- Published on
1. „Caffé corretto“ kemur meltingunni svo sannarlega af stað
Það er gott ráð að bæta smá grappa eða sambuca út í espressóinn sinn eftir risastóra máltíð en það bætir virkilega meltinguna og maður verður léttari í maga, ferskur og til í allt (eða kannski flest).
2. Pastasoð í sósuna ef maður þarf að hit'ana upp á nýjan leik
Það er frábært ráð að bæta smá soði úr pastapottinum þegar maður þarf að hita upp sósu á nýjan leik. Sterkjuríkt pastasoðið þykkir sósuna, hitar hana og sósan fær rjómakennt yfirbragð. Frábært ráð.

3. Klípa af sykri út í tómatssósuna dregur úr sýru
Þar sem tómatar geta verið svolítið sýruríkir þá er frábært ráð að setja klípu af sykri út í tómatssósuna en auk þess að minnka sýrumagnið í sósunni þá dregur sykurinn fram smá sætubragð á sama tíma.
4. Ekki setja saltið út út í pastavatnið fyrr en það sýður
Að setja saltið út í vatnið áður en það sýður fer ekki vel með eldhúsáhöldin og hækkar ennfremur suðumark vatnsins. Setjið saltið því eingöngu þegar vatnið er byrjað að sjóða.

7. Takið skinnið af pylsunum áður en þið skerið þær í sneiðar
Það er miklu betra og einfaldara að taka skinnið af pylsunum áður en maður sker þær í sneiðar. Auðvelt.
8. Hreinsið pastasósuna af disknum með brauði
Endilega notið brauðið til að hreinsa pastasósuna af disknum ykkar en á Ítalíu eru þessir litlu brauðhleifar kallaðir „La scarpetta“ eða litlir skór. Þegar sósan er góð þá er um að gera að klára hana alla, hreinsa diskinn.

Allir Ítalir eiga í handraðanum lítil húsráð sem þeir hafa tileinkað sér í gegnum eldamennsku fjölskyldunnar. Hérna koma 10 ítölsk húsráð sem koma sér vel, geta skipt sköpum við matargerðina og allir ættu að tileinka sér.
5. Mælið pastað með því að setja það á diskana áður en þið sjóðið það
Ágætis regla er að setja pastað á diska áður en það er sett út í pottinn. Þá sést ágætlega hvað þarf mikið magn af pasta, rúmmál þess eykst síðan að sjálfsögðu við suðu og hafa skal það í huga.
6. Sítrónur eyða hvítlaukslykt af fingrum og skurðarbrettum
Ítalir hafa það fyrir reglu að nudda fingur og skurðarbretti með hálfri sítrónu til að láta hvítlaukslyktina ekki festast; frískar og sótthreinsar.

9. Sykur út í mokkakönnuna og til verður dýrindis froða
Um leið og kaffið byrjar koma úr mokkakönnunni bætið þá við sykri eins og þið viljið nota í espressóinn ykkar og hærið vel saman. En þá fer að myndast þessi dýrindis froða sem virkar vel. Vont fyrir þá sem nota ekki sykur, engin froða fyrir þá.
10. Ólífuolía út í vatnið kemur í veg fyrir að ferskt pastað festist saman
Það er gott ráð að bæta nokkrum dropum af ólífuolíu út í pastavatnið þegar maður er að sjóða ferskt pasta til að koma í veg fyrir að það festist saman.

Spaghettí með kræklingi, tómötum, chilli og steinselju er bragðmikill réttur sem bæði er fljótlegur og einfaldur að allri gerð. Allt sem skiptir máli eru góð hráefni. Þar sem ekki er alltaf hægt að nálgast ferskan krækling hér á landi má vel notast við frosinn sem hægt er að nálgast í matvöruverslunum. Frosinn kræklingur er forsoðinn og því kemur ekki eins mikill vökvi úr honum eins og þeim ferska. Það er því gott ráð að bæta 200-300 mi af vatni á pönnuna ásamt skeljunum þegar búið er taka sjálfan kræklinginn úr þeim og látið þetta malla á góðum hita í 10 mínútur.
Hér erum við að tala um sannkallaðan veislurétt úr flottum hráefnum, tilbúinn er á augabragði.

