- Published on
Túnfiskur er enn þann dag í dag veiddur í hafinu suður af Ítalíu og fæst nýr túnfiskur á mörkuðum víða um Ítalíu. En þar sem nýr túnfiskur er mjög dýr þá eru ítölsku pastasósurnar oftast nær búnar til úr túnfiski úr dós. Þessi holli, ferski og bragðgóði réttur heitir Spaghetti með túnfisk og sítrónu, á ítölsku Spaghetti con tonno e limone. Þetta er tilvalinn réttur sem gott er að grípa til þegar manni langar í eitthvað gott í mikilli tímaþröng.
Hráefni fyrir fjóra
1) 500 gr spaghetti 2) 2 msk ólífuolía 3) 1 hvítlauksrif 4) 4 msk söxuð steinselja 5) 1 dós af túnfisk, ca. 200 gr 6) safi úr 1 sítrónu 7) 30 gr smjör 8) 60 gr parmesan 9) salt 10) pipar.
Aðferð
1) Látið renna af túnfiskinum og takið hann í sundur. 2) Hitið ólífuolíuna og setjið smátt saxaðan hvítlauk og steinselju út í hana. 3) Hafið vægan hita og hrærið stöðugt í og bætið túnfiskinum smám saman við. Hitinn á að vera svo lítill að ekkert af þessu breyti um lit. 4) Sjóðið pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. 5) Látið renna af pastanu og setjið það út í túnfiskssósuna góðu og blandið vel saman. 6) Bætið nú við sítrónusafanum, parmesanostinum og smjörinu í litlum bitum. 7) Saltið og piprið eftir smekk. 8) Blandið að lokum öllu vel saman og berið réttinn strax fram.

Hvað er betra en að gæða sér á gjeggjuðum pizzum undir berum himni, með tár í glasi og umkringdur vinum og fjölskyldu? Hérna koma fimm stórkostlegar pizzusamsetningar sem hentar fullkomlega íslensku sumri, íslenskri sól og ítölskum vínum.
1. Pizza með bresaola, rucola og parmesan
Pizza með bresaola, rucola og parmesan er pizza þar sem dúndur álegg fá að njóta sín til hins ítrasta, þ.e. bresaola, klettasalat og parmesan. Frábær pizza þar sem áleggin njóta sín fullkomlega. Fara á uppskrift

2. Pizza alla boscaiola
Pizza alla boscaiola er dásamleg pizza sem kennd er við boscaiola en það má treysta því að í öllum ítölskum réttum kenndum við boscaiola eru til staðar sveppir í einhverri mynd. Sveppir og skinka leika aðalhlutverkin á þessari pizzu ásamt því að sletta af rjóma gerir hana að ógleymanlegri upplifun. Fara á uppskrift

3. Pizza með geitaosti og spínati
Pizza með spínati, geitaosti og döðlum ásamt ristuðum furuhnetum er virkilega dásamleg samsetning á pizzu. Þessi pizza getur hreinlega ekki klikkað þar sem hvert áleggið er öðru betra og eiginlega algjört klúður ef þessi pizza slær ekki í gegn. Frábær pizza. Fara á uppskrift

4. Pizza með hráskinku, rucola og parmesan
Það er eins og áleggin á þessari pizzu séu bæði gerð fyrir hvert annað og virkilega bæti hvert annað sem gerir það að verkum að þessi pizza er einfaldlega frábær. Fara á uppskrift

Pizza Quattro Stagioni
Þetta er ein af þessum klassísku pizzum sem nánast er hægt að finna á matseðli hverrar einustu pizzeriu um gjörvalla Ítalíu. Pizza þessi sem ber nafnið Quattro Stagioni, eða á íslensku „árstíðirnar fjórar“. Þó sumarið sé einungis kennt við fjórðung þessarar pizzur þá er tilvalið að njóta hennar allrar, allt sumarið. Fara á uppskrift

