Published on
Sagan á bak við þennan rétt er ekki alveg á hreinu en eitt er víst að rétturinn er uppruninn frá Napólí. Upprunalega samanstendur þessi sósa af tómötum, hvítlauk, ferskri steinselju og þurrkuðu oregano en í þessari útfærslu er bætt um betur og einnig notast við ansjósur, kapers og hvítlauk. Þessi bragðmikla sósa nýtur góðs af dásamlegum kryddjurtum og flottu hvítvíni ásamt himneskum safa úr dúndur nautakjöti. Oft er borið fram spaghettí með þessum rétti en að þessu sinni varð tagliatelle fyrir valinu. Þessi réttur sló gjörsamlega í gegn og naut sin til hins ítrasta í góðu félagsskap með rauðvíni frá Toskana, Isole e Olena Chianti Classico 2013.
Picture
Hráefni
1) tvær, ca. 2 cm þykkar, nautasteikur, t.d. sirloin 2) 250 gr af afhýddum ferskum tómötum 3) 1-1,5 dl af vatni 4) 4 stk ansjósuflök, skorin smátt 5) 3 hvítlauksgeirar, skornir gróft 6) 1 msk af kapers 7) hálfur chillibelgur, skorinn smátt 8) 300 gr. tagliatelle 9) salt 10) pipar 11) þurrkað oregano 12) fersk steinselja

Aðferð
1) Kryddið steikurnar með salti og pipar. 2) Hitið ólífuolíu á góðri pönnu. 3) Setjið steikurnar á pönnuna og steikið þær í eina mínútu sekúndur á hvorri hlið. 4) Hellið góðu hvítvínsglasi yfir steikurnar og látið það sjóða niður til hálfs.
5) Takið sneiðarnar af pönnunni og leggið til hliðar. 6) Bætið hvítlauk, ansjósum, chilli, kapers og þurrkuðu oregano á pönnuna og steikið í 2-3 mínútur. 7) Þá er kominn tími til að bæta tómötunum saman við ásamt 1-1,5 dl af vatni. 8) bætið svo ferskri steinselju yfir herlegheitin.
9)  blandið öllu vel saman. Saltið og piprið. Setjið nú lok á pönnuna og látið þetta malla við miðlungshita í 10-15 mínútur. Á þessum tímapunkti er tilvalið að fara huga að því að sjóða pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. Ef þú vilt vita allt um pastasuðu ýttu þá hér. 10) Nú er komið að því að setja steikurnar aftur á pönnuna. 11) Setjið sósuna yfir steikurnar og látið þær malla í sósunni síðustu 3-4 mínúturnar. 12) Setjið fyrst tagliatelle á disk, leggið steikurnar ofan á, hellið sósunni yfir herlegheitin og berið réttinn strax fram.

Með þessum rétti mælir MINITALIA með Isole e Olena Chianti classico 2013

Image description
Í hjarta svæðisins Chianti Classico í héraðinu Toskana, nánar tiltekið mitt á milli borganna Flórens og Siena, er að finna vínhúsið Isole e Olena, eitt allra besta og athyglisverðasta vínhús þessa dásamlega héraðs. Í dag er vínhúsið rekið af Paolo De Marchi og hans fjölskyldu. Paolo De Marchi hefur að mörgu leyti haldið fast í sérkenni svæðisins með því að leggja mikla alúð í ræktun staðbundnu þrúgunnar Sangiovese en leitar á sama tíma stöðugt leiða til að bæta sín stórkostlegu vín.

Isole e Olena Chianti Classico 2013 er framleitt úr þrúgunum Sangiovese 80%, Canaiolo 15% og Syrah 5%. Þetta vín er fyrst látið þroskast á tiltölulega litlum eikartunnum í 12 mánuði og síðan er það látið þroskast áfram í 3-4 mánuði á flöskum áður en það er sett á markað.

