- Published on
Pesto alla Siciliana er dásamlegt pestó búið til úr mörgum af þeim hráefnum sem eru svo einkennandi fyrir matargerðina á Sikiley, t.d. tómötum, ríkotta, basilíku og furuhnetum ásamt parmesan. Orðið „pesto“ er dregið af ítölsku sögninni "pestare" sem þýðir "að merja" en í gegnum tíðina hefur þessi sósa oftast verið gerð í kvörn, marin með handafli.
Hér er um að ræða virkilega gott pestó sem hentar bæði með spaghettí og flestum stuttu pasta á borð við penne, rigatoni og casarecce. Þessi sósa er ekki einungis virkilega góð heldur er hún einstaklega holl og auðveld að allri gerð.

Hráefni
1) 100 gr tómatar 2) 100 gr parmesan 3) 30 gr furuhnetur 4) 180 gr ricotta 5) 1 stk hvítlauksrif 6) handfylli af basilíku 7) ólífuolía 8) Salt 9) pipar
Aðferð
1) Skerið kross undir hvern tómat. 2) Setjið síðan tómatana í pott með sjóðandi vatni í fáeinar sekúndur 3) Takið tómatana úr pottinum og setjið ofan í skál með ísköldu vatni 4) Að endingu er hýðið tekið af með mjög auðveldum hætti.

5) Skerið tómatana í bita og skeið innan úr þeim. 6) Setjið tómatana á bökunarpappír og bakið þá í 100 gráðu heitum ofni í u.þ.b. 60 mínútur. 7) Setjið síðan tómatana í matvinnsluvél ásamt basilíkunni og hvítlauknum og 8) hrærið þessu vel saman.
9) Bætið síðan nýrifnum parmesan og furuhnetum saman við og 10) hrærið þetta pínulítið betur eða þar til áferðin á herlegheitunum er orðin passlega mjúk. 11) Hellið blöndunni góðu yfir í góða skál, bætið að lokum ríkottaostinum saman við og hrærið honum vel saman við. 12) Bætið að lokum ólífuolíu saman við ásamt salti og pipar, allt eftir smekk hvers og eins
- Published on
Að sjóða pasta er dauðans alvara því engin sósa bjargar lélegu pasta, sama hversu sósan er góð. Að sjóða pasta er í sjálfu sér ekki flókin framkvæmd en til þess að niðurstaðan verði „al dente“ þarf að fylgja nokkrum grundvallarreglum. Ítalir leggja mikið upp úr því að sjálft pastað sé fyrsta flokks, annað hvort þurrkað pasta frá góðum framleiðanda, t.d. De Cecco, eða ferskt pasta, helst heimagert.
Stór og vandaður pottur er bráðnauðsynlegur, ætti að vera til á hverju heimili. Sérstakir pastasuðupottar með sigti geta verið hentugir en eru alls ekki nauðsynlegir. Aðalatriðið er að potturinn rúmi nægilega mikið vatn til til að sjóða það pasta sem þarf hverju sinni. En til að sjóða 500 grömm af pasta þarf að minnsta kosti fjóra lítra af vatni og tvær matskeiðar af salti. Látið vatnið bullsjóða áður en þið setjið saltið út í pottinn þar sem saltið bæði fer ekki vel með eldhúsáhöldin og hækkar ennfremur suðumark vatnsins.
Þegar vatnið er farið að bullsjóða á nýjan leik er kominn tími til að setja pastað út í pottinn. Það á aldrei, ég endurtek aldrei, að brjóta spaghettí ofan í pottinn heldur á að ýta því gætilega svo það brotni ekki. Ef notast er við nægilegt magn af vatni þá kemur suðan það fljótt upp aftur að lítil þörf er að setja lok á pottinn. Mikilvægt er að hræra öðru hverju í pastanu fyrstu 2-3 mínúturnar en það er tíminn sem sterkjan er að koma út í yfirborðið á pastanu og það getur mögulega límst saman. Eftir þessar 2-3 mínútur er vatnið farið að bullsjóða, sterkjan komin fram og því minni líkur að pastað festist saman.
Það skiptir öllu máli að taka tímann á pastasuðunni. Að taka tímann gefur manni samt ekki leyfi til að fara úr eldhúsinu, það myndi enginn Ítali gera. Langbest er að standa ávallt við pottinn, hræra öðru hverju og smakka við og við til að fylgjast með framvindunni. Rétta andartakið til að slökkva undir pottinum er þegar pastað er ennþá pínulítið hart undir tönn. Tíminn sem það tekur að láta renna af pastanu er akkúrat sá tíminn sem vantar upp á til að gera suðuna fullkomna. Sumir mæla með því að hella dálítið af köldu vatni á pastað til að stöðva suðuna en ef sigtið er tilbúið við höndina þá er það í flestum tilfellum ástæðulaust. Ef pastað hefur aftur á móti verið soðið aðeins of lengi má hella dálitlu af köldu vatni saman við pastað og hella svo af því.
Það er mjög mikilvægt að byrja aldrei að sjóða pastað fyrr en allir gestirnir eru komnir eru komnir í hús. Á veitingahúsum á Ítalíu er pastað soðið handa hverjum og einum og þar skilja menn ekkert í óþolinmóðum túristum sem vilja ekki bíða þann tíma sem tekur að sjóða pastað. Pastað sjálft og hvernig það er soðið eru nefnilega lykilatriðin að dásamlegri pastamáltíð.

