Published on
Á miðöldum var Siena stolt, auðugt og herskátt borgríki, allt þar til það lá í valnum fyrir nágrönnum sínum í Flórens árið 1555. Borgin stendur á þremur hæðum sem mynda syðsta hluta svæðisins sem kennt er við Chianti, milli ánna Arbia, Merse og Elsa. Íbúar Siena sem telja tæplega 54.000 eru ennþá mjög stoltir af borginni sinni og borgarhverfunum sem kallast „contrada“. En þessi hverfi mætast einmitt tvisvar á ári í víðfrægum kappreiðum, sem kallast Il Palio, á aðaltorgi borgarinnar Piazza del Campo.

Á sviði menningar og lista hefur Siena spilað stórt hlutverk í gegnum aldirnar, hvort sem við erum að tala um myndlist, höggmyndalist eða arkitektúr. Margir listamenn hafa komið frá Siena í gegnum tíðina og má þar nefna Duccio, Simone Martini, Ambrogio og Pietro  Lorenzetti.

Það má með sanni segja að miðborg Siena sé einn allsherjar merkisstaður en það er leitun að betur varðveittri miðborg frá þessum tíma en þess má geta að hún hefur verið sett í heild sinni á Heimsminjaskrá UNESCO. Það er upplifun ganga um þröngar götur borgarinnar, upplifa stemminguna og ímynda sér hvernig borgarlífið hafi verið í nákvæmlega þessu fallega umhverfi fyrir mörgum mörgum öldum.
Helstu merkisstaðir borgarinnar
Piazza del Campo er einstakt torg í miðborg Siena, í laginu svolítið eins og skel. Þar fer fram hinar heimsfrægu kappreiðar, Il Palio.

Palazzo Pubblico er ráðhús borgarinnar og hefur verið það í u.þ.b. 800 ár. Þar eru að finna margar frægar freskur eftir listamenn á borð við Ambrogio Lorenzetti, Simone Martini og Duccio. Samfastur ráðhúsinu er að finna eitt frægasta kennileiti Siena, turninn Torre del Mangia, sem gnæfir yfir borgina.

Dómkirkja borgarinnar, Duomo di Siena, er algjört meistaraverk. Bygging hennar hófst árið 1196 og lauk ekki fyrr en árið 1348, eða 152 árum síðar. Virkilega þess virði að skoða þetta stolt borgarinnar og tilvalið í lokin að kíkja upp í Il Facciatone og njóta stórkostlegs útsýnis yfir borgina.

Pinacoteca Nazionale er eitt helsta listasafn borgarinnar en þar er að finna mörg af helstu listaverkum borgarinnar frá blómaskeiði hennar.

Palazzo Salimbelli var byggt árið 1472 undir elsta banka heims sem ennþá er starfandi undir sömu merkjum, Banca Monte dei Paschi di Siena.

Picture
Il Palio – magnaðar kappreiðar eða hreinræktað dýraplagerí
Palio eru frægar kappreiðar sem haldnar eru í borginni tvisvar á ári, annars vegar 2. júlí og hins vegar 16. ágúst. Kappreiðarnar eiga sér langa sögu en þær voru fyrst haldnar árið 1224. Magnaðar kappreiðar í einstöku andrúmslofti. Tíu hestar, tíu knapar og allir ríða berbakt. Sigurvegarinn hlýtur hinn eftirsótta Palio sem er gunnfáni, tileinkaður sjálfri guðsmóðurinni. Svo miklu meira um Il Palio hér.
Picture
Published on
Mílanó er nútímalegasta borg Ítalíu, að margra mati táknmynd fyrir hina nýju Ítalíu. Þeirri Ítalíu sem er á fljúgandi ferð út úr gömlum viðjum, tekur opnum örmum á móti nýjum hugmyndum og grípur öll tækifæri sem gefast til framþróunar. Það er einhvern veginn allt að gerast í borginni og allt á fullri ferð en á sama tíma er hún svo afslöppuð og notaleg.
Picture
Hátískuverslanir, tískuvikur og áttavilltar fyrirsætur
Það er ekki tilviljun að Mílanó sé talin vera ein af helstu tískuborgum veraldar. Þar er endalaust úrval af guðdómlega fallegum verslunum, gríðarstórar tískuvikur haldnar nokkrum sinnum á ári og áttavilltar fyrirsætur á hverju strái. Quadrilatero della Moda, eða tískuþríhyrningurinn, er víðfrægt verslunarsvæði þar sem eru að finna verslanir frá tískuhúsum á borð við Louis Vuitton, Dolce & Gabbana, Armani, Prada, Cavalli, Gucci og svona mætti lengi telja.

