- Published on
Hérnar erum við að tala um æðislega Frittata með beikoni, spínati og chilli sem tilbúin er á aðeins 15 mínútum. Þessi er fullkomin fyrir brönsinn eða einfaldlega sem geggjaður morgunmatur þegar maður vill gera virkilega vel við sig. Frittata er ítölsk eggjakaka sem hægt er að gera á ótal vegu, t.d. ýmsu kjötáleggi, grænmeti og allskonar ostum. En þess má geta að ítalska orðið "frittata" þýðir einfaldlega "steiktur".
Hráefni
1) 6 egg 2) 1 stk laukur, skorinn smátt 3) 1 stk rauður chilli, skorinn smátt 4) 100 gr beikon 5) Spínat 6) Basilíka 7) 60 gr parmesan 8) ólífuolía 9) Salt
Aðferð
1) Setjið 6 egg í skál og 2) pískið þau létt saman. 3) Bætið helmingnum af ostinum saman við eggin og hrærið þessu öllu létt saman.

4) Hitið 2 msk af ólífuolíu á góðri pönnu. 5) Bætið lauknum, rauðum chilli og beikoninu á pönnuna og 6) látið malla við lágan hita þar til laukurinn hefur mýkst og fita á beikoninu er orðin glær. Passið ykkur á því að laukurinn brenni ekki og beikonið má ekki verða stökkt heldur á það að vera mjúkt undir tönn
7) Bætið lúku af spínati á pönnuna ásamt slatta af ferskri basilíku og 8) látið þetta malla meðan spínatið er að mýkjast, saltið lítillega 9) Hellið nú eggjablöndunni góðu saman við og látið þetta steikjast undir loki í ca. 8 mínútur.
10) Næsta mál á dagskrá er að setja venjulegan matardisk ofan á eggjakökuna, snúa henni við og láta hina hliðina snúa niður. 11) Látum eggjakökuna stekjast á þessari hlið í ca. 4 mínútur. 12) Tökum þá eggjakökuna af pönnunni oig setjum á disk.
13) Stráum hinum helmingnum af rifnum ostinum yfir eggjakökuna. 14) Setjum hinni lúkunni af spínatinu í skál, hellum smá olífuolíu yfir, stráum smá salti yfir og að lokum kristum við smá safa úr lime yfir spínatið. Að sjálfsögðu líka nota safa úr sítrónu. 15) Dreifið spínatinu yfir eggjakökuna, rífið smá ost yfir herlegheitin og berið strax fram.
- Published on
Risotto með beikoni og saffran er virkilega gómsætur réttur þar sem uppistaðan eru risottogrjón og beikon ásamt skemmtilegu saffrantvisti í lokin. Hér erum við að tala um æðislegan rétt sem er allt í senn bragðgóður, fljótlegur og einfaldur. Réttur sem gengur fullkomlega upp!!!
Hráefni
1) 400 gr arborio grjón 2) 150 gr beikon 3) 1 stk laukur 4) 1/2 tsk saffranþræðir 5) 100 gr smjör 6) 100 gr parmesan 7) ólífuolía 8) 1-1,5 líter grænmetissoð
Aðferð
1) Hitið ólífuolíu á góðri pönnu. 2) Skerið beikonið í litla bita og látið það malla á pönnunni þar til fitan er orðin glær. Leggið til hliðar þar til síðar. 3) Skerið laukinn smátt, hitið ólífuolíu í stórum potti og steikið laukinn í smjörinu á lágum hita þar sem laukurinn má ekki verða brúnn, einungis mjúkur.

