- Published on
Þessa pizzu má finna á mörgum pizzeríum á Ítalíum og þó víðar væri leitað. Þetta er í rauninni grænmetispizza þar sem notast er við ferskasta grænmeti hverrar árstíðar þó oftast sé notast við eggaldin, kúrbít, papriku og tómata. Við setjum fyrst ólífuolíu á grænmetið, söltum það vel og látum það standa um stund áður en við grillum það á mínútugrilli eða grillpönnu. Með því að grilla grænmetið á þennan hátt kallar maður fram ómótstæðilegt bragð af grænmetinu sem tekur þessa pizzu upp í allt aðrar hæðir. Þetta er óendanlega góð pizza sem sýnir manni og sannar að grænmetisréttir geta verið frábærir.
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Grillaður eggaldin 5) Grilluð paprika 6) Grillaður kúrbítur 7) 2-3 tómatar 8) Ólífuolía 9) Sjávarsalt
Aðferð
1) Byrjið á því að skera eggaldinið, paprikuna og kúrbítinn í sneiðar 2) Hellið yfir grænmetið ólífuolíu, saltið og látið standa um stund. 3) Grillið eggaldinið, paprikuna og kúrbítinn á mínútugrilli eða grillpönnu og látið það mýkjast vel. 4) Fletjið út pizzudeigið 5) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 6) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 7) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna. 8) Raðið grillaða grænmetinu yfir pizzuna ásamt sneiddum tómötum og setjið hana síðan inn í heitan ofninn. 9) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.

Vínhúsið La Spinetta var stofnað í bænum Castagnole Lanze í héraðinu Piemonte árið 1977 af hjónunum Giuseppe og Lidia Rivetti en í dag hafa þrír synir þeirra tekið við keflinu, þeir Bruno, Carlo og Giorgio. Vínhúsið La Spinetta hefur stækkað töluvert frá stofnun og í dag framleiðir það gæðavín bæði í Piemonte og Toscana.
Vínið La Spinetta Pin er nefnt í höfuðið á Guiseppe Rivetti, stofnanda vínhússins, en gælunafn hans var „Pin“. Vínið er 65% framleitt úr þrúgunni Nebbiolo en 35% úr þrúgunni Barbera d‘Asti. Það er látið þroskast í 16-18 mánuði á nýjum frönskum eikartunnum áður en það er látið þroskast í tvö mánuði að auki á stáltönkum. Síðan hefur vínið látið þroskast í þrjá mánuði á flösku áður en það var sett á markað. Þetta vín getur batnað töluvert við geymslu.
Lýsing: Dökkkirsuberjarautt. Mjúk meðalfylling, þurrt, ferskt, þurrkandi tannín. Berjablámi, jörð, krydd, plóma, bláber, brómber.
Einkunnir ýmissa fagaðila:
Stephen Tanzer: 91/100– Vinous Antonio Galloni: 91/100 – Wine Spectator: 87/100 – CellarTracker: 90/100
La Spinetta Pin Monferrato Rosso DOC 2005 fæst annars vegar Heiðrúnu og hina vegar í Kringlunni og kostar litlar 6.877 krónur.
Mikilvægt er að umhella víninu með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara til að gefa víninu tækifæri til að opna sig. Njótið vel með rauðu kjöti, villibráð eða þroskuðum ostum.

