- Published on
Hér fyrir neðan hefur MINITALIA tekið saman lista yfir góð kaup í ítölskum rauðvínum sem kosta undir 2.000 krónum, allt virkilega góð vín með tilliti til verðs.
1. Montresor Valpolicella 2012 - Veneto - kr. 1.975
Vínhúsið Montresor er að finna í héraðinu Venteto, nánar tiltekið í nágrenni við borgina Verona. Montresor Valpolicella DOC er framleitt úr þrúgunum Corvina veronese og Rondinella. Hér er um að ræða flott matarvín sem hiklaust er hægt að mæla með á þessu verði.
2. Surani Ares IGT 2012 - Puglia - kr. 1.999
Þetta flotta vín kemur frá héraðinu Púglía sem staðsett er á hælnum á stígvélinu. Þetta vín kemur úr smiðju Tommasi fjölskyldunnar sem þekkt er fyrir vín sem kennd eru við Valpolicella í Veneto. Þetta vín er framleitt úr þrúgunum Primitivo 50%, Negroamaro 30% og Cabernet Sauvignon 20% og fellur það undir skilgreinunguna IGT, eða Indicazione Geografica Tipica. Flott vín á góðu verði.
3. Purato Nero d'Avola Organic 2013 - Sikiley - kr. 1.999
Eina lífræna vínið á listanum kemur frá Sikiley og er hér um að ræða virkilega gott vín. Það er að öllu leyti framleitt úr þrúgunni Nero d'Avola sem er mikið ræktuð á Sikiley og heitir í höfuðið á Avola sem er lítill bær á sunnanverðri eynni. Hérna erum við að tala um að ræða virkilega vel gert vín og ekki skemmir fyrir að það sé framleitt úr lífrænt ræktuðum þrúgum.
4. Fantini Sangiovese 2013 - Abruzzo - kr. 1.999
Þegar maður heyrir talað um þrúguna Sangiovese þá hugsar maður til Toscana en hún er ræktuð víða annars staðar, t.d. í héruðunum Abruzzo og Emilio-Romagna. Þetta vín kemur frá héraðinu Abruzzo og er framleitt að öllu leyti úr Sangiovese. Smellpassar með pizzum og pastaréttum. Svo eru ennþá betri kaup í 1,5 lítra flösku af sama víni en hún kostar einungis kr. 2.999.
5. Leonardo Chianti 2013 - Toskana - kr. 1.999
Í hjarta Chianti-svæðisins í Toscana er að finna smábæinn Vinci en þar er starfandi vínsamlagið Cantine Leonardo sem samanstendur af 200 vínbændum. Þetta er eitt þekktasta vín þessa vínsamlags og er að 85% hluta framleitt úr þrúgunni Sangiovese, 10% úr þrúgunni Merlot og 5% úr hinum ýmsu þrúgum. Vínið er látið þroskast á stáltönkum í 6 mánuði áður en það er sett á flöskur. Hér er um að ræða góðan og einfaldan en þónokkuð kröftugan Chianti á sanngjörnu verði.

Hér fyrir neðan hefur MINITALIA tekið saman lista yfir góð kaup í ítölskum hvítvínum sem kosta undir 2.000 krónum, allt virkilega góð vín með tilliti til verðs.
1. Lamberti Pinot Grigio Santepietre 2012, kr. 1.799
Lamberti Pinot Grigio Santepietre 2012 og kemur frá héraðinu Venteto. Vínið er framleitt úr ítölsku þrúgunni Pinot Grigio en sú þrúga hefur átt miklum vinsældum að fagna á undanförnum árum. Ágætis vín fyrir þetta verð.
2. Banfi Le Rime 2013, kr. 1.898
Hér er annað vín frá vínhúsinu Banfi í Toskana sem heitir Banfi Le Rime og er líka framleitt úr þrúgunum Chardonnay og Pinot Grigio. Hér er um að ræða ungt vín með miklum ferskleika á ansi hagstæðu verði.
3. A Mano Fiano Greco 2013, kr. 1.999
Hér um að ræða bragðmikið og ferskt hvítvín frá héraðinu Púglía. Það er framleitt er úr tveimur af þekktustu hvítvínsþrúgum Suður-Ítalíu sem heita Greco og Fiano.
4. Purato Cataratto – Pinot Grigio 2013, kr. 1.999
Lífrænt hvítvín frá Sikiley hljómar alls ekki illa og í þessu tilviki eru flaskan, tappinn og jafnvel flöskumiðinn framleiddur úr endurunnum hráefnum. Hér er um að ræða létt og ferskt hvítvín sem hæglega er hægt að mæla með á þessu verði.
5. Banfi Rivo al Poggio 2012, kr. 1.876
Hvítvínið Rivo al Poggio er framleitt af vínhúsinu Banfi í Toskana. Þar sem það er framleitt úr blöndu af þrúgunum Chardonnay og Pinot Grigio þá fellur það undir skilgreinungina IGT, eða Indicazione Geografica Tipica. Flott hvítvín á góðu verði.