Tómatar eru einhvern veginn svo órjúfanlegur hluti af ítalskri matarmenningu að það er erfitt að ímynda sér að tómaturinn hafi ekki borist til Ítalíu fyrr en á 16. öld þegar farið var í leiðangra til Mexíkó og Perú. Helstu heimildir um tómata á Ítalíu eru frá 31. Október 1548 þegar ráðsmaður Medici-fjölskyldunnar lætur vita að karfa, full af tómötum, hafi borist heilu og höldnu sem send hafi verið frá bænum Torre del Gallo.
Tómatar eru auðugir af bæði vítamínum og steinefnum og þóttu þeir auka kynhvöt karlmanna og gengu undir nafninu “pomme’amour”, eða ástarepli. Síðar breyttist nafnið í “pomme d’oro”, eða gullepli, eftir grísku goðsögunni um hinar fögru dísir sólarlagsins sem gættu gulleplanna og hefur nafnið “pomodoro” æ síðan verið notað yfir tómata á Ítalíu.
Á sumrin er hægt að nálgast endalaust úrval af dásamlegum tegundum af ferskum tómötum, hvort sem við erum að tala um lítt þroskaða, græna tómata sem oft eru notaðir í salöt, þá rauðu, hnöttóttu sem einkum eru fylltir hrísgrjónum, eða San Marzano-tómatarnir, eða plómutómatarnir, sem eru notaðir í sósur og eru oft soðnir niður og fluttir út um allan heim.

Þegar líður að hausti þá er farið að hugsa að sjóða niður tómata til vetrarins, nýta uppskeru sumarsins. Tómatarnir eru þvegnir og fara síðan í gegnum einfaldan búnað sem fjarlægir hýði og fræ. Maukinu sem á eftir verður er síðan hellt á flöskur ásamt einu eða tveimur basilíkublöðum. Síað maukið kallast “passato” og nálgast út í búð en margar ítalskar fjölskyldur leggja enn metnað sinn í búa sjálf til sinn eigin lager af “passato” fyrir veturinn.
Niðursoðnir, afhýddir tómatar kallast “pelati” eru líka oft notaðir í pastasósur. Tómatarnir eru látnir liggja í sjóðandi vatni í örfáar mínútur en að því loknu eru þeir látnir liggja í fáeinar sekúndur i ísköldu vatni áður en þeir eru afhyddir og settir á krukkur og dósir.
Á Ítalíu er að finna endalaust úrval af tómötum, sumar tegundir eru árstíðabundnar á meðan aðrar eru bundnar við ákveðin landssvæði. Helstu tegundir ítalskra tómatar eru hinir ílöngu San Marzano, Ciliegino, Pachino, Piennolo, Tondo Insalataro, Cuore di Bue og að lokum hinir risastóru Di Belmonte sem geta orðið um og yfir kíló að þyngd.
Það eru líka til endalaus afbrigði af dásamlegum tómatsósum á Ítalíu, hver fjölskylda á sína leyniuppskrift sem gengið hefur mann fram af manni og allir hafa skoðanir á því hvernig á að búa til hina fullkomnu tómatssósu. Það eru engar tvær tómatsósur eins, þær hafa allar á einhvern hátt breytilega skapgerð eins og sikileyska orðatiltækið segir: Cambia sempre come la salsa eða “hann er síbreytilegur, eins og sósa.
Í lokin koma hérna nokkur virkilega góð dæmi um ítalskar pastasósur þar sem uppistaðan eru tómatar:

