Published on
Nú eru eflaust margir að skipuleggja draumaferðina sína til Ítalíu í sumar og því ástæða til að athuga hvaða möguleika maður hefur til að komast til fyrirheitna landsins. Það eru í rauninni þrjár leiðir sem hægt er að velja um, þ.e. beint flug, tengiflug með sama flugfélaginu eða finna flug með tveimur flugfélögum:
Picture
Með beinu flugi
Í sumar munu bæði íslensku flugfélögin, Wow Air og Icelandair, fljúga þrisvar í viku til Mílanó. Wow Air mun að auki fljúga einu sinni í viku til Rómar en auk þess mun flugfélagið Vueling fljúga tvisvar í viku til Rómar í sumar.

Með tengiflugi með sama flugfélagi
Það er góður kostur að taka tengiflug með sama flugfélaginu alla leið til Ítalíu, tryggja sig þar með fyrir seinkunum og þurfa því ekki að kaupa nýjan miða ef maður missir af tengifluginu. Endilega kíkið á heimasíður erlendu flugfélaganna, t.d. Vueling eða Airberlin, og finnið hagstætt flug alla leið til ykkar áfangastaðar á Ítalíu. Oft er hægt að finna mun fleiri áfangastaði á Ítalíu með þessu mót en íslensku flugfélögin fljúga til í beinu flugi.

Með tengiflug með tveimur flugfélögum
Að lokum er hægt að kaupa hagstæðasta flugið, t.d. til London, og fljúga svo þaðan áfram til Ítalíu, t.d. Ryan Air og Easy Jet. Endilega gerið ráð fyrir seinkunum því ef þið missið af tengifluginu þurfið þið sjálf að kaupa nýjan miða til að komast á áfangastað.
Published on
ítalir eru frægir fyrir að tala með höndunum og eiginlega öllum líkamanum. Það er bara ekki spurning hvað þú segir heldur hvernig þú segir það, hvernig svipbrigði þín eru og líkamstjáning. Hérna er skemmtilegt og fróðlegt myndband þar sem Carlo Aurucci fer í gegnum allar þessar handahreyfingar og segja okkur hvað þær þýða. 
Published on
Viareggio er vinsæll strandbær sem þekur stóran hluta af riveríunni í Toscana sem gengur undir nafninu Versilia. Viareggio er ekki þessi týpíski strandbær með örfá íbúa heldur er hér um að ræða pínulitla borg þar sem búa 65.000 manns. Viareggio er einn frægasti strandbær Toscana og hefur lengi verið óhemju vinsæll áfangastaður, bæði af ítölum sem og erlendum ferðamönnum. Viareggio er sumardvalarstaður eins og Ítalir vilja hafa þá, þ.e. frábærar strandir, gott veður og flottir veitingastaðir. Allt til alls.
Picture
Glæsileg strandgata í gegnum bæinn endilangan
Eftir endilöngum bænum liggur 3 kílómetra löng strandgata, Promenade, þar sem hægt er að finna endalaust úrval af hótelum, veitingastöðum, börum, næturklúbbum, verslunum, kvikmyndahúsum, leikhúsum og listagalleríum. Flott stemming og mikið til að upplifa, á nóttu sem á degi. Gaman er að fá sér góða „passeggiata“ (á ítölsku: göngutúr) á kvöldin og upplifa fjölbreytt mannlífið.
Picture
Frábærir sjávarréttastaðir
Það gott að fara út að borða í Viareggio, mikið úrval af veitingastöðum og klassinn yfirleitt hár. Það má sérstaklega mæla með veitingastöðum sem bjóða upp á frábæra rétti úr fersku sjávarfangi beint úr Miðjarðarhafinu, t.d.  úr skelfisk, kolkrabba, smokkfisk, rækjum og svona mætti lengi telja. Ég rambaði fyrir tilviljun inn á lítinn stað fyrir mörgum árum og pantaði mér þann fræga rétt, Spaghetti alle vongole. Ég hef hvorki fyrr né síðar bragðað þennan rétt betri en einmitt þetta kvöld í Viareggio.