Arnaldo Caprai lét loksins draum sinn rætast að stofna sína eigin víngerð árið 1971 þegar hann festi kaup á jörðinni Val di Maggio í Úmbría og á rúmum fjórum áratugum hefur hann komið vínhúsi sínu í allra fremstu röð í héraðinu og þó víðar væri leitað.
Vínið Colli Martani Grechetto DOC Grecante 2012 kom fyrst á markað árið 1989 en það er framleitt að öllu leyti úr staðbundnu þrúgunni Grechetto. Vínþrúgan Grechetto kemur upprunalega frá Grikklandi en hefur lengi verið ræktuð í ítalska héraðinu Úmbría. Vínið er fyrst látið þroskast í 3 mánuði á stáltönkum og síðan í aðra 3 mánuði á flöskum áður en það er sett á markað. En þess má geta að fyrsti árgangurinn af þessu víni kom á markað árið 1989.
Lýsing: Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, fersk sýra, snarpt. Sítrus, pera, stjörnuávöxtur, steinefni, grösugt.
Einkunnir ýmissa fagaðila: Stephen Tanzer: 89/100 - Cellar Tracker: 87/100 – Wine Spectator: 87/100.
Colli Martani Grechetto DOC Grecante 2012 fæst í vínbúðinni og kostar kr. 2.963.
Þetta góða vín nýtur sín vel sem fordrykkur eitt og sér en einnig frábært með fiskmeti og alifuglum.

Í kringum þorpin Barolo og Barbaresco í héraðinu Piemonte, einu allra frægasta vínræktarsvæði ítalíu, eru heimkynni þrúgunnar Nebbiolo en úr henni eru framleidd kröftug og tannísk vín sem oft þurfa að þroskast í mörg ár til að ná sínum hæstu hæðum.
Vínin sem kennd eru við þorpið Barbaresco standa oft á tíðum jafnfætis vínunum sem koma frá nágrannabænum Barolo en geta stundum verið ögn mýkri. Vín sem kennd eru við Barbaresco verða að hafa þroskast í það minnsta 2 ár og áfengismagn þeirra má ekki vera lægra en 12,5%.
Prunotto Barbaresco DOCG 2012 er framleitt að öllu leyti úr þrúgunni nebbiolo. Vínið er látið þroskast í 12 mánuði á eikartunnum síðan er það er látið þroskast í 10 mánuði á flösku áður en það er sett á markað. Þótt hér sé um að ræða nokkuð stórt vín og kröftugt þá einkennist það af mikilli mýkt og þó nokkrum fínleika. Gott núna en getur einungis batnað á næstu árum.
Lýsing: Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Dökk og rauð ber, kirsuber, fjólur.
Einkunnir ýmissa fagaðila: Wine & Spirits Magazine: 91/100 – Stephen Tanzer: 88/100 – Vinous Antonio Galloni: 90/100 – CellarTracker: 85/100 – Jancis Robinson: 16,5/20 – Wine Spectator: 89/100 – Vinotek: 4,5 stjörnur
Prunotto Barbaresco DOCG 2010 fæst í vínbúðinni og kostar kr. 4.998.
Um að gera að umhella víninu með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara til að gefa víninu tækifæri til að opna sig. Njótið þessa góða matarvíns t.d. með rauðu kjöti, villibráð eða þroskuðum ostum, prófið endilega með risottó með sveppum.