4-5) Bætið grjónunum út í pottinn, hækkið hitann og steikið grjónin í ca. 2 mínútur. 6) Nú er farið að bæta soðinu út í pottinn smátt og smátt, alls ekki of mikið í einu. Núna eru ca. 18 mínútur eftir af eldunartímanum.
7-8) Þegar fimm mínútur eru eftir af eldunartímanum er beikonbitunum bætt út í grjónin og blandað vel saman. 9) Síðan er saffranþráðunum bætt út í pottinn en gott er að bæta út í smá soði um leið til að þræðirnir leysist auðveldlega upp. Haldið er áfram að bæta við soði út eldunartímann.
10) Þegar grjónin eru tilbúin eru þau tekin af hitanum og smjörstykkinu bætt út í pottinn. 11) Að lokum er ostinum bætt við 12) og öllu hrært vel saman.
- Published on
Hérna erum við að tala um bragðmikinn, fljótlegan og auðveldan pastarétt, tilbúinn á einungis 10 mínútum. Ansjósur, hvítlaukur, chilli og fersk steinselja er allt sem skiptir máli. Dásamleg samsetning, geggjuð hráefni og buddan elskar þetta. Ekki vera hrædd við ansjósur, þær eru dásamlegt krydd með góðu salti og bíta svo sannarlega ekki. Við Íslendingar eigum að nota þetta dásamlega krydd í miklu meiri mæli en við gerum í dag. Lifi ansjósurnar!!!
Hráefni
1) 400 gr spaghettí 2) 4 stk hvítlauksgeirar 3) 1 stk chillibelgur 4) Lúka af ferskri steinselju 5) 4 stk ansjósuflök 6) 5 msk ólífuolía 7) 50 gr parmesan 8) 25 gr smjör 9) salt
Aðferð
1) Saxið hvítlauk, chilli og ansjósuflökin, alls ekkert of smátt. 2) Hitið ólífuolíuna á góðri pönnu á sama tíma og þið hefjið pastasuðuna 3) Bætið hvítlauknum, chilli ásamt ansjósunum á pönnuna.

4) Látið þetta svitna í nokkrar mínútur frekar lágum hita svo hvítlaukurinn brenni ekki. Á þessu tímabili gerast töfrar í sambandi við ansjósurnar. 5) Þegar pasta er soðið, al dente, þá bætið þið því á pönnuna og hrærið allt vel saman. 6) Bætið smátt saxaðri steinseljunni á pönnuna og blandið vel saman við.
7) Því næst bætið við slatta af rifnum parmesan 8) því næst vænni smjörklípu 9) og blandið að lokum öllum saman og berið réttinn fram.
- Published on
Þessi ofurfljótlegi pastaréttur er bæði bragðmikill en virkilega ferskur á sama tíma. Hvernig geta hlutirnir farið úrskeiðis þegar þú ert með þessi hráefni í höndunum: hvítlaukur, chilli, kapers, ansjósur, tómatar, túnfiskur og klettasalat? Hráefnin spila dásamlega vel saman og mynda flottan rétt sem tilbúinn er á augabragði.
Hráefni
1) 400 gr spaghetti 2) 4 stk hvítlauksrif 3) 1 stk rauður chillibelgur 4) 10 stk cherry-tómatar, skornir í fjórðunga 5) 4 stk ansjósuflök 6) 2 msk kapers 7) 1 dós af túnfiski í vatni 8) klettasalat 9) salt 10) pipar 11) ólífuolía
Aðferð
1) Sjóðið pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. Hitið 5-6 msk. af ólíuolíu á góðum potti og bætið við söxuðum hvítlauk, chilli, tómötunum, kapers, ansjósum og látið þetta steikjast við miðlungshita í 4-5 mínútur. 2) Nú er pastað passlega soðið, hellið vatninu af pastanu, bætið því út a pönnuna ásamt helmingnum af klettasalatinu og blandið vel saman. Geymið smá af pastavatninu. 3) Brytjið túnfiskinn í litlar flögur og setjið hann út í blönduna góðu.

4) Hellið 2 dl af pastavatninu út í pastað. 5) Kreistið safa úr hálfri sítrónu yfir herlegheitin 6) Skammtið á diskana og bætið að lokum klettasalati á toppinn, kreistið smá sítrónu yfir og berið réttinn strax fram.
- Published on
Eggaldin, eða Melanzane eins og það heitir á ítölsku, er sennilega upprunið frá Indlandi. Það barst fyrst til Ítalíu með Aröbum og þar sem áhrif Araba voru mest á Sikiley eru margar af helstu uppskriftum tengdum eggaldin upprunnar þaðan, t.d. Spaghetti alla Norma og Parmigiana di melanzane.
Ein kenning segir að eggaldin geti verið karlkyns eða kvenkyns og þá eiga karlkyns eggaldin að smakkast betur. Ekki ætla ég að leggja dóm á trúverðugleika þessarar kenningar, læt aðra um það. Best er að kaupa eggaldin þegar þau er ný þar sem þau eiga að vera stinn og gljáandi en ekki mött og hrukkótt. Lagið á þeim fer eftir tegund þeirra og er bragðið það sama hvort sem þau eru þykk eða mjóslegin.
Eggaldin hefur lengi verið talið hráefni sem inniheldur lítið af næringarefnum en því fer fjarri. Eggaldin eru rík af bæði járni og kalki, innihalda mikið magn af trefjum og slatta af K-vítamíni. Á sama tíma inniheldur eggaldin tiltölulega fáar hitaeiningar, ekki gramm af fitu og er svona svakalega gott á bragðið.
Hér fyrir neðan gefur að líta nokkrar dásamlegar uppskriftir í boði MINITALIA þar sem uppistaðan er að sjálfsögðu eggaldin.
Ein, tvær, þrjár, fjórar, fimm og sex uppskriftir með eggaldin, sjálfu grænmeti guðanna.