Baccalà alla maremmana er bragðmikill saltfisksréttur frá svæðinu Maremma í Toskana. Hérna leggja Ítalir fram uppskriftina en hráefnið að sjálfsögðu íslenskt enda er það mat margra að íslenski saltfiskurinn sé sá allra besti. Hér er um að ræða frábæran aðalrétt sem er bæði auðveldur og fljótlegur í framkvæmd.
Hráefni handa fjórum
1) 800 gr útvatnaður saltfiskur 2) 4 msk hveiti 3) 1 stk laukur 4) 1 dós tómatar í dós 5) steinselja 6) 2 stk hvítlauksrif 7) ólífuolía 8) salt 9) pipar.
Aðferð
1) Saxið hvítlauk, lauk og steinselju. 2) Hitið ólífuolíu á stórri pönnu. 3) Látið hvítlaukinn, laukinn og steinseljuna malla við lágan hita í 4-5 mínútur.

4) Bætið við einni dós af tómötum út á pönnuna. 5) Látið þetta malla við meðalhita í 4-5 mínútur og leggið svo til hliðar. Hér má pipra eftir smekk en saltið ekki fyrr en í lokin 6) Setjið hveiti í skál.
7-8) Veltið saltfisksbitunum upp úr hveitinu, einum í einu en öllum fyrir rest. 9) Hitið olíu til djúpsteikingar á pönnu eða góðum potti.
10) Leggið saltfisksbitana í olíuna og steikið þá í fáeinar mínútur á hvorri hlið. 11) Færið saltfisksbitana úr olíunni yfir í sósuna góðu. 12) Látið malla í u.þ.b. 15 mínútur á vægum hita. Eftir að saltfiskurinn er búinn að malla í sósunni í 10 mínútur er gott að smakka sósuna til og bæta við salti og pipar eftir þörfum. Gott er að strá smátt saxaðri steinselju yfir herlegheitin í lokin.
Þetta er réttur þar sem rauðvín ætti að verða fyrir valinu, og um að gera að halda sér í nágreninu, t.d. Tommasi Poggio al Tufo Rompicollo Maremma Toscana. Það eru góð kaup í þessu víni, sérstaklega í kassavíninu.
- Published on
Pestó með sólþurrkuðum tómötum er virkilega bragðgóð og einföld sósa sem hentar vel með pasta, t.d. penne eða rigatoni. Uppistaðan eru sólþurrkaðir tómatar sem eru mikið notaðir á suður-Ítalíu, sérstaklega í Calabría, Púglía og Sikiley. Í þessum héruðum er hefðin í lok hvers sumar að láta tómatana þorna í sólinni og þeir varðveittir í olíu þar til þeirra er neytt.
Sólþurrkaðir tómatarnir ásamt möndlum, furuhnetum og basilíku mynda svolítið sérstakt og skemmtilegt samband, líkt eins og pínulítill hluti Miðjarðarhafsins sé kominn heim í stofu til þín. Niðurstaðan er einfalt og bragðgott pestó sem virkilega er þess virði að prófa.

Hráefni
1) 170 gr sólþurrkaðir tómatar 2) 20 gr hýðislausar möndlur 3) 30 gr furuhnetur 4) basilíka, ca. 20 lauf 5) olía af sólþurrkuðu tómötunum.
Aðferð
1) Setjið sólþurrkuðu tómatana í matvinnsluvél, geymið olíuna. 2) Bætið möndlunum saman við 3) og svo furuhnetunum.

