- Published on
Hérna er skemmtilegt myndband þar sem fjallað er um10 hluti sem flest okkar elskum við Ítalíu. Hver elskar ekki pasta, pizzur, kaffi, ólífuolíu, trufflusveppi, vín, parmesan, balsamik edik, ítalskan ís og hráskinku?
- Published on
Panna cotta er einn allra vinsælustu eftirréttum Ítalíu, upprunanlega frá héraðinu Piemonte sem er frægt fyrir vín á borð við Barolo og Barbaresco. Panna Cotta er einfaldur, fljótlegur og bragðgóður eftirréttur. Í grunninn er rétturinn alltaf eins en síðan má bæta við hinu og þessu og fá út óendanlega margar útgáfur af honum. Hérna er það kaffi sem leikur aðalhlutverkið og fyrir kaffiunnendur þá getur þessi ekki klikkað.
Hráefni
Panna cotta
1) 1/2 stöngull af vanillu 2) 100 gr sykur 3) 150 ml af sterku kaffi, helst úr mokka- eða espressovél 4) 8 gr matarlím (3-4 blöð) 5) 500 ml rjómi
Kaffisósa
1) 100 gr súkkulaði 2) 80 ml af sterku kaffi, helst úr mokka- eða espressovél
Aðferð
1) Leggið matarlímið í kalt vatn í ca. 10 mín. 2) Skerið innan úr vanillustönglinum 3) Hellið rjómanum í lítinn pott. 4) Bætið út í rjómann bæði vanillufræjunum ásamt stönglinum sjálfum. 5) Setjið allan sykurinn út í rjómann. 6) Hitið við lágan hita en án suðu. 7) Hellið blöndunni í gegnum fíngert sigti. 9) Vindið vel matarlímsblöðin, setjið þau út í rjómann og hrærið vel þar til þau eru algjörlega uppleyst í rjómanum. 10) Hellið kaffinu síðan út í blönduna góðu og hrærið vel saman. 11) Undirbúið sex mót (ca. 125 ml. hvert) með því að bleyta þau að innan með vatni eða þínum uppáhalds líkjör. 12) Hellið blöndunni nú í mótin sex, gott er að nota ausu við þetta. 13) Setjið mótin inn í ískáp og leymið þar í að minnsta kosti 4-6 klukkustundir. 14) Til þess að ná hinu eina sanna Panna cotta úr forminu er best að dýfa forminu ofan í heitt vatn í ca. 2-3 sek. Snúa því svo á hvolf ofan á disk, halda því saman og hrista það nokkrum sinnum. Endurtakið eftir þörfum. 15) Bræðið súkkulaðið sem á að fara í sósuna í litlum potti, bætið kaffinu við, hrærið vel saman og hellið varlega yfir herlegheitin.

Pizza með ætisþistlum, döðlum og rjómaosti hljómar mögulega framandi en hún kemur á óvart, áleggin spila virkilega vel saman og niðurstaðan pizza sem gengur upp að öllu leyti.
Hráefni
1) pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) mozzarella 4) Ætisþistlar 5) döðlur, skornar í litla bita 6) rjómaostur 7) ólífuolía
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Setjið síðan áleggin á pizzuna, þ.e. fyrst ætisþistlana, svo döðlurnar og að lokum rjómaostinn. Gott er að notast við teskeið þegar rjómaostinum er dreift á víð og dreif um pizzuna. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 6) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru yndislegt fyrirbæri og glas af léttu og ávaxtaríku rauðvíni gera þær einungis yndislegri.