Í Montalcino, í nágrenni Siena, eru framleidd heimsklassavín úr afbrigði Sangiovese þrúgunnar sem nefnist Brunello. Þekktasta vín svæðisins heitir Brunello di Montalcino sem er látið þroskast á tunnum í að minnsta kosti tvö ár og að minnsta kosti fjóra mánuði á flösku. Rosso di Montalcino er afbrigði af Brunello di Montalcino, oft kallað “litli bróðir Brunello”, en það þarf ekki að þroskast eins lengi og þar af leiðandi mögulegt að koma með vínið fyrr á markað.
Vínhúsið Il Poggione er staðsett á þessum slóðum, nánar tiltekið í Sant‘angelo in Colle í Montalcino, og framleiðir m.a. þetta virkilega vandaða vín sem flokkast sem Rosso di Montalcino. Il Poggione Rosso di Montalcino 2010 er framleitt að öllu leyti úr þrúgunni Sangiovese. Vínið er fyrst látið þroskast í 12 mánuði á frönskum eikartunnum en að því loknu er vínið látið þroskast á flösku í töluverðan tíma áður en það er sett á markað. Hér er um að ræða alvöru vín á sanngjörnu verði.
Lýsing: Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, miðlungstannín. Kirsuber, rauð ber, jörð, lauf.
Einkunnir ýmissa fagaðila: James Suckling: 90/100 – Wine Enthusiast: 88/100 – Vinous Antonio Galloni: 91/100 – CellarTracker: 88/100 – Jancis Robinson: 16.5/20
Il Poggione Rosso di Montalcino 2010 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 3.350.
Gott er að umhella þessu víni með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara til að gefa víninu tækifæri til að opna sig. Njótið vel með pasta með kjötsósu, rauðu kjöti og meðalþroskuðum ostum.

Í kringum þorpin Barolo og Barbaresco í Piemonte, einu allra frægasta vínræktarsvæði ítalíu, eru heimkynni þrúgunnar Nebbiolo en úr henni eru framleidd kröftug og tannísk vín sem oft þurfa að þroskast í mörg ár til að ná sínum hæstu hæðum. Vínin frá þorpinu Barolo eru öflugust þeirra, látin þroskast í að minnsta kosti 3 ár og mega aldrei vera lægri en 13% að áfengismagni.
Vínhúsið Massolino hefur alla tíð verið í eigu sömu fjölskyldunnar, stofnuð af Giovanni Massolino árið 1896. Á undanförnum árum hefur ný kynslóð fjölskyldunnar tæknivætt víngerðina og fært hana hröðum skrefum í átt til nútímans án þess þó að missa sjónar á þeim hornsteinum sem hafa fylgt henni frá stofnun.
Fyrsta Barolo DOCG vínið frá Massolino kom á markað árið 1911 og hefur síðan verið flaggskip víngerðarinnar. Massolino Barolo DOCG 2009 er framleidd einvörðungu úr þrúgunni Nebbiolo. Vínið er fyrst látið þroskast á stórum eikartunnum í að minnsta kosti 30 mánuði áður en það er látið þroskast á flösku í 12 mánuði áður en það er sett á markað.
Lýsing: Múrsteinsrautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, þétt tannín. Rauð ber, laufkrydd, rósir, tjara.
Einkunnir ýmissa fagaðila: James Suckling: 91/100 – Vinous Antonio Galloni: 88/100 – CellarTracker: 90/100 – Wine & Spirits Magazine: 90/100 – Wine Spectator: 95/100.
Massolino Barolo DOCG 2009 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 6.690.
Um að gera að umhella víninu með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara til að gefa víninu tækifæri til að opna sig. Njótið þessa góða matarvíns t.d. með rauðu kjöti, villibráð eða meðalþroskuðum ostum, passar líka frábærlega með fersku pasta í bragðmikilli kjötsósu.

Piemonte er eitt virtasta vínræktarhérað Ítalíu og þaðan koma mörg af bestu vínum Ítalíu. Innan héraðsins Piemonte, nánar tiltekið í hlíðunum umhverfis borgina Asti, má finna svæði sem kallast Langhe en þar má finna mörg af bestu vínum héraðsins, t.d. Barolo og Barbaresco. Vínræktin á þessu svæði einkennist af mörgum smáum fjölskyldureknum vínframleiðendum sem leggja ofuráherslu á gæði framleiðslunnar.
Rauðvínið Prunotto Barbaresco DOCG 2010 er framleitt 100% úr þrúgunni Nebbiolo, frægustu þrúgu héraðsins Piemonte. Þrúgurnar eru týndar um miðjan september, gerjun vínsins stendur yfir í u.þ.b. 15 daga en síðan er vínið látið þroskast á eikartunnum í 12 mánuði áður en það er látið þroskast á flöskum í 10 mánuði áður en það er sett á markað.
Lýsing: Ljósmúrsteinsrautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, þurrkandi tannín. Rauð ber, lakkrís, jörð, barkarkrydd.
Einkunnir ýmissa fagaðila: Vinous Antonio Galloni: 90/100 – CellarTracker: 85/100 – Jancis Robinson: 16,5/20 – Wine & Spirits Magazine: 91/100 – Wine Spectator: 89/100 – Vinotek: 4,5 stjörnur.
Prunotto Barbaresco DOCG 2010 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 4.998.
Gott er að umhella víninu með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara til að leyfa víninu að opna sig. Passar vel með rauðu kjöti, villibráð og þroskuðum ostum.

