Published on
Það eru einhverjir töfrar við þessa samsetningu: rjómi, pestó og tómatar. Penne með rjóma, pestó og tómötum er réttur sem lætur í rauninni lítið yfir sér í upphafi en springur út og kemur sífellt á óvart. Þetta er réttur sem er allt í senn auðveldur, bragðgóður og tilbúinn á augabragði. Fullkominn sem fljótlegur réttu fyrir fjölskylduna eða þegar gesti ber skýndilega að garði.
Picture
Hráefni
1) 200 ml rjómi 2) 1 dós af tómötum í dós 3) 2 msk af pestó 4) 400 gr penne 5) 40 gr parmesan 6) salt

Aðferð
1) Hitið rjómann ásamt tómötunum og látið kraum við lágan hita í 10 mínútur. 2) Takið af hellunni og hrærið pestóið saman við blönduna góðu. 3) Sjóðið pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. 4) Látið renna af pastanu þegar það er hæfilega soðið og blandið því saman við sósuna. 5) Bætið við parmesan og berið réttinn strax fram.
0 Comments