Það er margt í boði þegar kemur að næturlífi í Mílanó og allir geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi, hvort sem maður ætlar að kíkja í eitt glas á rólegum bar eða dansa undir dúndrandi takti fram á rauða nótt. Það er alltaf mikið líf á miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardags- og sunnudagskvöldum en rólegra er yfir borginni hina daga vikunnar. Á flestum börum borgarinnar liggur fram tímaritið Zero2 sem er nokkurs konar leiðarvísir um næturlíf Mílanóborgar.
Margir af heitustu stöðum borgarinnar er að finna í nágrenni Corso Como, t.d. staði á borð við Loolapaloosa, Tocqueville 13 og Hollywood ásamt fleiri stöðum sem sprottið hafa upp í nágrenninu á undanförnum árum. Aðrir staðir eru t.d. Magazzini Generali, Rocket Milano (sem var í miklu uppáhaldi hjá mér fyrir u.þ.b. 10 árum síðan), Shu og Old Fashion Café. Oft geta myndast langar raðir fyrir utan þessi diskótek, gestalistarnir langi og mikið tekið fram fyrir röð. Það er t.d. vonlaust fyrir fjóra stráka að komast inn einir og sér, betra að vera fjórir strákar og tuttugu stelpur saman í hóp.
Í dag getur engin kallað sig tískuhönnuð í Mílanó nema vera búinn að setja á fót veitingastað, kaffihús, skemmtistað eða bar. Hérna erum við að tala um staði á borð við Armani Café, Cafe Trussardi, Just Cavalli Café, Gold by Dolce Gabbana og Gucci Café. Þetta er staðir sem eiga að endurspegla ímynd vörumerksins og það sem merkið á að standa fyrir. Það er að mörgu leyti áhugavert að kíkja á þessa staði en líklega er víða hægt að fá betri mat fyrir mun minni pening.
Þeir sem vilja kíkja á tónleika þá er að finna í borginni staði á borð við Scimmie, Rolling Stone og Alcatraz. Oft er hægt að finna góða tónleika fyrir ekki svo mikinn pening, kíkið á úrvalið á TicketONE.it.
Mikið úrval er af börum og skemmtistöðum við Navigli ásamt kaffi- og veitingahúsum sem opin eru langt fram á kvöld, t.d. er þar að finna barir á borð við Bond, Le Biciclette, Viola og Luca e Andrea. Í Navigli myndast oft skemmtileg stemming undir berum himni þar sem veitingahús eru oft með borð úti og mikið af fólki á röltinu. Síðan er að finna flotta bari í kringum Viale Monte Nero, t.d. Mom Café og Frescobar. Í Brera-hverfinu er ennfremur að finna ögn rólegri en engu að síður skemmtilega bari þar sem hægt er að setjast niður í einn drykk eða tvo eða jafnvel miklu fleiri.

Hér hefur verið stiklað á stóru um skemmtana- og næturlíf Mílanó. Það ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi þegar farið er út á lífið í borginni því af nógu er að taka.
- Published on
Spaghetti aglio, olio e pereroncino sem útleggst á íslensku Spaghetti með hvítlauk, olíu og chilli er ofureinfaldur réttur sem ættaður er frá héraðinu Abruzzo. Þennan einfalda rétt er hægt að töfra fram á örskotsstundu og hráefnin nánast alltaf til á hverju einasta ítalska heimili, tilvalinn skyndiréttur ef hungrið kallar.
Hráefni
1) 500 gr spaghetti 2) 1 dl ólífuolía 3) 4 hvítlauksrif, smátt söxuð 4) 2 meðalstórir chillibelgir, smátt saxaðir 5) Salt 6) 3 msk söxuð steinselja
Aðferð
1) Sjóðið pastað í söltuðu, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. 2) Hitið á meðan ólífuolíuna og setjið hvítlaukinn út í ásamt chillibelgjunum. Steikið í nokkrar mínútur eða allt þar til hvítlaukurinn orðinn gullinn 3) Látið renna af pastanu um leið og það er soðið, og setjið það í skál. 4) Hellið sósunni brennheitri út á pastað og blandið vel saman. 5) Bætið að lokum við saxaðri steinselju og berið réttinn strax fram.
Njótið vel í góðra vina hópi.

Það er gott að fara út að borða í Mílanó, mikið og fjölbreytt framboð af veitingastöðum, kaffihúsum og börum. En að sjálfsögðu eru staðirnir mismunandi góðir og verðlagið upp og niður allan skalann. Langflestir af veitingastöðum borgarinnar bjóða upp á hið ítalska eldhús en að sjálfsögðu er líka að finna veitingastaði í borginni frá öllum heimshornum.
Flestir Ítalir snæða ekki matarmikinn morgunmat eins og við þekkjum hann. Þeir kíkja við á barnum sínum, kjafta við kaffibarþjóninn sinn og fá sér cappuccino og briosce sem er ítalska útgáfan af því sem við Íslendingar köllum smjördeigshorn.
Hádegisverður er oftast snæddur á milli kl. 11.30 og 14. 30 og bjóða mörg veitingahús upp á hádegismatseðil sem er breytilegur frá degi til dags, kallast á ítölsku „menu fisso“, og á góðum veitingahúsum getur maður oft fengið mikið fyrir peninginn.