Þetta kirsuberjarauða vín tekur á móti manni með angan af dökkum ávexti, kirsuber. Rauður ávöxtur í munni, pínulítið kryddað, vottur af steinefnum og þónokkur eik. Mikil og fersk sýra, mjúk tannín. Virkilega flott matarvín. Góður karakter í flottu jafnvægi, flauelsmjúkt með meðallöngu eftirbragði. Þetta er vín sem gerir góðan mat betri og vínið sjálft verður líka betra með góðum mat.
Published on
Kjúklingur veiðimannsins, eða Pollo alla cacciatora á ítölsku, er hefðbundinn aðalréttur frá Toscana. Þessi einfaldi réttur er þekktur víða um Ítalíu og þá sérstaklega í hérðunum í norðri. Sum staðar eru sveppir hafðir með í þessum rétti. Þetta er einn af þessum réttum sem er uppruninn er frá hinu fátæka eldhúsi þar sem ósköp venjulegum kjúklingi er breytt á einfaldan hátt í dásamlegan veislurétt.
Picture
Hráefni
1) 1 kjúklingur, skorinn í stóra bita 2) 1 laukur 3) 3 hvítlauksrif, heil en kramin með hníf 4) 2 greinar af rósmarín 5) 3-4 leggir af sellerí, skornir í stóra bita  6) 2-3 gulrætur, skornar í litla bita 7) 1-2 chillibelgir, fer eftir stærð þeirra 8) 1 dós af tómötum 9) 1 glas af rauðvíni 10) 100 ml ólífuolía 11) salt og pipar 12) steinselja

Aðferð
1) Hitið ólífuolíu í góðum potti og bætið saman við 2) hvítlauk, 3) lauk 4) ásamt rósmaríngreinunum og mýkið þetta allt saman í 3-4 mínútur á lágum hita. 
5) Takið ysta lagið af selleríleggjunum, skerið þá í stóra bita og bætið þeim út í pottinn. 6) Bætið gulrótunum saman við og látið steikjast áfram í 2-3 mínútur 7) Skerið kjúklinginn í 8-10 bita. 8) Bætið kjúklingabitunum út og pressið þá vel ofan í pottinn þannig að þeir steikist vel. Saltið kjúklinginn pínulítið á þessum tímapunkti. Látið svo kjúklinginn steikjast í ca. 10 mín eða þangað til hann er farinn að verða svolítið brúnn. Snúið bitunum oft og iðulega.
9) Bætið núna út í glasi af rauðvíni og látið sjóða upp. Bætið svo dós af tómötum út í pottinn ásamt 1 msk af tómatpúrru. 10) Setjið chillibelgina heila út í pottinn á þessum tímapunkti. Látið herlegheitin malla við lágan hita í 35-40 mínútur. Smakkið af og til, saltið og piprið eftir þörfum. 11) Bætið saxaðri steinseljunni við í lok eldunartímans og berið réttinn strax fram.

Með þessum rétti mælir MINITALIA með Cecchi Natio Chianti Organic 2015

Image description
Vínhúsið Cecchi er eitt af þessum gamalgrónu í Toskana, stofnað árið 1893 af Luigi Cecchi og fljótlega fór sonur hans, Cesare Cecchi, að starfa við hlið föður síns. Orðspor vínhússins fór ekki á flug á alþjóðavisu fyrr en undir stjórn annars Luigi Cecchi, barnabarns stofnandans sjálfs. Í dag er fjórða kynslóðin við stjórnartaumana í vínhúsinu Cecchi en það eru bræðurnir Andrea og Cesare Cecchi. Vínhús Cecchi-fjölskyldunnar hefur ávallt lagt mikla áherslu á að framleiða klassísk og vönduð vín sem fullkomlega eru trú uppruna sínum.

Cecchi Chianti Natio Organic DOCG 2015 er virkilega aðlaðandi vín frá þessu virta vínhúsi sem framleitt er úr þrúgunum Sangiovese (90%) og Colorino (10%). Þetta vín er framleitt einvörðungu úr lífrænum þrúgum á svæði í Toskana sem kallast Colline del Chianti. Þetta vín er fyrst látið þroskast á stáltönkum í u.þ.b. 6 mánuði og síðan látið þroskast í að minnsta kosti tvo mánuði á flösku áður en það er sett á markað.

Þetta rúbínrauða vín tekur á móti manni með nokkuð áköfum angan af ferskum ávexti, vottur af kryddi. Ávaxtaríkt vín þar sem kirsuber, bláber og plómur spila aðalhlutverkin. Þetta er mjúkt vín í góðu jafnvægi með nokkuð flottan strúktúr.
Published on
Oft er það einfaldleikinn sem blívur, hér eru áleggin fá en svo sannarlega dásamleg. Áleggin eru í rauninni einungis tvö, annars vegar Speck sem er dásamlegt kjötálegg frá svæðinu Suður-Týról í norðurhluta Ítalíu og hins vegar gráðostur, eða gorgonzola sem margir telja vera uppruninn frá bænum Gorgonzola í nágrenni Mílanó. Þessi pizza var í einu orði sagt stórkostleg; mikill kraftur sem bæði kom úr álegginu en ekki síður úr gráðostinum. Frábær pizza sem skildi mikið eftir sig, hún einfaldlega sló í gegn.
Picture
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) mozzarella 4) Speck 5) gráðostur (á ítölsku "gorgonzola") 6) ólífuolía

Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósunni á botninn. 3) Dreifið mozzarellaosti yfir sósuna. 4) Setjið síðan áleggin á pizzuna; fyrst gráðostinn, síðan speck-sneiðarnar. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 6) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 7) Takið þá pizzuna úr ofninum og berið hana strax fram.

Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill  og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.

Pizzur eru yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.
Published on
Speck Alto Adige PGI er þurrkverkuð skinka, pínulítið reykt, með nokkuð afgerandi bragði. Speck er upprunnið frá héraðinu Suður-Týrol, nyrst á Ítalíu, en þetta svæði hefur verið til skiptis undir stjórn Ítalíu og Austurríkis en varð endanlega hluti af Ítalíu í lok fyrri heimstyrjaldar. Í Suður-Týról, sem staðsett er á mörkum Suður- og Norður-Evrópu, eru aðstæður til framleiðslu þessa dásamlega kjötmetis í einu orði sagt fullkomnar.
Picture
Í upphafi var framleiðsluaðferðin fundin upp í þeim tilgangi að geta geymt kjötið lengur en ella. Aðferðin gerði fólki kleift að hafa aðgang að góðu kjöti hvern einasta dag, allan ársins hring. Framleiðslan samanstendur af tveimur mismunandi aðferðum við að varðveita kjöt og lengja endingartíma þess, annars vegar að þurrka það sem er mjög algengt í kringum Miðjarðarhafið og hins vegar að reykja það lítilsháttar sem aftur á móti er algeng aðferð norðar í álfunni. Í héraðinu Suður-Týrol eru kjöraðstæður til þess að stunda þessar tvær aðferðir samhliða, þökk sé fullkominni staðsetningu og þess eintaka loftslags sem ríkir á þessu svæði. Reglan við framleiðsluna er „smá salt, smá reykur og mikið af fersku lofti“. Við framleiðsluna eru notuð söltuð svínalæri sem fyrst eru látin hanga í 3 vikur áður en þau er léttreykt við lágt hitastig og síðan þurrkuð við fullkomnar aðstæður í u.þ.b. 22 vikur.

Speck er í dag oftast borið fram með brauði og glasi af rauðvíni en að auki er það frábært sem álegg á pizzur, samlokur og í hina ýmsu pasta- og risottórétti.

Allar nánari upplýsingar um Speck má finna á heimasíðunni SPECK.IT.
Published on
Linguini með humri er sannkallaður hátíðarréttur, frábær sem fyrsti réttur á undan villibráðinni á aðfangadagskvöld. Allt gert frá grunni; skeljarnar steiktar upp úr hvítvíni og síðan er bætt út í chilli, hvítlauk, ansjósum, kapers, tómötum og steinselju og niðurstaðan dásamleg pastasósa sem fær mann til að loka augunum og ímynda sér að maður sé staddur í litlu fiskiþorpi á ítölsku riveríunni, umvafinn fjölskyldu og vinum.

Í þessum rétti koma saman tvö mögnuð fyrirbæri, annars vegar ítölsk matreiðsla og hins vegar íslenskur humar. Fullkomin samsetning sem getur ekki klikkað.
Picture
Hráefni fyrir fjóra
1) 400 gr linguine, að sjálfsögðu líka hægt að nota spaghettí 2) 1 kg humarhalar í skelinni 3) 1 stk laukur 4) 2 stk gulrætur 5) 2 stk meðalstórir chillibelgir 6) 1 stk dós af niðursoðnum tómötum 7) 400 ml af heitu vatni 8) ólífuolía 9) hvítvín 10) hvítlaukur, smátt saxaður 11) 1 búnt steinselja 12) 1 msk ansjósur 13) 1 væn kreista úr ferskri sítrónu 14) 1 msk kapers 15) salt