Þeir sem eru að leita að einhverju öðru en rándýrri merkjavöru ættu ekki að örvænta. Þeir ættu að þræða götur á borð við Via Torino, Corso di Porta Ticinese, Corso Buenos Aires og Corso Vercelli. Þar er að finna verslanir á borð við H&M, Zara, Bershka, Levis, Diesel, Tezenis, Foot Locker, Benetton, Camper og svona væri hægt að halda áfram endalaust.

Endalausar freistingar
Það er gott að fara út að borða í Mílanó, mikið og fjölbreytt framboð af veitingastöðum, kaffihúsum og börum. En að sjálfsögðu eru staðirnir mismunandi góðir og verðlagið upp og niður allan skalann. Mikið af veitingastöðum borgarinnar bjóða upp á hið ítalska eldhús en að sjálfsögðu er líka að finna veitingastaði í borginni frá öllum heimshornum. Í borginni er að finna frábærar pizzeríur sem hægt er mæla með, td. La Fabbrica, Pizzeria Tradizionale og Pizzeria del Ticinese og góða veitingastaði á borð Officina 12, Trattoria Toscana, Osteria Giulio pane e Ojo og Pescheria da Claudio.

Undir dúndrandi takti, fram á rauða nótt
Það er margt í boði þegar kemur að næturlífi í Mílanó og allir geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi, hvort sem maður ætlar að kíkja í eitt glas á rólegum bar eða dansa undir dúndrandi takti fram á rauða nótt. Meðfram síkjunum í Navigli er að finna mikið úrval af börum og skemmtistöðum ásamt kaffi- og veitingastöðum sem opin eru langt fram á kvöld, t.d. barir á borð við Bond, Le Biciclette, Viola og Luca e Andrea. Oft myndast oft skemmtileg stemming undir berum himni,allir sitja úti og mikið af fólki á röltinu. Margir af heitustu stöðum borgarinnar er að finna í nágrenni Corso Como, t.d. staði á borð við Loolapaloosa, Tocqueville 13 og Hollywood ásamt fleiri stöðum sem sprottið hafa upp í nágrenninu á undanförnum árum.

Mílanó hefur allt til alls
Í Mílanó er ennfremur að finna glæsileg söfn og heimsfrægar byggingar, leikhús og óperuhús, styttur og listaverk. Það er engin tilviljun að yfir 6 milljónir ferðamanna heimsækja borgina á hverju ári því það er einfaldlega upplifun að ganga um verslunargötur á borð við Via Montenapoleone og Via della Spiga; skoða vöruúrvalið, fólkið og jafnvel bílana. Dómkirkjan er líka mikilfengleg og mannlífið fjölbreytt á dómkirkjutorginu. Eftir góðan dag í Parco Sempione, stærsta almenningsgarði borgarinnar, er vel þess virði að kíkja á hönnunarsafnið Triennale sem stendur við jaðar hans. Síðan er náttúrulega skylda fyrir hvern einasta unnanda góðrar knattspyrnu að kíkja á San Síró og upplifa hörkuslag milli nágrannanna í AC Milan og Inter Mílanó.

Mílanó er sem sagt lifandi og skemmtileg borg sem hefur endalaust margt að bjóða fyrir öll skilningarvitin.

