- Published on
Vínhúsið Cecchi er eitt af þessum gamalgrónu í Toscana, stofnað árið 1893 af Luigi Cecchi og fljótlega fór sonur hans, Cesare Cecchi, að starfa við hlið föður síns. Orðspor vínhússins fór ekki á flug á alþjóðavisu fyrr en undir stjórn annars Luigi Cecchi, barnabarns stofnandans sjálfs. Í dag er fjórða kynslóðin við stjórnartaumana í vínhúsinu Cecchi en það eru bræðurnir Andrea og Cesare Cecchi. Vínhús Cecchi-fjölskyldunnar hefur ávallt lagt mikla áherslu á að framleiða klassísk og vönduð vín sem fullkomlega eru trú uppruna sínum.

Cecchi Chianti Natio Organic DOCG 2015 er virkilega aðlaðandi vín sem framleitt er úr þrúgunum Sangiovese (90%) og Colorino (10%). Þetta vín er framleitt einvörðungu úr lífrænum þrúgum á svæði í Toskana sem kallast Colline del Chianti. Þetta vín er fyrst látið þroskast á stáltönkum í u.þ.b. 6 mánuði og síðan látið þroskast í að minnsta kosti tvo mánuði á flösku áður en það er sett á markað.
Þetta rúbínrauða vín tekur á móti manni með nokkuð áköfum angan af ferskum ávexti, vottur af kryddi. Ávaxtaríkt vín þar sem kirsuber, bláber og plómur spila aðalhlutverkin. Þetta er mjúkt vín í góðu jafnvægi með nokkuð flottan strúktúr.
Cecchi Chianti Natio Organic DOCG 2015 fær þrjár og hálfa stjörnu – MJÖG GÓÐ KAUP á þessu verði en það kostar einungis kr. 2.290 í vínbúð allra landsmanna.
Þetta er virkilega gott matarvín sem passar vel með bragðmiklum ítölskum pastaréttum, t.d. Spaghetti all‘amatriciana eða Spaghetti alla puttanesca, smellpassar líka með réttum á borð við Kjúklingi veiðimannsins og Eggaldin með parmesan.

Nú líður senn að áramótum og ekki seinna vænna en að birgja sig upp af freyðivíni. Það er fátt skemmtilegra en að skála í góðra vina hópi þegar nýtt ár gengur í garð. Frá Ítalíu koma freyðivín á borð við Prosecco frá héruðunum Veneto og Friuli Venezia Giulia, Moscato d‘Asti og Asti Spumante frá Piemonte og ennfremur koma virkilega góð freyðivín héruðunum Trentino og Lombardia.
Frá Veneto koma að auki létt og ávaxtarík freyðivín sem kallast Prosecco, framleitt úr samnefndri þrúgu sem stundum gengur undir nafninu Glera. Þetta geta verið virkilega góð freyðivín á viðráðanlegu verði sem eru tilvalin til að skála í við góð tækifæri. Það er hægt að nálgast þónokkurt úrval af Prosecco-vínum hér á landi, t.d. Allegrini Prosecco Millesimato Dry (kr.1.89) , Lamberti Prosecco (kr. 1.999) , Villa Sandi Il Fresco (kr.1.995) og Valdo Prosecco Treviso Extra Dry (kr.2.590) .
Í nágrenni bæjarins Asti í Piemonte eru framleidd freyðivín úr þrúgunni Moscato. Hér erum við annars vegar að tala um Moscato d’Asti og hins vegar Asti Spumante. Þetta eru sæt og ávaxtarík vín með ferskleikann í fyrirrúmi, oftast drukkin ísköld við hin ýmsu tækifæri þegar á að skála, t.d. þegar fagna skal nýju ári. Hér erum við að tala um vín á borð við Santero Moscato (kr.1.100), Gancia Asti (kr.1.590) og Martini Asti (kr. 1.599) .