4) Bætið að endingu basilíkulaufunum saman við. 5) Látið matvinsluvélina vinna þetta saman, hellið olíu smám saman við þar til áferðin er orðin ykkur að skapi. 6) Setjið herlegheitin í passlega skál og berið fram.
Pestó með sólþurrkuðum tómötum hentar virkilega vel með pasta, t.d. penne eða rigatoni, eða eitt og sér með góðu brauði.
- Published on
Í lítilli hliðargötu, í ennþá minni íbúð, í góðu hverfi í Mílanó, nokkuð miðsvæðis, vaknaði ég við hróp og köll frá kaupmönnum hverfisins. Allt að gerast enda föstudagur en þá var ávallt haldinn matarmarkaður í götunni. Allt iðaði af lífi og ilmurinn af stórkostlegu hráefni markaðarins fyllti vitin þegar maður skáskaut sér í gegnum mannhafið sem ætlaði sér að gera góð kaup í ferskasta hráefnið í bænum. Eins og við íslendingar köllum það, beint frá býli.
Kaffibarinn var að sjálfsögðu næsti áfangastaður, skyldumæting. Morgunmatur dagsins var Croissant með súkkulaði ásamt dásamlegum espressó. Alltaf það sama, maður breytir ekki því sem virkar. Á Ítalíu er kaffimenningin rótgróin og hefðirnar sterkar. Fullkominn espressó er svo sannarlega mikilvægur þáttur í daglegu lífi Ítala en þar kallast venjulegur espressó einfaldlega caffé. Til hvers að flækja málið! Á kaffibarnum safnast fólkið saman og ræðir lífið og tilveruna. Oft er margt um manninn, konuna og börnin. Allir koma og fara, staldra stutt en stundum lengi. Einn var þar alltaf og fór hvergi, kóngur í ríki sínum. Kóngurinn þekkir alla og allir þekkja kónginn. Ég var einn af þessum öllum. Mörgum árum síðar kíkti ég á kaffibarinn minn og viti menn, kóngurinn var þar ennþá og heilsaði mér með virktum.
Næsti áfangastaður var skólastofan og dagskráin full fram eftir degi af endalausum fyrirlestrum. Bekkjafélagarnir 39, komu frá 25 löndum, 5 heimsálfum og töluðu 16 ólík móðurmál. Allir töluðu ensku en ítalskan vann á með hverjum deginum. Skjóta á sig einum espressó í hverri pásu. Allt spurning um að halda sér vakandi, meðtaka leyndardóminn.
Hádegishléið var kærkomið, það var hálfleikur. Maginn öskraði á næringu og innan tíðar fékk‘ann allt sem hann vildi. Alltaf var farið á sama staðinn, veitingastaðinn okkar. Þurftum aldrei að velja, hádegismatseðillinn varð alltaf fyrir valinu, kallast á ítölsku „Menu fisso“. Matseðill samansettur úr ferskasta hráefni dagsins. Dásamlegir ætisþistlar einkenndu fyrsta réttinn, sverðfiskur rétt númer tvö og einn espressó í lokin kláraði dæmið.
Seinni hálfleikur hófst með áframhaldandi fyrirlestrum. Allir lögðu sig fram, þóttust vera áhugasamir en hugurinn einhvern veginn á reiki. Tilhlökkun til kvöldsins var orðin mikil og jókst með hverri mínútunni. Undir lokin voru prófessorarnir farnir að tala fyrir daufum eyrum nemendanna sem komnir voru með hugann við ævintýri kvöldsins. Þegar lokaflautið gall þusti bekkurinn út úr skólanum, hersingin minnti mann helst á Viggó Viðutan að loknum vinnudegi. Næsti áfangastaður var stúdentabarinn í nágrenninu, barinn okkar. En sú hefð hefur skapast í borginni að síðdegis er hægt að fá sér einn drykk á næsta bar og á sama tíma gæða sér á skemmtilegum smáréttum í boði hússins. Hefðin kallast „aperitivo“. Þessi skemmtilega hefð er tilvalin til þess að æra hungrið í manni rétt fyrir matinn, kíkja á mannlífið og byrja kvöldið snemma. Fátækir stúdentar í borginni líta oft á aperitivo sem máltíð í sjálfu sér og á meðal þeirra verða barir með góðum aperitivo oft frægir á örskotsstundu. Í þetta sinn var einungis dreypt og smakkað, veislan var handan við hornið.
Veislan sem beðið hafði verið eftir með tilhlökkun átti sér stað á fallegum stað,í fallegri borg, í þessu fallega landi. Við sátum þétt, hlið við hlið. Öll í mikilli sátt og þó nokkru samlyndi. Skenkjað í glösin, síðan aftur og enn á ný. Framboðnar kræsingar streymdu í stríðum straumum. Einn réttur í einu og allir fyrir rest. Einhvern veginn var fyrsti réttur notaður til þess að stríða bragðlaukunum. Á stórum bakka voru bornir á borð stórkostlegt úrval af ostum, skinkum og pylsum. Úrvalið magnað, lyktin unaðsleg og útsýnið stórbrotið.
Eftir heilbrigða bið var skyndilega og allt í einu bornar á borð óvæntar kræsingar. Í boði voru fáeinir risastórir ravioli, fylltir með ítölskum gráðaosti. Listaverk. Lítið á mann en minningin stórkostleg. Bragðlaukarnir voru að lokum orðnir skemmtilega pirraðir af allri þessari stríðni.
Enn á ný var skenkjað í glösin, drukkið í botn og fyllt á aftur. Yndisleg athöfn sem að lokum varð að góðum vana. En allt í einu fylltist stofan af unaðslegri angan. Í risastórri skál var borinn fram pastaréttur sem eldaður er eftir uppskrift sem haldið hefur verið leyndri innan fjölskyldunnar, mann fram af manni. Allir fá sér fjall, éta fjallið og fá sér annað. Svo koll af kolli. Einhvern veginn voru allir hættir að stríða bragðlaukunum, þeir fengu allt sem þeir vildu og fíluðu sig í botn.
Eftir mikið át færðist fjör í leikinn. Allir höfðu hátt, töluðu mikið en hlustuðu lítið. Allir eru saddir, góðir og glaðir. Eftir drykklanga stund eða mögulega tveggja kom að réttinum sem kenndur er við eftir. Rjómakenndur ís með smátt söxuðum hnetum borinn fram með rjúkandi espressó. Bolla af rjúkandi espressó er hellt yfir ísinn og verður að ómótstæðilegri kaffisósu. Á einu andartaki myndaðist þögn, allir njóta. Saman en þó í sitthvoru lagi. Eftir allar þessar kræsingar fannst okkur enn eitthvað vanta, mögulega punktinn. Rétt hanteraður espressó er punkturinn yfir þetta blessaða i.
Veislan stóð fram á rauða nótt, skrafað og hlegið. Öllu lýkur einhvern tímann og að lokum rann upp sú stund að halda heim á leið. Það eru svona dagar sem munu lifa í minningunni um alla framtíð. Dásamlegar minningar um tíma sem var og kemur aldrei aftur. Það er hverjum manni hollt að einbeita sér að nútíðinni, akkúrat þessari stundu, en á sama tíma er gott að geta yljað sér með góðum minningum úr fortíðinni, fullur tilhlökkunar til þess sem framtíðin ber í skauti sér.