Hálfmáni, á ítölsku calzone, er tilbrigði við eina einu sönnu pizzu. Hinn klassíska hálfmána er að finna á flestum betri pizzeríum, oftast fylltur með tómatssósu, skinku, mozzarella og ferskri basilíku. Hér erum við að tala um bragðmikinn hálfmána, fylltan með tómatssósu, mozzarella, pepperóní, tómötum og gráðaosti. Einfaldlega geggjaður hálfmáni sem slær alltaf í gegn í öllum hálfmánapartýum.
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) pepperóní 5) tómatar í sneiðum 6) gráðaostur 7) Ólífuolía
Aðferð
1) Hnoðið pizzadeig, hérna er uppskrift að frábæru pizzadeigi. 2) Fletjið út pizzudeigið 3) Setjið passlegt magn af pizzasósu á heilminginn af botninum.

4) Dreifið svo mozzarella yfir sósuna. Setjið síðan fyrst 5) pepperóní, 6) svo tómatssneiðar
og að lokum 7) gráðaost og ekki lítið af honum yfir pizzuna. 8) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir herlegheitin áður en þið lokið hálfmánanum og þéttið kantana vel með fingrunum. 9) Setjið að lokum smá slettu af pizzasósu yfir hálfmánann áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og hálfmáninn lítur einfaldlega stórkostlega út.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem hálfmáninn er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Hérna er algjört lykilatriði að setja hálfmánann beint á pizzusteininn í stað þess að setja hálfmánann fyrst á grindur. Svo er um að gera að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur og hálfmánar eru yndisleg fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni, t.d. Leonardo Chianti 2013.

Þetta er ein af þessum klassísku pizzum sem nánast er hægt að finna á matseðli hverrar einustu pizzeriu um gjörvalla Ítalíu. Þessi pizza ber nafnið Quattro Stagioni, á íslensku Árstíðirnar fjórar: ætisþistlarnir endurspegla vorið, ólífurnar sumarið, sveppirnir haustið og skinkan að lokum endurspeglar veturinn.
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Ætisþistlar 5) Svartar ólífur 6) Skinka 7) Ólífuolía
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Setjið síðan áleggin fjögur á pizzuna, hvert á sinn fjórðung hennar. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áðaur en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 6) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni..

Ítalska eldhúsið er eitt það allra frægasta í heiminum og hefur notið mikilla vinsælda um langt árabil. En það er ekki allur „ítalskur matur“ eða frægir „ítalskir réttir“ í rauninni frá Ítalíu. Kíkjum á fimm dæmi um „ítalskan mat“ sem er alls ekki frá Ítalíu.
1. Spaghetti með kjötbollum
Þetta er einn af þessum réttum sem hafa orðið til í Bandaríkjunum og hefur verið tengdur við ítalska eldhúsið. Kjötbollur eru vel þekktar á Ítalíu en eru svo sannarlega ekki borðaðar með spaghettí

2. Fettuccine Alfredo
Hún er skemmtileg sagan af rómverska matreiðslumanninum, Alfredo Di Lelio, sem fann upp þennan rétt á veitingahúsinu sínu við götuna Via dela Scrofa í Róm. Þessi réttur féll í kramið hjá bandarískum túristum og barst hróður hans til Bandaríkjanna svo um munaði. Í dag er þetta einn frægasti "ítalski rétturinn" í Bandaríkjunum þó svo hann þekkist ekki á Ítalíu.

3. Pizza Hawai
Pizzu með skinku og ananas finnur þú ekki á Ítalíu PUNKTUR!!!

4. Hvítlauksbrauð
Það er víða algengt að bjóða upp á hvítlauksbrauð með ítölskum mat en ekki á Ítalíu, þú myndir ekki finna svoleiðis þótt þú leitaðir víða. Prófaðu!!!

