Published on
Image description
Limone sul Garda er lítill bær, íbúar telja rúmlega eitt þúsund, sem liggur við Lago di Garda og tilheyrir héraðinu Lombardia. Allt til ársins 1940 var eingöngu hægt að komast til bæjarins með því að sigla yfir Lago di Garda. Íbúar bæjarins lifðu mest á fiskveiðum og ólífurækt en í dag er bærinn einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna sem heimsækja Lago di Garda.

Þar sem bærinn hefur verið afskekktur í gegnum aldirnar hefur átt sér stað ákveðinn skyldleikaræktun. En við rannsóknir þar fundu læknar frá Mílanó árið 1979 stökkbreytt afbrigði af geni sem framleiðir prótein sem vinnur á kólesteróli í blóði og kemur þannig í veg fyrir myndun æðaþrengsla. Þrátt fyrir að þessar uppgötvanir semtaldar voru mjög merkilegar á sínum tíma hafa ekki komið á markað lyf eða meðferðir sem byggja á þessum merkilegu uppgötvunum.
Published on
Nafnið á þessum rétti, Spaghetti alla Puttanesca, mætti þýða sem Spaghettí hórunnar eða Spaghettí portkonunnar ef maður vill nota ögn virðulegra orð yfir það sama. Til að átta sig betur á nafni þessa réttar verður maður að hverfa aftur til sjötta áratugarins þegar hóruhús á Ítalíu voru ríkisrekin. Þessi hóruhús voru kölluð „case chiuse“, eða lokuð hús, enda urðu gluggahlerarnir alltaf að vera lokaðir til að særa ekki sómatilfinningu nágranna og grunlausra vegfarenda. Þessir „opinberu starfsmenn“ unnu langa vinnudaga og höfðu einungis einn dag í viku til að versla. Þessi réttur varð því til úr hinu og þessu, enda hráefnin í þennan rétt hægt að finna á hverju einasta ítalska heimili árið um kring.

Ekki vera hrædd við ansjósurnar, þær eru virkilega góðar í þessum rétti. Hægt er að nálgast ansjósur nokkuð víða en í þetta skiptið keypti ég þær í Hagkaupum.
Picture
Hráefni
1) 400 gr spaghetti 2) 1 dós af tómötum frá góðum framleiðanda, t.d. Cirio eða Del Cecco 3) 2 msk af saxaðri steinselju 4) 8 ansjósuflök, skorin nokkuð smátt 5) 100 gr af svörtum ólífum skornar í sneiðar 6) 4-5 msk af ólífuolíu 7) 1 msk af kapers, skornum í bita 8) Salt 9) 2 hvítlauksgeirar, skornir smátt 10) 1 miðlungsstór saxaður chillibelgur.

Aðferð
1) Hitið ólífuolíuna á stórri pönnu eða potti 2) Bætið við hvítlauknum, ansjósuflökum og loks chilli 3) Látið þetta malla í u.þ.b. 5 mínútur á lágum hita. 4) Nú er komið að því að bæta saman við kapers og ólífunum og látið malla áfram í nokkrar mínútur. 5) Bætið saman við tómötunum og steinseljunni og látið þetta sjóða í 10 mínútur til viðbótar. 5) Sjóðið pastað, farið eftir leiðbeiningunum á pakkanum og ofsjóðið það ekki. 6) Látið renna af pastanu, setjið það útí pottinn með blöndunni góðu og hrærið vel saman. 7) Í lokin má bæta við saxaðri steinselju eftir smekk.

Njótið til hins ýtrasta í faðmi fjölskyldu og vina.
Published on
Það muna eflaust margir eftir ítölsku teiknimyndafígúrunni La Linea, á íslensku „Línan“, sem var reglulegur gestur á skjám landsmanna á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Það var ítalski teiknarinn Osvaldo Cavandoli sem var höfundur þáttanna sem upphaflega voru sýndir á ítölsku sjónvarpsstöðinni RAI á árunum 1971-1986.

Hér fyrir neðan er Línan að þreifa sig áfram í samskiptum sínum við hitt kynið með mjög svo misjöfnum árangri.
Published on
Image description
Ævaforn saga
Víngerðin á Ítalíu á sér yfir tvö þúsund ára sögu en í gegnum aldirnar hafa Grikkir, Etrúar og Rómverjar gegnt mikilvægu hlutverki í þróun víngerðar landsins. Í dag eru vín stór hluti af menningu landsins og tengist daglegu lífi fólksins í landinu órjúfa böndum.