Matur fyrir fjóra - Undirbúningur: 5 mínútur - Eldamennska: 15 mínútur
Hráefni fyrir fjóra
1) 500 gr spaghettí 2) 1 kg kræklingur 3) 1 dós af tómötum í dós 4) 2 msk tómatpúrra 5) 2 stk hvítlauksrif, smátt söxuð 6) 1 búnt af steinselju, söxuð smátt 7) 1 meðalstór chillibelgur, saxaður smátt 8) ólífuolía 9) salt 10) pipar

Aðferð
1) Hitið ólífuolíu á stórri pönnu. 2) Bætið kræklingnum á pönnuna, muna að hreinsa fyrst vel, og eldið hann á tiltölulega háum hita undir loki þar til skeljarnar opnast. 3) Takið skeljarnar af pönnunni þegar þær hafa opnast.

4) Takið soðið sem myndast hefur á pönnunni til hliðar. 5) Hreinsið kræklinginn úr skelinni fyrir utan fáeina ef þið viljið hafa þá sem skreytingu þegar þið berið réttinn fram. 6) Svitið hvítlauk og chilli í ólífuolíu á stórri pönnu.
7) Bætið við tómötum í dós saman við ásamt tómatpúrru, blandið vel saman. Hitið fyrst tómatana á háum hita og þegar þeir byrja að sjóða lækkið þið niður í miðlungshita og látið þetta malla í 5 mínútur. 8) Bætið kræklingasoðinu við á þessum tímapunkti ásamt sjálfum kræklingnum. Látið sjóða áfram í 10 mínútur. 9) Á þessum tímapunkti er tilvalið að hefja pastasuðuna. Að þessu sinni notað ég spaghetti nr. 12 frá De Cecco sem þarf 10 mínútna suðutíma.
10) Látið renna af pastanu, setjið það út á pönnuna og hrærið vel saman. 11) Bætið að lokum saxaðri steinselju saman við, 12) blandið öllu vel saman og berið réttinn strax fram.
- Published on
Það er virkilega gaman að taka frægar pastasósur, skella þeim á pizzur og athuga hvernig útkoman verður. Það kemur kannski mörgum á óvart að niðurstaðan er nánast undantekningarlaust stórkostleg. Að þessu sinni varð fyrir valinu hin heimsfræga pastasósa, Amatriciana, sem búin var til af mikilli ást og þó nokkurri álúð. Niðurstaðan hreint út sagt frábær, þið verðið að prófa þetta.
Hráefni
1) Pizzadeig, sjá uppskrift hér. 2) Amatriciana-sósa, sjá uppskrift hér 3) Mozzarella 4) Ólífuolía
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið þó nokkuð mikið magn af amatriciana-sósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 5) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 6) Takið pizzuna út úr ofninum og berið strax fram.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru náttúrulega yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.

Penne með tómötum, túnfisk, kapers og ólífum er bragðmikill réttur líkt og margir þeirra rétta sem upprunnir eru frá suðlægum slóðum við Miðjarðarhafið. Mikil ilmur, mikið bragð. Það sem meira er þá þessi réttur óendanlega einfaldur og tilbúin á einungis 20 mínútum.
Matur fyrir fjóra - Undirbúningur: 5 mínútur - Eldamennska: 15 mínútur
Hráefni
1) 400 gr penne 2) 4 msk ólífuolía 3) 1 dós af túnfiski, ca. 200 gr. 4) 2 hvítlauksrif, skorin til helminga 5) 1 stk rauður chilli, rúmlega helmingurinn skorinn smátt en afgangurinn settur útí í heilu. 6) 1 dós af tómötum í dós. 7) 30 stk svartar ólífur, skornar í sneiðar 8) 1 msk af kapers 9) Ein rífleg lúka af ferskri steinselju 10) 1 teskeið sykursalt
Aðferð
1) Hitið ólífuolíuna á pönnu, skerið hvítlauksrifin til helminga og bætið þeim á pönnuna. 2) Bætið saman við hálfum smátt söxuðum chillibelg ásamt hinum helmingnum í heilu. 3) Bætið því næst helmingnum af smátt saxaðri steinseljunni. Látið þetta mýkjast á lágum hita í nokkrar mínútur, verið vakandi að brenna ekki hvítlaukinn.