5. Ítölsk salatdressing
Á Ítalíu finnur þú ekki neina salatdressingu sem ber nafnið „Ítölsk salatdressing; þar er einungis notuð ólífuolía, salt og edik eða ólífuolíu, salt og balsamik edik eða ólífuolíu, salt og sítrónu. Allar aðrar dressingar eru upprunnar einhvers staðar langt í burtu frá hinni guðdómlegu Ítalíu.

Hvernig geta Ítalir verið meðal grennstu þjóða heims, umkringdir endalausu magni af pizzum, pasta, focaccia og risotto? Það er ástæða fyrir öllu, ekkert gerist af sjálfu sér. Leyndardómurinn felst í 10 einföldum reglum sem auðvelt er að tileinka sér og gera að góðum venjum hversdagsleikans.
1. Ítalir leggja mikla áherslu á ferskleika hráefnanna
Ítalir leggja mikið upp úr ferskleika hráefnanna, nýta hráefni héraðsins og árstíðabundin hráefni; hvort sem við erum að tala um ferskan fisk, tómata, kryddjurtir, ætiþistla, eggaldin, kúrbít eða nýtýndar sítrónur, svona gæti maður haldið áfram að telja endalaust. Pasta er soðið „al dente“, oft einungis borið fram með slettu af ólífu eða einfaldri tómatssósu og fersku grænmeti. Og skammtarnir alltaf litlir, hæfilegir!!!
2. Ítalir borða litla skammta og allt er í jafnvægi
Andstætt við Bandaríkin þá eru skammtarnir á Ítalíu mun minni, hvergi er að finna "supersize" máltíðir eða linnulaus tveir fyrir einn tilboð. Þetta er að vísu ekki einhlítt þar sem ítalskar ömmur vilja að barnabörn sín borði og borði; þar sem þau eru nú jú að stækka.
Ítalir hugsa í sjálfu sér miklu meira um gæði matarins en hversu mikið er af honum, þ.e. betra er að langa í meira en að liggja meðvitundarlaus af áti. Ítalir leggja mikla áherslu á þetta jafnvægi á milli magns og gæða; ekki of mikil fita, akkúrat nógu mikið af kolvetnum og mikið af fiski og kjúklingi.
3. Ítalir nota aðeins eina tegund af olíu og það er ÓLÍFUOLÍA
Ítalir nota nær eingöngu ólífuolíu í matargerð sína; hvort sem er í sósuna, á salatið, við steikinguna eða bara til að bragðbæta allt mögulegt. Ólífuolían spilar stórt hlutverk í lífi fólksins við Miðjarðarhafið og er ómissandi partur af ítalskri matargerð. Í ólífuolíunni er að finna fitusýrur sem bæði eru hollar og góðar fyrir mann.
4. Ítalir borða léttan kvöldverð
Margir hafa þá ímynd af Ítölum að þeir borði margréttaðan kvöldverð á hverju einasta kvöldi en það er langlífur misskilningur. Ítalir borða yfirleitt léttan kvöldverð, t.d. grænmetissúpu, smá kjötmeti, lítinn disk af pasta eða risotto. En þegar blásið er til veislu stendur hún yfirleitt lengi og réttirnir endalaust margir.
5. Ítalir fara í endalausar gönguferðir
Ítalir eiga sérstaka sögn í sínu tungumáli yfir það að“ fara í gönguferð“ en það er sögnin „passeggiare“. Ítalir fara í endalausar gönguferðir, hvort sem það eru gönguferðir um hverfið sitt, borgina sína eða sérstakar ferðir til nágrannabæja og borga til þess einfaldlega að „fara í gönguferð“. Það er í öllum þessum gönguferðum sem Ítalir brenna sínum óþarfa kaloríum.
6. Ítalir borða alltaf morgunmat en lítinn morgunmat
Ítalir leggja mikið upp úr mikilvægi þess að fá sér alltaf morgunmat en samt alls ekki mikinn morgunmat; dásamlegur esspressó, macchiato eða cappuccino ásamt croisssant kalla Ítalir „morgunmat guðanna“.
7. Ítalir borða ekki skyndibitamat
Ítalskar matvöruverslanir eru ekki uppfullar af gosdrykkjum, sælgæti og snakki líkt og sambærilegar verslanir víða um heim, þ.á.m. hér á landi. Ítalir borða sjaldan á milli mála og aldrei yfir sjónvarpinu eða tölvunni sem er slæmur ávani sem við Íslendingar höfum því miður líklega tileinkað okkur frá Bandaríkjunum. Ennfremur borða Ítalir ótrúlega lítið magn af skyndibita og hafa bandarískar skyndibitakeðjur átt erfitt uppdráttar á Ítalíu. Inn á McDonald‘s í Mílanó heyrir þú engan tala ítölsku; þar er eingöngu að finna túrista og fólk af erlendu bergi brotið.
8. Ítalir borða ekki pizzur daginn út og daginn inn
Það er algengur misskilningur að Ítalir borði pizzur alla daga vikunnar. Það er aftur á móti vinsælt hjá ítölum að gera sér dagamun um helgar, fara út með góðum vinum og fá sér sína uppáhalds pizzu á sinni uppáhalds pizzeríu.
9. Ítalir drekka nánast aldrei gosdrykki eða aðra sæta drykki
Ítalir drekka ekki gosdrykki með mat, það er einfaldlega bannað. Aftur á móti drekka flestir Ítalir vatn með matnum ásamt glasi af léttvíni. Takið eftir, glasi af léttvíni, alls ekki heilli flösku.
10. Ítalir fara aldrei í megrun
Ítalir fara aldrei í brjálaða megrun þar sem eru að borða allajafna virkilega hollan og góðan mat. Ef þeir vilja léttast þá fá þeir sér einfalda tómatssósu út á pastað í stað rjómasósunnar, grilla eggaldinið með smá ólífuolíu í stað þess að djúpsteikja það. Þeir einfaldlega leggja áherslu á hollari útgáfu af venjulegri ítalskri matargerð. í stað þess að takast á við enn einn megrunarkúrinn.