Greinin birtist í Fréttablaðinu þann 9. september 2016 með leyfi MINITALA

Published on
Cinque Terre er nafn á fimm þorpum við ströndina vestur af La Spezia. Þorpin fimm bera nöfnin Monterosso al Mare, Vernazza, Corniglia, Manarola og Riomaggiore. Íbúar þorpanna munu vera samtals í kringum 6000 sem flestir starfa við ferðaþjónustu og víngerð þó einhverjir sæki atvinnu til nágrannaborganna La Spezia og Genúa.
Picture
Þetta einstaka svæði var gert að þjóðgarði árið 1999 og er ennfremur á heimsminjaskrá UNESCO vegna einstakra menningarminja um líf fyrr á öldum sem einkenndist af fiskveiðum og vínrækt. Þorpin eru byggð í bröttum fjallshlíðum, bílar eru ekki leyfðir en það gengur lest í gegnum þorpin á milli Genoa og La Spezia. Að auki siglir ferja á milli allra þorpanna nema Corniglia en hægt er að taka ferjuna frá gömlu höfninni í Genoa, La Spazia, Lerici eða Portovenere.
Picture
Svæðið býr yfir óviðjafnanlegri náttúrufegurð, menningu og sögu. Þorpin virðast hanga utan í hlíðunum við ströndina, fallegar hafnir með litskrúðugum fiskibátum og þröngum götum mynda dásamlega stemmingu. Á milli þorpanna liggur fjöldi göngustíga, ýmist um þverhníptar klettanasir eða um iðagrænar og ávalar hæðir sem þekktar eru vínviði og ólífutrjám.
Picture
Stígurinn á milli þorpanna er þekktur undir nafninu Sentiero Azzuro, þ.e. Blái stígurinn. Stígurinn er 10 kílómetra langur, hækkunin á leiðinni er 600 metrar og það tekur u.þ.b. 5 klst. að ganga leiðina. Sá hluti leiðarinnar sem liggur á milli Riomaggiore og Manarola er kallaður Via dell’Amore eða Vegur ástarinnar og er allt frá því að vera létt upp í að vera mjög erfið yfirferðar. Léttasti hluti leiðarinnar liggur á milli Manarola og Corniglia þó síðasti hluti leiðarinnar séu krefjandi 386 þrep. Þó það sé bratt á milli Cornilgia og Vernazza á vissum stöðum þá er svo sannarlega brattast á milli Vernazza og Monterosso al Mare. Þetta eru fallegar gönguleiðir sem liggja bæði um þverhníptar klettanasir eða iðagrænar og ávalar hæðir sem þaktar eru vínviði og ólífutrjám.
Published on
Tórínó, höfuðborg héraðsins Piemonte, er fjórða stærsta borg Ítalíu með rúmlega 900 þúsund íbúa. Borgin er að mestu leyti staðsett á vesturbakka árinnar Pó og er oft kölluð „höfuðborg Aplanna“. Þetta er borg sem tekur vel á móti manni, hvort sem maður er að leita að glæsilegum arkitektúr, flottu mannlífi og miklum freistingum þegar kemur að mat og drykk.
Picture
Tórínó var eitt sitt höfuðborg Ítalíu og heimkynni Savoy fjölskyldunnar, fyrrum valdhafa landins, sem skildu eftir sig stórkostlegar hallir og kastalar sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. Í því samhengi má t.d. nefna hallirnar Palazzo Reale, Palazzo Carignano og Palazzo Madama og kastalann Castello del Valentino. En flestar af þessum byggingum eru frá 17. og 18. öld og margar þeirra eru verk arkitektanna Guarino Guarini og Filippo Juvarra. Í gegnum tíðina hefur Tórínó verið mikil iðnaðar- og viðskiptaborg en þar eru m.a. heimkynni ítölsku bílaframleiðandanna Fiat, Lanci og Alfa Rome.

Tórínó er flott borg með sínar stóru breiðgötur og glæsilegu hallir. Það  er vel þess virði að sækja borgina heim en þess má geta að straumur ferðamanna til borgarinn hefur stóraukist á undanförnum árum, allt frá því að borgin hélt vetrarólympíuleikana árið 2006. En mörgum er eflaust í fersku minni stórkostleg frammistaða Luciano Pavarotti á opnunarhátíð leikanna.
Picture
Í borginni er ennfremur að finna knattspyrnufélagið Juventus og er alveg þess virði að kíkja á spánýjan heimavöll félagsins, sérstaklega þar sem það eru allir smá Juventini inn við beinið. Juventus hefur unnið ítölsku deildina 32 sinnum, oftar en nokkurt annað félag, og með félaginu hafa leikið stjörnur á borð við Platini, Zidane og Del Piero.

Tórínó er mikil matarborg en þar má finna mikið úrval af góðum veitingahúsum, litlum sælkeraverslunum og flottum matarmörkuðum. En þess má geta að Slow Food samtökin voru stofnuð í Tórínó en á vegum hennar haldin í borginni mikil bragðlaukahátíð á hverju ári sem kallast Salone del Gusto.

Í nágrenni Tórínó, nánar tiltekið í Langhe í Piemonte, eru framleidd mörg af bestu vínum Ítalíu ásamt því að matargerð héraðsins er víðfræg með sín frönsku áhrif. Það er því tilvalið að kíkja í vínsmökkun til þorpa á borð við Barolo, Barbaresco, Asti og Alba en þar eru framleidd dásamleg vín úr þrúgum á borð við nebbiolo og barbera.
Picture
Published on
Minitalia hefur tekið saman hvaða skipulögðu ferðir til Ítalíu eru í boði fyrir Ítalíuþyrsta Íslendinga á árinu 2016.  Hjá ferðaskirfstofunum í ár eru m.a. í boði ferðir til Feneyja, Cinque Terre, Portofino, Gardavatns, Flórens, Sikileyjar og Rómar. Endilega láta okkur vita ef þið vitið um ferðir sem þið vitið um og eru ekki á listanum hér fyrir neðan.
Picture
20.apríl – 27. apríl 2016
Draumasigling um Feneyjar á vegum Bændaferða, verð frá kr. 239.500 (UPPSELT)
Glæsileg sigling um Feneyjar með fljótaskipinu MS Michelangelo. Feneyjar hafa löngum við kallaðar Drottning Adríahafsins, og ekki að ástæðulausu. Á rölti um eyjuna sjálfa verður á vegi okkar allt það sem gerir hana að einum mest eftirsótta ferðamannastað álfunnar. Nánari ferðatilhögun

