Published on
Nú þegar líður að áramótum er ekki seinna vænna en að birgja sig upp af freyðivíni, ekkert er skemmtilegra en að skála í góðra vina hópi þegar nýtt ár gengur í garð. Frá Ítalíu koma freyðivín á borð við Prosecco frá héruðunum Veneto og Friuli Venezia Giulia, Moscato d‘Asti og Asti Spumante frá Piemonte og ennfremur koma virkilega góð freyðivín héruðunum Trentino og Lombardia.
Picture
Frá Veneto koma að auki létt og ávaxtarík freyðivín sem kallast Prosecco, framleitt úr samnefndri þrúgu sem stundum gengur undir nafninu Glera. Þetta geta verið virkilega góð freyðivín á viðráðanlegu verði sem eru tilvalin til að skála í við góð tækifæri. Það er hægt að nálgast þónokkurt úrval af Prosecco-vínum hér á landi, t.d. Leonardo Prosecco Extra Dry (kr. 1.999), Valdo Prosecco Treviso Extra Dry (kr.2.574) og Villa Sandi Millesimato Valdobbiadene (kr.2.595).
Í nágrenni bæjarins Asti í Piemonte eru framleidd freyðivín úr þrúgunni Moscato. Hér erum við annars vegar að tala um Moscato d’Asti og hins vegar Asti Spumante. Þetta eru sæt og ávaxtarík vín með ferskleikann í fyrirrúmi, oftast drukkin ísköld við hin ýmsu tækifæri þegar á að skála, t.d. þegar fagna skal nýju ári. Hér erum við að tala um vín á borð við Santero Moscato (kr.1.150) og Villa Jolanda Moscato Rose Dolce (kr. 1.595), Gancia Asti (kr.1.699) og Martini Asti (kr. 1.699).
Mörg af bestu og dýrustu freyðivínum koma frá héraðinu Lombardia, nánar tiltekið frá svæðinu Franciacorta. En þar eru framleidd DOCG-freyðivín með kampavínsaðferðinni sem af mörgum eru talin bestu freyðivín Ítalíu, gerð úr þrúgunum Chardonnay, Pinot Blanc, Pinot Noir og Pinot Gris. Í vínbúð allra landsmanna er hægt að nálgast tvö vín frá þessu svæði, annars vegar Barone Pizzini Nature Franciacorte (kr.4.980) og hins vegar Barone Pizzini Animante Franciacorte (kr. 4.670).
Ekki er hægt að fjalla um ítölsk freyðivín án þess að nefna Ferrari frá héraðinu Trentino sem er einn allra virtasti og að margra mati besti framleiðandi freyðivína á Ítalíu. Við erum svo heppin að í vínbúðinni er hægt að nálgast flaggskip þessa fræga vínhúss, Ferrari Maximum Brut (kr.4.695).

Nú er ekkert annað eftir en að gera upp hug sinn, drífa sig út í  næstu vínbúð og birgja sig upp af veigum fyrir komandi áramót.
Published on
Nú líður senn að jólum og ekki seinna vænna að birgja sig upp af góðum vínum sem henta jólsteikinni, allt verður að vera fullkomið. Hér fyrir neðan mun ég mæla með nokkrum ítölskum vínum sem henta jólasteikinni, hvort sem við erum að tala um hreindýr eða rjúpu, önd eða gæs, svín eða lamb.
Picture
Villibráð
Með bragðmikilli villibráð, t.d. hreindýri eða rjúpa, dugar ekkert nema öflug og bragðmikil vín t.d. Banfi Brunello di Montalcino (kr.5.898) eða Aska Banfi (kr.3.693) frá Toscana.

Létt villibráð
Létt villibráð, t.d. önd eða gæs, kallar líka á nokkuð öflug vín og mælir Minitalia með t.d. Isole e Olene Chianti Classico (kr.3.695) frá Toscana eða Vajra Barbera d'Alba (kr.3.795) frá Piemonte.
Svínakjöt
Með svínakjöti mælir Minitalia t.d. með Cecchi Chianti Classico (kr. 2.595) eða Leonardo Chianti (kr. 1.990), bæði frá héraðinu Toscana. Hérna er um að ræða tvö virkilega góð matarvín sem henta vel með svínasteikinni.

