Published on
Image description
Arnaldo Caprai lét loksins draum sinn rætast að stofna sína eigin víngerð árið 1971 þegar hann festi kaup á jörðinni Val di Maggio í Umbria og á rúmum fjórum áratugum hefur hann komið vínhúsi sínu í allra fremstu röð í héraðinu og þó víðar væri leitað.

Vínið Montefalco Rosso DOC 2010 er framleitt úr þrúgunum Sangiovese (70%), Sagrantino (15%) og Merlot (15%). Vínið er fyrst látið þroskast í 12 mánuði á viðartunnum, 70% á slóvenskum eikartunnum og 30% á frönskum eikartunnum, og að lokum er það geymt að minnsta kosti í fjóra mánuði áður en það er sett á markað. En þess má geta að fyrsti árgangurinn af þessu víni kom á markað árið 1975.

Lýsing: Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, miðlungstannín. Rauð ber, létt eik, hýði.

Einkunnir ýmissa fagaðila:
Wine Enthusiast: 90/100 - Cellar Tracker: 89/100 - Vinotek: 4,5 stjörnur

Arnaldo Caprai Montefalco Rosso DOC 2010 fæst í vínbúðinni og kostar kr. 3.390.

Njótið vel með rauðu og hvítu kjöti, pylsum og þroskuðum ostum.
Published on
Image description
Kaffihefðin er rík og rótgróin í ítalskri menningu og fullkominn espresso mikilvægur þáttur í daglegu lífi Ítala. Margir Ítalir kíkja á barinn á leið til vinnu á morgnana og fá sér einn espresso. En kaffi er ekki bara kaffi því útfærslurnar af hinu venjulega espresso eru ótal margar. Hér fyrir neðan verður fjallað um helstu útfærslurnar af hinu fullkomna skoti af espresso.

Caffé
Espresso er einfaldlega kallaður “Caffé” á Ítalíu eða “Caffé normale”.Espresso er ávallt borinn fram í litlum postulínsbolla, kallaður Demitasse, með undirskál og lítilli skeið. Caffé er oftast drukkið með miklum sykri en það er náttúrulega smekksatriði.

Caffé lungo

Caffé Lungo þýðir náttúrulega „langur kaffi“Þegar beðið er um Caffé Lungo þá er meira vatn látið renna gegnum möluðu kaffibaunirnar. Þannig ef þú vilt fá kaffibolla sem ekki er alveg eins sterkur og Espresso þá skaltu biðja um Caffé Lungo. Það er einhvern veginn svalara að biðja um Caffé Lungo heldur en Caffé Americano sem fjallað er um síðar.
 
Caffé doppio

Tvöfaldur espresso, stundum borinn fram í cappuccinobolla sem kallaður er Tazza.

Caffé Macchiato

Caffé Macchiato er espressoskot með smá slettu af flóaðri og freyddri mjólk. Í Caffé Macchiato er smá mjólk bætt út í skoti af espresso en í Latté Macchiato er espressoskot bætt út í mjólkina.

Caffé Latté

Caffé Latté er mjög vinsæll drykkur á meðal ferðamanna á Ítalíu. Caffé Latté er espressoskot með mikill flóaðri mjólk og smá froðu á toppnum, stundum borið fram í háu glasi.

Caffé Marocchino

Þessi er minn uppáhalds óáfengi kaffidrykkur. Hérna er espresso settur í lítið glas, síðan er kakóduft stráð yfir, svo kemur sletta af flóaðri mjólk og loks er kakódufti stráð yfir á nýjan leik.

Caffé Corretto

Caffé Corretto er espresso með slettu af líkjör af eigin vali. Margir Ítalir vilja fá grappa en aðrir vinsælir líkjörar eru koníak, romm, sambuca, Grand Marnier og Baileys. Ég fæ mér oftast Caffé Coretto al Grand Marnier.
 
Caffé Americano
Caffé Americano er espresso með heitu vatni og borinn fram í cappucino-bolla. Þetta er það næsta sem við komust til þess að fá venjulega uppáhelling en á Ítalíu er hvergi hægt að finna þessar hefðbundnu kaffivélar sem við þekkjum svo vel hér á landi.

Caffé Freddo

Caffé Freddo er eins og nafnið gefur til kynna espresso sem látinn er kólna, og stundum er hann settur inn í ískáp og borinn fram kaldur eða volgur.

Caffé Stretto o Caffé Ristretto

Caffé Ristretto er fyrir þá sem vilja enn sterkari espresso en þá er látið renna enn minna vatn í gegnum möluðu kaffibaunirnar. Eftir því sem þú ferð sunnar á Ítalíu verður kaffið sterkara. Caffé Ristretto er minna magn af kaffi en þar sem vatnið er látið renna mjög lítið í gegnum möluðu baunirnar þá verður það ekki eins biturt. 