21. apríl – 25. apríl 2016
Róm – borgin eilífa á vegum Vita, verð frá kr. 129.900
Í Rómarborg er meira að skoða en í nokkurri annarri borg í heiminum og aðeins er hægt að krafla í yfirborðið á fáum dögum. Helsti kostur borgarinnar er þó að stutt er á milli allra áhugaverðu staðanna en það er þægilegt að ganga í Róm og alls staðar eru garðar og torg til að hvíla lúin bein. Nánari ferðatilhögun

21. apríl – 25. apríl 2016
Kampavín og kaloríur í Rómarborg á vegum Vita, verð frá kr. 183.700
Það er kyrrð yfir þessari borg sem ku aldrei sofa, loftið er tært eftir rigningar næturinnar.  Glaðbeittir þjónar raða út borðum og stólum og kaffiilmurinn kitlar nef ferðamanna.  Róm sem hefur svo margt að geyma og kemur manni sífellt á óvart. Dásamleg ferð í einstakri fararstjórn Sigurlaugar M. Jónasdóttur. Nánari ferðatilhögun

21.maí – 28. maí 2016
Flórens & Toskana á vegum Bændaferða, verða frá kr. 199.900
Borgin Flórens eða „La Bella“ eins og hún er oft nefnd, er ein glæsilegasta lista- og menningarborg Ítalíu, suðræna Toskana héraðið, pálmum prýdd Versilíaströndin og eyjan Elba með gullnu strendur sínar, heilla okkur í þessari spennandi ferð. Nánari ferðatilhögun

28. maí – 4. júní 2016
Portofino & Cinque Terre á vegum Bændaferða, verð frá kr. 244.400
Hér er um að ræða spennandi gönguferð um tvær af fallegustu gönguleiðunum við Miðjarðarhafið, Portofino skagann og Cinque Terre ströndina.  Náttúrufegurðin er ólýsanleg. Brattir klettar og höfðar, þaktir ilmandi og litríkum miðjarðarhafsgróðri, spegla sig í túrkisbláum sjónum. Nánari ferðatilhögun

28.maí – 11. júní 2016
Töfrandi ferð um héruðin Calabria og Sikiley á vegum Bændaferða, verð frá kr. 339.900
Glæsileg ferð um Calabria héraðið á Suður-Ítalíu. Ævintýrið hefst í töfrandi borginni Bergamo á Norður-Ítalíu en frá Genúa verður siglt suður til Sikileyjar þar sem við upplifum arabískan blæ fögru borgarinnar Cefalú. Nánari ferðatilhögun

1. júní – 8. júní 2016
Ítölsku vötnin í allri sinni dýrð á vegum Úrval-Útsýn, verð frá 194.900.
Dýrðardvöl við Lago Maggiore og Comovatn. Þar sem Alpafjöllin teygja sig suður á Ítalíu liggja nokkur undurfögur stöðuvötn. Sum þeirra eru stór, önnur minni, sum tilheyra alfarið Ítalíu, önnur eiga líka landamæri að Sviss. Í þessari fallegu ferð gefst einstakt tækifæri til að kynnast nánar þessu svæði á Norður – Ítalíu. Nánari ferðatilhögun
 
18.júní – 25. júní 2016
Gardavatn – útivist í töfrandi umhverfi á vegum Bændaferða, verð frá kr. 214.700.
Í þessari frábæru útivistarferð við Gardavatn verða helstu dásemdir svæðisins kannaðar og náttúrunnar notið til hins ýtrasta. Ferð fyrir alla sem vilja njóta hressandi hreyfingar í einstöku umhverfi og góðum félagsskap. Nánari ferðatilhögun
 
15. ágúst – 27. ágúst 2016
Róm og Amalfíströndinni á vegum Bændaferða, verð frá kr. 338.300
Róm, Sorrento, Amalfístöndin og eyjan Caprí eru sannkallaðar draumaperlur Ítalíu, en kynngimögnuð fegurð þessara staða umvefur okkur. Nánari ferðatilhögun
 
