Published on
Héraðið Toskana er líklega frægasta vínræktarhérað Ítalíu og þaðan koma mörg af bestu vínum landsins. En það er einkum jarðvegur héraðsins ásamt ákjósanlegu veðurfari sem skapa þessar einstöku aðstæður til vínræktar. Í þessu stórkostlega vínræktarhéraði er að finna kastalann Brolio sem hefur verið í eigu Ricasoli-fjölskyldunnar síðan árið 1143. En vínhúsið Barone Ricasoli er eitt það elsta í heiminum sem verið hefur starfandi samfellt frá stofnun. Það má því segja að saga Ricasoli-fjölskyldunnar sé samofin sögu og þróun vínræktar í Toskana en fjölskyldan á m.a. heiðurinn af upprunalegu þrúgusamsetningu Chianti-vínanna sem var í gildi allt til ársins 1996.
Picture
Allt fram á áttunda áratug síðustu aldar framleiddi Barone Ricasoli gæðavín sem nutu mikilla vinsælda víða um heim. Í upphafi áttunda áratugarins, í kjölfar erfiðra tíma og mikilla breytinga,  neyddist Ricasoli-fjölskyldan til að selja vínhúsið til kanadíska fyrirtækisins Seagram‘s. Með nýjum eigendum breyttist allt og ekki til hins betra. Framleiðslan var aukin á kostnað gæðanna sem aldrei hefur verið talin góð vísa þegar kemur að vínrækt. Eftir að hafa horft upp á vínhúsið hnigna í nærri tvo áratugi ákvað fjölskyldan árið 1993 að kaupa fyrirtækið á nýjan leik. Francesco Ricasoli, þá einungis 33 ára gamall, tók við stjórnartaumunum og hans beið mjög svo krefjandi verkefni að reisa vínhúsið aftur til vegs og virðingar.
Picture
Þegar fjölskyldan keypti vínhúsið á nýjan leik voru framleiddar í kringum tólf milljónir flöskur á ári af mjög misgóðu glundri en í dag, 22 árum síðar, framleiðir Barone Ricasoli „einungis“ tvær milljónir flöskur af gæðavíni. Til þess að ná þessum markmiðum sínum umbylti Ricasoli-fjölskyldan allri víngerðinni og ekki síst vínræktinni en nýjum vínvið var plantað og aukin áhersla á ýmsar alþjóðlegar þrúgur á borð við Capernet Sauvignon, Merlot, Syrah og Capernet Franc. Afrakstur þessara miklu breytinga hefur með mikilli vinnu skilað sér margfalt til baka því á undanförnum árum hafa komið dásamleg vín frá Barone Ricasoli, vín á borð við Casalferro, Castello di Brolio og Chianti Classico Riserva.
Barone Ricasoli tekur virkan þátt og styður við ýmsa viðburði sem glæða lífi í héraðið sitt, Toskana. Barone er t.d. einn af aðalstyrktaraðilum EROICA, hinnar þekktu reiðhjólakeppni Í Toskana þar sem menn koma saman með eldri hjólhesta sína og bruna um fallega sveitir Toskana.
Það er bjart yfir Castello di Brolio þessi misserin, árangur mikillar vinnu undanfarinna tveggja áratuga er farinn að skila sér margfalt til baka. Í dag er Barone Ricasoli stærsti framleiðandinn á Chianti Classico-svæðinu með hvorki fleiri né fær en 230 hektara af vínviði. Barone Ricasoli er ennfremur með í gangi áhugaverð verkefni í gangi, bæði í Bolgheri og Montalcino, sem skemmtilegt verður að fylgjast með í náinni framtíð.

Published on
MINITALIA er svo sannarlega í góðu skapi og ætlar að gefur þremur heppnum lesendum tvær glæsilegar léttvínsflöskur frá ítalska vínhúsinu Barone Ricasoli, annars vegar rauðvínið Brolio Chianti Classico 2014 og hins vegar hvítvínið Barone Ricasoli Brolio 2014.

