Published on
Spagettí með ætisþistlum og tómötum, á ítölsku „Spaghetti con carciofi e pomodoro“, er virkilega einfaldur, fljótlegur og bragðgóður fyrsti réttur þar sem uppistaðan er spaghetti, ætisþistlar og tómatar.
Picture
Hráefni
1) 500 gr spaghetti 2) 2 msk ólífuolía 3) 250 ml af rjóma 4) 25 gr smjör 5) þrjú hvítlauksrif 6) hálfur laukur, fínt saxaður 7) ca. 10 stk. ætisþistlar úr dós (ég kaupi stórar krukkur af ætisþistlum frá vörumerkinu Kirkland sem fæst í Kosti og nota u.þ.b. þriðjung af henni). 8) 1 dós af tómötum frá góðum framleiðanda, t.d. Cirio eða Del Cecco 9) 125 ml kjúklingasoð 10) hálf tsk múskat (má sleppa) 11) 70 gr. parmesan 12) salt 13) pipar 14) Ferskar kryddjurtir, t.d. graslauk eða steinselju.

Aðferð
1) Hitið ólífuolíu og smjör á stórri pönnu og mýkið í henni bæði lauk og hvítlauk í u.þ.b. 2-3 mínútur. 2) Bætið ætisþistlunum og tómötunum á pönnuna. Hitið á góðum hita í 8-10 mínútur, hrærið annað slagið. 3) saltið og piprið eftir smekk 4) Lækkið nú hitann og bætið út í bæði rjóma, kjúklingasoði og múskati og látið þetta malla við lágan hita í nokkrar mínútur eða þar til blandan er orðin vel heit. Slökkvið þá undir pönnunni. 5) Sjóðið pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. 6) Látið renna af pastanu, blandið parmesanostinum saman við pastað. 7) Látið pastað í stóra skál eða beint á diskana, hellið sósunni yfir, stráið ferskum jurtum yfir að eigin vali og berið fram.

Njótið á góðri stund í faðmi fjölskyldu og vina.
Published on
Image description
Pecorino Romano er ítalskur ostur sem framleiddur er úr sauðamjólk  en nafnið á honum er dregið af ítalska orðinu „pecora“ sem þýðir sauðfé. Pecorino Romano var framleiddur í Róm allt frá miðöldum til ársins 1884 þegar borgastjórnin í Róm ákvað að banna að salta ostinn inn í verslununum og brugðu margir framleiðendur á það ráð að flytja með allt sitt hafurtask til Sardiníu. Heiti ostsins er skrásett vörumerki auk þess sem Ítalir öðluðust lögverndun Evrópusambandsins á vöruheitinu Pecorino Romano. Í dag er eingöngu leyfilegt að framleiða þennan ost í Lazio, Sardiníu og í sýslunni Grosseto í Toscana.
Image description
Pecorino Romano kemur í þremur mismunandi útfærslum, allt eftir því hversu lengi hann hefur fengið að þroskast; í fyrsta lagi erum við að tala um „Stagionato“ sem hefur fengið að þroskast í 12 mánuði, svo er það Semi-stagionato sem hefur fengið að þroskast í 8 mánuði og að lokum er það „Fresco“ sem hefur einungis fengið að þroskast í 5 mánuði.

Þetta er mjög saltur ostur, svipar til Parmigiano en er mun bragðsterkari. Pecorino Romano er oftast rifinn út hina ýmsu pastarétti, t.d. réttina Bucatini all‘Amatriciana og Spaghetti alla Carbonara sem upprunnir eru í héraðinu Lazio. Pecorino Romano má aldrei nota í staðinn fyrir Parmigiano þar sem bragðið af honum er of sterkt í mildar sósur, en aftur á móti má alltaf nota Parmigiano í staðinn fyrir Pecorino Romano.

Pecorino Romano má nálgast t.d. í Hagkaup, Búrinu og Ostabúðinni á Skólavörðustíg.
Published on
Þessi pizzasósa er bæði einföld, fljótleg og virkilega góð. Það er í rauninni algjör óþarfi að kaupa tilbúnar sósur þegar fyrirhöfnin við að gera sína eigin er svo lítil sem raun ber vitni. Afganginn af sósunni má alltaf geyma í ískápnum í nokkra daga.
Picture
Hráefni
1) 3 msk ólífuolía 2) 1-2 hvítlauksgeirar 3) hálf lúka af ferskri basilíku 4) 1 dós af tómötum frá góðum framleiðanda, t.d. Cirio eða Del Cecco 5) Salt 6) Pipar