Mörg af bestu og dýrustu freyðivínum koma frá héraðinu Lombardia, nánar tiltekið frá svæðinu Franciacorta. En þar eru framleidd DOCG-freyðivín með kampavínsaðferðinni sem af mörgum eru talin bestu freyðivín Ítalíu, gerð úr þrúgunum Chardonnay, Pinot Blanc, Pinot Noir og Pinot Gris. Í vínbúð allra landsmanna er einungis hægt að nálgast eitt vín frá þessu svæði en það heitir Barone Pizzini Animante Franciacorte (kr. 4.680).
Ekki er hægt að fjalla um ítölsk freyðivín án þess að nefna Ferrari frá héraðinu Trentino sem er einn allra virtasti og að margra mati besti framleiðandi freyðivína á Ítalíu. Við erum svo heppin að í vínbúðinni er hægt að nálgast flaggskip þessa fræga vínhúss, Ferrari Maximum Brut (kr.4.350).
Nú er ekkert annað eftir en að gera upp hug sinn, drífa sig út í næstu vínbúð og birgja sig upp af veigum fyrir komandi áramót.

Nú líður senn að jólum og ekki seinna vænna að birgja sig upp af góðum vínum sem henta jólasteikinni, allt verður að vera fullkomið. Hér fjallar MINITALIA ítarlega um ítölsk vín með hátíðarmatnum, hvort sem við erum að tala um hreindýr, rjúpu, fasana, önd, gæs o.s.frv.
LÉTT VILLIBRÁÐ
Þegar talað er um létta villibráð er t.d. verið að tala um akurhænur, fasana og villiendur. Hér er um að ræða ljóst kjöt með fínlegu villibragði sem kalla á þó nokkuð öflug vín með mikilli mýkt.
Fasani
Það má að mörgu líkja kjötinu af fasana við kjúklingakjöt en það er þó mun bragðmeira og hefur auk þess með þennan eftirsóknarverða villikeim. Hér hentar vel að bera fram Chianti Classico, jafnvel nokkurra ára gamlan sem hefur fengið tækifæri til að þroskast á flösku um töluverðan tíma til að ná þessari mýkt og margslungnu bragðeinkennum, t.d. mælir MINITALIA með Cecchi Chianti Classico (kr.2.495), Brolio Chianti Classico (kr.3.449) eða Isole e Olena Chianti Classico (kr.3.590) . Hérna koma líka stóru vínin frá Piemonte sterk inn, þ.e. Barolo og Barbaresco. MINITALIA mælir t.d. með Fratelli Alessandria Barolo (kr.5.199) og Prunotto Barbaresco (kr.4.698).
Akurhæna
Það er bæði hægt að bera fram rauðvín sem og hvítvín með akurhænu. Ef velja á rauðvín þá mælir MINITALIA með léttu og ávaxtaríku Chianti sem þó hefur fengið að þroskast á flöskunni í einhvern tíma, t.d. Leonardo Chianti (kr. 1.999) eða Cecchi Chianti Classico (kr.2.495). Oft er skemmtilegt að bera fram hvítvín með akurhænu sem hefur fengið að þroskast í nokkurn tíma á eikartunnum, t.d. smellpassar vínið Bramito del Cervo Chardonnay (kr. 2.799) með akurhænu. Það er framleitt að öllu leyti úr þrúgunni Chardonnay og hefur fengið að þroskast að hluta á frönskum eikartunnum.
Önd
Hérna erum við að tala um magurt, dökkt og bragðmikið kjöt sem kalla á kröftugri og bragðmeiri vín heldur en fasani og akurhæna. Með villiönd smellpassar að bera fram bæði Ripasso eða jafnvel Amarone frá svæðinu Valpolicella í héraðinu Veneto. Það hafa akkúrat þann kraft til að takast á við kjöt villiandarinnar. MINITALIA mælir með Sartori Valpolicella Ripasso (kr.2.398) , Tenuta Sant‘Antonio Monti Garbi Ripasso (kr.2.999) eða Tommassi Ripasso (kr.3.199) .