29. ágúst – 11. september 2016
Ítalíudraumur á vegum Bændaferða, verð frá kr. 329.400
Þessi ómótstæðilega ferð er sannkallaður Ítalíudraumur þar sem saman fer hið magnaða hérað Puglia, einstakur arkitektúr svonefndra Trulli húsa og makalaus fegurð Gargano strandar á suðaustur horni Ítalíu. Nánari ferðatilhögun
 
17. september – 27. september 2016
Gardavatn & Feneyjar á vegum Bændaferða, verð frá kr. 229.900
Gardavatn er ótvírætt einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga til margra ára, enda líkti Goethe staðnum við himnaríki á jörðu og skyldi engan undra. Nánari ferðatilhögun
 
18. september – 30. september 2016

Mögnuð sigling um Adríahafið á vegum Vita, verð frá kr. 529.900
Hér er um að ræða magnaða siglingu um Adríahafið með viðkomu á stöðum á borð við Feneyjar, Sikiley, Amalfíströndina, Róm, Flórens ásamt Dubrovnik í Króatíu. Nánari ferðatilhögun
Published on
Lucca er gullfallegur miðaldabær í héraðinu Toscana, umlukinn gríðarmiklum borgarmúr. Nýtískuleg borgin hefur þanist út fyrir utan borgarmúranna en fyrir innan þeirra hefur allt staðið í stað og allar byggingar, götur og torg í toppstandi. Borgarmúrarnir eru samtals 4.200 metrar að lengd, bæði breiðir og háir. Að utanverðu eru þeir hlaðnir úr múrsteini en að innanverðu eru aflíðandi grasbrekkur þar sem plantað hefur verið trjám, ein tegund á hverri hlið múrsins. Það er bæði áhugavert og ánægjulegt að ganga eftir borgarmúrunum, hringinn í kringum gömlu borgina. Þaðan er útsýnið frábært yfir borgina og áhugaverð sýn á sögulegar byggingar og fallega almenningsgarða.
Picture
Lítil umferð er innan borgarmúranna og fara íbúar Lucca mestmegnis ferða sinna á reiðhjólum, vespum eða tveimur jafnfljótum. Víða er hægt að fá að leigja reiðhjól og má segja að það sé besti ferðamátinn um borgina því á reiðhjóli er bæði hægt að skoða miðbæinn ásamt því að hjóla hringinn í kringum borgarmúrana á einum degi.
Picture
Frægasti sonur Lucca er án efa tónskáldið Giacomo Puccini. Giacomo Puccini er talinn vera eitt af höfuðtónskáldum ítölsku óperunnar en meðal frægustu verka hans er Tosca, Madame Butterfly og La Boheme. Giacomo Puccini bjó lengi í bænum Torre del Lago, rétt fyrir utan Lucca. Þar byggði hans sér fallegt hús við lítið vatn og í daghefur þar verið opnað safn tileinkað honum sem kallast Villa Puccini Museo. Ennfremur er að finna safn tileinkað Puccini inn í Lucca, í húsinu þar sem skáldið fæddist og ólst upp og heitir Puccini Museum.
Picture
Innan borgarmúranna gefur að líta fjölmargar sögulega byggingar, sumar hverjar allt frá 7. öld. Í kringum þessar götur liðast þröngar götur, sneisafullar af verslunum, galleríum, börum, kaffihúsum og veitingastöðum. Aðaltorg Lucca heita annars vegar Piazza San Martino en þar er að finna dómkirkju borgarinnar sem er frá 5. öld, Duomo di San Martino, og hins vegar Piazza dell‘Anfiteatro sem er ávalt torg sem á öldum áður á að hafa verið hringleikahús.
Picture
Lucca er falleg og heillandi borg sem býr yfir ótal áhugaverðum stöðum á sama tíma og hún er passlega lítil svo auðvelt er að komast um hana, njóta hennar og upplifa á sem bestan hátt. Þetta er ein af þessum fjölmörgu perlum í Toscana sem er svo sannarlega þess virði að heimsækja.
Published on
Ítalska borgin Pisa er kannski þekktust fyrir sinn fræga Skakka turn en þeir sem halda að hann sé það eina sem borgin hefur upp á að bjóða eru svo sannarlega á villigötum. Pisa er gullfalleg borg sem iðar af lífi og fjölbreyttu mannlífi.

Skakki turninn stendur við torg sem heitir Piazza dei Miracoli, eða Kraftaverkatorgið, en þar má einnig finna m.a. dómkirkju borgarinnar og stærstu kapellu Ítalíu. Frá Piazza dei Miracoli liggur göngugata í gegnum alla borgina sem endar í rauninni við aðal lestarstöðina. Á þessari gönguleið, sem tekur u.þ.b. 30-40 mínútur, má finna fjöldann allan af verslunum, kaffihúsum, veitingastöðum o.s.frv.