Eggaldin með parmesan, á ítölsku kallast þessi réttur Parmigiana di Melanzane, er í einu orði sagt stórkostlegur réttur. Það ríkis nokkur óvissa um uppruna þessa réttar, stundum er hann sagður uppruninn frá Emilia Romagna eða Campania en þó oftast kenndur við Sikiley. Við skulum ekki láta þær þrætur hafa áhrif á þá staðreynd að hér er um að ræða dásamlega góðan rétt sem er tilvalinn sem fyrsti réttur fyrir sex eða jafnvel sem aðalréttur fyrir fjóra. Parmigiana di Melanzane er einn af þessum réttum sem maður grípur til þegar manni langar virkilega til að SLÁ Í GEGN.
Hráefni
1) 3 stk langir eggaldin, c.a. 750 gr 2) 250 gr mozzarella 3) 100 gr parmesan 4) Ólífuolía 5) 1stk hvítlauksrif 6) 1 stk laukur, smáttsaxaður 7) 2 dósar af niðursoðnum tómötum 8) 2 msk af tómatpúrru 9) 20 stk lauf af basilíku 10) salt.
Að auki þarf 11) u.þ.b. 100 grömm af grófu sjávarsalti til að salta eggaldinið og 12) u.þ.b. hálfan lítra af olíu til djúpsteikingar.
Aðferð
1) Skerið eggaldinin eftir endilöngu í ca. 0,5 cm sneiðar, gott er að notast við mandólín til að fá sneiðarnar sem jafnastar en auðvitað er hægt að skera þær líka með góðum hnífi. 2) Setjið 2-3 eggaldinsneiðar í botninn á stóru sigti, saltið síðan með grófu sjávarsalti, svo annað lag af eggaldinsneiðum og svo koll af kolli þar til búið er að salta allar sneiðarnar. 3) Setjið sigtið með eggaldinsneiðunum í stóra skál, setjið disk yfir, þrýstið létt á sneiðarnar og látið standa í 1 klukkustund.