4) Bætið við einni dós af tómötum ásamt teskeið af sykri og látið þetta kraum á meðalhita í 10 mínútur. Þegar sósan hefur fengið að krauma í nokkrar mínútur er kominn tími til að setja pastað ofan í bullsjóðandi saltvatnið. 5) Þegar sósan er búin að sjóða í 10 mínútur er hvítlauksrifin fjarlægð ásamt hálfa chillibelgnum og kominn tími til að bæta ólífunum við 6) ásamt kapers og blandið þessu vel saman við.
7) Strax í kjölfarið er látið renna af túnfisknum og honum bætt út í sósuna góðu 8) ásamt hinum helmingnum af steinseljunni. 9) Blandið öllu vel saman, saltið eftir þörfum og sósan er tilbúin. Látið renna af pastanu, hellið sósunni út á, hrærið vel saman og berið réttinn strax fram.
Hér erum við að tala um matarmikinn rétt sem tilbúinn er á einungis 20 mínútum, einn af þessum réttum sem henta vel þegar óvænta gesti ber að garði. Með þessum rétti hentar vel að drekka ungt og ávaxtaríkt Chianti eða Valpolicella, vín sem henta virkilega vel á móti pastaréttum sem þessum.
- Published on
Pizza með ætisþistlum og hráskinku smakkaðist dásamlega. Það er svo gaman þegar hlutir koma manni á óvart þrátt fyrir miklar væntingar. Ætisþistlar og hráskinka eiga óendanlega vel saman. Fullkomið hjónaband.
Hráefni
1) pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) mozzarella 4) ætisþistlar í olíu 5) hráskinka 6) ólífuolía
Aðferð
1) Fletjið svo út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Setjið síðan ætisþistlana á víð og dreif yfir pizzuna. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið hana inn í brennandi heitan ofninn. 6) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 7) Takið þá pizzuuna úr ofninum, leggið hráskinkusneiðarnar yfir pizzuna og berið hana strax fram.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru náttúrulega yndislegt fyrirbæri og glas af léttu og ávaxtaríku rauðvíni í hópi góðra vina gera þær einungis yndislegri.