Eina sem þú þarft að gera er að setja "like" við MINITALIA á Facebook, deila facebook-færslu tengdum þessum pósti á Facebook og setja í komment hver sé þinn uppáhaldsstaður á Ítalíu.
Picture
Published on
Vínhúsið Barone Ricasoli er eitt það elsta í heiminum sem verið hefur starfandi samfellt frá stofnun eða allt frá árinu 1141. Það má því segja að saga Ricasoli-fjölskyldunnar sé samofin sögu og þróun vínræktar í héraðinu Toskana á Ítalíu. Ricasoli-fjölskyldan á m.a. heiðurinn af upprunalegu þrúgusamsetningu Chianti-vínanna sem var í gildi þar til henni var breytt árið 1996 til þess að gefa vínframleiðendum aukinn sveigjanleika.
Picture
Vínframleiðendur í Chianti eru í dag skyldugir til að nota að minnsta kosti 80% af þrúgunum Sangiovese við framleiðslu á Chianti Classico DOCG. Mikið hefur verið slakað á reglum undanfarin ár og hafa framleiðendur mun meira frjálsræði í dag en þeir höfðu fyrir nokkrum áratugum, t.d. þurfa framleiðendur í dag ekki að nota þrúgurnar Trebbiano, Malvasia og Canaiolo við gerð Chianti-vína og ennfremur leyfist þeim að nota 15% hlutfall af þrúgum á borð við Cabernet Sauvignon og Merlot.

Vínið sem hér um ræðir, Brolio Chianti Classico DOCG 2014, er einmitt framleitt að 80% hluta úr þrúgunni Sangiovese, 15% úr Merlot og að endingu 5% úr Cabernet Sauvignon (5%). Vínið er fyrst látið þroskast í 9 mánuði á eikartunnum og síðan látið þroskast áfram á flöskum í 3-5 mánuði áður en það er sett á markað.

Veðurfarslega séð í Toskana var árið 2014 mjög óvenjulegt, jafnvel svo sérstakt að elstu muna ekki eftir öðru eins. Veturinn var óvenjulega hlýr og vætusamur, enda um að ræða hlýjasta vetur á þessum slóðum síðan 1834. Þegar leið fram á vorið breyttust hlutirnir lítið, hitastigið hækkaði hægt og rólega en vætan hélt áfram. Svo kom sumarið með hita undir meðallagi með þó nokkurri vætu og töluverðum raka. En til allrar hamingju kom bjartur og sólríkur september eins og himnasending og bjargaði víða uppskerutímabilinu.

Þetta rúbínrauða vín tekur á móti manni með angan af kirsuberjum, vanillu og krydduðum tónum. Mikil fylling, fersk sýra, mjúk tannín og þó nokkuð langt eftirbragð. Flott vín í góðu jafnvægi.

Brolio Chianti Classico DOCG 2013 fær fjórar stjörnur – GÓÐ KAUP á þessu verði, kr. 3.449.

Flott matarvín sem hentar virkilega vel með rauðu kjöti, sérstaklega lambakjöti, einnig villibráð í léttari kantinum og svo smellpassar það líka með bragðmiklum pastaréttum.

Í HNOTSKURN: Flott matarvín í góðu jafnvægi, mikil fylling og þó nokkru eftirbragði.
Published on
Í hjarta bæjarins Soave, í héraðinu Veneto, er að finna vínhúsið Pieropan sem á sér glæsta sögu sem nær allt aftur til 1880. Í dag framleiðir þetta virta vínhús nokkur af allra bestu hvítvínum Ítalíu, t.d. Pieropan La Rocca Soave Classico, Pieropan Calvarino Soave Classico og vínið sem hér er til umfjöllunar sem heitir einfaldlega Pieropan Soave Classico.
Picture
Vínið sem hér um ræðir heitir Pieropan Soave Classico 2013 og er framleitt úr þrúgunum Garganega (85%) og Trebbiano di Soave (15%). Þetta sítrónugula hvít hefur ferskan angan af sítrusávexti, greipaldin ásamt keim af blómaangan. Í munni má finna græn epli og sítrónur ásamt möndlum og hnetum. Hér er um að ræða glæsilegt vín í góðu jafnvægi, ferskt með góðri skerpu.