Aðferð
1) Hitið ólífuolíuna á pönnu 2) hitið fínt saxaðan hvítlaukinn við vægan hita. 3) Rífið basilíkublöðin niður með höndunum og bætið þeim á pönnuna ásamt tómötunum. 3) Látið þetta malla við meðalhita í u.þ.b. 5 mínútur. 4) Maukið sósuna í matvinnsluvél eða notið töfrasprota en við það verður sósan svo falleg og silkimjúk. 5) Saltið og piprið eftir smekk. 6) Leggið sósuna til hliðar og leyfið sósunni að kólna.
Published on
Image description
Il Poggione er eitt af helstu og virtustu víngerðarhúsum Toscana en það er staðsett nánar tiltekið í bænum Sant‘Angelo in Colle í Montalcino. Il Poggione hefur yfir að ráða 600 hekturum af landi; á 125 hekturum er ræktaður vínviður, á 70 hekturum ólífutré og restin að miklu leyti skóglendi. Il Poggione leggur gríðarlega áherslu á ræktun vínviðarins og telur það vera lykilinn að árangri í þeirri viðleitni að framleiða stórkostleg vín. Allar þrúgur eru handtýndar eftir hefðbundnum aðferðum.

Il Poggione Brunello di Montalcino er framleitt eingöngu úr þrúgunni Sangiovese sem eru handtýndar af vínvið sem er yfir 20 ára gamall. Vínið er fyrst látið þroskast á frönskum eikartunnum í 36 mánuði áður en það er sett á flöskur og geymt í nokkurn tíma áður en það er sett á markað.

Lýsing: Múrsteinsrautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, þurrkandi tannín. Kirsuber, laufkrydd, skógarber, skógarbotn.

Einkunnir ýmissa fagaðila:

Stephen Tanzer: 95/100 – Vinous Antonio Galloni: 95/100 – James Suckling: 94/100 – Wine Enthusiast: 91/100 – Wine Spectator: 92/100 – CellarTracker: 90/100 – Decanter: 16.8/20 – Falstaff Magazine: 91/100 – Jancis Robinson: 17/20

Il Poggione Brunello di Montalcino 2007 fæst í Vínbúðinni og kostar litlar 6.680 krónur.

Gott er að umhella þessu víni með góðum fyrirvara til að gefa víninu tækifæri til að opna sig. Njótið vel með rauðu kjöti, villibráð eða þroskuðum ostum.
Published on
Pizzadeigið er eitt af aðalatriðunum til þess að búa til góða pizzu. Þetta deig finnst mér vera næstum því fullkomið þar sem það einfalt, fljótlegt og auðvelt er fletja það út, hvort sem þú vilt hafa pizzuna þunna eða þykka. Uppskriftin miðast við tvær þunnar 12 tommu pizzur.
Picture
Hráefni
1) 335 gr hveiti 2) 1 tsk sykur 3) 8 gr þurrger 4) 6 gr salt 5) 2 msk ólífuolía 6) 200 ml volgt vatn

Aðferð
1) Leysið gerið upp í helmingnum af volga vatninu. 2) Bætið sykrinum við og hrærið saman við. 3) Leysið saltið upp í hinum helmingnum af volga vatninu. 4) Bætið ólífuolíunni út í saltvatnið og hrærið vel saman. 5) Setjið hveitið í stóra skál 6) Setjið allan vökvann út í hveitið og hnoðið vel saman, fyrst í skálinni en síðan á borðinu. Hnoðið deigið þar til það er orðið slétt og mjúkt. 7) Myndið því næst bolta úr deiginu, leggið það aftur í skálina og látið hefast við stofuhita í 1-1,5 klst. Gott er að leggja rakan klút yfir skálina á meðan deigið er að hefast.
Published on
Image description
Þetta afbragðsgóða vín er framleitt af víngerðarsamlaginu Mezzacorona í héraðinu Trentino á Norður-Ítalíu. En það eiga hvorki fleiri né færri en 1.500 vínbændur aðild að þessu hátæknivædda vínsamlagi. Mezzacorona Lagrein 2010 er eins og nafnið gefur til kynna framleitt 100% úr staðbundnu þrúgunni Lagrein. Það er fyrst látið þroskast í eikartunnum í 6-8 mánuði áður en því er tappað á flöskur og sett á markað.

Lýsing: Rúbínrautt. Létt meðalfylling, þurrt, fersk sýra, mild tannín. Léttur rauður ávöxtur, rauð ber, krydd.

Gott matarvín með skemmtilegan karakter. Nýtur sín vel með grilluðu kjöti og jafnvel léttri villibráð.