Panna cotta er einn allra vinsælustu eftirréttum Ítalíu, uppruninn frá svæðinu Langhe sem staðsett er í héraðinu Piemonte sem er frægt fyrir vín á borð við Barolo og Barbaresco. Panna Cotta er einfaldur, fljótlegur og bragðgóður eftirréttur. Í grunninn er rétturinn alltaf eins en síðan má bæta við hinu og þessu og fá út óendanlega margar útgáfur af honum. Súkkulaði er í aðalhlutverki í þessari útgáfu sem er sannkölluð veisla fyrir súkkulaðisælkerann.
Hráefni, handa fjórum
1) 150 gr af súkkulaði af góðri tegund, allt eftir smekk 2) 100 gr sykur 3) 8 gr matarlím, c.a. 3-4 blöð)4) 500 ml rjómi 5) Súkkulaðispænir til skreytingar
Aðferð
1) Leggið matarlímið í kalt vatn í ca. 10 mín. 2) Bræðið súkkulaðið í góðum potti 3) Hellið rjómanum í lítinn pott og hitið við lágan hita en án suðu. 4) Bætið rjómanum rólega út í brædda súkkulaðið og hrærið vel á meðan. 5) Setjið allan sykurinn út í blönduna góðu og hitið við lágan hita en án suðu. 6) Vindið vel matarlímsblöðin, setjið þau út í blönduna og hrærið vel þar til þau eru algjörlega uppleyst. 7) Undirbúið fjögur mót með því að bleyta þau að innan með vatni. 8) Hellið blöndunni nú í mótin fjögur, gott er að nota ausu við þetta. 9) Setjið mótin inn í ískáp og geymið þar í að minnsta kosti 5-6 klukkustundir. 10) Til þess að ná hinu eina sanna Panna cotta úr forminu er best að dýfa forminu ofan í heitt vatn í ca. 2-3 sek. Snúa því svo á hvolf ofan á disk, halda því saman og hrista það nokkrum sinnum. Endurtakið eftir þörfum. 11) Að lokum má skreyta réttinn með súkkulaðispæni.

Eggaldinrúllur með mozzarella, á ítölsku kallast þessi réttur Involtini di melanzane alla parmigiana, er dásamlegur forréttur. Það ríkis nokkur óvissa um uppruna þessa réttar, hvort hann sé uppruninn frá Emilia Romagna, Campania eða Sikiley. En þær þrætur hafa ekki áhrif á þá staðreynd að hér er um að ræða dásamlega góðan rétt sem er tilvalinn sem forréttur eða sem smáréttur á hlaðborðið.
Hráefni, handa fjórum
1) 2 stk langir eggaldin 2) 250 gr mozzarella 3) Ólífuolía 4) 50 gr parmesan 5) 1 dós af tómötum í dós frá góðum framleiðanda, t.d. Cirio eða Del Cecco 6) oreganó 7) 2 hvítlauksrif 8) Salt
Aðferð
1) Skerið eggaldinin í þunnar sneiðar, ca. 3-4 mm. 2) Grillið eggaldinin á vel heitu mínútugrilli þar til hann fer að mýkjast ögn með fallegum línum eftir grillið 3) Á meðan verið er að grilla eggaldinin þá er kjörið að gera sósuna. 4) Hitið ólífuolíu á pönnu eða potti og bætið hvítlauknum út í olíuna. 5) Síðan er að bæta tómötunum, saltið og látið malla í c.a. 10-15 mín á vægum hita. 6) Bætið loks við oregano eftir smekk, smakkið sósuna og saltið ef með þarf. 7) Rífið mozzarellaostinn smátt 8) Þegar búið að grilla eggaldinið er komið að því að búa til eggaldinrúllurnar 9) Setjið bökunarpappír á ofnplötu og hellið smá olífuolíu yfir hann, samt ekki of mikið. 10) Takið sneið af eggaldin, hellið smá sletu af ólífuolíu, ögn af sjávarsalti og loks mozzarella. Að þessu loknu er eggaldinsneiðinni rúllað upp eins og sést á myninni hér fyrir ofan. Að síðustu er sma magni af rifnum parmesan stráð yfir rúlluna. Ef erfitt reynist að halda rúllunni saman er hægt að festa hana t.d. með tannstöngli. 11) Síðan þegar allar eggaldinrúllurnar eru komnar á ofnplötuna er hún sett inn í 170 gráðu heitan ofn í u.þ.b. 7-8 mínútur, kíkið á þær annað slagið því við viljum ekki að osturinn fari út um allt.
Flottur forréttur sem er gott að njóta í faðmi fjölskyldu og vina.