EINKUNNIR ÝMISSA FAGAÐILA: Wine Spectator: 90/100 – CellarTracker: 88/100 – Falstaff Magazine: 91/100 – Wine Enthusiast: 91/100

MINITALIA gefur Pieropan Soave Classico 2013 fjórar og hálfa stjörnu – STÓRGÓÐ KAUP á þessu verði, kr. 2.830.

Í HNOTSKURN: Glæsilegt vín í góðu jafnvægi, ferskt með góðri skerpu.
Published on
Allegrini-fjölskyldan hefur frá 16. öld spilað stórt hlutverk í vínræktinni á Valpolicella-svæðinu í héraðinu Veneto á Ítalíu. Kynslóð eftir kynslóð hefur tekið við stjórnartaumunum í þessu virta vínhúsi sem einkennist af nútímalegri nálgun á vínræktina þó gömlum og góðum hefðum er ekki kastað á glæ. Vínin frá þessu virta vínhúsi hafa ekki sést í hillum vínbúðarinnar í ansi langan tíma og eru því kærkomnir endurfundir að eiga sér stað þessa dagana. Þetta eru vönduð vín frá vönduðum framleiðanda sem fegrar framboðið af góðum vínum í vínbúðinni svo um munar.
Picture
Vínið sem hér um ræðir heitir Allegrini Palazzo della Torre IGT 2012 og er einnar ekru vín sem staðsett er í kringum villu Allegrini-fjölskyldunnar sem heitir einfaldlega Villa della Torre. Þetta vín er aðallega framleitt úr héraðsþrúgunum Corvina Veronese (70%) og Rondinella (25%) en pínulítið af toskana-þrúgunni Sangiovese (5%). Þar sem er að finna þrúguna Sangiovese í blöndunni góðu er vínið skilgreint sem Veronese IGT en ekki sem Valpolicella DOCG. Vín er að hluta til framleitt eftir nýstárlegri nálgun á hina svokölluðu „ripasso“ aðferð, þ.e. ákveðinn hluti af þrúgunum er tekinn til hliðar og þær þurrkaðar. Vínið er látið þroskast í 15 mánuði á eikartunnum og síðan látið þroskast áfram í tvo mánuði á flöskum áður en það er látið á markað.

Rúbínrautt, jafnvel út fjólublátt tekur þetta flotta vín á móti manni með angan af ávöxtum og berjum, pínulítið af rúsínum og kakó. Hér er um að ræða silkimjúkt vín í góðu jafnvægi, góð sýra sem gerir þetta vín að afbragðs matarvíni. Hentar vel með mörgum klassískum ítölskum, t.d. Amatriciana og Carbonara, grilluðu kjöti og meðalþroskuðum ostum.

Allegrini Palazzo della Torre IGT 2012 fær fjórar stjörnur – ÁGÆTIS KAUP á þessu verði, kr. 2.990.

Í HNOTSKURN: Silkimjúkt vín í góðu jafnvægi, virkilega flott matarvín.
Published on
Nú þegar sumarið er komið er ekki seinna vænna að birgja sig upp af freyðivíni, sérstaklega þegar veðurspáin er góð fyrir helgina. Ekkert er skemmtilegra en að skála í góðra vina hópi á björtum og fallegum sumardegi. Frá Ítalíu koma t.d. freyðivín á borð við Prosecco frá héruðunum Veneto og Friuli Venezia Giulia og svo koma einnig frábær freyðivín frá héruðunum Trentino og Lombardia.
Picture
Frá Veneto koma að auki létt og ávaxtarík freyðivín sem kallast Prosecco, framleitt úr samnefndri þrúgu sem stundum gengur undir nafninu Glera. Þetta geta verið virkilega góð freyðivín á viðráðanlegu verði sem eru tilvalin til að skála í við góð tækifæri. Það er hægt að nálgast þó nokkurt úrval af Prosecco-vínum hér á landi, t.d. get ég svo sannarlega mælt með Villa Sandi Prosecco (kr. 1.995) og Lamberti Prosecco Exra dry (kr. 1.999)
 
Mörg af bestu og dýrustu freyðivínum koma frá héraðinu Lombardia, nánar tiltekið frá svæðinu Franciacorta. En þar eru framleidd DOCG-freyðivín með kampavínsaðferðinni sem af mörgum eru talin bestu freyðivín Ítalíu, gerð úr þrúgunum Chardonnay, Pinot Blanc, Pinot Noir og Pinot Gris. Í vínbúð allra landsmanna er einungis hægt að nálgast eitt vín frá þessu svæði, Barone Pizzini Animante Franciacorte (kr. 4.680).
 