Aðferð
1) Skelfléttið humarinn, leggið humarinn til hliðar. Brjótum skeljarnar af humrinum í aðeins minni einingar. Hitið ólífuolíu á þó nokkuð djúpri pönnu, einnig hægt að nota góðan pott í verkið og setjið humarskeljarnar á pönnuna. 2) Hellið vænni slettu af hvítvíni yfir skeljarnar og látum þetta stikna í 1-2 mínútur 3) Bætum einum chillibelg, skornum til helminga eftir endilöngu og þremur geirum af hvítlauk, líka skornum til helminga. 4) Á sama tíma bætum við saman við söxuðum ansjósum og kapers.
5) Svo setjum við út á pönnuna lauk,  6) gulrótum og 7) steinselju saman við. Hrærið þessu vel saman og látum þetta síðan stikna áfram í 2-3 mínútur. 8) Þá er komið að því að bæta saman við einni dós af niðursoðnum tómötum ásamt öðru eins af heitu vatni.
9) Blöndum þessu öllu vel saman og látum bullsjóða í 25-30 mínútur. 10) Síu sósuna í gegnum sigti og munið að ná öllum safanum úr skeljunum. Leggjum sósuna til hliðar, gott er að setja hana í lítinn pott og halda henni heitri. Á þessum tímapunkti er tilvalið að sjóða pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. Ef þú vilt vita allt um pastasuðu ýttu þá hér. Látum sósuna aftur á pönnuna og látum þetta áfram í nokkrar mínútur. Á þessu tímapunkti er um að gera að smakka sósuna til, saltið eftir smekk. 11) Hitið ólífuolíu á pönnu og bætið einum chillibelg ásamt þremur hvítlauksgeirum, skornum skornum nokkuð gróft. Látið þetta svitna í pínulitla stund. 12) Skerið humarinn í passlega bita, u.þ.b. 1-2 cm á breidd, og bætið honum á pönnuna ásamt smá skvettu af hvítvíni og vænni kreistu af sítrónu.
13) Hellið sjálfri sósunni yfir humarinn. 14) Bætið svo pastanu saman við og blandið öllu vel saman. 15) Að lokum er smátt saxaðri steinseljunni stráð yfir herlegheitin og rétturinn borinn strax fram.

Með þessum rétti mælir MINITALIA með Bramito del Cervo 2015

Image description
Í hjarta víngerðarsvæðisins Orvieto í héraðinu Úmbría er að finna vínhúsið Castello della Sala sem kennt er við sögufrægan kastala sem byggður var á árið 1350.  Í dag ræður Piero Antinori, einn þekktasti víngerðarmaður Ítalíu, ríkjum í þessu virta vínhúsi sem framleitt hefur heimsfræg hvítvín á borð við Cervaro della Sala, Conte della Vipera og vínið sem hér um ræðir; Bramito del Cervo 2015.

Bramito del Cervo 2015, er framleitt að öllu leyti úr þrúgunni Chardonnay. Vínið er að hluta til látið þroskast í eikartunnum í stuttan tíma og síðan látið þroskast áfram á stáltönkum áður en það er tappað á flöskur og sett á markað.

Þetta vín er ljóssítrónugult með ferskan en flókinn angan af suðrænum ávöxtum, t.d. ananas og sítrusávexti, ásamt heslihnetum og vanillu. Hér erum við að tala um virkilega vel uppbyggt vín, mikill elegans og flottur karakter. Stórgott vín sem gæti jafnvel batnað á næstu árum.
Published on
Risottó all‘amatriciana er afsprengi eins af klassískari pastaréttum veraldar, Spaghetti all'amatriciana, Þeir verða eiginlega ekkert mikið klassískari. Rétturinn er uppruninn frá héraðinu Lazio, nánar tiltekið þorpinu Amatrice sem staðsett er ekki langt frá Róm. Uppistaðan í þessum rétti eru tómatar, beikon og pecorino romano. Það eru ýmsar útgáfur til af þessari sósu, t.d. nota sumir parmesan í stað pecorino, sumir hella smá slettu af hvítvíni eða rauðvíni og aðrir nota mikið af chilli og/eða lauk á meðan aðrir sleppa því alveg. 

