- Published on
Bresaola er upprunalega frá svæðinu Valtellina í héraðinu Lombardia. Þetta er loftþurrkaður, saltaður nautavöðvi sem hefur fengið að þroskast í 2-3 mánuði þar til hann er orðinn harður viðkomu og dökkrauður að lit, næstum fjólublár. Fyrst er skorin burt öll fita af vöðvanum, því næst er nuddaður með grófu sjávarsalti kryddjurtum á borð við kanil, negul, blóðbergi, pipar, rósmarín og múskat ásamt einiberjum. Síðan er vöðvinn látinn þroskast í tvo til þrjá mánuði, fer allt eftir þyngd vöðvans, áður en hann er tilbúinn til neyslu.
Þrátt fyrir að það sé oftast nautavöðvi sem notaður er við framleiðsluna þá er líka hefð fyrir því að nota hrossakjöt. Hér á landi er einn aðili, ítalinn Roberto Tariello, sem framleiðir Bresaola úr hrossakjöt eftir aldagömlum ítölskum aðferðum. Afurðir hans er hægt að nálgast t.d. í Búrinu, Frú Laugu og Ostabúðinni á Skólavörðustíg.
Bresaola er oftast skorin í þunnar sneiðar og venjulega neytt eitt og sér. En einnig má skvetta ólífuolíu yfir herlegheitin, safa úr sítrónu eða balsamic ediki og bera það fram með klettasalati, nýmöluðum pipar og flögum af ferskum Parmigiano Reggiano. Best er að geyma Bresaola þétt vafið í plastfilmu inn í ískáp. Hér á landi má nálgast Bresaola t.d. í Hagkaup og Ostabúðinni á Skólavörðustíg.

Risotto agli asparagi er ferskur, fíngerður og mjög ljúfengur réttur ættaður frá Veneto og er að mörgu leyti einkennandi fyrir héraðið. Í þessum rétti er uppistaðan risottogrjón, aspas og parmesan. Það er best að nota ferskan aspas en einnig er hægt að nota frosinn aspas þegar minna er um þennan ferska í verslunum landsins.
Hráefni
1) 400 gr risotto-grjón 2) 1-1,5 líter grænmetissoð 3) 500 gr ferskur aspas 4) 1 laukur 5) 2 hvítlauksgeirar 6)
3 msk ólífuolía 7) 30 gr smjör 8) 30 gr Parmigiano Reggiano 9) salt
Aðferð
1) Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið saxaðan laukinn ásamt hvítlauknum við lágan hita í u.þ.b. 10 mínútur. Laukurinn má alls ekki verða brúnn heldur á að steikja hann þar til að hann verður gegnsær. 2) Bætið grjónunum á pönnuna, hækkið hitann, steikið í tvær mínútur og hrærið vel á meðan 3) Lækkið hitann og setjið út í eina ausu af soði á pönnuna. 4) Saxið ferskan aspasinn í ca ½ cm sneiðar, setjið toppana til hliðar en bætið aspasnum á pönnuna. 5) Haldið áfram að bæta við soði og hrærið annað slagið í ca 12-15 mínútur. 6) Skerið toppana langsum í helminga og bætið þeim við á pönnuna síðustu 2-3 mínúturnar. 7)Saltið eftir þörfum. 8) Fjarlægið pönnuna af hitanum og hrærið smjörinu saman við. 9) Að lokum er ostinum bætt við og öllu hrært vel saman.
Njótið til hins ýtrasta í góðra vina hópi sem fyrsta rétt eða jafnvel sem aðalrétt.