Caffé Completo
Hérna erum við að tala um einfaldan espresso með þeyttum rjóma og smá kakódufti stráð yfir.

Caffé Shakerato

Hérna er espresso settu ásamt klökum í blandara og þessu hrist saman góða stund áður en drykkurinn er borinn fram í martini-glasi.

Latté Macchiato
Latté Macchiato er mikið af flóaðri mjólk með espressoskoti, svona rétt til að lita mjólkina. Í Latté Macchiato er espressoskoti sett út í mjólkina en í Caffé Macchiato er smá mjólk bætt út í skoti af espresso.

Hérna í lokin kemur myndband eftir Bruno Bozzetti sem sýnir fjölbreytni ítalskrar kaffimenningar á skemmtilegan hátt
Published on
Image description
Parmigiano Reggiano, sem útleggst Parmesan á íslensku, er ítalskur ostur sem dregur nafn sitt af upprunasvæði sínu umhverfis borgirnar Parma og Reggio-Emilia í héraðinu Emila-Romagna. Heiti ostsins er skrásett vörumerki af samtökum framleiðanda og nafnið auk þess verndað af reglugerð Evrópusambandsins. Þar af leiðandi má ostur ekki sömu tegundar ekki bera nafnið Parmigiano Reggiano heldur bera þeir nafnið grana, t.d. hinn þekkti Grana Padano sem framleiddur er aðallega í Lombardia. Í dag má eingöngu framleiða Parmigiano Reggiano í sýslunum Parma, Reggio Emilia, Modena og Bologna sem staðsettar eru í héraðinu Emilia Romagna og ennfremur í sýslunni Mantova sem er staðsett er í héraðinu Lombardia.
Image description
Þetta er harður ítalskur ostur sem framleiddur er úr kúamjólk. Mjólkin sem notuð er við framleiðsluna kemur úr kúm af frísversku kyni sem ræktaður eru við kjöraðstæður í hinum frjósama Pódal, sunnan árinnar. Osturinn er framleiddur eftir hefðbundnum aðferðum, þ.e. hleyptur með ostahleypi unnum úr kálfsmögum og saltaður. Osturinn síðan látinn þroskast í minnst eitt ár en oftar er hann látinn þroskast í 2-3 ár. Á þessu þroskatímabili er geymdur á viðarhillum og ólífuolía borin utan á hann til þess að mynda skorpu.
Image description
Osturinn er oft rifinn yfir pastarétti, hrærður saman við risotto og ýmsar súpur og að auki er hann algjört lostæti einn og sér. Ennfremur myndar Parmiggiano Reggiano gott jafnvægi á móti rauðvíni, t.d. við smökkun á ungu og óþroskuðu víni. Best er að geyma Parmigiano Reggiano í plastfilmu eða hentugu plastíláti inn í ísskáp. Ekki er ráðlagt að frysta stykki af Parmigiano Reggiano þó gott geti verið að frysta ost sem búið er að rífa niður. Hann hefur mikið geymsluþol og er tilvalinn til neyslu þó hann sé orðinn gamall og harður.
Allar nánari upplýsingar um ostinn er að finna á heimasíðu samtaka framleiðanda Parmigiano Reggiano, Consortium of Parmigiano-Reggiano
Published on
Image description
Hvítvínið Castello Banfi Le Rime Chardonnay & Pinot Grigio er framleitt úr frönsku þrúgunni Chardonnay og ítölsku þrúgunni Pinot Grigio. Vínið er framleitt af Castello Banfi sem er fjölskyldurekin víngerð, sett á stofn af Mariani fjölskyldunni árið 1978, og hefur á skömmum tíma orðið að einum þekktasta vínframleiðanda í Toscana.

Lýsing: Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, fersk sýra. Sítrus, melóna, pera.

Einkunnir ýmissa fagaðila:
Wine Enthusiast: 85/100 - Vinotek: 3,5 stjörnur

Banfi Le Rime Chardonnay & Pinot Grigio fæst í ÁTVR og kostar kr. 1.999 sem verður að teljast nokkuð góð kaup. Njótið vel í góðra vina hópi, hentar vel sem fordrykkur eða með ýmiskonar fiskréttum.
Published on
Image description