Matargerð héraðsins einkennist af einföldum réttum sem bæði eru fljótlegir og auðveldir í framkvæmd en Spaghetti all'amatriciana og Spaghetti alla Carbonara eru góð dæmi um slíka rétti. Allt byggist á fersku hráefni sem stendur öllum til boða. Í Lazio er mikið borðað af brauði, ostum, ólífum, fersku grænmeti og pasta, ennfremur er lambakjöt talsvert á borðum hjá íbúum héraðsins. Jarðvegurinn héraðsins er ríkur af gosefnum sem gerir héraðið að mjög frjósömu akuryrkjulandi sem skapar kjöraðstæður til ræktunar ýmiskonar grænmetis sem oft er eldað á einfaldan hátt með ólífuolíu, kryddjurtum og hvítlauk. Í Lazio eru ræktaðar yfir 90 mismunandi tegundir af ætisþistlum og eru þeir matreiddir á margvíslegan hátt.
Ennfremur er ferskur fiskur, saltfiskur, skelfiskur og kuðungar hráefni sem spila stórt hlutverk í matargerð héraðsins. Íbúar héraðsins borða einnig meira af svína- og lambakjöti þó myndu flestir íbúar héraðsins velja nautakjöt ef þeir fengju að velja. Kjúklingur er líka meira notaður hér en í öðrum héruðum Ítalíu ásamt því að talsvert er borðað af kanínukjöti. Mikið er týnt af villtum sveppum og kryddjurtum í sveitum héraðsins og ennfremur eru sniglar vinsælir meðal íbúa þess.
Hér fyrir neðan eru uppskriftir af nokkrum dásamlegum réttum sem upprunnir í Lazio:

Mikil ostaframleiðsla er í héraðinu og einn mikilvægasti osturinn í héraðinu er Pecorino Romano frá Amatrice. Þetta er mjög saltur ostur sem framleiddur er úr sauðamjólk, svipar til Parmigiano Reggiano en er mun bragðsterkari. Pecorino Romano má aldrei nota í staðinn fyrir Parmigiano þar sem bragðið af honum er of sterkt í mildar sósur, en aftur á móti má alltaf nota Parmigiano í staðinn fyrir Pecorino Romano. Ennfremur er mikið neytt af ricotta í Lazio sem er léttur og ferskur ostur sem fellur til við framleiðslu á Pecorino Romano. Ricotta er mikið notaður í lasagna, sem fylling í cannelloni og í ravioli og einnig ýmsa eftirrétti, t.d. ostkökur.