Ekki er hægt að fjalla um ítölsk freyðivín án þess að nefna Ferrari frá héraðinu Trentino sem er einn allra virtasti og að margra mati besti framleiðandi freyðivína á Ítalíu. Við erum svo heppin að í vínbúðinni er hægt að nálgast flaggskip þessa fræga vínhúss, Ferrari Maximum Brut (kr.4.350).

MESTU GÆÐIN AÐ MATI MINITALIA
1. Barone Pizzini Animante Franciacorta, kr. 4.680
2. Ferrari Maximum Brut, kr. 4.350
 
BESTU KAUPIN AÐ MATI MINITALIA
1. Valdo Prosecco Treviso, kr. 1.995
2. Ferrari Maximum Brut, kr. 1.999

Nú er ekkert annað eftir en að gera upp hug sinn, drífa sig út í  næstu vínbúð og birgja sig upp af veigum fyrir komandi sólskinsstundir.
Published on
Vínhúsið Il Poggione er staðsett í Sant Angelo in Colle í Montalcino í Toskana. Þetta vínhús hefur verið rekið af Franceschi fjölskyldunni allt frá lok átjándu aldar en í dag er það fimmta kynslóð fjölskyldunnar sem sér um reksturinn. Il Poggione er ekki einungis einn virtasti framleiðandi vína sem kennd eru við Brunello di Montalcino heldur er það eitt fyrsta vínhúsið sem hóf framleiðslu á þessum tiltölulega unga vínstíl sem varð til um miðja síðustu öld.
Picture
Í Montalcino, í nágrenni Siena í héraðinu Toskana, eru framleidd heimsklassavín úr afbrigði af þrúgunni Sangiovese sem nefnist Brunello. Þekktasta vín svæðisins heitir Brunello di Montalcino sem er látið þroskast á tunnum í að minnsta kosti tvö ár og ennfremur að minnsta kosti fjóra mánuði á flösku.

Hér er um að ræða sjálft Brunello di Montalcino frá þessu fræga vínhúsi, Tenuta il Poggione, sem er að öllu leyti framleitt úr þrúgunni Brunello sem kemur af yfir 20 ára gömlum vínvið. Vínið er fyrst látið þroskast í hvorki meira né minna en 36 mánuði á frönskum eikartunnum áður en það er látið þroskast í ákveðinn tíma á flösku áður en það er sett á markað.

Þetta rúbínrauða vín mætir manni með þroskuðum en flóknum angan af rauðum ávexti, þó nokkuð krydd og keimur af leðri og kakó. Þétt og mikið vín í munni, ákaft og kraftmikið. Mikill hiti, mikið jafnvægi og flauelsmjúk tannín. Mikið og viðvarandi eftirbragð. Virkilega góð sýra sem lofar góðu fyrir langlífi þessa víns.

Il Poggione Brunello di Montalcino 2009 fær fimm stjörnur -  FRÁBÆRT VÍN SEM KOSTAR SITT, eða kr. 7.390