Gæs
Þrátt fyrir að gæsin sé ekki eins bragðmikil og rjúpan þá kallar hún engu að síður á kröftug og bragðmikil rauðvín, t.d. Amarone della Valpolicella, Brunello di Montalcino eða Chianti Classico. MINITALIA mælir með t.d. Tommasi Amarone della Valpolicella Classico (kr.5.499) , Banfi Brunello di Montalcino (kr.5.499) og Fonterutoli Chianti Classico (kr.3.295) .
ALVÖRU VILLIBRÁÐ
Með bragðmikilli villibráð á borð við hreindýr og rjúpu dugar ekkert nema öflug og bragðmikil vín. Þar koma einungis stóru ítölsku vínin til greina, t.d. Brunello di Montalcino, Amarone della Valpolicella, Chianti Classico, Barolo og Barbaresco.
Hreindýr
Með hreindýri smellpassar að leita til héraðsins Toskana, t.d. flottum Brunello di Montalcino eða öflugum Chianti Classico sem hefur fengið að þroskast töluvert, bæði á eikartunnum og ekki síst á flösku. MINITALIA mælir með vínum á borð við Fonterutoli Chianti Classico (kr.3.295) , Arnaldo Caprai Collepiano Sagrantino de Montefalco (kr.6.290), Antinori Badia a Passignano Riserva (kr. 5.599) eða jafnvel Il Poggione Brunello di Montalcino (kr.7.390) .
Rjúpa
Rjúpan er líklega bragðmesta villibráðin með sitt dökka en þó fínlega kjöt sem einkennist af miklu villi- og lyngbragði. Hérna er virkilega gott að leita á nýjan leik til héraðsins Toskana og næla sér í kraftmikinn Chianti Classico, Brunello di Montalcino eða jafnvel eitt af hinum víðfrægu SuperTuscan vínum. Hérna mælir MINITALIA enn á ný með hinu vandaða en á sama tíma hagstæða Fonterutoli Chianti Classico (kr. 3.295) eða Marchese Antinori Chianti Classico Riserva (kr. 4.299) en fyrir lengra komna þá væri svo sannarlega þess virði að prófa t.d. eða Il Poggione Brunello di Montalcino (kr.7.390) , Castello Fonterutoli (kr. 7.860) eða Isole e Olena Cepparello (kr. 6.943) .
ANNAR JÓLAMATUR
Ekki má gleyma að minnast á allt hitt sem er í boði um hátíðarnar en hér fyrir neðan verður minnst sérstaklega á vín sem smellpassa með kalkúninum, hamborgarahryggnum, nautasteikinni og lambahryggnum.
Kalkúnn
Með kalkún er hægt að bera fram bæði rautt og hvítt. Ef rautt verður fyrir valinu má mæla með Ripasso, t.d. Sartori Valpolicella Ripasso (kr.2.398) , Tenuta Sant‘Antonio Monti Garbi Ripasso (kr.2.999) eða Tommasi Ripasso (kr.3.199) . Chianti vínin eru líka virkilega góð matarvínið sem passa vel með Kalkún eins og svo mörgu öðru, t.d. Brolio Chianti Classico (kr. 3.449) eða Isole e Olena Chianti Classico (kr.3.590). Ef aftur á móti hvítt verður fyrir valinu þá mælir MINITALIA með víninu Bramito del Cervo Chardonnay (kr. 2.799) sem framleitt er úr þrúgunni Chardonnay og fengið hefur að þroskast að hluta á frönskum eikartunnum.
Hamborgarahryggur
Það er alls ekki auðvelt að para saman vín við hamborgarahrygginn sem er svo vinsæll á borðum landsmanna. Hérna er best að velja létt og ávaxtarík rauðvín frá Valpolicella, t.d. Sartori Valpolicella Ripasso (kr.2.398) eða Tommasi Ripasso (kr. 3.199) .
Nautasteik
Léttsteikt nautasteik ræður vel við nokkuð kröftug rauðvín sem eru með tannín yfir meðallagi, t.d. Chianti Classico, Brunello di Montalcino eða Rosso di Montalcino sem oft er kallaður litli bróðir Brunello. MINITALIA mælir t.d. með Banfi Rosso di Montalcino (kr.2.998) , Fonterutoli Chianti Classico (kr. 3.295) eða Castellani Brunello di Montalcino Brunaio (kr.4.990) .