Órjúfa bönd milli matar og víns
Ítölsk vín eru gerð til þess að falla vel að einfaldri en fjölbreyttri matargerð landsins þar sem hvert hérað hefur sín einkenni og sínar hefðir með áherslu á staðbundin hráefni. Það er þar af leiðandi jafn auðvelt að ánetjast vínum landsins og það er auðvelt að ánetjast matargerð þess.
Image description
Óendanlegur fjölbreytileiki
Ítölsk vín eru einstaklega fjölbreytileg eftir héruðum vegna mismunandi jarðvegs, ólíkra þrúga og fjölbreyttra stíla sem einkenna víngerðina. Vegna legu landsins eru þar að finna kjöraðstæður til ræktunar á ótal tegundum af vínþrúgum, hvort sem kjöraðstæður eru svalt, heitt, þurrt eða rakt loftslag. Alparnir í norðri og Appennínufjöllinn sem liggja í gegnum landið til suðurs skapa þessar andstæður á milli svala loftslagsins til fjalla og heita loftslagsins við ströndina kjöraðstæður til vínræktar í ávölum hæðum og upp eftir hlíðum fjalla.
Image description
Ítalska vínflokkunarkerfið
Þessa endalausu fjölbreytni hefur verið flokkuð eftir ákveðnu flokkunarkerfi til að tryggja það að fylgt sé ákveðnum hefðum til að tryggja að vínin séu trú uppruna sínum. Flokkunarkerfið skiptist í fjóra flokka sem eru eftirfarandi:

1. DOCG (Denominazione di Origine Controllata e Garantita) er efsti flokkurinn í kerfinu þar sem“controllata” tryggir að farið er eftir ákveðinni framleiðsluaðferð og “garantita” tryggir að vínið búi yfir ákveðnum gæðum. Í þessum flokki eru í kringum 70 vín sem hafa uppfyllt strangar kröfur og þekkjast á opinberu innsigli á flöskuhálsinum.

2. DOC (Denominazione di Origine Controllata) er stærsti flokkur í ítalska kerfinu með yfir 330 vín sem ná yfir nær alla stíla ítalskrar víngerðar. Vínin sem hlotið hafa titilinn DOC hafa uppfyllt ströng skilyrði sem tryggja “controllata” hvar vínið hafi verið framleitt, hvaða vínþrúgur hafi verið notaðar og hvaða stíl vínið tilheyrir.

3. IGT (Indicazione Geografica Tipica) kom til sögunnar árið 1992, til þess auka ákveðið frelsi í ítalskri víngerð. En fram til ársins 1992 uppfylltu mörg afburða vín ekki DOC og DOCG skilyrðin og voru þar af leiðandi sett í lægsta flokkinn, þ.e. Vino da Tavola. Það var í kringum 1970 að vínbændur í Toscana hófu að setja á markað afburðarvín, svokölluð Super Tuscans, sem uppfylltu ekki skilyrðin til að teljast DOC/G-vín en mörg þeirra öðluðust aftur á móti viðurkenningu víða um heim. IGT (Indicazione Geografica Tipica) leggur mesta áherslu á uppruna vínanna en síður hvaða þrúgur eru notaðar við víngerðina framleiðsluaðferðir vínanna eða stíl þeirra.