Hérna tókum við svolítið tvist á þetta með því að gera fyrst amatriciana-sósuna og blanda henni saman við risottógrjón undir lok eldunartímans. Hérna bætum við rauðvíni og chilli við ásamt því að við notum parmesan og pecorino romano til helminga í þetta skiptið. Þetta tvist gekk fullkomlega upp og niðurstaðan virkilega bragðmikið risottó sem einfaldlega sló í gegn.
Picture
Hráefni fyrir fjóra
1) 400 gr risottógrjón, t.d. arborio 2) 1 dós af tómötum 3) 150 gr beikon, þykkar sneiðar sem skornar eru í 0,5 cm þykka strimla 4) 1 stk lítill chillibelgur, smátt saxað 5) 50 gr pecorino romano 6) 50 gr parmesan 7) 50 gr smjör 8) ólífuolía 9) salt 10) pipar
Picture
Aðferð
1) Hitið olíu í stórum potti, 2) bætið beikoninu á pönnuna 3) ásamt smátt söxuðu chilli og látið malla þar til fitan á beikoninu er orðin glær. Piprið duglega. 4) Bætið út í 1 dós af tómötum, blandið vel saman og látið malla undir loki í u.þ.b. 12-15 mínútur. Saltið eftir smekk, þarf ekki mikið þar sem beikonið er þó nokkuð ríkt af salti.
5) Hitið ólífuolíu á annarri pönnu og bætið grjónunum á pönnuna, hækkið hitann og steikið í 2-3 mínútur. Hrærið vel á meðan 6) Lækkið hitann og setjið út í eina ausu af sjóðandi heitu vatni á pönnuna og hrærið annað slagið. Haldið áfram að bæta við vatni eftir þörfum og hrærið annað slagið þar til grjónin eiga eftir u.þ.b. 4-5 mínútur, það er eftir u.þ.b. 12-13 mínútna eldunartíma. 7) Bætið þið grjónunum saman við amatriciana-sósuna og blandið öllu vel saman. 8) Setjið eina góða ausu af heitu vatni saman við og látið þetta malla áfram á lágum hita.
9) Þegar grjónin eru tilbúin þá er tímabært að slökkva undir pönnunni og bætum fyrst smjöri á pönnuna og látum það bráðna, 10) svo nýrifnum parmesan annars vegar og pecorino romano hins vegar og 11) blandið öllum vel saman og piprið eftir smekk. 12) Setjið ilmandi risottóið á diska, ekki sakar að bæta við smá parmesan undir lokin og berið réttinn strax fram.

Með þessum rétti mælir MINITALIA með Leonardo Chianti DOCG 2014

Image description
Í hjarta Chianti-svæðisins í Toscana er að finna smábæinn Vinci en við hann er kenndur lista- og vísindamaðurinn Leonardo da Vinci. En bærinn er ekki einungis þekktur fyrir sjálfan Leonardo da Vinci heldur eru framleidd þar virkilega góð vín sem vert er að gefa gaum. Í bænum er starfandi vínsamlagið Cantine Leonardo, stofnað árið 1961, sem samanstendur af 200 bændum sem rækta vínvið á u.þ.b. 750 hekturum á svæðunum Chianti og Montalcino í héraðinu Toscana.

Leonardo Chianti DOCG 2014 er að 85% hluta framleitt úr þrúgunni Sangiovese, 10% úr þrúgunni Merlot og 5% úr hinum ýmsu þrúgum. Vínið er látið þroskast á stáltönkum í 6 mánuði áður en það er sett á flöskur.


Þetta dökkfjólubláa vín tekur á móti manni með angan af krisuberjum og ferskum, rauðum ávexti, vottur af svörtum pipar. Þetta er vín í flottu jafnvægi, fersk sýra, tannín í mýkri kantinum og eftirbragð með pínulitlum krydduðum tónum. Hér er um að ræða góðan og einfaldan en þó nokkuð kröftugan Chianti á virkilega góðu verði.

Hér er um að ræða virkilega matvænt vín sem smellpassar með ýmsum ítölskum réttum, t.d. réttum á borð við pasta, pizzu og risottó.