Í háskólanum í Pisa eru hvorki fleiri né færri en 60.000 manns á meðan íbúar borgarinnar telja einungis tæplega 90.000 manns. Það má segja að borgin myndi líklega ekki iða jafn mikið af lífi ef ekki væri fyrir öflugt stúdentalífið sem setur mikinn svip á borgina.

Picture
Helstu merkisstaðir borgarinnar
Piazza dei Miracoli, eða Torg kraftaverkanna, er torg torganna í Pisa. Þar er í fyrsta lagi að finna sjálfan Skakka turninn, Torre Pendente, sem hefur verið við það að leggjast á hliðina í tímanna rás, í öðru lagi hina glæsilegu dómkirkju borgarinnar, Duomo di Pisa, sem einnig er þekkt undir nafninu Primatial, í þriðja lagi stærstu kapellu Ítalíu sem einfaldlega kallast Battistero og í fjórða lagi Campo Santo sem upphaflega var reist sem kirkja sem byggð var á gömlum grafreit en hlutverk hennar átti eftir að breytast á byggingartímanum.

Piazza dei Cavalieri er lítið torg sem umlukið er sögulega mikilvægum byggingum á borð við Palazzo della Carovana, Palazzo dell‘Orologio og Chiesa di Santo Stefano.

Museo di San Matteo er glæsilegt safn sem geymir ómetanleg listaverk borgarinnar og nágrenni, allt frá miðöldum og fram á 16. öld.

Grasagarður háskólans í Pisa, Orto Botanico di Pisa, er einn sá fyrsti sinnar tegundar í Evrópu en hann var gerður árið 1544 fyrir tilstilli Cosimo de Medici. Garðurinn er opinn fyrir hádegi alla virka daga og aðgangur ókeypis.

Áin Arno rennur í gegnum borgina, líkt og hún rennur í gegnum borgirnar Empoli og Flórens. Göturnar meðfram Arno nefnast Lungarnoo Mediceo og Lungarno Pacinotti norðan megin en sunnan megin nefnast þær Lungarno Galilei og Lungarno Gambacorti. Þessar götur setja sterkan svip á borgina, sérstaklega þegar kvölda tekur og götuljósin speglast í ánni. Við þessar götur, sem saman kallast einfaldlega Lungarni, er að finna marga áhugaverða staði, t.d. torgin Piazza Garibaldi og Piazza XX Settembre, kirkjurnar Santa Maria della Spina og Santo Sepolcro.
Picture
Að versla í Pisa
Margar helstu verslunum borgarinnar er að finna á Corso Italia sem liggur frá Piazza Vittorio Emanuele II, við lestarstöðina, og lang leiðina að Piazza XX Settembre. Einnig er að finna margar verslanir við götuna Via Borgo Stretto sem liggur frá Piazza del Pozzetto, norðan megin við ánna Arno.

Áhugaverðir staðir í nágrenni Pisa
Það er nánast allt áhugavert í nágrenni Pisa þar sem borgin er staðsett í hjarta héraðsins Toskana. Í næsta nágrenni má finna borgirnar hina gullfallegu Lucca, hafnarborgina Livorno og Viareggio sem er einn vinsælasti strandbær ítölsku riveríunnar. Síðan ef maður fer örlítið lengra, en alls ekki langt, má finna borgirnar Siena með sinn vel varðveitt miðbæ, San Gimignano með alla sína fjórtán turna og svo síðast en ekki síst sjálfa Flórens.
Published on
Palio eru frægar kappreiðar sem haldnar eru tvisvar á ári í miðaldaborginni Siena í Toskana, annars vegar 2. júlí og hins vegar 16. ágúst. Kappreiðarnar eiga sér langa sögu en þær voru fyrst haldnar árið 1224. Magnaðar kappreiðar í einstöku andrúmslofti. Tíu hestar, tíu knapar og allir ríða berbakt. Sigurvegarinn hlýtur hinn eftirsótta Palio sem er gunnfáni, tileinkaður sjálfri guðsmóðurinni.
Picture
Kappreiðarnar eru haldnar á Piazza del Campo, aðaltorgi Siena og eigast við hestar og knapar frá 17 hverfum borgarinnar sem kallast á ítölsku "Le Contrade". Í hverjum kappreiðum keppa eingöngu 10 borgarhverfi af 17 en næst mæta til leik sem ekki kepptu síðast og þrjú önnur sem eru einfaldlega dregin úr hattinum. Og svo koll af kolli.
Picture
Kappreiðarnar krefjast mikils undirbúnings þar sem keppnisbrautin er þakin mold og sandi, gríðarstórar stúkur reistar og endalausar æfingar. Spennan magnast endalaust þegar líður að stóra deginum, sjálfum kappreiðunum. Kappreiðarnar standa yfir í einungis 90 sekúndur en farið er þrjá hringi á torginu. Reglurnar einfaldar; hesturinn sem fyrstur kemur í mark vinnur, algjörlega óháð því hvort knapinn sé ennþá á baki eða ekki. Lengd kappreiðanna er þar af leiðandi í hróplegu ósamræmi við allan tímann sem fór í undirbúninginn.
Picture
Kappreiðarnar hafa lengi farið fyrir brjóstið á dýraverndunarsinnum sem segja þær vera hið mesta dýraplagerí. Mögulega hafa þeir eitthvað þeir eitthvað til síns máls því það hefur þurft að fella 48 hesta frá árinu 1970 vegna meiðsla sem þeir hlutu í kappreiðunum.
Picture
Hvað sem öllu líður þá mun Palio verða haldið um ókomna tíð. Þetta er langstærsta hátíð borgarinnar þar sem íbúarnir keppa hatrammlega sín á milli en sameinast á sama tíma í stórfenglegri hátíð. Hátíðin dregur til borgarinnar óendanlegan fjölda ferðamanna og hátíðin fær umfjöllun í fjölmiðlum um allan heim. En eins og Federico Fellini sagði „You people of Siena have a precious thing and in the conflict between your districts lies the heart of your union“.