Í vínbúð allra landsmanna má finna þónokkuð úrval af ítölskum rauðvínum í hinum ýmsu gæða- og verðflokkum. Hlutfall verðs og gæða getur verið mjög mismunandi og þar af leiðandi hægt að finna virkilega góð vín á hlutfallslega lágu verði. Góð vín þurfa ekkert endilega að vera svakalega dýr :-)
Hér fyrir neðan hefur Minitalia tekið saman lista yfir bestu kaupin í ítölskum rauðvínum sem kosta undir kr. 2.600, allt virkilega góð vín í hlutfalli við verð:
Piccini Chianti DOCG 2013 - kr. 1.778
Ungur og einfaldur Chianti sem vert er að mæla með, flott vín að teknu tilliti til verðs. Framleitt úr þrúgunum Sangiovese 95% og Ciliegiolo 5%. Passar vel með pizzum og léttum pastaréttum.

Romio Montepulciano d‘Abruzzo 2012 - kr. 1.798
Ungt og sprækt vín frá héraðinu Abruzzo, framleitt að öllu leyti úr þrúgunni Montepulciano d‘Abruzzo. Fínt pastavín á góðu verði.

Banfi Rivo al Poggio 2012 - kr. 1.876
Banfi Rivo al Poggio er einfalt og þægilegt vín sem kemur frá vínhúsinu Castello Banfi í Toscana. Það er framleitt úr ítölsku þrúgunni Sangiovese og frönsku þrúgunum Syrah og Merlot. Virkilega fínt matarvín sem hæglega er hægt að mæla með á þessu verði.

Fantini Sangiovese 2013 - kr. 1.975
Þegar maður heyrir talað um þrúguna Sangiovese þá hugsar maður til Toscana en hún er ræktuð víða annars staðar, t.d. í héruðunum Abruzzo og Emilio-Romagna. Þetta vín kemur frá héraðinu Abruzzo og er framleitt að öllu leyti úr Sangiovese. Smellpassar með pizzum og pastaréttum.

Leonardo Chianti 2012 - kr. 1.999
Í hjarta Chianti-svæðisins í Toscana er að finna smábæinn Vinci en þar er starfandi vínsamlagið Cantine Leonardo sem samanstendur af 200 vínbændum. Þetta er eitt þekktasta vín þessa vínsamlags og er að 85% hluta framleitt úr þrúgunni Sangiovese, 10% úr þrúgunni Merlot og 5% úr hinum ýmsu þrúgum. Vínið er látið þroskast á stáltönkum í 6 mánuði áður en það er sett á flöskur. Hér er um að ræða góðan og einfaldan en þónokkuð kröftugan Chianti á sanngjörnu verði.
Í hjarta Chianti-svæðisins í Toscana er að finna smábæinn Vinci en þar er starfandi vínsamlagið Cantine Leonardo sem samanstendur af 200 vínbændum. Þetta er eitt þekktasta vín þessa vínsamlags og er að 85% hluta framleitt úr þrúgunni Sangiovese, 10% úr þrúgunni Merlot og 5% úr hinum ýmsu þrúgum. Vínið er látið þroskast á stáltönkum í 6 mánuði áður en það er sett á flöskur. Hér er um að ræða góðan og einfaldan en þónokkuð kröftugan Chianti á sanngjörnu verði.
Librandi Ciro Rosso 2011 - kr. 2.026
Þetta stórgóða vín kemur frá héraðinu Calabria sem staðsett er syðst á Ítalíu og er framleitt að öllu leyti úr þrúgunni Gaglioppo sem upprunin er í héraðinu, má líkja henni að nokkru leyti við frönsku þrúguna Pinot Noir. Flott vín á stórgóðu verði.

Banfi Centine Toscana IGT 2011 – kr. 2.370
Hérna kemur annað vín frá hinu stórgóða vínhúsi, Castello Banfi í Toscana. Þetta vín er framleitt að 60% hluta úr þrúgunni Sangiovese en afgangurinn skiptist á milli frönsku þrúganna Cabernet Sauvignon og Merlot. Þetta er virkilega flott vín með bragðmiklum pastaréttum, gæti gengið með léttri villibráð og einnig miðlungs þroskuðum ostum.