Það er í sjálfu sér ekki farið mjög seint út að borð í Mílanó líkt og t.d. í Róm eða Flórens. Í Mílanó er kvöldverður oftast nær snæddur á milli kl. 19.30 og 21.30. Oft er kíkt á bar í aperitivo fyrir kvöldverð en sú hefð hefur skapast í borginni að á milli kl. 19.00 og 21.00 er hægt að fá sér drykk og á sama tíma gæða sér á skemmtilegum smáréttum. Þessi skemmtilega hefði er tilvalin til þess að æra hungrið í manni rétt fyrir matinn, kíkja á mannlífið og byrja kvöldið snemma. Fátækir stúdentar í borginni líta oft á aperitivo sem máltíð í sjálfu sér og á meðal þeirra verða barir með góðum aperitivo oft frægir á örskotsstundu.
Nánast öll veitingahús í borginni innheimta svokallað borðgjald sem er oftast tvær evrur á mann. Ítalír gefa oftast ekki þjórfé á veitingastöðum og börum, en að sjálfsögðu má gefa þjórfé ef maður hefur fengið virkilega góða þjónustu.

Hérna koma nokkrar góðar pizzeríur sem ég þekki vel af eigin raun:
La Fabbrica
Hérna er hægt að gæða sér á mjög góðum pizzum í flottu umhverfi og skemmtilegri stemmingu.
Pizzeria Tradizionale
Flott staður sem býður ekki einungis upp á góðar pizzur heldur er hægt að fá góðan mat af fjölbreyttum matseðli.
Pizzeria del Ticinese
Lítill staður sem býður upp á virkilega góðar pizzur í notalegu og fallegu umhverfi. Mikil áhersla lögð á uppruna hráefnanna og að þau séu framleidd á sem náttúrulegastan hátt.
Og svo koma hérna fáeinir veitingastaðir sem ég get mælt með:
Officina 12
Töff staður sem býður upp á góðan mat í góðri stemmingu. Stór og flottur bar í miðjum staðnum þar sem gaman er að setjast niður í drykk meðan beðið er eftir borði.
Trattoria Toscana
Trattoria Toscana er sambland af góðum veitingastað og skemmtilegum bar sem býður upp á gott "aperitvio". Látið ekki útlit staðarins fæla ykkur frá, kíkið inn og staðurinn mun koma ykkur skemmtilega á óvart.
Osteria Giulio pane e Ojo
Lítil ostería sem er svo sannarlega þess virði að heimsækja. Matseðillinn breytist frá degi til dags. Mæli sérstaklega með að kíkja á þennan stað í hádeginu en þá bjóða þeir upp á matseðil á einungis 10 evrur.
Pescheria da Claudio
Pescheria da Claudio er í grunninn fiskbúð sem býður upp á ferskan fisk á besta stað í borginni. En í hádeginu og á kvöldin breytist hann í dásamlegan "aperitivo" stað sem býður upp á ýmsar tegundir af hráum fisk, nokkurs konar sushi en samt svo allt öðruvísi. Glas af prosecco fylgir hverjum disk.

Að lokum er hér fyrir neðan fáeinar þumalputtareglur til að fara eftir í leit sinni að góðum veitingastað í Mílanó á viðráðanlegu verði en að sjálfsögðu eiga þessar reglur við flestar borgir landsins:
1. Í hvaða hverfi ertu staddur?
Ef þú ert t.d staddur í kringum Duomo eða Brera þá máttu búast við því að greiða miklu hærra verð en í mörgum öðrum hverfum borgarinnar. Um leið og maður er komin lítið eitt út úr miðborginni þá lækka verðin en ekkert endilega gæðin.
2. Eru Ítalir að borða á staðnum?
Það er alltaf góð vísbending ef Ítalir stunda grimmt viðkomandi stað en ef það eru eingöngu töluð erlend tungumál á staðnum er betra að halda sér fjarri.
3. Hvernig er matseðilinn?
Ef matseðillinn er prentaður með mörgum tugum rétta, jafnvel með ljósmyndum, þá bendir það til þess að réttirnir eru gerðir fyrirfram. Leitaðu frekar að veitingastöðum þar sem matseðillinn er handskrifaður á pappírsörk eða krítartöflu, þar eru miklar líkur á því að staðurinn bjóði upp á ferskasta hráefni sem fáanlegt er hverju sinni.
4. Spurðu þá sem búa í hverfinu.
Það er alltaf vænlegt til árangur að spyrja þá sem búa í hverfinu þar sem þeir gefa manni upp í flestum tilfellum nöfnin á sínum uppáhaldsstöðum.