Á meðan er gott að búa til tómatssósuna. 4) Setjið ólífuolíu á á góða pönnu og bætið við hvítlauk og lauk og svissið við lágan hita í u.þ.b. 5 mínútur. 5) Takið tvær dósir af tómötum í dós og maukið þá með töfrasprota eða matvinnsluvél. Bætið þeim á pönnuna, saltið eftir þörfum og látið malla í 10-15 mínútur 6) Bætið við basilíku og látið malla áfram í 5 mínútur. Smakkið á sósunni, saltið eftir þörfum og setjið hana til hliðar.
7) Þegar eggaldinsneiðarnar hafa legið í saltinu í klukkustund er saltinu skolað af þeim og þær þurrkaðar létt. 8) Hitið ólífuolíuna á pönnu hægt og rólega. 9) Djúpsteikið eggaldinsneiðarnar.
10) Leggið eggaldinsneiðarnar til hliðar. 11) Penslið eldfast mót með ólífuolíu 12) Setjið svo fyrst lag af tómatssósunni og þar á eftir lag af eggaldinsneiðum.
13) Tómatssósa er sett yfir eggaldinsneiðarnar. 14) Að því loknu er stráð yfir parmesan og svo mozzarella. 15) Síðan er haldið áfram að raða eggaldinsneiðum, tómatssósu, parmesan og mozzarella og svo koll af kolli þar til eggaldinsneiðarnar eru búnar þá endið þið á að tómatssósu og stráið parmesan yfir að endingu. Setjið inn í 200 gráðu heitan ofninn og bakið í u.þ.b. 40 mínútur.
Það er alltaf góð regla að leita ekki langt yfir skammt þegar para á saman vín og mat, vínin úr héraðinu eru oft á tíðum besta valið. Með þessum rétti er því um að gera að velja bragðmikið vín frá suðurhéruðunum, t.d. vín úr þrúgum á borð við Primitivo eða Negro amaro. Rauðvínið Il Falcone Riserva er virkilega gott vín sem hentar vel með þessum dásamlega rétti.
Njótið herlegheitanna til hins ýtrasta í faðmi fjölskyldu og góðra vina...
Njótið herlegheitanna til hins ýtrasta í faðmi fjölskyldu og góðra vina...
- Published on
Risotto allo Zafferano er dæmigerður réttur úr matagerð Lombardia og er oft ruglað saman við Risotto alla Milanese. Á þessum tveimur réttum er lítill en marktækur munur, annars vegar er nautamerg bætt við Risotto alla Milanese en hvítvíni er bætt við þennan rétt, Risotto allo Zafferano. Þetta er virkilega vinsæll réttur á norður-Ítalíu sem er bæði bragðgóður og auðveldur í matreiðslu.
Hráefni
1) 125 gr smjör 2) 1 laukur 3) 1/2 tsk saffran 4) 1 glas af hvítvíni 5) 150 gr parmesan 6) 350 gr arborio grjón 7) 1 líter kjötsöð