Cecchi Chianti Classico - kr. 2.564
Vínhúsið Cecchi er eitt af þessum gamalgrónu í Toscana sem ávallt hefur lagt mikla áherslu á að framleiða klassísk og vönduð vín. Vínið sem hér um ræðir, Cecchi Chianti Classico DOCG 2011, er framleitt 90% úr þrúgunni Sangiovese en afgangurinn samanstendur af hinum ýmsu þrúgutegundum. Vínið er fyrst látið þroskast á eikartunnum í 6 mánuði og svo látið þroskast í að minnsta kosti 2 mánuði á flösku áður en það er sett á markað. Hér er um að ræða virkilega gott Chianti Classico vín á mjög góðu verði. Flott með bragðmiklum pastasósum og jafnvel góðri nautasteik, lambakjöti eða léttri villibráð.

Í hjarta víngerðarsvæðisins Chianti Classico er að finna vínhúsið Castello di Fonterutoli sem hefur verið í eigu Mazzei fjölskyldunnar síðan 1435. Castello di Fonterutoli ræktar vínvið á yfir 115 hekturum með mestri áherslu á þrúguna sangiovese líkt og annars staðar í Chianti Classico. Vínræktarsvæði vínhússins skiptist á fimm svæði í Chianti Classico, þ.e. Fonteruoli, Siepi, Badiola, Belvedere og Caggio. Allar þrúgur eru handtíndar á mismunandi tímum til að hámarka gæði framleiðslunnar.
Í vínbúð allra landsmanna er hægt að nálgast "château" vín þessa virta vínhúss sem ber einfaldlega nafnið Castello Fonterutoli. Það er framleitt að 92% hluta úr þrúgunni Sangiovese en 8% er blanda af þrúgunum Malvasia Nera og Colorino. Þrúgurnar í þetta vín koma frá 50 mismunandi svæðum í eigu vínhússins og endurspeglar þar af leiðandi vel þær 36 tegundir af þrúgunni sangiovese sem ræktaðar eru á landareign Castello Fonterutoli. Vínið er fyrst látið þroskast á litlum frönskum í 20 mánuði áður en það er látið þroskast á flöskum í töluverðan tíma áður en það er sett á markað.
Lýsing: Dökkkirsuberjarautt. Þétt fylling, ósætt, fersk sýra þétt tannín. Rauð ber, sultuð kirsuber, jörð, krydd, lyng, eik.
Einkunnir ýmissa fagaðila: James Suckling: 94/100 – Robert Parker: 94/100 – Vious: 94/100 – CellarTracker: 89/100 – Decanter: 17,5/20 – Vinotek: 4,5 stjörnur.
Castello Fonterutoli 2010 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 7.767.
Njótið þessa góða matarvíns t.d. með góðri nautasteik, léttri villibráð eða þroskuðum ostum.

Einn virtasti og að margra mati allra besti framleiðandi freyðivína á Ítalíu er Ferrari frá héraðinu Trentino á Norður-Ítalíu. Vínhúsið var stofnað af Giulio Ferrari árið 1902 og hafa öll vín sem það hefur sett á markað verið framleidd með svokallaðri kampavínsaðferð, „metodo classico“, sem byggist á því að gerjunin á sér stað einvörðungu á flösku. Hann hafði kynnst kampavínframleiðslu í Epernay í Frakklandi og var fullviss um að þrúgan Chardonnay myndi sóma sér vel í heimahéraðinu hans, Trentino á Ítalíu.
Árið 1952 var Giulio Ferrari orðinn fimmtugur, barnlaus og nokkuð lúinn á mikilli vinnu við uppbyggingu vínhússins. Á þeim tímapunkti ákvað hann að láta vínhúsið í hendurnar á Bruno Lunelli, sérstaklega vegna þess að hann átti fimm börn og Giulio var þess fullviss að vínhúsið yrði í öruggum höndum þeirrar fjölskyldu um ókomna framtíð. Giulio Ferrari hafði svo sannarlega rétt fyrir sér því vínhúsið hefur haldið áfram að vaxa og dafna til dagsins í dag.
Við erum svo heppin að eiga kost á því að nálgast flagskip Ferrari-vínhússins, Ferrari Maximum Brut (kr.4.695), í vínbúð allra landsmanna. Þetta tæra og ferska freyðivín er virkilega gott og gefur kampavínunum frá Frakklandi ekkert eftir.