Óviðjafnanleg náttúrufegurð, menning og saga

Cinque Terre er nafn á fimm þorpum við ströndina vestur af La Spezia. Þorpin fimm bera nöfnin Monterosso al Mare, Vernazza, Corniglia, Manarola og Riomaggiore. Íbúar  þorpanna munu vera samtals í kringum 6000 sem flestir starfa við ferðaþjónustu og víngerð þó einhverjir sæki atvinnu til nágrannaborganna La Spezia og Genúa. Þetta einstaka svæði var gert að þjóðgarði árið 1999 og er ennfremur á heimsminjaskrá UNESCO vegna einstakra menningarminja um líf fyrr á öldum sem einkenndist af fiskveiðum og vínrækt. Þorpin eru byggð í bröttum fjallshlíðum, bílar eru ekki leyfðir en það gengur lest í gegnum þorpin á milli Genoa og La Spezia. Að auki siglir ferja á milli  allra þorpanna nema Corniglia en hægt er að taka ferjuna frá gömlu höfninni í Genoa, La Spazia, Lerici eða Portovenere.
Image description
Svæðið býr yfir óviðjafnanlegri náttúrufegurð, menningu og sögu. Þorpin virðast hanga utan í hlíðunum við ströndina, fallegar hafni með litskrúðugum fiskibátum og þröngum götum mynda dásamlega stemmingu. Á milli þorpanna er stígur sem þekktur er undir nafninu Sentiero Azzuro, þ.e. Blái stígurinn. Stígurinn er 10 kílómetra langur, hækkunin á leiðinni er 600 metrar og það tekur u.þ.b. 5 klst. að  ganga leiðina. Sá hluti leiðarinnar sem liggur á milli Riomaggiore og Manarola er kallaður Via dell’Amore eða Vegur ástarinnar og er allt frá því að vera létt upp í að vera mjög erfið yfirferðar. Léttasti hluti leiðarinnar liggur á milli Manarola og Corniglia þó síðasti hluti leiðarinnar séu krefjandi 386 þrep. Þó það sé bratt á milli Cornilgia og Vernazza á vissum stöðum þá er svo sannarlega brattast á milli Vernazza og Monterosso al Mare. Þetta eru fallegar gönguleiðir sem liggja bæði um þverhníptar klettanasir eða iðagrænar og ávalar hæðir sem þaktar eru vínviði og ólífutrjám.
Published on
Image description
Vínframleiðandinn Benanti hefur stundað víngerð í hlíðum eldfjallsins Etnu á Sikiley síðan á nítjándu öld. Benanti-fjölskyldan með Giuseppe Benanti í fararbroddi hefur undanfarna áratugi stundað viðamiklar rannsóknir á jarðvegi og staðbundnum þrúgum svæðisins ásamt því að þróa sig áfram með nýjar framleiðsluaðferðir.

Vínið Benanti Rosso di Verzela 2009 er framleitt úr staðbundnu þrúgunum Nerello Mascalese og Nerello Cappuccio. Vínið er fyrst látið þroskast í 225 lítra tunnum í 8-10 mánuði og að lokum látið þroskast á flöskum í nokkra mánuði áður en það er sett á markað.

Lýsing: Múrsteinsrautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, þroskuð tannín. kirsuber, hindber, jörð, krydd

Einkunnir ýmissa fagaðila:

Wine Enthusiast: 89/100 –  James Suckling: 88/100

Benanti Rosso di Verzella 2009 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 2.898.

Njótið þessa víns t.d. með rauðu kjöti eða þroskuðum ostum.
Published on
Image description
Á 170 hektara svæði í hlíðunum umhverfis þorpið Montalcino í Toscana framleiðir vínframleiðandinn Castello Banfi vínið sitt Brunello di Montalcino sem er nokkurs konar stolt víngerðarinnar. Castello Banfi er fjölskyldurekin víngerð, sett á stofn af Mariani fjölskyldunni árið 1978, og hefur á skömmum tíma orðið að einum þekktasta vínframleiðanda í Toscana.

Castello Banfi Brunello di Montalcino er framleitt eingöngu úr þrúgunni Brunello sem er afbrigði af þrúgunni Sangiovese. Vínið er fyrst látið þroskast tvö ár, aðallega í frönskum eikartunnum en að til hluta í slóvenskum eikartunnum. Síðan hefur vínið verið látið þroskast í tvö ár á flösku áður en það var sett á markað. Sumir segja að það þurfi að geyma vín þessarar tegundar í allt að tíu ár til þess að þau nái sínum hæstu hæðum.

Lýsing: Múrsteinsrautt. Þétt meðalfylling, þurrt, fersk sýra, þétt tannín. Rauð ber, krydd, jörð, eik.

Einkunnir ýmissa fagaðila:
James Suckling: 94/100 –  Wine Enthusiast: 92/100 – Wine Spectator: 90/100
CellarTracker: 89/100 – Decanter: 16.5/20 – Vinotek: 5 stjörnur

Banfi Brunello di Montalcino 2007 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 5.898.

Gott er að umhella víninu með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara til að gefa víninu tækifæri til að opna sig. Njótið vel með rauðu kjöti, villibráð eða þroskuðum ostum.