Piemonte er eitt virtasta vínræktarhérað Ítalíu og þaðan koma mörg stórkostleg vín. Innan héraðsins Piemonte, nánar tiltekið í hlíðunum umhverfis borgina Asti, má finna svæði sem kallast Langhe en þar má finna mörg af bestu vínum héraðsins, t.d. Barolo og Barbaresco. Vínræktin á þessu svæði einkennist af mörgum smáum fjölskyldureknum vínframleiðendum sem leggja ofuráherslu á gæði framleiðslunnar. Vínhúsið G.D. Vajra er þar engin undantekning og framleiðir framúskarandi vín á borð við Barolo, Barberad‘Alba, Dolcetto d‘Alba og Langhe Nebbiolo.
Rauðvínið G.D. Vajra Langhe DOC Nebbiolo 2010 er framleitt einvörðungu úr þrúgunni Nebbiolo líkt á vínin Barolo og Barbaresco en þrúgurnar eru af yngri vínviði sem þetta vín er unnið úr. Þrúgurnar eru handtýndar um miðjan október og fyrst látið þroskast í stáltönkum í 6 mánuði áður en það er sett á flöskur og sett á markað.
Lýsing: Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, þurrkandi tannín. Rauð ber, tjara, lakkrís, rósir.
Einkunnir ýmissa fagaðila:
Vinous Antonio Galloni: 92/100 – CellarTracker: 90/100 – Wine Spectator: 88/100 – Jancis Robinson: 16/20.
G.D. Vajra Langhe DOC Nebbiolo 2010 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 3.790.
Gott er að umhella víninu með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara til að gefa víninu tækifæri til að opna sig.

Parmaskinkan, sem kallast á ítölsku Prociutto di Parma, er þurrverkuð skinka sem oftast er skorin í þunnar sneiðar og borin fram óelduð. Þessi skinka á sér langa sögu en hennar er fyrst getið í heimildum frá árinu 100 fyrir krist, þar sem þess er getið að veðurfar í kringum borgina Parma gefi þessari skinku einstök bragðgæði. Samkvæmt lögum má eingöngu framleiða Prosciutto di Parma í hlíðunum umhverfis borgina Parma í héraðinu Emilia-Romagna. Árið 1996 öðlaðust Ítalir lögverndun Evrópusambandsins á vöruheitinu Prosciutto di Parma og ennfremur var hún fyrsta varan á sviði matvæla til að hljóta D.O.P. vottun, þ.e. Denomination of Protected Origin.
Við framleiðslu Prociutto di Parma notast við læri af svíni og tekur framleiðsluferlið allt frá 12 mánuðum til tveggja ára en það fer eftir stærðinni á hverju stykki fyrir sig. Skinkan er fyrst hreinsuð, svo hulin með sjávarsalti og látin vera í tvo mánuði. Að því loknu er allt salt hreinsað vandlega af áður en skinkan er látin hanga hanga á dimmum og vel loftræstum stað. Þegar skinkan er orðin alveg þurr þá hún látin hanga við stofuhita eða í nákvæmlega stýrðu umhverfi í allt að átján mánuði.
Parmaskinka er borin fram á margvíslegan hátt en oftast sem forréttur, t.d. með melónu eða öðrum tegunum af skinkum og pylsum. Að auki er hún oft notuð sem álegg á pizzur, samlokur og í hina ýmsu pastarétti.
Allar nánari upplýsingar um ostinn er að finna á heimasíðu samtaka framleiðanda Prociutto di Parma, Consorzio del Prociutto di Parma.

Penne all'Arrabbiata er einfaldur, fljótlegur og bragðgóður réttur, ættaður frá héraðinu Lazio. Sagan segir að þessi réttur hafi orðið til á fimmta áratug síðustu aldar og hefur hún verið rakin til herferðar Ítala til Lýbíu þar sem ítalskir hermenn kynntust sterkkrydduðum mat arabanna. Orðið "arrabbiata" merkir "reiður" á ítölsku sem væntanlega vísar hitann frá chillipiparnum.
Hráefni
1) 400 gr penne 2) 4 msk ólífuolía 3) 1 miðlungsstór laukur (stundum sleppt) 4) 2 hvítlauksrif 5) 1 dós af tómötum frá góðum framleiðanda, t.d. Cirio eða Del Cecco 6) 1 sykurmoli 7) salt /svartur pipar 8) 2 chillibelgir 9) 3 msk söxuð steinselja 10) 100 gr pecorino pomano eða parmigiano reggiano.
Aðferð
1) Hitið olíuna og mýkið í henni lauk, hvítlauk og loks chilli. 2) Bætið við tómötum ásamt safa og látið þetta sjóða loklaust við góðan hita í um 15 mín, hrærið öðru hvoru. 3) Bragðið á sósunni og bætið við salti og svörtum pipar ef með þarf. 4) Bætið við saxaðri steinselju áður en rétturinn er borinn fram. 5) Í lokin er valkvætt hvort stráð sé osti yfir réttinn eða ekki.
Njótið í faðmi fjölskyldu og vina.