1) Skerið laukinn smátt. 2) Bræðið smjör í stórum potti. 3) Steikið laukinn í smjörinu á lágum hita þar sem laukurinn má ekki verða brúnn, einungis mjúkur. 4) Bætið grjónunum út í pottinn, hækkið hitann og steikið grjónin í ca. 2 mínútur. 5) Nú er farið að bæta soðinu út í pottinn smátt og smátt, alls ekki of mikið í einu. Núna eru ca. 20 mínútur eftir af eldunartímanum. 6) Þegar fimm mínútur eru eftir er saffranþræðirnir leystir upp í smá soði og bætt út í pottinn. 7) Þegar grjóni eru tilbúin eru þau tekin af hitanum og ostinum bætt út í pottinn og í kjölfarið afganginum af smjörinu. 8) Fallegt er að skreyta réttinn með nokkrum saffran þráðum í lokin.
Njótið vel í góðra vina hópi.

Cantucci eru heimsfrægar smákökur, upprunnar frá borginni Prato í Toscana. Þessar ílöngu smákökur eru oft ranglega kallaðar „biscotti“ hér á landi sem þýðir einfaldlega„tvíbakaðar“ og er lýsandi fyrir bökunaraðferðinni, þ.e. að þær eru settar tvisvar inn í ofninn. Þessar smákökur hafa þann kost að þær geymast lengi og því tilvalið að eiga ávallt nóg af þeim þegar góða gesti bera að garði.
Á Ítalíu er hefð fyrir því að fá sér Cantucci ásamt glasi af Vin Santo sem er sætt eftirréttavín, upprunnið frá Toscana. En einnig hefur skapast hefð fyrir því, sérstaklega fyrir utan Ítalíu, að gæða sér á Cantucci með góðum kaffibolla.
Hér er um að ræða uppskrift sem er mjög nálægt þeirri upprunalegu frá Prato í Toscana. En með tíð og tíma hafa orðið til ýmsar útfærslur af þessum dásamlegu kökum, t.d. með því að bragðbæta þær með anís, sítrónu- eða appelsínuberki, rúsínum, súkkulaði eða þurrkuðum ávöxtum. Allt er leyfilegt og einungis ímyndunaraflið sem setur manni einhverjar skorður.

1) 4 egg plús ein eggjarauða 2) 500 gr hveiti 3) 280 gr sykur 4) 100 gr smjör 5) 4 gr lyftiduft 6) 250 gr möndlur 6) Ögn af salti 7) Eitt egg til að pensla yfir deigið áður en það fer inn í ofninn.
Aðferð
1) Hitið ofninn í 190 gráður, setjið möndlurnar á ofnplötu og setjið inn í ofn í 3-4 mínútur. 2) Hrærið saman eggjunum og sykrinum í hrærivél ásamt ögn af salti. 3) Bræðið smjörið í litlum potti, bætið því við blönduna okkar góðu og hrærið ögn lengur. 4) Bætið hveitinu smám saman við blönduna ásamt lyftiduftinu og hrærið vel saman 5) Að lokum eru möndlurnar settar saman við og blandað vel saman. 6) Takið ofnplötu með bökunarpappír og myndið 2-3 lengjur úr deiginu, c.a. 6-8 cm á breidd og 3 cm á hæð. Allt spurning hversu stórar maður vill hafa kökurnar. Deigið er í eðli sínu blautt og nokkuð klístrað þannig að það er gott að strá smá hveiti yfir deigið til að gera það ögn meðfærilegra 7) Pískið saman fimmta egginu og penslið því yfir lengjurnar. 8) Setjið nú deigið inn í 190 gráðu heitan ofn og bakið í u.þ.b. 20 mínútur. 9) Takið kökurnar úr ofninum og látið þær standa í c.a. 5 mínútur. 10) Skerið nú lengjurnar í c.a. 1,5-2 cm breiða bita með vel beittum hníf. 11) Leggið kökurnar á hliðina og raðið þeim aftur á plötuna. 12) Setjið kökurnar inn í 170 gráðu heitan ofn og bakið í u.þ.b. 15 mínútur. 13) Takið kökurnar úr ofninum og leyfið þeim að standa í smá stund áður en þeirra neytt.
Njótið til hins ýtrasta þegar góða gesti ber að garði, dásamlegar ásamt nokkrum tárum af Vin Santo.