Það eru virkilega góð kaup í þessu velheppnaða víni en flaskan kostar einungis 1.799 krónur í vínbúð allra landsmanna.
Published on
Sagan segir að í bænum Bassano del Grappa í Veneto hafi rómverskur hermaður  fyrstur allra eimað þennan áfenga drykk sem í dag er kallaður Grappa. Lengi vel var þessi drykkur talin vera óspennandi, bæði grófur og hrár, en það hefur svo sannarlega breyst. Í dag er þetta fíngerður drykkur, bragðmikill og fágaður, þökk sé bættri tækni og betri framleiðsluaðferðum.
Image description
Grappa er framleitt  úr hratinu sem kallast á ítölsku „vinaccia“ en það inniheldur bæði hýði, stilka og steina. Í upphafi var farið að eima hratið í þeirri viðleitni að nýta allt sem til fellur við víngerðina og með því koma í veg fyrir sóun. Bragðið á Grappa veltur á tegund og gæði þrúganna sem notaðar eru við framleiðsluna og eins hefur gæði eimingarferlisins mikil áhrif á útkomuna. Meðal þekktustu framleiðanda grappa á Ítalíu eru Nonino, Bocchino, Berta, Jacopo Poli og Nardini.

Grappa er flokkað eftir aldri þess og þeirri þrúgu eða þrúgum sem hratið er unnið úr. Helstu flokkar Grappa eru eftirfarandi:

Giovane
Þetta er ungt vín sem geymt er í stáltönkum þar til það er sett á flöskur.

Aromatica
Þetta er vín sem framleitt er úr arómatískum þrúgum, t.d. þrúgunum Muscat, Gewürztraminer eða Malvasia.

Affinata
Þetta vín er sett á flöskur eftir að hafa verið látið þroskast á viðartunnum í allt að 12 mánuðum.

Invecchiata eða vecchia
Þetta er vín sem sett er á flöskur eftir að hafa verið látið þroskast í 12-18 mánuði á viðartunnum.

Stravecchia eða riserva
Þetta er vín er sett á flöskur eftir að hafa verið látið þroskast í meira en 18 mánuði á viðartunnum.

Monovitigno
Þetta vín er framleitt einungis úr hrati einnar tegundar þrúgu sem oftast er getið um á flöskumiðanum.

Aromatizzata
Í þessum flokki er grappa þar sem bætt hefur verið náttúrulegum hráefnum úr jurtaríkinu við framleiðsluna
snemma í eimingarferlinu, t.d. bláberjum, lakkrís o.s.frv.

Í dag er grappa lögverndað vöruheiti af Evrópusambandinu, skv. reglugerð Evrópusambandsins nr. 110/2008. Framleiðendur þurfa þar af leiðandi að uppfylla ströng skilyrði til þess að kalla framleiðslu sína Grappa en þess má geta að í dag eru u.þ.b. 130 framleiðendur af grappa.

Á Ítalíu er grappa aðallega neytt eftir mat til þess að aðstoða við meltingu á þungum mat, á ítölsku digestivo. Að auki er vinsælt að bæta örlítilli slettu af grappa út í espresso og er sá drykkur kallaður Caffe corretto sem þýðir á
íslensku „leiðrétt kaffi“. Annað afbrigði sem kallast Ammazzacaffe ( á íslensku„kaffi morðingi) er þegar maður skellir í sig einum espresso og fylgir honum eftir með litlu staupi af grappa. Þriðja útgáfan er þegar maður hefur nær klárað espresso þá setur maður nokkra dropa af grappa í bollann, hrærir og klárar svo í einum rykk.

Allar nánari upplýsingar um grappa er að finna á heimasíðu safnsins Poli Grappa Museum sem staðsett er í bænum í Bassano del Grappa.
Published on
Risotto ai funghi er dásamlegur fyrsti réttur þar sem uppistaðan eru risottogrjón og sveppir. Þessi réttur er sérstaklega gómsætur á haustin þegar hægt að nota nýtýnda sveppi úr íslenskri náttúru. En þess á milli er vel hægt að notast við gömlu góðu flúðasveppina eða þurrkaða sveppi, annaðhvort innflutta eða íslenska sem týndir hafa verið haustið áður. Ef notast er við þurrkaða sveppi þá er góð regla að nota ca. 10-15 grömm af þurrkuðum sveppum á móti hverjum 100 grömmum af ferskum sveppum.
Picture
Hráefni
1)
 360 gr risotto-grjón, helst carnaroli en annars arborio 2) 1-1,5 líter grænmetis- eða sveppasoð 3) 500 gr af ferskum sveppum (eða 50-75 gr af þurrkuðum sveppum) 4) 1 laukur 5) 1 hvítlauksrif 6) 2 msk ólífuolía 7) 40 gr smjör 8) 2 matskeiðar steinselja 9) 50 gr Parmigiano Reggiano 10) Pipar 10) salt