Hér fyrir neðan gefur að líta myndband frá Il Palio frá árinu 2008:
Published on
Í héraðinu Trentino-Alto Adige/Südtirol er að finna vatnið Lago di Resia sem varð til þegar stífla var byggð um miðja síðustu öld sem gerði það að verkum að tvö aðskilin vötn sameinuðust í eitt. Frægasta kennileiti Lago di Riesa er fjórtándu aldar klukknaturn, Campanile di Curon, sem hefur staðið tignarlega út í vatninu miðju síðan stíflan komst í gagnið. Á veturna þegar vatnið er ísilagt er hægt að komast alveg að turninum og má þá heyra klukkur hans hringja, algjörlega óháð þeirri staðreynd að þær voru fjarlægðar árið 1950.
Picture
Published on
Minitalia hefur tekið saman hvaða skipulögðu ferðir til Ítalíu eru í boði fyrir ferðaþyrsta Íslendinga. Látið okkur endilega vita ef í boði eru ferðir sem ekki eru á listanum. En hjá ferðaskirfstofunum í ár eru m.a. í boði ferðir til Cinque Terre og Portofino, Lago di Garda, Sikileyjar og Rómar.
Picture
23. apríl - 27. apríl 2015
Undurfagur bær við Lago di Garda á vegum Heimsferða, verð frá kr. 126.600
Gardavatn á Ítalíu er margrómað fyrir einstaka náttúrufegurð og fjölbreytni en Gardavatnið liggur í skjóli Alpanna í norðri en í suðri er Pósléttan. Dvalið í 4 nætur í hinum undurfagra bæ Malcesine við norðuausturenda vatnsins. Dvalið á Hótel Excelsior sem stendur við bakka vatnsins og í göngufæri frá miðbænum. Nánari ferðatilhögun

30. apríl – 4. maí 2015

Róm, bragðgóð skemmtun á vegum Vita, verð frá kr. 163.900
Það er kyrrð yfir þessari borg sem ku aldrei sofa, loftið er tært eftir rigningar næturinnar.  Glaðbeittir þjónar raða út borðum og stólum og kaffiilmurinn kitlar nef ferðamanna.  Róm sem hefur svo margt að geyma mun koma fólki sífellt á óvart í þessari fjögurra daga sælkeraferð. Nánari ferðatilhögun

1. júní - 6. júní 2015

Bella Ítalía, 1.-6. júní 2015, Ferðaskrifstofa  bænda, verð frá 169.900
Rómantík og ölduniður Lago Maggiore vatnsins undirstrika fegurð Ítalíu og töfra Alpafjallanna í glæsilegri sex daga ferð þar sem dekrað verður við okkur í bænum Baveno. Nánari ferðatilhögun

6. júní - 13. júni 2015

Perlur Lígúría og Toskana á vegum Úrval-Útsýn, verð frá kr. 239.500
Ítalska Rívíeran nefnist strandlengjan við Lígúríuhafið í norðvestur hluta Ítalíu. Hún er hluti af tveimur héruðum á Ítalíu, Lígúríu og Toskana sem eru margrómuð fyrir náttúrufegurð, sögu, menningu og mat. Margar af þekktustu perlum Ítalíu er að finna á þessu svæði og verður því þessi ferð að algjörri menningarveislu þegar upp er staðið. Nánari ferðatilhögun