Það að taka tómata, chilli, beikon og rjóma og búa til pastasósu í bland við nýrifinn parmesan er ávísun á flottan og bragðmikinn pastarétt með sáralítilli fyrirhöfn. Hér er um að ræða dúndur pastarétt sem slær alltaf í gegn.
Hráefni
1) 400 gr penne 2) 1 dós af niðursoðnum tómötum 3) 1 miðlungsstórt chilli, smátt saxað og fræin fjarlægð 4) 150 gr beikon, skorið í bita 5) 200 ml rjómi 6) 50 gr parmesan 7) 2 msk ólífuolía 8) salt
Aðferð
1) Hitið olíu á stórri pönnu og 2) og bætið chilli og 3) beikoni á pönnuna. 4) Látið þetta steikjast á miðlungshita í 5 mínútur eða þar til þetta hefur tekið lit.

5) Bætið tómötunum á pönnuna, 6) blandið þessu vel saman og látið þetta malla við vægan hita í u.þ.b. 20-25 mínútur. 7) Bætið rjómanum saman við, 8) blandið saman og hitið aftur upp að suðu.
9) Sjóðið pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. Látið renna af pastanu, setjið það útá pönnuna með sósunni góðu og 10) blandið öllu vel saman. 11) Að lokum má alls ekki gleyma að blanda miklum parmesan saman við réttinn. 12) Skenkið á diskana og svo er að sjálfsögðu má bæta við nýrifnum parmesan á réttinn, allt eftir smekk hvers og eins.
Með þessum rétti mælir MINITALIA með Il Nostro Rosso Puglia IGT 2015
Það hefur verið stunduð vínrækt í Púglía í fjögur þúsund ár, lengur en í flestum öðrum héruðum Ítalíu. Í Púglía er framleitt meira magn af víni en í nokkru öðru héraði landsins. Á undanförnum árum hefur vínræktin í Púglía tekið stakkaskiptum og framfarirnar verið miklar, þökk sé nýrri tækni og nýjum viðhorfum í vínræktinni.
Vínið sem hér um ræðir, Il Nostro Rosso Puglia IGT 2015, kemur einmitt frá héraðinu Púglía og er framleitt úr tveimur af helstu þrúgum þess, Negro Amaro og Primitivo, ásamt pínulitlu magni af þrúgunni Malvasia Nera. En þess má geta að þetta vín er einvörðungu framleitt úr lífrænt ræktuðum þrúgum. Vínið er að hluta til látið þroskast í eikartunnum í sex mánuði áður en því er tappað á flöskur og sett á markað.
Þetta rúbínrauða vín tekur á móti manni með angan af rauðum ávexti, kirsuber ríkjandi. Þetta er ávaxtaríkt vín, mjúk tannín og ágætis sýra. Hér er um að ræða létt, mjúkt og þægilegt vín sem hentar vel með ýmsum ítölskum pastaréttum.

Stundum þarf ekkert að vera að flækja hlutina, oft er það einfaldleikinn sem blífur. Skinka og ætisþistlar eru fullkomin fyrir hvort annað, dásamlegt hjónaband. Niðurstaða er æðisleg pizza sem sló í gegn og skildi mikið eftir sig.
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Ætisþistlar 5) Skinka 7) Ólífuolía
Aðferð
1) Fletjið svo út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Setjið fyrst skinkuna og síðan ætisþistlana á víð og dreif yfir pizzuna. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið hana inn í brennandi heitan ofninn. 6) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 7) Takið þá pizzuna úr ofninum og berið hana strax fram.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru náttúrulega yndislegt fyrirbæri og glas af léttu og ávaxtaríku rauðvíni í hópi góðra vina gera þær einungis yndislegri.