4. Vino da Tavola þýðir borðvín á íslensku og endurspeglar hin venjulegu borðvín Ítala, ólík eftir hverju héraði fyrir sig. Eins og áður sagði þá var hér á árum áður að finna afburðavín frá vínbændum sem voru að prófa sig áfram með nýjar þrúgur, nýjar blöndur af þrúgum og nýjar framleiðsluaðferðir sem hvergi annars staðar áttu heima í flokkunarkerfinu fyrr en flokkurinn IGT (Indicazione Geografica Tipica) var settur á fót árið 1992. Í dag endurspeglar Vino da Tavola þau vín sem lægst eru sett innan flokkunarkerfisins.
Image description
Héruð landsins eru innbyrðis ólík
Ítalía skiptist í 20 héruð sem öll eru ólík innbyrðis, hvert með sínar staðbundnu þrúgur og eigin matargerð sem hefur tekið mið af loftslagi þeirra og jarðvegi. Vínin eru nær undantekningalaust unnin að öllu leyti úr þrúgum hvers héraðs fyrir sig sem spretta upp úr sama jarðvegi og hráefni matargerðarinnar. Ítölsk vín eru mikil matarvín sem falla vel að matargerð hvers héraðs fyrir sig.
Image description
Áhersla á gæði umfram magn
Ítalía hafa lengi framleitt mest allra þjóða af vínum, einungis í Frakkland framleiðir meira magn en Ítalía. Það hefur lengi loðað við ítalska víngerð að áherslan hafi verið meiri á magn en gæði en það hefur breyst á undanförnum árum. En áherslan á gæði hefur aukist mikið síðustu misserin og má segja að ítölsk víngerð hafi aldrei verið sterkari, öflugri né framsæknari en í dag.
Published on
Image description
Basilíka er upprunalega frá Indlandi og hefur verið ræktuð í meira en 5000 ár. Basilíka er ein allra mikilvægasta kryddjurtin í ítalskri matargerð. Í Genóa, heimkynnum basilíkunnar, og með allri strönd Lígúríu má víða finna basilíkuilm í lofti. Þar er hún ræktuð bókstaflega út um allt og í hvaða íláti sem er, t.d. gömlum skaftpottum, plastfötum eða fagurfræðilega máluðum leirkerum. En íbúar Genóa standa í þeirri trú að mild hafgolan sé nauðsynleg til að basilíkan fái rétta bragðið.
Image description
Bragð basilíkunnar bætir svo sannarlega marga rétti og gerir einfalda rétti að veisluréttum. Pasta fyllt með spínati og ricotta er einna best með einfaldri sósu úr bræddu smjöri, parmesan og fáeinum blöðum af basilíku. Salat úr tómötum og mozzarella verður að sannkölluðum veislukosti ef þremur eða fjórum blöðum af basilíku er stungið innan um tómatssneiðarnar og ostinn. Yfirleitt má bæta alla rétti sem innihalda tómata í einhverri mynd með því að bæta við þá nokkur blöð af basilíku.
Image description
Lítið mál er að rækta nokkrar basilíkuplöntur í eldhúsglugganum hér á landi og nýta þær stóran hluta ársins. Takið þrjá nokkuð stóra potta, setjið smá lag af vikri í botninn á hverjum þeirra og fyllið þá síðan af mold. Sáið síðan fræjum úr einum venjulegum fræpoka jafnt í pottana þrjá. Vökvið vel og setjið að lokum plastfilmu yfir pottana. Með þessari aðferð fær maður stórar og flottar plöntur sem geta enst lengi. Gott er að hafa alltaf vatn í undirskálinni hjá hverri plöntu og eins er gott að vökva plönturnar líka beint í moldina. Basilíkuplantan er mikil prinsessa og ber að umgangast hana  sem slíka.

En þurrkuð basilíka kemur alls ekki í staðinn fyrir ferska, en áður veturinn kemur og skammdeigið skella á með fullum þunga er gott að týna blöðin og frysta þau til að nota í sósur yfir vetrartímann. Bragðið geymist best þegar fjögur eða fimm blöð eru sett í plastílát, t.d. tóma jógúrt- eða skyrdós, vatni síðan hellt yfir þau og dósin sett í frysti. Ísmolana með blöðunum má síðan þýða eða setja þá bara í heilu lagi út í tómatsósu.
Published on
Pizza alla boscaiola er dásamleg pizza sem kennd er við boscaiola en það má treysta því að í öllum ítölskum réttum kenndum við boscaiola eru til staðar sveppir í einhverri mynd. Sveppir og skinka leika aðalhlutverkin á þessari pizzu ásamt því að sletta af rjóma gerir hana að ógleymanlegri upplifun.
Picture
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Skinka 5) Sveppir, skornir í þunnar sneiðar 6) Ólífuolía 7) Rjómi

Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4)Setjið síðan skinkuna og  sveppina á pizzuna. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið hana inn í brennandi heitan ofninn. 6) Þegar u.þ.b. 2 mínútur eru eftir af eldunartímanum, takið pizzuna út úr ofninum, hellið yfir hana smá slettu af rjóma og stingið henni aftur inn. 7) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út.

Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill  og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Published on
Image description
Þetta vín frá Tenute Piccini er framleitt úr fjórum mismunandi þrúgum frá fjórum mismunandi héruðum, þ.e. þrúgunum Primitivo frá Puglia (40%), Montepulciano frá Abruzzo (30%), Nero d‘Avola frá Sikiley (20%) og Merlot frá Veneto (10%). Ennfremur er hérna ekki um árgangsvín að ræða heldur er hinum ýmsum árgöngum blandað saman með góðum árangri.

Lýsing: Dökkrúbínrautt. Meðalfylling, hálfþurrt, mild sýra, mild tannín. Rauð ber, kirsuber,
vanilla.

Piccini Memoro fæst í Vínbúðinni og kostar einungis kr. 1.999.

Hér um hörkuvín að ræða sem endurspeglar fjögur mismunandi héruð Ítalíu. Nýtur sín vel með rauðu kjöti eða villibráð.
Published on
Image description
Frá Ítalíu koma létt og ávaxtarík freyðivín sem kallast Prosecco og eru nær einvörðungu framleidd úr þrúgunni Glera ásamt litlu magni af þrúgum á borð við Verdiso, Perera og Bianchetta.  Í eina tíð gékk þrúgan Glera einfaldlega undir nafninu Prosecco en gengur í dag undir nafninu Glera til aðgreiningar frá hinu skilgreinda framleiðslusvæði Prosecco. Þetta geta verið virkilega góð freyðivín, oftast þurr eða extra þurr, sem eru tilvalin til að skála í við góð tækifæri.
Image description
Þrátt fyrir að nafnið sé dregið af ítalska þorpinu Prosecco, nálægt Trieste, eru vínin DOC Prosecco framleidd víða í héruðunum Veneto og Friuli Venezia Giulia, þó aðallega í kringum bæina Conegliano og Valdobbiadene. Ólíkt kampavíni, helsta keppinautnum á markaði, þá er DOC Prosecco framleitt með aðferð sem kallast „metodo Italiano“. En með þeirri aðferð fer framhaldsgerjunin fram í stáltönkum en ekki á flöskum sem gerir vínið þónokkuð ódýrara í framleiðslu. Ennfremur er leyfilegt að framleiða Conegliano Valdobbiadene DOCG Prosecco með aðferð sem kallast „metodo classico“ en samkvæmt þeirri aðferð fer framhaldsgerjunin einvörðungu fram á flöskum.

Prosecco er aðallega framleitt sem freyðandi (spumante) eða léttfreyðandi (frizzante). Prosecco Spumante eru oftast dýrari þar sem þau hafa farið í gegnum fulla framhaldsgerjun. Að auki eru framleidd vín úr þrúgunni Glera sem eru ekki freyðandi (calmo eða tranquillo) en þau telja einungis 5% af heildarframleiðslunni og eru sjaldnast flutt út fyrir landsteinanna.
Image description
Á Ítalíu er Prosecco ávallt drukkið vel kælt við flest tilefni en fyrir utan Ítalíu er það oftast haft sem fordrykkur, eins og um kampavín væri að ræða. Ólíkt kampavíni þá er Prosecco oftast ekki látið gerjast á flöskum, heldur í stáltönkum og þránar þar af leiðandi með tímanum. Prosecco á því að drekkast ungt, oftast innan þriggja ára, þó hágæða Prosecco megi þroskast allt upp í 7 ár. Oftast er Prosecco drukkið eitt og sér en er stundum notað sem hráefni í hina ýmsu kokkteila, t.d. Bellini, Spritz, Mimosa og Sgroppino.
Published on
Image description
Piemonte er eitt virtasta vínræktarhérað Ítalíu og þaðan koma mörg stórkostleg vín. Innan héraðsins Piemonte, nánar tiltekið í hlíðunum umhverfis borgina Asti, má finna svæði sem kallast Langhe en þar má finna mörg af bestu vínum héraðsins, t.d. Barolo og Barbaresco. Vínræktin á þessu svæði einkennist af mörgum smáum fjölskyldureknum vínframleiðendum sem leggja ofuráherslu á gæði framleiðslunnar. Vínhúsið G.D. Vajra er þar engin undantekning og framleiðir framúrskarandi vín á borð við Barolo, Barbera d‘Alba, Dolcetto d‘Alba og Langhe Nebbiolo.