Lambahryggur
Lambahryggurinn er virkilega vínvænt kjöt þar sem fitan spilar lykilhlutverk. Lambahryggurinn kallar á bragmikil rauðvín, t.d. Chianti Classico, Brunello di Montalcino eða jafnvel Barbaresco. MINITALIA mælir með Fonterutoli Chianti Classico (kr. 3.295), Prunotto Barbaresco (kr. 4.698) og Banfi Brunello di Montalcino (kr.5.499).

Í hjarta víngerðarsvæðisins Orvieto í héraðinu Úmbría er að finna vínhúsið Castello della Sala sem kennt er við sögufrægan kastala sem byggður var á árið 1350. Í dag ræður Piero Antinori, einn þekktasti víngerðarmaður Ítalíu, ríkjum í þessu virta vínhúsi sem framleitt hefur heimsfræg hvítvín á borð við Cervaro della Sala, Conte della Vipera og vínið sem hér um ræðir; Bramito del Cervo.
Bramito del Cervo 2015 er framleitt að öllu leyti úr þrúgunni Chardonnay. Vínið er að hluta til látið þroskast í eikartunnum í stuttan tíma og síðan látið þroskast áfram á stáltönkum áður en það er tappað á flöskur og sett á markað.
Þetta vín er ljóssítrónugult með ferskan en flókinn angan af suðrænum ávöxtum, t.d. ananas og sítrusávexti, ásamt heslihnetum og vanillu. Hér erum við að tala um virkilega vel uppbyggt vín, mikill elegans og flottur karakter. Stórgott vín sem gæti jafnvel batnað á næstu árum.
Bramito 2015 fær fjórar stjörnur og hálfa stjörnu – FRÁBÆR KAUP á þessu verði, kr. 2.699.
Í HNOTSKURN: Virkilega flott hvítvín með mikinn elegans og flottan karakter.

Í hjarta Chianti-svæðisins í Toscana er að finna smábæinn Vinci en við hann er kenndur lista- og vísindamaðurinn Leonardo da Vinci. En bærinn er ekki einungis þekktur fyrir sjálfan Leonardo da Vinci heldur eru framleidd þar virkilega góð vín sem vert er að gefa gaum. Í bænum er starfandi vínsamlagið Cantine Leonardo, stofnað árið 1961, sem samanstendur af 200 bændum sem rækta vínvið á u.þ.b. 750 hekturum á svæðunum Chianti og Montalcino í héraðinu Toscana.
Leonardo Chianti DOCG 2014 er að 85% hluta framleitt úr þrúgunni Sangiovese, 10% úr þrúgunni Merlot og 5% úr hinum ýmsu þrúgum. Vínið er látið þroskast á stáltönkum í 6 mánuði áður en því er tappað á flöskur og sett á markað.
Þetta dökkfjólubláa vín tekur á móti manni með angan af krisuberjum og ferskum, rauðum ávexti, vottur af svörtum pipar. Þetta er vín í flottu jafnvægi, fersk sýra, tannín í mýkri kantinum og eftirbragð með pínulitlum krydduðum tónum. Hér er um að ræða góðan og einfaldan en þó nokkuð kröftugan Chianti á virkilega góðu verði.
Leonardo Chianti DOCG 2014 fær þrjár og hálfa stjörnu – MJÖG GÓÐ KAUP á þessu verði en það kostar einungis kr. 1.999 í vínbúð allra landsmanna.
Hér er um að ræða virkilega matvænt vín sem smellpassar með ýmsum ítölskum réttum, t.d. réttum á borð við pasta, pizzu og risottó.