Gorgonzola er dásamlegur ostur með mikið og einkennandi bragð. Hér er um að ræða bragðmikinn blámygluost sem framleiddur hefur um aldir í samnefndum bæ í nágrenni við borgina Mílanó. Ekki er vitað með fullri vissu hvenær hann var fyrst framleiddur en framleiðslan jókst mjög mikið á átjándu öld og útflutningur hófst þá fyrir alvöru.
Gorgonzola er hvítur ostur með bláum mygluæðum sem gefa honum mikinn karakter. Hann er framleiddur úr kúamjólk og getur bæði verið silkimjúkur eða tiltölulega harður. Framleiðsluferlið tekur u.þ.b. 3-4 mánuði, þ.e. þar til hann orðinn fullþroskaður. Árið 1996 fengu Ítalir DOP-vottun á Gorgonzola hjá Evrópusambandinu, þ.e. Denominazione di Origine Protetta. Í þessari vottun felst að einungis má framleiða Gorgonzola með upprunanlegum aðferðum úr kúamjólk á ákveðnum svæðum í héruðunum Piemonte og Lombardia.
Það eru tvær megingerðir til af Gorgonzola, annars vegar Gorgonzola Dolce sem er mjúkur og rjómakenndur og hins vegar Gorgonzola Piccante sem er bæði harðari og sterkari, þ.e. meira í ætt við sambærilega osta af frönskum uppruna.
Gorgonzola er dásamlegur ostur með mikið og einkennandi bragð. Hann hentar vel ofan á sneið af góðu brauði, á pizzur, í hina ýmsu risottó- og pastarétti og að auki hentar hann fullkomlega bræddur út á góða nautasteik. Gorgonzola hentar vel á ostabakkann og parast einstaklega vel við t.d. hnetur, fíkjur og perur.

Pizza með hráskinku, klettasalati, tómötum og balsamikediki er hreint meistaraverk, fullkomin samsetning. Allt spilar saman á sama tíma og hvert hráefni nýtur sín til hins ýtrasta. Geggjuð pizza ef þið viljið virkilega slá í gegn í góðra vina hópi, sérstaklega í hópi kröfuharðra. MINITALIA mælir svo sannarlega með þessari dásamlegu pizzu og hananú!!!
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Hráskinka 5) Klettasalat 6) kirsuberjatómatar, skornir til helminga 7) balsamikedik 8) Ólífuolía.
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 5) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 6) Takið pizzuna úr ofninum og raðið fyrst á hana hráskinku, svo klettasalatinu, kirsuberjatómötunum og hellið síðan balsamikediki yfir herlegheitin og berið pizzuna strax fram.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.

Þegar maður heyrir "Trofie alla Ligure" þá ímyndar maður sér pasta með pestó sem er svo einkennandi fyrir héraðið Lígúría en þá skjátlast manni. Þessi dásamlegi pastaréttur einkennist af dásamlegri tómatssósu sem bragðbætt er með svörtum ólífum, steinselju, parmesan og síðast en ekki síst basilíku sem vex eins og arfi upp um allar fjallshlíðar þessa stórfenglega héraðs.
Hráefni fyrir 4-5
1) 500 gr trofie, að sjálfsögðu er hægt að nota aðrar tegundir, t.d. penne eða fusili. 2) 1 stk dós af niðursoðnum tómötum 3) 5 matskeiðar af svörtum ólífum, skornum í sneiðar. 4) 1 glas af hvítvíni 5) 1 stk blaðlaukur, skorinn í mjög þunnar sneiðar. 6) Ein lúka af steinselju, skorin smátt 7) Ein lúka af basilíku, skorin smátt 8) 80 gr af nýrifnum parmesan 9) ólífuolía 10) salt 11) pipar.
Aðferð
1) Hitið ólífuolíu á góðri pönnu. 2) Bætið fyrst steinseljuna saman við, 3) ásamt blaðlauknum 4) og leyfum þessu steikjast á miðlungshita í 3-4 mínútur. Bætið út á pönnuna einu hvítvínsglasi og leyfið því að sjóða niður.