Panna cotta er einn allra vinsælustu eftirréttum Ítalíu og þó víðar væri leitað. Rétturinn er uppruninn frá svæðinu Langhe sem staðsett er í héraðinu Piemonte sem er frægt fyrir vín á borð við Barolo og Barbaresco. Panna Cotta er einfaldur og bragðgóður eftirréttur. Í grunninn er rétturinn alltaf eins en síðan má bæta við hinu og þessu og fá út óendanlega margar útgáfur af honum, t.d. karamellu, súkkulaði, kaffi og ferskum ávöxtum. En hérna er Panna Cotta í sinni einföldustu mynd.
Hráefni
1) 1 stöngull af vanillu 2) 150 gr sykur 3) 6 gr matarlím (þrjú blöð) 4) 500 ml rjómi

1) Leggið matarlímið í kalt vatn í ca. 10 mín. 2) Skerið innan úr vanillustönglinum 3) Hellið rjómanum í lítinn pott. 4) Bætið út í rjómann bæði vanillufræjunum ásamt stönglinum sjálfum. 5) Setjið allan sykurinn út í rjómann. 6) Hitið við lágan hita en án suðu. 7) Vindið vel matarlímsblöðin, setjið þau út í rjómann og hrærið vel þar til þau eru algjörlega uppléyst í rjómanum. 8) Hellið blöndunni í gegnum fíngert sigti. 9) Undirbúið fjögur mót með því að bleyta þau að innan með vatni eða þínum uppáhalds líkjör. 10) Hellið blöndunni nú í mótin fjögur, gott er að nota ausu við þetta. 11) Setjið mótin inn í ískáp og leymið þar í að minnsta kosti 5-6 klukkustundir. 12) Til þess að ná hinu eina sanna Panna cotta úr forminu er best að dýfa forminu ofan í heitt vatn í ca. 2-3 sek. Snúa því svo á hvolf ofan á disk, halda því saman og hrista það nokkrum sinnum. Endurtakið eftir þörfum.

Vínhúsið Marchesi Aninori er einn stærsti og virtasti vínframleiðandi Ítalíu í dag en sögu þess má rekja allt aftur til ársins 1385. Á áttunda áratug síðustu aldar spilaði Marchesi Antinori stóran þátt í „Super-Tuscan“byltingunni og kom fram með vín á borð við Tignanello, Solaia og Guado al Tasso. En þessi bylting hófst þegar vínbændur í Toscana hófu að setja á markað afburðarvín, svokölluð Super Tuscans, sem uppfylltu ekki skilyrðin til að teljast DOC/G-vín en mörg þeirra öðluðust aftur á móti viðurkenningu víða um heim. Flokkurinn IGT (Indicazione Geografica Tipica) leggur mesta áherslu á uppruna vínanna en síður hvaða þrúgur eru notaðar við víngerðina framleiðsluaðferðir vínanna eða stíl þeirra.
Villa Antinori IGT fellur í þennan flokk en það er 55% framleitt úr Sangiovese, 25% úr Cabernet Sauvignon, 15% úr Merlot og 5% úr Syrah. Þetta vín kom fyrst á markað árið 1928 og var þá flokkað sem Chianti Classico. Á árinu 2001 breytti Piero Antinori, núverandi stjórnandi vínhússins, þeim þrúgum sem notaðar eru í þetta vín og samsetningu þeirra. Það var til þess að í dag er það flokkað sem IGT en ekki Chianti Classico DOCG. Vínið er fyrst látið þroskast 12 mánuði á frönskum, ungverskum og amerískum eikartunnum og síðan látið þroskast í 8 mánuði á flösku áður en það var sett á markað.
Lýsing: Meðalfylling, þurrt, sýruríkt, miðlungstannín. Dökk ber, kirsuber, skógarbotn, nett eik.
Einkunnir ýmissa fagaðila:
James Suckling: 87/100 – Vinotek: 4 stjörnur
Villa Antinori IGT 2010 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 2.999.
Njótið vel með bragðmiklum pastaréttum, grilluðu kjöti og jafnvel villibráð.