Published on
Þessi dásamlegi réttur er uppruninn frá Sikiley og varð til kringum aldamótin 900. Spaghetti al carrettiere, eða Spaghettí að hætti ekilsins er með réttu kenndur við mennina sem fluttu vörur, oft um langan veg, á vögnum sínum sem dregnir voru áfram af ösnum eða hestum. Á löngum ferðalögum þessara manna var eflaust gott að taka með sér einfalt hráefni sem geymdist vel og lengi. Þessi réttur sem kenndur er við þessa menn samanstóð upprunalega af spaghettí, ólífuolíu, hvítlauk, pínulitlum ostbita og ferskum kryddjurtum sem þeir fundu í vegkantinum hverju sinni. Með tíð og tíma hefur þó ýmsum hráefnum verið bætt við þennan rétt, t.d. tómötum, beikoni, sveppum og chilli. Hérna kemur ein útgáfa af þessum fræga rétti sem víða má finna í dag þar sem öllum þessum hráefnum hefur verið bætt við og útkoman er í einu orði sagt dásamleg.
Picture
Hráefni fyrir fjóra
1) 400 gr spaghettí 2) 250 gr sveppir, skornir í sneiðar 3) 3 msk óífuolía 4) 2 hvítlauksrif 5) 1 stk chillibelgur 6) 100 gr beikon, skorið í þunna strimla 7) 1 dós af niðursoðnum tómötum 8) 80 gr túnfiskur í dós 9) 100 gr parmesan og/eða pecorino romano 10) steinselja 11) salt 12) pipar
Picture
Aðferð
1) Hitið ólífuolíu á góðri pönnu og bætið út í hana hvítlauk og chilli og látið malla í 2-3 mínútur eða þar til hvítlaukurinn fer að fá lit. 2) Bætið við beikoni og steikið áfram við miðlungshita þar til fitan fer að bráðna og verða glær. 3) Þá er komið að því að bæta sveppunum saman við og steikið í ca. 5 mínútur eða þar til þeir fara að mýkjast en samt eiga þeir að vera pínulítið stinnir undir tönn. 4) Bætið nú tómötunum saman við á þessum tímapunkti
5) Látið þetta nú malla í u.þ.b. 15 mínútur. 6) Látið renna af túnfiskinum, losið hann í sundur í litlar flögur og bætið honum við pönnuna góðu. 7) Látið þetta malla áfram rólega í aðrar 15 mínútur. Saltið og piprið eftir smekk. 8) Sjóðið pastað á á meðan, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. Ef þú vilt vita allt um pastasuðu ýttu þá hér.
9) Látið renna af pastanu og setjið það út í sósuna góðu. Bætið ostinum við á þessum tímapunkti og blandið öllu vel saman. Saltið og piprið eftir smekk. 10) Setjið réttinn á diska, stráið ferskri steinselju yfir herlegheitin og berið strax fram.

Með þessum rétti mælir MINITALIA með Tommasi Ripasso DOC 2014

Image description
MINITALIA mælir með Tommasi Ripasso DOC 2014 með þessum dásamlega rétti. Þetta vín kemur frá hina þekkta vínhúsi Tommasi Viticoltori sem er frá héraðinu Veneto. Tommasi framleiðir í Veneto fræg vín á borð við Amarone della Valpolicella, Valpolicella Ripasso, Soave og Bardolino.

Þetta vín sem hér um ræðir heitir Valpolicella Ripasso DOC 2014 og er framleitt úr þrúgunum Corvina Veronese (70%), Rondinella (25%) og Corvinone (5%). Þetta vín er framleitt með ripasso-aðferðinni sem er mjög algeng í héraðinu Veneto en þá er safinn skilinn frá í lok gerjunarinnar á vínum sem kennd eru við Amarone della Valpolicella og hratinu, sem er þykkur sætur massi, blandað saman við ungt Valpolicella-vín og þannig fer gerjunin í gang á nýjan leik. Þegar þessu ferli er lokið er vínið látið þroskast í slóvenskum eikartunnum í u.þ.b. 15 mánuði áður en því er tappað á flöskur og sett á markað.

Þetta er virkilega flott matarvín sem hentar vel með nautakjöti, villibráð, t.d. rjúpu, önd og gæs, og einnig flott með bragðmiklum pastaréttum.
Published on
Þessi réttur sló algjörlega í gegn með íburði sínum, elegans og skemmtilegu tvisti. Tagliatelle með sveppum, balsamik og rjóma hljómar líka einhvern veginn svo framandi en á sama tíma svo skothelt plan. Fyrst koma sveppirnir, steiktir upp úr hvítlauk og smjöri, svo kemur hið dásamlega bragð af balsamikinu og að lokum kemur rjóminn með sitt silkimjúka yfirbragð ásamt bitinu frá parmesan-ostinum. Hráefnin heiðra héraðið Emilia-Romagna, hvort sem við erum að tala um pastategundina "tagliatelle", balsamico di Modena eða sjálfan parmesan-ostinn. Í hnotskurn er þetta er dásamlegur réttur sem vert er að tefla fram þegar stórgóða gesti og höfðingja ber að garði.
Picture
Hráefni fyrir fjóra
1) 500 gr tagliatelle frá De Cecco 2) 500 gr sveppir, skornir í nokkuð þykkar sneiðar 3) 6 msk smjör 4) 3 msk ólífuolía 5) 1 stk meðalstór laukur, smátt saxaður 6) 4 stk hvítlauksrif 7) 125 ml rjómi 8) 125 ml balsamik edik 9) 4 msk steinselja, smátt söxuð 10) 100 gr parmesan 11) salt 12) pipar
Picture
Aðferð
1) Bræðið helminginn af smjörinu ásamt ólífuolíunni á miðlungshita á góðri pönnu. 2) Bætið lauknum og hvítlauknum á pönnuna og mýkið í fáeinar mínútur á lágum hita. Um að gera að fylgjast vel með pönnunni, hvítlaukurinn á alls ekki að brenna. 3) Bætið sveppunum á pönnuna, veltið þeim í smjörinu og ólífuolíunni þar til þeir verða löðrandi, bætið við smá ólífuolíu ef ykkur finnst sveppirnir vera of þurrir. 4) Steikið sveppina við miðlungshita í u.þ.b. 8 mínútur.
5) Þá er komið að því að bæta við balsamik edikinu á pönnuna og hrærið vel saman við. Á þessum tímapunkti er líka gott bæta við hinum helmingnum af smjörinu og látið malla áfram í 2-3 mínútur. Að því loknu er gott að taka pönnuna af hellunni. 6) Bætið nú rjómanum saman við 7) ásamt nýrifnum parmesan. 8) Blandið nú öllu vel saman.
9) Sjóðið pastað á á meðan, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. Ef þú vilt vita allt um pastasuðu ýttu þá hér. 10) Látið renna af pastanu og setjið það út í sósuna góðu og blandið öllu vel saman. Saltið og piprið eftir smekk. 11) Stráið ferskri steinselju yfir herlegheitin og 12) berið réttinn strax fram ásamt nýrifnum parmesan.