Hið þekkta vínhús, Tommasi Viticoltori, kemur upprunalega frá héraðinu Veneto á Ítalíu en hefur á undanförnum árum og áratugum fært út kvíarnar með kaupum á öðrum vínhúsum í öðrum héruðum landsins, t.d. í héruðunum Toskana og Púglía. Vínhúsið Tommasi Viticoltori var stofnað af Giacomo Tommasi árið 1902 í Pedemonte í hjarta svæðisins Valpolicella Classico, vestur af borginni Verona en í dag er fjórða kynslóð fjölskyldunnar við stjórnvölinn. Tommasi Viticotori framleiðir í Veneto fræg vín á borð við Amarone della Valpolicella, Valpolicella Ripasso, Soave og Bardolino.
Það vín sem hér um ræðir heitir Valpolicella Ripasso DOC 2014 og er framleitt úr þrúgunum Corvina Veronese (70%), Rondinella (25%) og Corvinone (5%). Þetta vín er framleitt með ripasso-aðferðinni sem er mjög algeng í héraðinu Veneto en þá er safinn skilinn frá í lok gerjunarinnar á vínum sem kennd eru við Amarone della Valpolicella og hratinu, sem er þykkur sætur massi, blandað saman við ungt Valpolicella-vín og þannig fer gerjunin í gang á nýjan leik. Þegar þessu ferli er lokið er vínið látið þroskast í slóvenskum eikartunnum í u.þ.b. 15 mánuði áður en því er tappað á flöskur og sett á markað.
Vínið er rúbínrautt og tekur margslunginn anganin á móti manni með kryddi og kirsuberjum. Mikill rauður ávöxtur, kirsuber, svolítið kryddað, jafnvel sveskjur, fíkjur, rúsínur. Öflugt vín, með mikla fyllingu og nokkuð langt eftirbragð. Mjúk tannín og mikið jafnvægi einkenna þetta flotta matarvín vín.
Tommasi Ripasso DOC 2014 fær fjórar stjörnur - GÓÐ KAUP á þessu verði en það kostar kr. 3.199 í vínbúð allra landsmanna.
Þetta er virkilega flott matarvín sem hentar vel með nautakjöti, villibráð, t.d. rjúpu, önd og gæs, og einnig flott með bragðmiklum pastaréttum.

Á bak við vínhúsið Tenuta Sant‘Antonio standa fjórir bræður sem bera eftirnafnið Castagnedi, þeir Armando, Massimo, Paolo og Tiziano. Vínhúsið er staðsett í héraðinu Veneto, nánar tiltekið á svæði sem kallast Valpolicella í nágrenni við borgina Verona. Þaðan koma fræg vín á borð við Valpolicella, Bardolino og Soave.
Vínhúsið Tenuta Sant’Antonio framleiðir m.a. vínið Nanfré Valpolicella Superiore 2014. Það er framleitt úr þrúgunum Corvina 70% og Rondinella 30% en þessar tvær þrúgur ásamt þrúgunni Molinara eru þær þrúgur sem yfirleitt eru uppistaðan í þekktustu vínum héraðsins Veneto. Vínið er fyrst látið þroskast í 4-6 mánuði á stáltönkum áður en því er tappað á flöskur og sett á markað.
Þetta rúbínrauða vín tekur á móti manni með angan af kirsuberjum og rauðum ávexti, pínulítið kryddað. Þetta er pínulítið ungæðislegt vín, mikill ferskleiki, þónokkur fylling og tiltölulega langt eftirbragð. Miðlungs tannín, nokkuð fersk sýra. Gott er að umhella þessu víni með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara til að gefa því að anda en við það mýkist það og verður einhvern veginn rúnnaðra.
Nanfré Valpolicella Superiore 2014 fær þrjár og hálfa stjörnu – MJÖG GÓÐ KAUP á þessu verði en það kostar kr. 2.290 í vínbúð allra landsmanna sem verður að teljast ansi sanngjarnt.
Hér er um að ræða flott matarvín sem hentar einstaklega vel með bragðmiklum pastaréttum og ýmsum tegundum af risottó, t.d. risottó með sveppum.