Vínhúsið Cecchi er eitt af þessum gamalgrónu í Toscana, stofnað árið 1893 af Luigi Cecchi og fljótlega fór sonur hans, Cesare Cecchi, að starfa við hlið föður síns. Vínhúsið Cecchi hefur ávallt lagt mikla áherslu á að framleiða klassísk og vönduð vín sem trú eru uppruna sínum. Vínið sem hér um ræðir, Cecchi Chianti Classico DOCG 2011, er þar engin undantekning. Það er framleitt 90% úr þrúgunni Sangiovese en afgangurinn samanstendur af hinum ýmsu þrúgutegundum. Vínið er fyrst látið þroskast á eikartunnum í 6 mánuði og svo látið þroskast í að minnsta kosti 2 mánuði á flösku áður en það er sett á markað.
Lýsing: Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, miðlungstannín. Rauð ber, skógarbotn.
Einkunnir ýmissa fagaðila:
James Suckling: 87/100 – Wine Enthusiast: 87/100 – Vinotek: 4 stjörnur.
Cecchi Chianti Classico DOCG 2011 fæst í vínbúð allra landsmanna og kostar kr. 2.595. Hér er um að ræða virkilega gott Chianti Classico vín á mjög góðu verði.
Njótið í botn með bragðmiklum pastasósum og jafnvel með góðri nautasteik, lambakjöti eða léttri villibráð.

Það var í kringum 1889 að Margherita of Savoy, drottning Ítala, ferðaðist um gjörvalla Ítalíu ásamt eiginmanni sínum, Umberto I. Á ferð sinni um landið sá hún mikið af sveitafólki leggja sér til munns stór, flöt brauð sem seld voru á strætum og mörkuðum, svokallaðar pizzur. Drottningin varð forvitin, smakkaði brauðið og varð yfir sig hrifin. Eftir þetta fékk hún sér ávallt pizzu þegar hún fór út á meðal þegna sinna. Fyrir vikið varð hún mjög vinsæl meðal þegna sinna þó sumum fyndist nú ekki við hæfi að drottningin borðaði fábreyttan almúgamat.
Svo mikil var ást drottningarinnar á þessum flatbrauði að hún kallaði í pizzabakarann Rafaelle Esposito, bað hann að baka fyrir sig úrval af pizzum og koma með þær í höllina til sín, henni til gleði og ánægju. Rafaelle Esposito ákvað að baka mjög sérstaka pizzu að þessu tilefni til heiðurs drottningar. Rafaelle Esposito bakaði pizzu með tómötum, mozzarella og ferskri basilíku sem endurspegla litina í ítalska fánanum, þ.e. rauður, hvítur og grænn. Þessi pizza sló í gegn hjá drottningu og þegar það barst fljótt út að þessi pizza væri eftirlæti drottningar þá varð hún fljótt vinsæl víða um Ítalíu. Í dag hefur Pizza Margherita farið sigurför um heim allan og má með sanni segja að hún sé frægasta pizza veraldar.

1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Hráskinka 5) Klettasalat 6) Parmesan 7) Ólífuolía.
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 5) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 6) Setjið að lokum 2-3 blöð af ferskri og fallegri basilíku og berið fram.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru náttúrulega yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.

Pizza con crudo, rucola e grana er pizza þar sem úrvals álegg fá að njóta sín til hins ítrasta, þ.e. hráskinka klettasalat og parmesan. Það er eins og áleggin á þessari pizzu séu bæði gerð fyrir hvert annað og virkilega bæti hvert annað sem gerir það að verkum að þessi pizza er einfaldlega frábær.
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Hráskinka 5) Klettasalat 6) Parmesan 7) Ólífuolía.
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 5) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 6) Takið pizzuna úr ofninum og raðið fyrst á hana hráskinku, svo klettasalatinu og stráið að lokum yfir grófrifnum parmesanostinum.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.

Kjúklingur veiðimannsins, eða Pollo alla cacciatora á ítölsku, er hefðbundinn aðalréttur frá Toscana. Þessi einfaldi réttur er þekktur víða um Ítalíu og þá sérstaklega í hérðunum í norðri. Sum staðar eru gulrætur og/eða sveppir hafðir með í þessum rétti. Þetta er einn af þessum réttum sem er uppruninn er frá hinu fátæka eldhúsi þar sem ósköp venjulegum kjúklingi er breytt á einfaldan hátt í dásamlegan veislumat.
Hráefni
1) 1 kjúklingur, skorinn í stóra bita 2) 1 laukur 3) 3 hvítlauksrif, heil en kramin með hníf 4) 2 greinar af rósmarín 5) 3-4 leggir af sellerí, skornir í stóra bita 6) 1-2 heilir þurrkaðir chillibelgir, fer eftir stærð þeirra 7) 1 dós af tómötum í dós frá góðum framleiðanda, t.d. Cirio eða Del Cecco 8) 1 glas af rauðvíni 9) 100 ml ólífuolía 9) salt og pipar 10) Steinselja
Aðferð
1) Setjið ólífuolíuna í pott ásamt smátt söxuðum lauk, hvítlauknum og rósmaríngreinunum og mýkið í 4-5 mínútur 2) Takið ysta lagið af selleríleggjunum, skerið þá í stóra bita og bætið þeim út í pottinn. 3) Bætið kjúklingabitunum út og pressið þá vel ofan í pottinn þannig að þeir steikist vel. 4) Saltið pínulítið 5) Látið kjúklinginn steikjast í ca. 10 mín eða þangað til hann er farinn að verða svolítið brúnn 6) Bætið út í glasi af rauðvíni og látið sjóða upp. 5) Bætið út í dós af tómötum ásamt 1 msk af tómatpúrru. 7) Setjið chillibelgina heila út í pottinn á þessum tímapunkti 8) Látið malla við lágan hita í 40-45 mínútur. 9) Smakkið af og til, saltið og piprið eftir þörfum. 10) Bætið saxaðri steinseljunni við í lok eldunartímans og berið réttinn strax fram.
Njótið vel í faðmi fjölskyldu og vina.