13.júní - 20. júní 2015

Draumadvöl á Lago di Garda á vegum Úrval-Útsýn, verð frá kr. 194.600
Gardavatnið er ein þekktasta perla Norður-Ítalíu. Í skjóli Alpanna í norðri og með Pó-sléttuna fyrir sunnan liggur þetta stærsta vatn Ítalíu, umvafið fallegri náttúru, ólífutrjám, vínviði og öðrum suðrænum gróðri og einstakri stemmningu. Að rölta meðfram vatninu, kitla bragðlaukana á góðu veitingahúsi eða skella sér í siglingu til einhverra af hinum fjölbreyttu og áhugaverðu staða í nágrenninu eru aðeins örfáar ástæður fyrir því að fjöldi ferðamanna flykkist að Gardavatninu. Nánari ferðatilhögun

13.júní - 20.júní 2015

Portofino og Cinque Terre á vegum Ferðþjónustu bænda, verð frá kr. 244.400
Spennandi gönguferð um tvær af fallegustu gönguleiðunum við Miðjarðarhafið, Portofino skagann og Cinque Terre ströndina. Náttúrufegurðin er ólýsanleg. Brattir klettar og höfðar, þaktir ilmandi og litríkum miðjarðarhafsgróðri, spegla sig í túrkisbláum sjónum. Nánari ferðatilhögun

16. júní - 23. júní 2015

Gardavatnið á vegum WOW Travel, verð frá kr. 159.900
Fáir staðir á Ítalíu hafa notið jafn mikilla vinsælda og Gardavatnið (Lago di Garda), stærsta stöðuvatn Ítalíu, þar sem náttúrufegurðin er engu lík. Nánari ferðatilhögun





Fáir staðir á Ítalíu hafa notið jafn mikilla vinsælda og Gardavatnið (Lago di Garda), stærsta stöðuvatn Ítalíu, þar sem náttúrufegurðin er engu lík. Fáir staðir á Ítalíu hafa notið jafn mikilla vinsælda og Gardavatnið (Lago di Garda), stærsta stöðuvatn Ítalíu, þar sem náttúrufegurðin er
20. júní - 27. júní 2015
Dýrðardvöl við Lago Maggiore og Lago di Como á vegum Úrval-Útsýn, verð frá kr. 194.400
Þar sem Alpafjöllin teygja sig suður á Ítalíu liggja nokkur undurfögur stöðuvötn. Sum þeirra er stór, önnur minni, sum tilheyra alfarið Ítalíu, önnur eiga líka landamæri að Sviss. Í þessari fallegu ferð gefst einstakt tækifæri til að kynnast nánar þessu svæði á Norður-Ítalíu. Nánari ferðatilhögun

24.júní-1.júlí 2015

Hjólað við Gardavatn á vegum Ferðaskrifstofu bænda, verð frá kr. 224.400
Í þessari frábæru hjólaferð verður hjólað um eitt af Hjólað við Gardavatn, eitt af vinsælustu ferðamannasvæðum Suður-Evrópu. Við hjólum eftir strönd Gardavatns, um ólífulundi og vínakra, upp fjallshlíðar, um gróin svæði og furuskóga og fræðumst um flóru Alpanna. Nánari ferðatillögun

15.ágúst - 26. ágúst 2015
Róm og Amalfíströndin á vegum Ferðaskrifstofu bænda, verð frá kr. 319.900
Róm, Pompei, Sorrento, Amalfístöndin og eyjan Róm & AmalfíströndinCaprí eru sannkallaðar draumaperlur Ítalíu, en kyngimögnuð fegurð þessara staða umvefur okkur í glæsilegri ferð. Nánari ferðatillögun

19. september - 29. september 2015

Gardavatn og Feneyjar á vegum Ferðaskrifstofu bænda, verð frá kr. 219.900
Gardavatn er ótvírætt einn vinsælasti áfangastaður Gardavatn & FeneyjarÍslendinga til margra ára, enda líkti  Goethe staðnum við himnaríki á jörðu, og skyldi engan undra. Nánari ferðatillögun

5. júní - 15. október 2015
Sikiley kemur endalaust á óvart á vegum Heimsferða, verð frá kr. 199.800
Sikiley kemur á óvart með áhugaverða blöndu af öllu því helst sem ferðamenn óska sér. Samfelld 2700 ára menningarsaga, einstök náttúrufegurð, ótrúlegar fornminjar, fallegar byggingar og söfn, ásamt áhugaverðri matarmenningu og blómlegu mannlífi – allt þetta og miklu meira finnur þú á Sikiley. Nánari ferðatillögun

Picture