Hér erum að ræða magnað vín sem fer vel með rauðu kjöti, villibráð og þroskuðum ostum.
Published on
Í hjarta svæðisins Chianti Classico má finna hið virta vínhús Castello di Fonterutoli sem hefur verið í eigu Mazzei fjölskyldunnar síðan 1435. Vínhúsið hefur yfir að ráða 650 hekturum af jarðnæði og þar af eru 117 þaktir vínviði sem skiptast upp í fimm undirsvæði: Fonterutoli, Siepi, Badiola, Belvedere og Caggio.
Picture
Castello di Fonterutoli framleiðir vín á borð við Castello Fonterutoli, Fonterutoli Chianti Classico og vínið sem hér um ræðir sem heitir Poggio Badiola. Poggio Badiola IGT 2013 er framleitt úr heimaþrúgunni Sangiovese (70%) og frönsku þrúgunni Merlot (30%). Þetta vín uppfyllir ekki skilyrðin að vera flokkað sem Chianti Classico heldur flokkast það sem IGT eins og mörg önnur frábær vín frá Toskana. Fyrsti árgangurinn af þessu víni kom á markað árið 2013 og á sér því ekki langa sögu líkt og mörg önnur vín frá þessu virta vínhúsi. Vínið er fyrst látið þroskast á frönskum og amerískum eikartunnum í tíu mánuði og síðan látið þroskast áfram í einn mánuð á flöskum áður en það er loksins sett á markað.

Þetta silkimjúka og fágaða vín mætir manni með angan af dökkum berjum, smá vanillu og jafnvel ristuðu brauði. Ferskur ávöxtur, dálítið kryddaður, ásamt kirsuberjum, risberjum og bláberjum. Þurrkaðar kryddjurtir á víð og dreif. Ágætis fylling, mjúk tannín og gott eftirbragð. Hér er um að ræða flott matarvín með ferskri sýru sem hentar svo vel með margskonar ítalskri matargerð.

Poggio Badiola IGT 2013 fær fjórar stjörnur – VIRKILEGA GÓÐ KAUP á þessu verði, kr. 2.495

Hérna erum við að tala um virkilega gott matarvín sem hentar vel með bragðmiklum pastaréttum á borð við Spaghetti all'amatriciana og Spaghetti alla puttanesca, gæti líka passað vel með Kjúklingi veiðimannsins.
Published on
Nú líður senn að jólum og ekki seinna vænna að birgja sig upp af góðum vínum sem henta jólasteikinni, allt verður að vera fullkomið. Hér fjallar MINITALIA ítarlega um ítölsk vín með hátíðarmatnum, hvort sem við erum að tala um hreindýr, rjúpu, fasana, önd, gæs o.s.frv..
Picture
LÉTT VILLIBRÁÐ
Þegar talað er um létta villibráð er t.d. verið að tala um akurhænur, fasana og villiendur. Hér er um að ræða ljóst kjöt með fínlegu villibragði sem kalla á þó nokkuð öflug vín með mikilli mýkt.
 
Fasani
Það má að mörgu líkja kjötinu af fasana við kjúklingakjöt en er þó mun bragðmeira og er auk þess með þennan eftirsóknarverða villikeim. Hér hentar vel að bera fram Chianti Classico, jafnvel nokkurra ára gamlan sem hefur fengið tækifæri til að þroskast á flösku um töluverðan tíma til að ná þessari mýkt og margslungnu bragðeinkennum, t.d. mælir MINITALIA með Castelgreve Chianti Classico Riserva (kr.2.863), Fonterutoli Chianti Classico eða Isole e Olena Chianti Classico (kr.3.750). Hérna koma líka stóru vínin frá Piemonte sterk inn, þ.e. Barolo og Barbaresco. MINITALIA mælir t.d. með Fratelli Alessandria Barolo og Prunotto Barbaresco.

Akurhæna
Það er bæði hægt að bera fram rauðvín sem og hvítvín með akurhænu. Ef taka á fyrri kostinn mælir MINITALIA með léttu og ávaxtaríku Chianti sem þó hefur fengið að þroskast á flöskunni í einhvern tíma, t.d. Leonardo Chianti (kr. 1.999), Cecchi Chianti Classico (kr.2.564) eða Frescobaldi Castiglioni (kr.2.499).

Oft er skemmtilegt að bera hvítvín með akurhænu sem hafa fengið að þroskast í nokkurn tíma á eikartunnum, t.d. smellpassar vínið Bramito del Cervo Chardonnay (kr. 2.799). Þetta vín er framleitt úr þrúgunni Chardonnay og hefur fengið að þroskast að hluta á frönskum eikartunnum.