Lago di Como
Lago di Como er gríðarlega fallegt vatn við rætur Alpanna í 50 km fjarlægð frá Mílanó. Við vatnið er að finna borgina Como en þar er einnig að finna sjarmerandi bæi á borð við á borð Menaggio, Bellagio og Varenna. Vatnið er ennfremur umkringt híbýlum ríka fólksins ásamt vínekrum og fallegum görðum. Það er hægt að taka lest frá lestarstöðinni Cadorna og tekur ferðin c.a. 50 mínútur.

Lago Maggiore
Lago Maggiore er fallegt vatn sem nýtur sín vel í sínu stórfenglega umhverfi. Við vatnið má finna bæina Stresa og Verbania og ennfremur eyjurnar Isole Borromee sem samanstanda af nokkrum eyjum, þ.e. Isola Bella, Isola Madre, Isola dei Pescatori og Isolino di San Giovanni. Lago Maggiore er paradís fyrir göngu-og hjólreiðafólk þar sem umhverfis vatnið eru endalausar göngu-hjólreiðarleiðir.

Bergamo
Borgin Bergamo er heillandi borg em skiptist í tvo hluta, annars vegar gamla hlutann sem kallst „Bergamo Alta“ og hins vegar nýja hlutann sem kallast„Bergamo bassa“. Það er virkilega gaman að ganga um þröngar götur, skoða litlu verslanirnar og upplifa ekta stemmingu gamla bæjarins. auðvelt er að taka lest til Bergamo, t.d. frá lestarstöðvunum Centrale, Porta Garibaldi eða Lambrate, og tekur ferðin c.a. 50 mínútur.

Lago di Garda
Gardavatnið liggur í skjóli Alpanna, rómað fyrir náttúrufegurð sína og mikla fjölbreytni í landslagi. Endalausar vínekrur, ólífutré og sedruviður gerir umhverfi vatnsins óendnlega fagurt. Dásamlegir bæir á borð við Sirmione, Desenzano og Gardone eru svo sannarlega þess virði að sækja heim. Gardaland er alltaf heillandi fyrir yngri kynslóðina og náttúrulega líka fullorðna fólkið. Hægt er að taka lest frá lestarstöðinni Centrale og tekur ferðin u.þ.b. 65-85 mínútur.

Monza
Monza er áhugaverð borg með fallegum miðbæ og yndislegum görðum. Borgin er henna þekktust fyrir að kappaakstursbrautina sína en þar fer fram keppni í formúlu 1 og Moto GP ásamt fleiri minni keppnum á hverju ári. Það er auðvelt að komast til Monza þar sem það fara títt og ótt lestir frá Stazione Centrale og Stazione Garibaldi tekur ferðin c.a. 15 mínútur.

Serravalle Scrivia
Í tæplega klukkustundar akstursfjarlægð frá Milanó er að finna Serravalle Scrivia, stærsta designer outlet í Evrópu. Þar er að finna 180 outlet frá mörgum af frægustu vörumerkjum Ítalíu, t.d. Dolce & Gabbana, Diesel, Roberto Cavalli, Ferragamo, Tommy Hilfiger og Prada. Sérstakar rútur ganga á milli Mílanó og Serravalle Scrivia en allar nánari upplýsingar um þær er að finna hér.