Með þessum rétti mælir MINITALIA með Nanfré Vapolicella Superiore DOC 2014

Image description
MINITALIA mælir með Nanfré Valpolicella Superiore DOC 2014 með þessum rétti. Þetta er vín sem kemur frá vínhúsinu Tenuta Sant'Antonio sem staðsett er í héraðinu Veneto, nánar tiltekið á svæði sem kallast Valpolicella í nágrenni við borgina Veróna. Á bak við vínhúsið standa fjórir bræður sem bera eftirnafnið Castagnedi, þeir Armando, Massimo, Paolo og Tiziano.

Þetta rúbínrauða vín tekur á móti manni með angan af kirsuberjum og rauðum ávexti, pínulítið kryddað. Þetta er pínulítið ungæðislegt vín, mikill ferskleiki, þónokkur fylling og tiltölulega langt eftirbragð. Miðlungs tannín og nokkuð fersk sýra sem gerir þetta að ansi góðu matarvíni..

Hér er sem sagt um að ræða flott matarvín sem hentar sérstaklega vel með bragðmiklum pastaréttum á borð við þennan sem hér um ræðir, þ.e. himneskt tagliatelle með sveppum, balsamik og rjóma. 
Published on
Þessi dásamlegi réttur, Spaghetti alla Siracusana, er kenndur við borgina Sýrakúsa á Sikiley. Grænmeti er uppistaðan í þessum rétti eins og svo mörgum öðrum frá þessum slóðum, við erum að tala um eggaldin, papriku, kaper og ólífur. En á Sikiley er ræktað mikið magn af úrvals grænmeti og ávöxtum sem flutt er til fjölmargra landa um víða veröld. Geggjuð hráefnin í þessum rétti mynda fullkomið jafnvægi og skpa bragðbombu sem skilur engan eftir ósnortinn.
Picture
Hráefni fyrir fjóra
1) 500 gr spaghettí 2) 1 stk eggaldin 3) 2 stk gular paprikur 4) 1 dós af niðursoðnum tómötum 5) 4 ansjósuflök, skorin í litla bita 6) 2 msk kapers 7) 12 steinlausar ólífur 8) 2 msk ólífuolía 9) 3 stk hvítlauksrif, smátt söxuð 10) basilíka 11) salt 12) pipar 13) 40 gr parmensan
Picture
Aðferð
1) Skerið eggaldinið í ca. 0,5 cm þykkar sneiðar, gott er að notast við mandólín til að fá sneiðarnar sem jafnastar en auðvitað er líka hægt að skera þær með góðum hníf. 2) Setjið nokkrar eggaldinsneiðar í botninn á stóru sigti, saltið síðan með grófu sjávarsalti, svo annað lag af eggaldinsneiðum, saltið á nýjan leik og svo koll af kolli þar til búið er að salta allar sneiðarnar. 3) Setjið sigtið með eggaldinsneiðunum í stóra skál og setjið disk ofan á 4) og síðan eitthvað þungt til að setja smá þrýsting. Látið þetta standa í góða klukkustund.
5) Setjið paprikuna inn í ca. 240 gráðu heitan ofn og bakið í 20 mínútur. 6) Takið paprikurnar úr ofninum og þá á hýðið á þeim að hafa dökknað rækilega og þá ætti að vera auðvelt að taka hýðið af þeim. Takið fræin innan úr paprikunum og skerið þær í mjóar ræmur. 7) Skolið eggaldinsneiðarnar, þurrkið þær og skerið að því loknu eggaldinsneiðarnar í litla bita. 8) Hitið að því loknu ólífuolíu á góðri pönnu.