Það er alveg þess virði að kíkja á nokkur söfn í Mílanóborg, hún er kannski engin Flórens eða Róm en þar má samt finna mörg söfn í háum gæðaflokki. Hér fyrir neðan verður tæpt á þeim helstu:
Pinacoteca di Brera, Via Brera 28, 20121 Mílanó
Pinacoteca di Brera er eitt virtasta safn Ítalíu en það leggur áherslu á verk eftir ítalska myndlistamenn og myndhöggvara á borð við Caravaggio, Raphael, Mantegna og Bellini. Safnið er opið kl. 8.00-19.15 frá þriðjudegi til sunnudags, lokað á mánudögum.

Pinacoteca Ambrosiana, Piazza Pio 2, 20123 Mílanó
Pinacoteca Ambosiana er bóka- og listaverkasafn, staðsett í miðborg Mílanó, rétt við dómkirkjutorgið. Þarna er að finna málverk eftir meistara á borð við Caravaggio, Titian og Raffaello að ógleymdum Leonardo da Vinci. Opnunartími safnsins er milli kl. 10.00 og 18.00 frá þriðjudegi til sunnudags, lokað á mánudögum.
Museo Poldi Pezzoli, Via Manzoni 12, 20121 Mílanó
Museo Poldi Pezzoli er eitt stærsta, dýrasta og virtasta einkasafn á Ítalíu. Safnið var stofnað utanum einkasafn Gian Giacomo Poldi Pezzoli árið 1881. Það lætur ekki mikið yfir sér í fyrstu en er í raun virkilega áhugavert safn sem vert er að skoða. Opið á milli kl. 10.00 og 18.00 alla daga vikunnar nema mánudaga.

Triennale di Milano, Viale Alemagna 6, 20121 Mílanó
Triennale di Milano er safn tileinkað hönnun og arkitektúr, staðsett við jaðar stærsta almenningsgarðs borgarinnar, Parco Sempione. Þetta einstaklega áhugavert safn þar sem ávallt eru flottar sýningar í gangi og hinir ýmsu viðburðir eiga sér stað. Opið frá frá þriðjudögum til sunnudaga á milli kl. 10.30-20.30 nema fimmtudaga en þá er opin milli kl. 10.30-23.00.
Santa Maria della Grazie, Piazza di Santa Maria delle Grazie
Santa Maria della Grazie er ekki safn í eiginlegri merkingu þess orð heldur hýsir þessi kirkja einungis eitt frægasta málverk veraldar, Síðastu kvöldmáltíðina eftir Leonardo da Vinci. Það er mikil ásókn í að sjá þetta meistaraverk og því öruggara að panta sér miða í tíma. Ósóttar pantanir eru seldar samdægur en aldrei eru margir miðar í boði og margir um hituna.
Önnur söfn í borginni
Museo del Novecento - Museo Bagatti Valsecchi - Galleria d’Arte Moderna - Castello Sforzesco - Museo del Duomo - Museo Teatre alla Scala - Museo Nazionale Scienza e Tecnologia Leonardo da Vinci - Palazzo Reale - La Permanente