5) Bætið nú tómötunum á pönnuna 6) og bætið síðan svörtu ólífunum saman við og blandið öllum vel saman. Á þessum tímapunkti er tilvalið að sjóða pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. Ef þú vilt vita allt um pastasuðu ýttu þá hér. 7) Bætið pastanum saman við og blandið öllu vel saman. 8) Haldið eftir smá magni af pastavetninu og bætið út í sósuna. Sterkjuríkt pastasoðið gefur sósunni mýkra og rjómakenndara yfirbragð.
9) Bætið smátt saxaðri basilíku saman við 10) ásamt nýrifnum parmesan. Hrærið öllu vel saman og berið réttinn strax fram.
Með þessum rétti mælir MINITALIA með Santa Cristina Toscana IGT 2014
Vínið sem hér um ræðir, Santa Cristina IGT, kom fyrst á markað árið 1946. Í upphafi var þetta vín skilgreint sem Chianti Classico en frá árinu 1987 var það fyrst skilgreint sem Vino da Tavola en síðan sem IGT en sá flokkur kom til sögunnar árið 1992 í þeim tilgangi að auka frelsi í ítalskri víngerð. Flokkurinn IGT (Indicazione Geografica Tipica) leggur mesta áherslu á uppruna vínanna en síður hvaða þrúgur eru notaðar við víngerðina framleiðsluaðferðir vínanna eða stíl þeirra.
Santa Cristina Toscana IGT 2014 er framleitt mestmegnis úr þrúgunni Sangiovese en að auki er að finna í litlu magni þrúgurnar Cabernet Sauvignon, Syrah og Merlot. Vínið er látið þroskast til helminga á stáltönkum annars vegar og hins vegar eikartunnum þar sem það fær að þroskast í 6 mánuði.
Þetta rúbínrauða vín tekur á móti manni með miklum angan af dökkum berjum, t.d. sólberjum og kirsuberjum, að auki örlar á eik, jörð og jafnvel lyngi. Í munni er vínið ávaxtaríkt, t.d. er þar að finna kirsuber, hindber og sólber. Hér er um að ræða vín í góðu jafnvægi með mjúkum tannínum, flottri sýru, góðri fyllingu og þó nokkru eftirbragði.

Hér erum við að tala um spaghettírétt þar sem hréfni á borð við hráskinku, tómata, papriku og chilli fær að njóra sín alveg í botn. Hann er bragmikill á sama tíma og ferskleikinn er sannarlega í fyrirrúmi. Þetta er svona réttur sem lætur mann hverfa í huganum í lítið þorp í suðurströnd Ítalíu, þar sem setið er á lítilli verönd, á ennþá minni veitingastað, með útsýnið út á miðjarðarhafið eins langt og augað eygir.
Hráefni fyrir fjóra
1) 400 gr linguini eða spaghettí 2) 200 gr hráskinka, skorin í strimla 3) 1 stk rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar 4) 1 chillibelgur, stærð fer eftir hversu mikið bit maður vill hafa í réttinum 5) 1 stk rauðar paprikur, skornar í örmjóa strimla, má sleppa 6) 6 stk þroskaðir tómatar, kjarninn fjarlægður og skornir í litla bita. 7) eitt búnt af ítalskri steinselju, smáttskorið 8) safi úr hálfri sítrónu 9) ólífuolía 10) 80 gr parmesan
Aðferð
1) Hitið skvettu af ólífuolíu á pönnu, 2) Skerið hráskinkuna í þunna strimla og bætið þeim á pönnuna og steikið þar til strimlarnir eru orðnir stökkir. 3) Þerrið strimlana á pappír og leggið til hliðar.