Lambakjöt
Með jólalambinu mælir Minitalia með Vajra Langhe Nebbiolo (kr.3.790) frá héraðinu Piemonte og Villa Antinori (kr.2.999) frá Toscana. Hér er um ræða tvö stórgóð vín sem henta virkilega vel með jólalambinu.
Published on
Image description
Á 5 hektara svæði í Bolgheri í Toscana framleiðir framleiðandinn Castello Banfi tvö vín, annars vegar hvítvínið La Pettegola og hins vegar rauðvínið Aska. Castello Banfi er fjölskyldurekin víngerð, sett á stofn af Mariani fjölskyldunni árið 1978, og hefur á skömmum tíma orðið að einum þekktasta vínframleiðanda í Toscana.

Aska er framleitt eingöngu framleitt úr frönsku þrúgum, þ.e. uppistaðan er Cabernet Sauvignon auk þess sem smá hluti er Cabernet Franc. Vínið er látið þroskast í 10 mánuði á frönskum eikartunnum, síðan er vínið látið þroskast í ákveðinn tíma á flöskum áður en það er sett á markað. Líklegt er talið að þetta vín batni enn frekar á næstu árum og geta liðið mörg ár þar til það nái sínum hæstu hæðum.

Lýsing: Múrsteinsrautt. Dökkkirsuberjarautt. Þétt fylling, þurrt, fersk sýra, mjúk tannín. Kirsuber, sólber, kaffi, krydd, eik.

Einkunnir ýmissa fagaðila: James Suckling: 92/100 – Vinotek: 4,5 stjörnur.

Banfi Aska 2010 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 3.693.

Gott er að umhella víninu með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara til að gefa víninu tækifæri til að opna sig. Njótið vel með rauðu kjöti, villibráð eða meðalþroskuðum ostum.
Published on
Image description
Vínhúsið Frescobaldi er gamall og rótgróinn framleiðandi í Toscana en saga þess nær allt aftur til aldamótana 1300. Þar hafa hvorki fleiri né færri en þrjátíu kynslóðir sem hafa helgað sér framleiðslu á frábærum vínum frá Toscana.

Vínið sem hér um ræðir heitir Remole IGT 2012 en það er framleitt á Villa de Remole sem staðsett er í hjarta Toscana. Þetta vín er 85% framleitt úr Sangiovese og 15% úr Cabernet Sauvignon. Vínið er látið þroskast í fimm mánuði í stáltönkum áður en það er sett á floöskur og geymt í 2 mánuði áður en það er sett á markað.

Lýsing: Kirsuberjarautt. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra, miðlungstannín. Kirsuber, jörð, laufkrydd.

Einkunnir ýmissa fagaðila: James Suckling: 88/100 - CellarTracker: 83/100.

Remole IGT 2012 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 2.395.

Njótið vel með bragðmiklum pastaréttum, t.d. Spaghetti all'Amatriciana.

Published on
Image description
Á Sikiley þekur vínviður meira svæði en í nokkru öðru héraði Ítalíu en stór hluti vínberjaframleiðslunnar fer í rúsínuframleiðslu sem nýttar eru til eldamennsku eyjaskeggja. En þrátt fyrir það þá koma mörg góð vín frá Sikiley og hefur vínræktin tekið miklum framförum á undanförnum árum og framboðið aukist mikið af virkilega góðum vínum.

Vínhúsið Donnafugata, á íslensku „Kona á flótta“, var stofnað á árinu 1983 af hjónunum Giacomo og Gabriella Rallo en í dag eru það synir þeirra, Jose og Antonio, sem stýra skútunni. Í vínbúð allra landsmanna má nálgast tvö vín frá þessu virta vínhúsi, annars vegar rauðvínið Donnafugata Sedara og hins vegar Donnafugata Anthilia.

Hvítvínið Donnafugata Anthilia 2012 er framleitt úr silieysku þrúgunum Ansonica og Cataratto, sem er uppistöðuþrúgan í þessu víni, ásamt smá magni af frönsku þrúgunum Chardonnay og Viognier.

Lýsing: Fölsítrónugult. Létt meðalfylling, ósætt, fersk sýra. Grösugur ljós ávöxtur, melóna.


Einkunnir ýmissa fagaðila:
James Suckling: 90/100 – CellarTracker: 89/100

Donnafugata Anthilia 2012 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 2.399.

Virkilega gott vín sem nýtur sín best í góðra vina hópi, prófið t.d. með sjávarréttapasta, létt reyktum fisk og skelfisk.

Picture