Rauðvínið G.D Vajra Barbera‘Alba er framleitt 100% úr þrúgunni Barbera sem ásamt Nebbiolo og Dolcetto eru þrjár meginrauðvínsþrúgur Piemonte. Þrúgurnar í þetta vín koma af sex mismunandi vínræktarsvæðum innan svæðisins Langhe, þ.e. Fossati, San Pietro, Passau, Fontani, Piedicucche og Bricco Bertone. Þrúgurnar eru handtýndar um miðjan september, gerjun vínsins stendur yfir í 15-20 daga en að því loknu er vínið látið þroskast í 12 mánuði, bæði í eikartunnum og stáltönkum, áður það er sett á flöskur og sett á markað.

Lýsing:
Rúbínrautt. Létt meðalfylling, þurrt, sýruríkt, mild tannín. Hindber, súr kirsuber,lauftónar.

Einkunnir ýmissa fagaðila:
Vinous Antonio Galloni: 89/100 – CellarTracker: 89/100 – Jancis Robinson: 16/20.

G.D. Vajra Barbera d'Alba DOC 2010 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 3.795.

Published on
Image description
Ólífuolían er unnin úr ólífum sem vaxa á ólífutrjám sem hafa verið ræktuð við Miðjarðarhafið öldum saman og hefur ólífan verið mikilvæg landbúnaðarafurð um margar aldir. Ólífuolían spilar stórt hlutverk þegar kemur að ítalskri matargerð og er eitt af grundvallarhráefnum hennar. Mikilvægi ólífuolíunnar í ítalskri matargerð eykst eftir því sem sunnar dregur þar sem vaxtarskilyrði ólífutrjánna eru sem allra best. Ólífuolían kallar fram aukin bragðgæði í öðrum hráefnum og er ennfremur talin vera allra meina bót vegna æskilegrar fitusamsetningar.
Image description
Það eru til mörg hundruð mismunandi tegundir af ólífutrjám í heiminum og er talið að það sé hægt að finna u.þ.b. 400 þeirra á Ítalíu. Hinar ýmsu tegundir af ólífutrjám hafa mismunandi lögun og margbreytilegt útlit. En þau hafa það flest sameiginlegt að vera ansi mikil um sig og geta náð allt að 3-5 metrum á hæð. Lauf ólífutrjáa eru yfirleitt ljósgræn að lit og ílöng í lögun. Allar ólífur eru í upphafi grænar en með auknum þroska dökkna þær og verða að lokum svartar á litinn.
Image description
Ólífuolía er oftast unnin úr svörtum, fullþroskuðum ólífum eða blöndu af ólífum á hinum ýmsu þroskastigum, allt eftir þeim hlutföllum sem hver framleiðandi telur henta hverju sinni. Hinar ýmsu ólífuolíur eru svo sannarlega misjafnar að gæðum sem fer eftir mismunandi tegund af ólífum, jarðvegi, loftslagi, uppskerutíma og síðast en ekki síst fara gæðin eftir meðhöndlun við vinnslu. Hin hefðbundna aðferð við vinnslu á ólífuolíu er að merja ólífurnar milli valsa úr steini og pressa síðan olíuna úr maukinu undir fargi. Þessi aðferð er kölluð kaldpressun og er talin skila bestum árangri. Best er að pressun fari fram eins fljótt eftir tínslu og mögulegt er. Bragðbest þykir kaldpressuð jómfrúarolía (extra virgin olive oil) en sýrustig hennar verður að vera undir 1%. Kaldpressaða jómfrúarolían er auðþekkjanleg á græna litnum og er einkum notuð í salöt og ýmsa pasta-, fisk- og grænmetisrétti. Að því loknu eru afgangsólífur úr kaldpressuninni hitaðar og pressaðar ennþá meira og kallast olían þá einungis ólífuolía (olive oil) en sýrustig hennar má ekki fara yfir 2%. Þessi ólífuolía, sem oftast er gulleitari, er ekki talin vera jafnholl og hentar einkum til steikingar.