Published on
Image description
Arnaldo Caprai lét loksins draum sinn rætast að stofna sína eigin víngerð árið 1971 þegar hann festi kaup á jörðinni Val di Maggio í Úmbría og á rúmum fjórum áratugum hefur hann komið vínhúsi sínu í allra fremstu röð í héraðinu og þó víðar væri leitað.

Vínið Colli Martani Grechetto DOC Grecante 2012 kom fyrst á markað árið 1989 en það er framleitt að öllu leyti úr staðbundnu þrúgunni  Grechetto. Vínþrúgan Grechetto kemur upprunalega frá Grikklandi en hefur lengi verið ræktuð í ítalska héraðinu Úmbría. Vínið er fyrst látið þroskast í 3 mánuði á stáltönkum og síðan í aðra 3 mánuði á flöskum áður en það er sett á markað. En þess má geta að fyrsti árgangurinn af þessu víni kom á markað árið 1989.

Lýsing: Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, fersk sýra, snarpt. Sítrus, pera, stjörnuávöxtur, steinefni, grösugt.

Einkunnir ýmissa fagaðila: Stephen Tanzer: 89/100 - Cellar Tracker: 87/100 – Wine Spectator: 87/100.

Colli Martani Grechetto DOC Grecante 2012 fæst í vínbúðinni og kostar kr. 2.963.

Þetta góða vín nýtur sín vel sem fordrykkur eitt og sér en einnig frábært með fiskmeti og alifuglum.
0 Comments
Picture