Ítalski vatnsframleiðandinn San Pellegrino hefur á undanförnum árum og áratugum náð að byggja framúrskarandi ímynd á sínum markaði. Þar sem við Íslendingar lítum á okkar stórkostlega vatn sem sjálfsagðan hlut þá finnst okkur svolítið skrýtið að fyrirtæki komist upp með að selja venjulegt vatn dýru verði og jafnvel á mun hærra verði en keppinautarnir. En San Pellegrino hefur tekist að skapa þá ímynd sem gerir það að verkum að fólk kýs að drekka þeirra vatn og greiða fyrir það umframverð. Ímynd San Pelligrino byggir á frelsi, gleði og fegurð með mikla áherslu á mat og drykk.
Hér er dæmi um auglýsingu frá San Pellegrino þar sem ungt fólk ferðast um Ítalíu og upplifir margt af því besta sem landið hefur upp á að bjóða.

Vínhúsið Isole e Olena varð til þegar De Marchi fjölskyldan keypti tvær jarðir, annars vegar Isole og hins vegar Olena, á sjötta áratug síðustu aldar og sameinaði þær undir nafninu Isole e Olena. En vínhúsið Isole e Olena er staðsett í hjarta framleiðslusvæðis Chianti Classico í Toscana, nánar tiltekið mitt á milli borganna Flórens og Siena. Í dag er vínhúsið rekið af Paolo De Marchi og hans fjölskyldu. Paolo De Marchi heldur að mörgu leyti fast í sérkenni svæðisins með því að leggja mikla alúð í ræktun staðbundnu þrúgunnar Sangiovese en leitar á sama tíma stöðugt leiða til að bæta sín stórkostlegu vín.
Isole e Olena Chianti Classico 2010 er framleitt úr þrúgunum Sangiovese 80%, Canaiolo 15% og Syrah 5%. Vínið er fyrst látið þroskast á eikartunnum í 12 mánuði og að lokum látið þroskast í 3-4 mánuði á flöskum áður en það er sett á markað.
Lýsing: Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, miðlungstannín. Rauð ber, kirsuber, skógarbotn.
Einkunnir ýmissa fagaðila:
Stephen Tanzer: 91/100 – James Suckling: 90/100 – CellarTracker: 89/100 – Jancis Robinson: 16,5/20 - Vinotek: 4,5 stjörnur.
Isole e Olena Chianti Classico 2010 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 3.695.
Njótið þessa góða matarvíns t.d. með góðri nautasteik, lambakjöti eða léttri villibráð.