Aðferð
1) Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið saxaðan hvítlaukinn við lágan hita í ca. 2 mínutur 2) Bætið við sveppunum, hækkið hitann og steikið þá í ca. 5-10 mínútur. Sveppirnir eiga samt að vera pínulítið stökkir við lok steikingartímans. 3) Bætið við salti og pipar eftir smekk ásamt smátt skorinni steinselju. 4) Leggið sveppina til hliðar. 5) Hitið ólífuolíu á annarri pönnu og steikið saxaðan laukinn við lágan hita í nokkrar mínútur. Laukurinn má alls ekki verða brúnn heldur á að steikja hann þar til að hann verður gegnsær. 6) Bætið grjónunum á pönnuna og steikið við háan í tvær mínútur 7) Lækkið hitann, setjið út eina ausu af soði í einu og látið sjóða við miðlungshita. Bætið við soði eftir þörfum en grjónin þurfa ca. 20 mínútur í suðutíma. 8) Þegar 5 minútur eru eftir af suðutímanum er sveppunum bætt út í blönduna og í kjölfarið haldið áfram að bæta við soði. 9) Fjarlægið pönnuna af hitanum og hrærið smjörinu saman við. 10) Að lokum er ostinum bætt við og öllu hrært vel saman.
 
Njótið til hins ýtrasta í góðra vina hópi, hvort sem er sem fyrsta rétt eða jafnvel sem aðalrétt. Svo náttúrulega sakar aldrei að hafa glas af góðu rauðvíni við höndina.
Published on
Image description
Í héraðinu Piemonte árið 1860 hóf Gaspare Campari kynna Campari fyrir samlöndum sínum. Enn er notast við hina upprunalegu uppskrift og inniheldur hún hvorki meira né minna en 68 náttúruleg hráefni, þ.á.m. krydd, jurtir og ávexti. Einungis tveir aðilar í heiminum kunna uppskriftina frá upphafi til enda og ferðast þessir tveir aðilar skiljanlega ekki saman í flugvél. Árið 1904 opnaði fyrirtækið sína fyrstu verksmiðju í Sesto San Giovanni sem er í nágrenni við Mílanó. Drykkurinn varð fljótt þekktur innan Ítalíu en það var undir stjórn sonar Gaspare, Davide Campari, sem fyrirtækið hóf útflutning á drykknum, fyrst til Nice í Frakklandi en er í dag seldur í yfir 190 löndum um allan heim.
Picture
Image description
Campari og sódavatn er mjög vinsæll drykkur, svo vinsæll að hægt er að kaupa Campari Soda  í litlum en heimsfrægum flöskum, hönnuðum af Fortunato Depero árið 1932. Þessar flöskur nýtti hönnuðurinn Raffaele Celentano sér árið 2002 við hönnun á ljósinu Campari Light fyrir hollenska framleiðandann Ingo Maurer. Auki er Campari Soda er Campari mikilvægur hluti af mörgum kokkteilum, t.d. Negroni, Garibaldi og Americano.
Published on
Image description
Arnaldo Caprai lét loksins draum sinn rætast að stofna sína eigin víngerð árið 1971 þegar hann festi kaup á jörðinni Val di Maggio í Umbria og á rúmum fjórum áratugum hefur hann komið vínhúsi sínu í allra fremstu röð í héraðinu og þó víðar væri leitað.

Vínið Montefalco Sagrantino DOCG Collepiano 2008 er eingöngu framleitt úr þrúgunni Sagrantino sem hefur verið að vekja athygli á undanförnum árum. Vínið er fyrst látið þroskast í 24-26 mánuði á frönskum eikartunnum, að því loknu er það geymt að minnsta kosti í sex mánuði á flöskum áður en það er sett á markað. En þess má geta að fyrsti árgangurinn af þessu víni kom á markað árið 1979.

Lýsing: Dökkkirsuberjarautt. Þétt fylling, þurrt, mild sýra, þurrkandi tannín. Höfugt. Dökk ber, jörð, kaffi, eik.

Einkunnir ýmissa fagaðila: Vinoua Antonio Galloni: 92/100 - Cellar Tracker: 90/100 – Stephen Tanzer: 88/100 - Vinotek: 5 stjörnur

Montefalco Sagrantino DOCG Collepiano 2008 fæst í vínbúðinni og kostar kr. 6.795.
 
Gott er að umhella þessu víni með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara til að gefa víninu tækifæri til að opna sig. Njótið vel með rauðu kjöti, villibráð eða þroskuðum ostum.