Espressó hlýtur einfaldlega að vera drykkur guðanna. Espressó sameinar allt sem skiptir máli í einn lítinn bolla, þ.e. ómótstæðilegan ilm, dásamlegt bragð, fallegasta brúna lit veraldar og náttúrulega einstakan töffaraskap.
Orðið espressó er upphaflega dregið af lýsingarhætti þátíðar af ítölsku sögninni „esprimere“, sem þýðir einfaldlega „að þrýsta út. Orðið espressó hefur síðan unnið landvinninga um allan hinn vestræna heim og er þetta orð notað víðast hvar um þessa tegund af kaffi.

Aðferðin við að búa til espressó var fundin upp af Ítalanum Angelo Moriondo árið 1884 en hún felst í því að u.þ.b. 88 gráðu heitu vatni er þrýst í gegnum u.þ.b. 7 grömm af fínmöluðu kaffi. Eftir u.þ.b. 25 sekúndur eiga að vera komnir í bollann nákvæmlega 25 millilítrar af u.þ.b. 67 gráðu heitu espressó hulið fallegri brúnni froðu. Espressó er þykkara en kaffi sem búið er til eftir öðrum aðferðum
Helstu tölur:
Magn af kaffi: 7 grömm +/- 0,5 grömm
Hiti á vatni úr katli: 88 gráður +/- 2 gráður
Hiti komið í bolla: 67 gráður +/- 3 gráður
Tíma sem tekur að renna í gegn: 25 sekúndur +/- 5 sekúndur
Allar tölur hér fyrir ofan eru fengnar frá Instituo Nazionale Espresso Italiano

Það er í sjálfu sér ekki nein regla um ákveðna tegund af baunum eða brennslu á þeim þegar kemur að því að útbúa góðan espressó. Á suður-Ítalíu er oftast notast við dökkristaðar baunir á meðan þær verða sífellt ljósristaðari þegar maður fer norður á bóginn. Algengustu baunirnar er arabica og robusta og eru þær oftast blandaðar saman í hinum mismunandi hlutföllum. Arabica plantan vex aðallega í löndum Mið- og Suður-Ameríku. Arabica baunin öðlast alla jafna örlítið sætt bragð við brennslu, gefur bragðmilt kaffi með dálitlum sýrukeim og inniheldur u.þ.b. 1,4% koffein. Robusta baunin er aftur á móti aðallega ræktuð í Afríku og Asíu. Bragðeiginleikar robusta baunarinnar eru að mörgu leyti frábrugðnir Arabica bauninni en Robusta baunin gefur mikinn ilm, þónokkurn súkkulaðikeim og mikið eftirbragð. Robustabauninn inniheldur mun hærra hlutfall af koffeini eða u.þ.b. 2,7%.
Þessi aðferð hefur þann kost að vatn er einungis í snertingu við kaffi í mjög skamman tíma sem gerir það að verkum að óæskileg efnasambönd losna síður úr læðingi sem gerir espressó hollara en kaffi sem gert er samkvæmt öðrum aðferðum. Ennfremur dregur hátt hitastig vatnsins og hinn mikli þrýstingur draga fram hámarks bragðgæði sem gerir það einfaldlega að bragðbesta kaffi veraldar. Espressó er því einfaldlega það besta í heima, bæði fyrir líkama og sál.
Tengdar greinar:
Að fá sér kaffi á ítölskum kaffibar
Espressó er ekki bara espressó