Villiönd
Hérna erum  við að tala um magurt, dökkt og bragðmikið kjöt sem kalla á kröftugri og bragðmeiri vín heldur en fasani og akurhæna. Með villiönd smellpassar að bera fram bæði Ripasso eða jafnvel Amarone frá svæðinu Valpolicella í héraðinu Veneto. Það hafa akkúrat þann kraft til að takast á við kjöt villiandarinnar. MINITALIA mælir með Sartori Valpolicella Ripasso (kr.2.398), Tenuta Sant‘Antonio Monte Garbi Ripasso (kr.2.998) eða Tommassi Ripasso (kr.3.499).
 
ALVÖRU VILLIBRÁÐ
Með bragðmikilli villibráð, t.d. hreindýri villigæs eða rjúpu, dugar ekkert nema öflug og bragðmikil vín. Þar koma einungis stóru ítölsku vínin til greina, t.d. Brunello di Montalcino, Amarone della Valpolicella, Chianti Classico, Barolo og Barbaresco.
 
Hreindýr
Með hreindýri smellpassar að leita til héraðsins Toskana, t.d. flottum Brunello di Montalcino eða öflugum Chianti classico sem hefur fengið að þroskast töluvert, bæði á eikartunnum og ekki síst á flösku. MINITALIA mælir með vínum á borð við Fonterutoli Chianti Classico (kr.3.295), Arnaldo Caprai Collepiano Sagrantino de Montefalco (kr.6.714), Antinori Badia a Passignano Riserva (kr. 5.898) eða Il Poggione Brunello di Montalcino (kr.7.890).
 
Rjúpa
Rjúpan er líklega bragðmesta villibráðin með sitt dökka en þó fínlega kjöt sem einkennist af miklu villi- og lyngbragði. Hérna er virkilega gott að leita ánýjan leik til héraðsins Toskana og næla sér í kraftmikinn Chianti Classico, Brunello di Montalcino eða jafnvel eitt af hinum víðfrægu SuperTuscan vínum. Hérna mælir MINITALIA enn á ný með hinu vandaða en á sama tíma hagstæða Fonterutoli Chianti Classico (kr. 3.295) en fyrir lengra komna þá er svo sannarlega þess virði að prófa t.d.  eða Il Poggione Brunello di Montalcino (kr.7.890) eða Isole e Olena Cepparello (kr. 7.756).
 
Villigæs
Þrátt fyrir að gæsin sé ekki eins bragðmikil og rjúpan þá kallar hún engu að síður á kröftug og bragðmikil rauðvín, t.d. Amarone della Valpolicella, Brunello di Montalcino eða Chianti Classico. MINITALIA mælir með t.d. Tommasi Amarone della Valpolicella Classico (kr.5.999), Banfi Brunello di Montalcino (kr.5.825) og Fonterutoli Chianti Classico (kr.3.295).
 
KALKÚNN
Með kalkún er hægt að bera fram bæði rautt og hvítt. Ef rautt verður fyrir valinu má mæla með Ripasso, t.d. Sartori Valpolicella Ripasso (kr.2.398), Tenuta Sant‘Antonio Monte Garbi Ripasso (kr.2.998) eða Tommasi Ripasso (kr.3.499). Chianti vínin eru líka virkilega góð matarvínið sem passa vel með Kalkún eins og svo mörgu öðru, t.d. Brolio Chianti Classico (kr. 3.449). Ef aftur á móti hvítt verður fyrir valinu þá mælir MINITALIA með víninu Bramito del Cervo Chardonnay (kr. 2.799) sem framleitt er úr þrúgunni Chardonnay og fengið hefur að þroskast að hluta á frönskum eikartunnum.
 
HAMBORGARAHRYGGUR
Það er alls ekki auðvelt að para saman vín við hamborgarahrygginn sem er svo vinsæll á borðum landsmanna. Hérna er best að velja létt og ávaxtarík rauðvín frá Valpolicella, t.d. Sartori Valpolicella Ripasso (kr.2.398) eða Tommasi Ripasso (kr. 3.499).
 