MINITALIA mælir sérstaklega með þessu réttum hér fyrir neðan, smellpassa með þessu flotta víni:

Vínhúsið Poggio al Casone er staðsett í nágrenni við borgina Pisa í héraðinu Toskana. Vínhúsið er eigu Castellani-fjölskyldunnar sem á nokkur vínhús í Toskana, t.d. á svæðunum Chianti, Chianti Classico og Maremma.
Þetta lífræna vín sem hér um ræðir heitir Poggio al Casone Chianti Superiore DOCG 2011 sem framleitt er úr þrúgunum Sangiovese (90%) og Canaiolo (10%). Vínið er fyrst látið þroskast í að minnsta kosti 12 mánuði á eikartunnum síðan látið þroskast í ákveðinn tíma á flösku áður en það er sett á markað.
Þetta rúbínrauða vín tekur á móti manni með áköfum og nokkuð einkennandi angan af rauðum ávexti. Þetta er ávaxtaríkt vín. Plómur, hindber, kirsuber. Vín í flottu jafnvægi, með ferskri sýru og eikin skín skemmtilega í gegn.
Poggio al Casone Chianti Superiore DOCG 2011 fær fjórar stjörnur – FRÁBÆR KAUP á þessu verði, kr. 1.999.
Virkilega flott matarvín sem hentar vel með bragðmiklum pastaréttum, sérstaklega þar sem tómatar eru uppistaðan í sósunni. Virkar líka alveg með rauðu kjöti og meðalþroskuðum ostum.
Í HNOTSKURN: Virkilega flott matarvín í góðu jafnvægi, fersk sýra og mikill ávöxtur.

Mörg af stærstu og frægustu vínum Ítalíu eru framleidd úr þrúgunni Nebbiolo. Þetta eru kröftug og tannísk vín sem oft þurfa að þroskast í mörg ár til að ná sínum hæstu hæðum. Þessi þrúga býr yfir miklum gæðum en þarfnast ákveðinna vaxtarskilyrða til að þrífast vel og hingað til hefur ekki tekist að rækta hana víða. Þessi þrúga þarfnast langra og heitra haustmánaða til að ná æskilegum þroska svo útkoman verði virkilega góð.
Bestu vínin úr þessari þrúgu koma frá tiltölulega litlu svæði í héraðinu Piemonte, nánar tiltekið í kringum bæina Barolo og Barbaresco. Vínin frá þorpinu Barolo eru öflugust þeirra, látin þroskast í að minnsta kosti 3 ár og aldrei lægri en 13% að áfengismagni. Bærinn Barbaresco er í næsta nágrenni við Barolo en þaðan koma svipuð vín, ögn mýkri en standa mörg hver jafnfætis vínunum frá nágrannabænum, Barolo. Vínin frá Barbaresco eru látin þroskast í það minnsta 2 ár og áfengismagn þeirra má ekki vera lægra en 12,5%.
Vín sem framleidd eru úr þrúgunni Nebbiolo eru meðal þeirra vína frá Ítalíu sem best þola geymslu og þurfa oft á tíðum mörg ár eða áratugi áður en þau ná hápunkti sínum.
Hér fyrir neðan gefur að líta nokkur vín sem fáanleg eru hér á landi og framleidd eru úr þessari heimakæru þrúgu:

Vínhúsið Barone Ricasoli er eitt það elsta í heiminum sem verið hefur starfandi samfellt frá stofnun eða allt frá árinu 1141. Það má því segja að saga Ricasoli-fjölskyldunnar sé samofin sögu og þróun vínræktar í héraðinu Toskana á Ítalíu.
Þótt vínhúsið Barone Ricasoli sé þekktast fyrir rauðvín á borð við Brolio Chianti Classico og Castello di Brolio þá framleiðir það einnig virkilega fín hvítvín. Hér er um að ræða eitt slíkt sem heitir Brolio Bianco 2015
Veðurfarslega séð var árið 2015 nokkuð venjulegt. Veturinn mildur, vorið fór vel af stað og sumarið kom snemma með góðum hita og væta undir meðallagi. rúsínan í pylsuendanum voru hlýir og dásamlegir haustmánuðir með miklum hitamun á milli dags og nætur.