4) Hitið ólífuolíu á góðri pönnu. 5) setjið fyrst rauðlaukinn á pönnuna, 6) síðan hráskinkuna,
7) svo tómatana 8) og að lokum paprikuna og chilli. Blandið þessu saman, leyfið þessu að svitna í 1-2 mínútur. 9) Sjóðið pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. Ef þú vilt vita allt um pastasuðu ýttu þá hér.
10) Bætið saman við 1-2 ausum af pastavatninu saman við og látið þetta sjóða áfram við miðlungshita í 7-8 mínútur eða þar til pastað er tilbúið. Við viljum ekki steikja hráefnin of mikið þannig að þau verði stökk, heldur viljum við töluverða mýkt í þennan rétt. 11) Þegar pastað er tilbúið er því blandað saman við herlegheitin á pönnunni. 12) Bætið við saxaðri steinseljunni
13) ásamt safa úr hálfri sítrónu. 14) Stráið að lokum nýrifnum parmesan yfir réttinn og blandið öllu vel saman. 15) Setjið hæfilegt pasta á hvern disk, smá magn af stökkri hráskinku og stráið að lokum nýrifnum parmesan og berið strax fram.
Með þessum rétti mælir MINITALIA með Il Nostro Rosso Puglia IGT 2015
Það hefur verið stunduð vínrækt í Púglía í fjögur þúsund ár, lengur en í flestum öðrum héruðum Ítalíu. Í Púglía er framleitt meira magn af víni en í nokkru öðru héraði landsins. Á undanförnum árum hefur vínræktin í Púglía tekið stakkaskiptum og framfarirnar verið miklar, þökk sé nýrri tækni og nýjum viðhorfum í vínræktinni.
Vínið sem hér um ræðir, Il Nostro Rosso Puglia IGT 2015, kemur einmitt frá héraðinu Púglía og er framleitt úr tveimur af helstu þrúgum þess, Negro Amaro og Primitivo, ásamt pínulitlu magni af þrúgunni Malvasia Nera. En þess má geta að þetta vín er einvörðungu framleitt úr lífrænt ræktuðum þrúgum. Vínið er að hluta til látið þroskast í eikartunnum í sex mánuði áður en því er tappað á flöskur og sett á markað.
Þetta rúbínrauða vín tekur á móti manni með angan af rauðum ávexti, kirsuber ríkjandi. Þetta er ávaxtaríkt vín, mjúk tannín og ágætis sýra. Hér er um að ræða létt, mjúkt og þægilegt vín sem hentar vel með ýmsum ítölskum pastaréttum.
Vínið sem hér um ræðir, Il Nostro Rosso Puglia IGT 2015, kemur einmitt frá héraðinu Púglía og er framleitt úr tveimur af helstu þrúgum þess, Negro Amaro og Primitivo, ásamt pínulitlu magni af þrúgunni Malvasia Nera. En þess má geta að þetta vín er einvörðungu framleitt úr lífrænt ræktuðum þrúgum. Vínið er að hluta til látið þroskast í eikartunnum í sex mánuði áður en því er tappað á flöskur og sett á markað.
Þetta rúbínrauða vín tekur á móti manni með angan af rauðum ávexti, kirsuber ríkjandi. Þetta er ávaxtaríkt vín, mjúk tannín og ágætis sýra. Hér er um að ræða létt, mjúkt og þægilegt vín sem hentar vel með ýmsum ítölskum pastaréttum.
- Published on
Pizza með sveppum, gráðaosti og hráskinku er skotheld samsetning sem hittir beint í magn. Mikið af sveppum, mikið af gráðaosti og hráskinka yfir herlegheitin í lokinn og niðurstaðan er dúndur pizza sem gengur fullkomlega upp. Þessi pizza getur hreinlega ekki klikkað.
ogHráefni
1) pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) mozzarella 4) sveppir og mikið af þeim, skornir í sneiðar. 5) gráðostur og mikið af honum 6) hráskinka 7) ólífuolía
Aðferð
1) Fletjið svo út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Setjið síðan sveppina á pizzuna ásamt gráðostinum og alls ekki spar'ann. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið hana inn í brennandi heitan ofninn. 6) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 7) Takið þá pizzuuna úr ofninum, leggið hráskinkusneiðarnar yfir pizzuna og berið hana strax fram.