NAUTAKJÖT
Léttsteikt nautasteik ræður vel við nokkuð kröftug rauðvín sem eru með tannín yfir meðallagi, t.d. Chianti Classico, Brunello di Montalcino eða Rosso di Montalcino sem oft er kallaður litli bróði Brunello. MINITALIA mælir t.d. með Brolio Chianti Classico (kr. 3.449), Il Poggione Rosso di Montalcino (kr. 3.350) eða Valiano Chianti Classico Riserva (kr.3.699).
 
LAMBAHRYGGUR
Lambahryggurinn er virkilega vínvænt kjöt þar sem fitan spilar lykilhlutverk. Lambahryggurinn kallar á bragmikil rauðvín, t.d. Chianti Classico, Brunello di Montalcino eða jafnvel Barbaresco. MINITALIA mælir með Fonterutoli Chianti Classico (kr. 3.295), Selvapiana Chianti Rufina (kr.3.495) eða Prunotto Barbaresco (kr. 4.998).
Published on
Piemonte er eitt virtasta vínræktarhérað Ítalíu og þaðan koma mörg af bestu vínum landsins. Vínræktin í héraðinu Piemonte einkennist af mörgum smáum fjölskyldureknum vínframleiðendum sem leggja ofuráherslu á gæði framleiðslunnar.
Picture
Fjögur af DOCG vínum Piemonte eru gerð úr þrúgunni Nebbiolo, frægustu þrúgu héraðsins, þ.e. Barolo, Barbaresco, Roero og Gattinara. Úr Nebbiolo-þrúgunni eru framleidd kröftug og tannísk vín sem oft þurfa að þroskast í mörg ár til að ná sínum hæstu hæðum. Vínin frá þorpinu Barolo eru öflugust þeirra, látin þroskast í að minnsta kosti 3 ár og eru aldrei lægri en 13% í áfengismagni. Bærinn Barbaresco er í næsta nágrenni við Barolo en þaðan koma svipuð vín, ögn mýkri en standa mörg hver jafnfætis vínunum frá nágrannabænum, Barolo. Vínin frá Barbaresco eru látin þroskast í það minnsta 2 ár og áfengismagn þeirra má ekki vera lægra en 12,5%.

Í kringum bæina Asti og Alba í Piemonte eru framleidd ögn einfaldari vín úr þrúgunum Barbera og Dolcetto. Þekktustu vínin úr Barbera-þrúgunni eru Barbera d’Asti, Barbera del Monferrato og Barbera d’Alba en þekktustu vínin úr þrúgunni Dolcetto eru Dolcetto d’Alba, Dolcetto d’Acqui og Dolcetto d’Ovada. Þetta eru létt og ávaxtarík rauðvín sem ber helst að njóta á meðan þau eru ung og ferskleikinn er í fyrirrúmi.

Þótt rauðvínin séu fyrirferðameiri í héraðinu Piemonte þá má finna þar virkilega góð hvítvín inn á milli, t.d. DOCG-vínin Cortese di Gavi úr þrúgunni Cortese og Roero Arneis sem framleitt er úr þrúgunni Arneis.

Það má þó segja á vissan hátt að allra þekktustu vín héraðsins eru hvorki rauðvín né hvítvín heldur freyðivín framleidd í nágrenni bæjarins Asti. Þetta er annars vegar vínið Moscato d’Asti og hins vegar Asti Spumante, bæði framleidd úr þrúgunni Moscato. Þetta eru sæt og ávaxtarík vín með ferskleikann í fyrirrúmi, oftast drukkin ísköld við hin ýmsu tækifæri þegar á að skála.

Í Piemonte eru framleidd fleiri vín sem falla undir skilgreiningarnar DOC og DOCG en í nokkru öðru héraði Ítalíu og héraðið framleiðir ennfremur 40% af öllum þeim vínum sem falla undir þessar skilgreiningar. Hvernig sem litið er á málið má með sönnu segja að Piemonte er eitt af þremur bestu, frægustu og áhrifamestu vínræktarhéruðum landsins, ásamt héruðunum Toskana og Veneto.

Hér fyrir neðan má sjá umfjallanir Minitalia um nokkur góð vín frá Toskana:
Picture