Það er ekki tilviljun að Mílanó sé talin vera ein af helstu tískuborgum veraldar. Þar er endalaust úrval af guðdómlega fallegum verslunum, gríðarstórar tískuvikur haldnar nokkrum sinnum á ári og áttavilltar fyrirsætur á hverju strái. En sú staðreynd að borgin sé ein helsta tískuborg heims gerir það að verkum að oft á tíðum er verðlagið hátt og ekki fyrir hvern sem er að versla sér föt frá Giorgio Armani, Prada eða Gucci frá toppi til táar. Ekki örvænta!!! Í borginni er að sjálfsögðu að finna verslanir á borð við H&M, Zara, Berskha og Camper, fjöldann allan af götumörkuðum og hin ýmsu outlet sem bjóða upp á varning frá öllum helstu tískuhúsunum með 50-80 afslætti. Það geta sem sagt allir fundið sér eitthvað við sitt hæfi í verslunarborginni Mílanó.
Hinn víðfrægi tískuþríhyrningur
Quadrilatero della Moda, eða tískuþríhyrningurinn, er víðfrægt verslunarsvæði sem afmarkast af þremur frægrum torgum í miðborg Mílanó, þ.e. Piazza Duomo, Pazza Cavour og Piazza San Babila. Þarna er að finna verslunargötur á borð við Via Montenapoleone, Via della Spiga, Via Sant’Andrea og Via Manzoni. En við þessar götur er að finna glæsilegustu verslanir og sýningarsali veraldar, t.d. verslanir tískuhúsa á borð Louis Vuitton, Dolce& Gabbana, Armani, Prada, Cavalli, Gucci og svona mætti lengi telja. Við skulum taka þrjár af þessum götum og kíkja hvaða verslanir eru þarna að finna:
Via Montenapoleone: nr.1 La Perla; nr.2 Louis Vuitton; nr.4 Ralph Lauren; nr.5 Bottega Venezia; nr.6 Sergio Rossi; nr.7 Gucci; nr.8 Prada; nr.10 Armani; nr.11 Gianni Versace; nr.20 Valentino; nr.21 Alberta Ferretti; nr.21 Christian Dior.
Via Della Spiga: nr.2 Dolce &Gabbana; nr.9 Fendi; nr.18 Prada; nr.19 Armani; nr.26 Dolce & Gabbana; nr.30 Just Cavalli; nr.33 Byblos; nr.42 Roberto Cavalli; nr.50 Marni.
Via Sant’Andrea: nr.2 Missoni; nr.5 Trussardi; nr.9 Kenzo; nr.9 Giorgio Armani; nr.10 Chanel; nr.12 Moschino; nr.14 Gianni Versace; nr.15 Gianfranco Ferré; nr.17 Barbara Bui; nr.21 Miu Miu; nr.21 Hermès, ; nr.21 Prada.

Ein elsta verslunarmiðstöð í heimi
Í Mílanó er ennfremur að finna eina elstu verslunarmiðstöð í heimi, Galleria Vittorio Emanuele, sem opnuð var árið 1867. Í Galleria Vittorio Emanuele er að finna verslanir á borð við Louis Vuitton, Gucci og Prada en þess má geta að Prada hefur rekið þar verslun óslitið síðan 1913.
Galleria Vittorio Emanuele tengir saman Piazza della Scala, torgið fyrir framan hið fræga óperuhús, og Piazza del Duomo, hið gríðarstóra torg fyrir framan dómkirkjuna.

10 Corso Como – og til varð hugtakið „concept-store“
Það er skylda að kíkja í verslunina 10 Corso Como við samnefnda götu sem hefur verið starfandi síðan 1990. Verslunin býður upp á óendanlega fallegt úrval af tískufatnaði og hönnunarvörum ásamt því að reka sýningarsal, kaffihús, veitingastað og lítið hótel með þremur herbergjum. Í kjölfar vinsælda verslunarinnar hafa sprottið upp verslanir og veitinga- og skemmtistaðir eins og gorkúlur í nágrenninu og sér ekki fyrir endann á þeirri þróun.
Ekki einungis rándýr merkjavara
Þeir sem eru að leita að einhverju öðru en rándýrri merkjavöru ættu ekki að örvænta. Þeir ættu að þræða götur á borð við Via Torino, Corso di Porta Ticinese, Corso Buenos Aires og Corso Vercelli. Þar er að finna verslanir á borð við H&M, Zara, Bershka, Levis, Diesel, Tezenis, Foot Locker, Benetton, Camper og svona væri hægt að halda áfram endalaust.
Merkjavara á lægra verði
Í borginni er einnig að finna outlet sem selja vörur frá mörgum af helstu tískuhúsum borgarinnar á 50-80% afslætti, t.d. 10 Corso Como Outlet (Via Tazzoli 3), La Salvagente (Via Fratelli Bronzetti 16), Basement (Via Senato 15) og Dmagazine Outlet er að finna á þremur stöðum í borginni (Via Bigli 4, Via Manzoni 44 og Via Forcella 13).