Risotto al pomodoro er eins og nafnið gefur til kynna réttur þar sem uppistaðan eru risottogrjón og tómatar. Þetta er klassískur fyrsti réttur, ættaður frá Veneto, sem er allt í senn bragðgóður, fljótlegur og einfaldur í framkvæmd.
Hráefni
1) 400 gr risotto-grjón, helst carnaroli en annars arborio 2) 1 líter grænmetissoð 3) 1 dós af tómötum 4) 1 laukur 5) 2 msk tómatpúrra 6) 3 msk ólífuolía 7) 20 gr smjör 8) Parmigiano Reggiano 9) handfylli af basil 10) salt
Aðferð
1) Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið saxaðan laukinn við lágan hita í u.þ.b. 10 mínútur. Laukurinn má alls ekki verða brúnn heldur á að steikja hann þar til að hann verður gegnsær. 2) Bætið grjónunum á pönnuna og steikið í tvær mínútur 3) Setjið út eina ausu af soði á pönnuna og látið sjóða upp. 4) Bætið við tómötunum ásamt tómatpúrrunni og blandið vel saman við. 5) Haldið áfram að bæta við soði og hrærið annað slagið. 6) Þegar grjónin eru næstum því tilbúin bætið við saxaðri basiliku. 7) Saltið eftir þörfum. 8) Fjarlægið pönnuna af hitanum og hrærið smjörinu saman við. 9) Að lokum er ostinum bætt við og öllu hrært vel saman.
Njótið til hins ýtrasta í góðra vina hópi sem fyrsta rétt eða jafnvel sem aðalrétt ásamt góðu glasi af rauðvíni, t.d. Tommasi Appasimento Graticcio.

Á Ítalíu er gamlársdagurinn kenndur við hinn helga páfa San Silvestro. Þessi síðasti dagur ársins er almennur frídagur, rétt eins og aðfangadagur, en aftur á móti er nýársdagur almennur frídagur á Ítalíu. Sjálf áramótin eins og við köllum þau kallast á Ítalíu „capodanno“ sem dregið er af orðunum capo di anno sem myndu útleggjast á íslensku „upphaf árs“.
Við þessi tímamót halda Ítalir að sjálfsögðu stórar veislur fyrir vini og vandamenn sem kallast La Festa di San Silvestro. Matur og vín spila ávallt stórt hlutverk þegar Ítalir halda veislur og hér er engin undantekning gerð á þeirri reglu. Um kvöldið er borðaður margréttaður kvöldverður þar sem mikilvægasti rétturinn er bjúgnabaunasúpa sem á ítölsku nefnist Cotechino di lenticchie en baunirnar eiga að gefa manni ríkidæmi og heppni á nýju ári.
Að miðnætti er venjan að fagna nýju ári með flugeldasýningum. Flestir bæir á Ítalíu skipuleggja flugeldasýningu á bæjartorginu en að sjálfsögðu er flugeldum einnig skotið upp í einkasamkvæmum um gjörvalla Ítalíu. Í mörgum bæjum er dansað á bæjartorginu á undan flugeldasýningunni og ennfremur eru haldnir stórir útitónleikar í borgum á borð við Róm, Mílanó, Bologna, Palermo og Napolí.
Að sjálfsögðu fagna Ítalir nýju ári með því að skála í Vino spumante eða Prosecco. Þessar veislur á gamlárskvöld standa yfirleitt yfir fram undir morgun til þess að geta horfa á fyrstu sólarupprás ársins.
Og síðast en ekki síst má alls ekki gleyma að klæðast rauðum nærfötum um áramót þar sem það boðar heppni á nýju ári.

Mozzarella er bragðmildur og ferskur ostur sem upphaflega var gerður úr mjólk vatnabuffalsins sem fluttur var inn frá Asíu á áttundu öld. Þessi ostur kemur upphaflega frá suður-Ítalíu, nánar tiltekið héruðunum Campania, Lazio, Puglia og Molise. Þrátt fyrir að mozzarella sem framleiddur úr kúamjólk, kallast þá Mozzarella fior di latte, sé mun algengari þá er Mozzarella di Bufala vissulega framleiddur í nokkrum héruðum Ítalíu enn þann dag í dag, t.d. koma margir af þeim bestu frá héraðinu Campania.. En Mozzarella di Bufala er talin vera mýkri og rjómakenndari en Mozzarella fior di latte.
Mozzarella er oft borðaður nýr en geymist í eigin vökva í fáeina daga og nokkuð lengur ef hann er geymdur í saltpækli en þannig er hann oftast boðinn til sölu í matvöruverslunum. Mozzarella er mikið notaður í ítalskri matargerð, t.d. á pizzur og í hina ýmsu pastarétti.