9) Bætið saman við hvítlauk og 10) ansjósum og látið þetta malla við lágan hita í 2-3 mínútur. Hafið augun hjá ykkur þar sem hvítlaukurinn má alls ekki brenna. 11) Bætið svo við á pönnuna eggaldinbitunum 12) og einni dós af tómötum, hækkið hitann á meðan blandan hitnar á nýjan leik en lækkið hann svo aftur og látið þetta malla í u.þ.b. 10 mínútur.
13) Bætið við kapers, 14) ólífunum, 15) paprikubitunum 16) ásamt nokkrum blöðum af basilíku., smáttsöxuðum.
Blandið öllu vel saman, setjið lokið á pönnuna og látið malla áfram í u.þ.b. 15 mínútur. Saltið og piprið eftir smekk. 14) Sjóðið pastað á á meðan, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. Ef þú vilt vita allt um pastasuðu ýttu þá hér. 15) Látið renna af pastanu og setjið það út í sósuna góðu og blandið vel saman. 16) Stráið yfir basilíku og rifnum parmesan og berið réttinn strax fram.
Published on
Í dag er föstudagur og það þýðir bara eitt; PIZZA!!! Það er skemmtileg hefð að fjölskyldur komi saman á föstudögum, búi til sínar uppáhaldspizzur frá grunni og eigi flotta stund saman. Hérna koma hugmyndir að fimm geggjuðum pizzum sem allar slá í gegn, hver ein og einasta.
Picture
1. CALZONE MEÐ PEPPERÓNÍ, TÓMÖTUM OG GRÁÐAOSTI
Hálfmáni, á ítölsku calzone, er tilbrigði við eina einu sönnu pizzu. Hinn klassíska hálfmána er að finna á flestum betri pizzeríum, oftast fylltur með tómatssósu, skinku, mozzarella og ferskri basilíku. Hér erum við að tala um bragðmikinn hálfmána, fylltan með tómatssósu, mozzarella, pepperóní, tómötum og gráðaosti. Einfaldlega geggjaður hálfmáni sem slær alltaf í gegn í öllum hálfmánapartýum. Uppskriftin er hér

2. PIZZA MEÐ ÆTISÞISLUM OG HRÁSKINKU
Pizza með ætisþistlum og hráskinku smakkaðist dásamlega. Það er svo gaman þegar hlutir koma manni á óvart þrátt fyrir miklar væntingar. Ætisþistlar og hráskinka eiga óendanlega vel saman. Fullkomið hjónaband. Uppskriftin er hér

3. PIZZA ALLA PUTTANESCA
Oft er gaman að blanda saman tveimur ólíkum hlutum, gengur stundum það upp en stundum ekki. Að setja hina heimsfrægu puttanesca-sósu á pizzu er eitthvað sem mig hefur lengi langað til að gera. Tilhugsunin áhugaverð og útkoman stórfengleg. Bragðmikil Puttanesca-sósan einhvern vegin naut sín í botn og sló einfaldlega í gegn. Uppskriftin er hér

4. PIZZA MEÐ GRILLUÐUM EGGALDINI OG GRÁÐAOSTI
Pizza með grilluðum eggaldini og mikið af gráðaosti hljómar óendanlega vel. Miklar væntingar voru gerðar til þessarar pizzu og hún stóð hún undir þeim öllum og gott betur. Frábær pizza sem kemur virkilega á óvart. Uppskriftin er hér

5. PIZZA ALL‘AMATRICIANA
Það er virkilega gaman að taka frægar pastasósur, skella þeim á pizzur og athuga hvernig útkoman verður. Það kemur kannski mörgum á óvart að niðurstaðan er nánast undantekningarlaust stórkostleg. Að þessu sinni varð fyrir valinu hin heimsfræga pastasósa, Amatriciana, sem búin var til af mikilli ást og þó nokkurri álúð. Niðurstaðan hreint út sagt frábær, þið verðið að prófa þetta. Uppskriftin er hér