrift Kjartan
sæll - 9 years ago
þetta er geggjuð uppskrift ættla altaf að nota hana.
Benedikt - 8 years ago
Þetta er mjög fín uppskrift.
Agnar - 8 years ago
Ég hef áframsent uppskriftina í gæðaeftilitsferli as in kæró er að skoðidda og kanski pítsa í kvölmat jei!
Sverrir Rafn - 7 years ago
Snildar uppskrift! Aðal uppskriftin af pizzadegi sem maður þarf! Sósan er líka snild
Linda B - 7 years ago
rosalega góð uppskrift, nota hana alltaf. Takk fyrir :)
Valrun Eva Vilhelmsdottir - 7 years ago
hversu lengi á pitsan að vera í ofninum og á hvaða stillingu?
Burkni Birgisson - 6 years ago
Mjög spenntur að prufa þessa uppskrift. Geri pizzur reglulega og á lítinn pizza-ofn sem ég nota alltaf. Læt .þig vita vinur ;)

Burkni
Rebekka - 5 years ago
Dásamleg uppskrift. Sú besta sem ég hef prófað!!
Trausti Jonsson - 5 years ago
Alveg sjúklega góður pizzabotn! Ofur einfalt deig og svo sósan...! Þvílík snilld!
Takk fyrir okkur Kjartan! Þessar uppskriftir breyttu pizzaföstudögunum okkar! :)
Jóna - 4 years ago
Ég finn ekki uppskrift að sósu sem þó fólk er að tala um, hvar myndi hún vera?
Minitalia - 4 years ago
Hæhæ,
Það hlýtur að vera pizzasósan, hérna er linkur á hana: http://www.minitalia.is/matur/dsamleg-pizzassa-einfaldleika-snum

Kveðja, Kjartan
Kiddi Tomm - 6 months ago
Hææ Narti smarti :) fannst vera kominn tími á að einhver lofaði pizzadeigið þitt og þar með geri ég það núna. Er að henda í einn skammt og hlakka til útkomunnar.
Kveðja, K.Tomm