Hér erum við að tala um dásamlega pizzu með grilluðum eggaldini og mikið af gráðaosti, hljómar óendanlega vel. Miklar væntingar voru gerðar og hún stóð hún undir þeim öllum og gott betur. Frábær pizza sem kemur virkilega á óvart.
Hráefni
1) pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) mozzarella 4) 1 stk eggaldin 5) gráðaostur 6) ólífuolía
Aðferð
1) Hanterið eggaldinið eins og fram kemur í skrefum 1-3 í þessari uppskrift hér. 2) Grillið síðan eggaldinið þar til það eru komnar fallegar grillrendur á hann. 3) Fletjið svo út pizzudeigið 4) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 5) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 6) Setjið síðan grilluðu eggaldinsneiðarnar á pizzuna. 7) Dreifið síðan tiltölulega stórum bitum af gráðaosti á víð og dreif á pizzuna, allt náttúrulega eftir smekk hvers og eins. 8) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið hana inn í brennandi heitan ofninn. 9) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru náttúrulega yndislegt fyrirbæri og glas af léttu og ávaxtaríku rauðvíni í hópi góðra vina gera þær einungis yndislegri.
1) pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) mozzarella 4) 1 stk eggaldin 5) gráðaostur 6) ólífuolía
Aðferð
1) Hanterið eggaldinið eins og fram kemur í skrefum 1-3 í þessari uppskrift hér. 2) Grillið síðan eggaldinið þar til það eru komnar fallegar grillrendur á hann. 3) Fletjið svo út pizzudeigið 4) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 5) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 6) Setjið síðan grilluðu eggaldinsneiðarnar á pizzuna. 7) Dreifið síðan tiltölulega stórum bitum af gráðaosti á víð og dreif á pizzuna, allt náttúrulega eftir smekk hvers og eins. 8) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið hana inn í brennandi heitan ofninn. 9) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru náttúrulega yndislegt fyrirbæri og glas af léttu og ávaxtaríku rauðvíni í hópi góðra vina gera þær einungis yndislegri.
- Published on
Spaghetti alla vesuviana er einn af þessum dásamlegu réttum frá héraðinu Campania sem er í senn einfaldur, þónokkuð fljótlegur og óendanlega bragðgóður. Ítalskar fjölskyldur eiga alltaf þau hráefni í búrskápnum sem þarf í þennan rétt, t.d. ólífur, chilli, kapers og hvítlauk. Þetta er því tilvalinn réttur til að grípa í þennan rétt þegar óvænta gesti ber að garði og maður þarf að rigga upp veislu á skömmum tíma.
Matur fyrir fjóra - Undirbúningur: 10 mínútur - Eldamennska: 25 mínútur
Hráefni
1) 400 gr spaghettí 2) 3 stk hvítlauksrif 3) 1 stk stór chillibelgur 4) 1 stk af tómötum í dós 5) 80 gr grænar ólífur, skornar í sneiðar 6) 30 gr. kapers 7) 5 msk ólífuolía 8) 60 gr parmesan 9) 200 ml pastavatn, tekið frá þegar hellt er af pastanu. 10) oreganó 11) salt 12) pipar
Aðferð
1) Hitið ólífuolíuna á góðri pönnu. 2) Bætið hvítlauknum ásamt 3) chilli á pönnuna og látið þetta svitna í nokkrar mínútur á frekar lágum, alls ekki láta hvítlaukinn brenna. 4) Bætið því næst tómötunum á pönnuna ásamt einni teskeið af sykri og látið þetta malla á lágum hita í fimmtán mínútur, hrærið öðru hvoru.

Á þessum tímapunkti er tilvalið að hefja pastasuðuna. 5) Bætið ólífunum á pönnuna 6) ásamt kapersinu, 7) salti og nýmöluðum pipar eftir smekk. Látið malla áfram í nokkrar mínútur. 8) Þegar pastað er "al dente" þá bætir maður því út í sósuna og blandar vel saman, bætið við 200 millilítrum af pastavatninu og látið malla í 1-2 mínútur. Bætið svo rifnum parmesan yfir herlegheitin, blandið vel saman við og berið réttinn strax fram.
- Published on
Oft er gaman að blanda saman tveimur ólíkum hlutum, gengur stundum það upp en stundum ekki. Að setja hina heimsfrægu puttanesca-sósu á pizzu er eitthvað sem mig hefur lengi langað til að gera. Tilhugsunin áhugaverð og útkoman stórfengleg. Bragðmikil Puttanesca-sósan einhvern vegin naut sín í botn og sló einfaldlega í gegn.
Hráefni
1) Pizzadeig, sjá uppskrift hér. 2) Puttanesca-sósa, sjá uppskrift hér. 3) Mozzarella 4) Ólífuolía 5) Smátt söxuð steinselja
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af puttanesca-sósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 5) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 6) Takið pizzuna út úr ofninum, stráið slatta af smátt saxaðri steinselju yfir herlegheitin og berið strax fram.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru náttúrulega yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.
1) Pizzadeig, sjá uppskrift hér. 2) Puttanesca-sósa, sjá uppskrift hér. 3) Mozzarella 4) Ólífuolía 5) Smátt söxuð steinselja
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af puttanesca-sósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 5) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 6) Takið pizzuna út úr ofninum, stráið slatta af smátt saxaðri steinselju yfir herlegheitin og berið strax fram.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru náttúrulega yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.
- Published on
Hérnar erum við að tala um æðislega Frittata með brokkólí, spínati og chilli sem tilbúin er á aðeins 15 mínútum. Flott fyrir brönsinn eða einfaldlega sem geggjaður morgunmatur þegar maður vill gera virkilega vel við sig en samt halda sér á hollari línunni. Frittata er ítölsk eggjakaka sem hægt er að gera á ótal vegu, t.d. ýmsu kjötáleggi, grænmeti og allskonar ostum. En þess má geta að ítalska orðið "frittata" þýðir einfaldlega "steiktur".
Hráefni
1) 6 egg 2) 1 stk laukur, skorinn smátt 3) 1 stk rauður chilli, nokkuð stór og skorinn smátt 4) 1 stk lítll haus af brokkólí, skorin gróft 5) ein lúka af spínat 6) Basilíka 7) steinselja 8) 60 gr parmesan 9) ólífuolía 10) Salt
Aðferð
1) Setjið 6 egg í skál og 2) pískið þau létt saman. 3) Bætið helmingnum af ostinum saman við eggin og hrærið þessu öllu létt saman. 4) Hitið 2 msk af ólífuolíu á góðri pönnu.