Oft þess virði að leita vel á mörkuðum
Það eru ennfremur nokkrir götumarkaðir í borginni sem vert er að skoða og þar leynast oft gersemar sem finnast við nokkra leit. Helstu markaðir borgarinnar eru eftirfarandi:
Mercatone del Naviglio Grande er stærsti markaður borgarinnar sem haldinn er síðasta sunnudag hvers mánaðar milli kl. 9.00 og 18.30. Þar er hægt að finna endalaust úrval að húsgögnum, húsbúnaði og öðrum varningi sem kominn er til ára sinna. Markaðurinn teygir sig um allan Naviglio Grande og hliðargötur út frá honum. Hér um að gera að leita vel og lengi því hér leynast gersemar.
Fiera del Sinigaglia er opinn á hverjum laugardegi við Naviglio Grande, frá kl. 9.00 og fram eftir degi. Þarna er hægt að finna allt milli himins og jarðar og alveg þess virði að kíkja við og gramsa pínulítið.
Götumarkaðurinn á Via Fauché er flottur markaður þar sem áherslan er á varning frá stóru vörumerkjunum, nokkurs konar outlet undir berum himni. Sérstaklega hægt að gera góð kaup í töskum og skóm. Markaðurinn er opinn á þriðjudögum frá kl. 8.00 til kl. 14.00 og laugadögum frá kl. 8.00 til kl. 18.00.
Mercato di Viale Papiniano er einn af stóru mörkuðunum í borginni þar sem hægt er að finna tískufatnað, húsbúnað, mat og svo mætti lengi telja. Markaðurinn er opinn á þriðjudögum á milli 7.30-13.00 og á laugadögum á milli kl. 7.30-17.00.

Það er auðvelt að komast um borgina skjótan og öruggan hátt, þökk sé þéttriðnu kerfi neðanjarðarlesta, sporvagna, strætisvagna og leigubíla sem rekið er af fyrirtækinu ATM. Á heimasíðu þess er hægt að fá allar upplýsingar um tímatöflur og leiðakerfið.
Neðanjarðarlestir
Neðanjarðarlestakerfið er nokkuð gott í borginni. Það eru fjórar línur sem gera það að verkum að maður kemst fljótt og vel út um alla borg, þ.e. M1 (rauða línan), M2 (græna línan), M3 (gula línan) og M5 (fjólubláa línan) sem verður endanlega tilbúin fyrir heimssýninguna sem haldin verður í Mílanó árið 2015. Einn miði kostar 1,5 evrur og gildir hann í 90 mínútur frá því hann er stimplaður í fyrsta sinn, hvort sem hann er stimplaður í neðanjarðarlest, sporvagni eða strætó. Fyrstu ferðir dagsins eru farnar klukkan 5.30 á morgnana og síðasta ferð dagsins fer í kringum 2.00 eftir miðnætti. Ekki þarf að hugsa um hvenær næsta lest kemur þar sem þær ganga ótt og títt allan liðlangan daginn.

Sporvagnar
Það eru allsstaðar sporvagnar í Mílanó en þeir kallast á ítölsku „tram“. Sporvagnarnir eru nokkurs konar einkennismerki fyrir borgina, líkt og rauðu tveggja hæða strætisvagnarnir eru fyrir London. Þessir sporvagnar eru auðveldir í notkun og ennfremur eru sömu miðar notaðir í sporvagnana og í neðanjarðarlestirnar og strætisvagnana.

Strætó
Það eru fullt af strætisvögnum í borginni en einhvern veginn þá þarf maður sjaldan að nota þá ef maður býr eða dvelur nokkuð miðsvæðis í borginni. En það er gott að geta gripið til þeirra ef maður er að fara eitthvað sérstakt, þangað sem hvorki neðanjarðarlest né sporvagn á leið um.
Leigubílar
Það er fullt af leigubílum í borginni en þeir eru frekar dýrir og þar af leiðandi best að nota þá einungis í neyð, þegar ekki er um aðrar samgönguleiðir að ræða. Síðan eru fullt af mönnum sem segjast vera leigubílstjórar en eru það í rauninni ekki og best að nota þá ekki, ekki einu sinni í neyð.