5) Bætið lauknum ásamt rauðum chilli á pönnuna og látið malla við lágan hita í c.a. 5 mínutur eða þar til laukurinn hefur mýkst þó nokkuð, passið að laukurinn brenni ekki. 6) Bætið grófskornu brokkólí á pönnuna og steikið áfram í c.a. 5 mínútur á miðlungshita. 7) Bætið spínat, basilíku og steinselju á pönnuna og steikið áfram í u.þ.b. 2-3 mínútur. 8) Hellið nú eggjablöndunni góðu saman við blönduna góðu.
9) Látið þetta svo steikjast undir loki í ca. 7-8 mínútur. 10) Næsta mál á dagskrá er að setja venjulegan matardisk ofan á eggjakökuna, snúa henni við og láta hina hliðina snúa niður. 11) Látum eggjakökuna stekjast á þessari hlið í ca. 4 mínútur. 12) Tökum þá eggjakökuna af pönnunni oig setjum á disk, stráum hinum helmingnum af rifnum ostinum yfir eggjakökuna og berið hana strax fram.
- Published on
Panna cotta er heimsfrægur eftirréttur sem uppruninn er frá svæðinu Langhe í héraðinu Piemonte. Panna Cotta er einfaldur og bragðgóður eftirréttur. Eins og með marga fræga rétti þá er grunnurinn alltaf sá sami en síðan má bæta við hinu og þessu og fá út óendanlega margar útgáfur, t.d. karamellu, súkkulaði, kaffi og ferskum ávöxtum. Í þessari útfærslu eru piparmyntutepokar settir út í rjómann áður en hann er hitaður upp á vægum hita. Ferskt piparmyntubragðið kemur með skemmtilega blæ á þennan viðfræga rétt. Eftirréttur sem slær alltaf í gegn.
Hráefni
1) 1 stöngull af vanillu 2) 150 gr sykur 3) 6 gr matarlím (þrjú blöð) 4) 500 ml rjómi 5) 4-6 tepokar með piparmyntubragði.
Aðferð
1) Hellið rjómanum í lítinn pott. Á sama tíma er gott að leggja matarlímið í kalt vatn í ca. 10 mín. 2) Skerið innan úr vanillustönglinum og bætið út í rjómann ásamt vanillustönglinum 3) 5) Setjið allan sykurinn út í rjómann og blandið vel saman við. 4) Bætið tepokunum út í rjómann. Gott er klippa böndin af tepokunum svo betra sé að hræra í blöndunni. Hitið við lágan hita en án suðu.

5) Takið nú tepokana upp úr og hellið blöndunni í gegnum fíngert sigti. 6) Vindið vel matarlímsblöðin, setjið þau út í rjómann og hrærið vel þar til þau eru algjörlega uppleyst í rjómanum. 7) Undirbúið fjögur lítil mót með því að bleyta þau að innan með vatni eða þínum uppáhalds líkjör. Hellið blöndunni nú í mótin fjögur, gott er að nota ausu við þetta. Setjið mótin inn í ísskáp og geymið þar í að minnsta kosti 5-6 klukkustundir. 8) Til þess að ná hinu eina sanna Panna Cotta úr forminu er best að dýfa forminu ofan í heitt vatn í ca. 2-3 sek. Snúa því svo á hvolf ofan á disk, halda því saman og hrista það nokkrum sinnum. Endurtakið eftir þörfum.