Carnevale di Viareggio
Í febrúar og mars á hverju ári síðan 1870 hefur verið haldið eitt stærsta og frægasta karnival veraldar í Viareggio, þ.e. Carnevale di Viareggio. Karnivalið á sér að sjálfsögðu stað eftir allri strandgötunni og stendur yfir í fimm helgar og kemur fólk hvaðanæva að til að fylgjast með herlegheitunum. Risastórar fígúrur, litríkir búningar og endalaus gleði einkennir bæinn á meðan karnivalið stendur yfir. Hérna er myndband frá Carnevale di Viareggio 2014.
Stutt í margar af perlur Toscana
Viareggio er virkilega vel staðsett og stutt í margar af fallegustu borgum Toscana, t.d. eru rúmlega 20 km til Pisa, 20 km til Lucca, 42 km til La Spezia og 80 km til Flórens. Ennfremur er tilvalið að leigja sér hjól og hjóla um nærliggjandi skólendi og fyrir þá sem vilja enn meiri áreynslu er hægt að hjóla eða ganga upp í hlíðar Alpi Apuane, sem myndu kallast á íslensku Apuane-alparnir, en þar er að finna mörg falleg miðaldaþorp sem vert er að skoða.

Að komast til Viareggio
Það er þægilegast fyrir hinn íslenska ferðamann að fljúga í beinu flugi til Mílanó með Wow air eða Icelandair og þaðan til Viareggio með bílaleigubíl eða lest en vegalengdin frá Mílanó til Viareggio er rúmlega 200 km. Að auki er hægt að fljúga til London með Wow Air eða Icelandair og þaðan til Pisa með Ryan Air eða Easy Jet en frá Pisa til Viareggio eru u.þ.b. 20 km.
Published on
Hérna er myndband  frá New York Times sem sýnir margt af því besta sem Mílanó, borgin mín, hefur upp á að bjóða. Það er einhvern veginn allt að gerast í þessari borg, allt á fullu, en á sama tíma er hún svo afslöppuð og notaleg.

Það er sérstaklega áhugavert að ferðast til Mílanó í ár þar sem borgin er gestgjafi heimssýningarinnar World Expo 2015 og bæði Icelandair og WOW air munu halda uppi áætlunarferðum til borgarinnar í allt sumar.
Published on
Þar sem Alparnir teygja sig suður til Ítalíu kúra ítölsku vötnin í allri sinni dýrð milli fjallanna og fegurðin er engu lík. Sum vatnanna eru stór, önnur minni, sum tilheyra alfarið Ítalíu en önnur eiga að auki landamæri að Sviss. Ítölsku vötnin hafa haft mikið aðdráttarafl hjá ferðamönnum og má segja að þau séu meðal vinsælustu ferðamannastaða landsins. Ítölsku vötnin eru paradís fyrir göngu-, hjólreiða- og útivistarfólk með endalausum útivistarmöguleikum í gríðarlega fallegri náttúru.  Þekktustu vötnin eru Lago di Garda, Lago di Como, Lago Maggiore, Lago di Lugano, Lago d‘Iseo og Lago d‘Idro og liggja þau frá landamærum Lombardia og Piemonte í vestri að landamærum Lombardia og Veneto í austri.
Lago Maggiore
Ef við byrjum lengst í vestri þá er fyrst að nefna Lago Maggiore sem er 213 ferkílómetrar að stærð sem gerir það næststærst af ítölsku vötnunum. Lago Maggiore er langt og mjótt en það er tæplega 65  kílómetrar að lengd og 3-5 kílómetra breitt nema á milli bæjanna Pallanza og Stresa þar sem það er 10 kílómetrar á breidd. Efsti hluti vatnsins tilheyrir Sviss en landamæri ítölsku héraðanna Lombardia og Piemonte liggja upp eftir vatninu. Það eru margar gulfallegar eyjar í vatninu, t.d. Isola Superiore, Isola Madre, Isola Bella, Isola San Giovanni og eyjarnar Sant Apolinare og Isole di Brissago sem tilheyra Sviss.
Picture
Lago di Lugano
Næst í austur er Lago di Lugano sem er nefnt eftir bænum Lugano sem stendur við vatnið hinum megin við svissnesku landamærin. Lago di Lugano er mun minna en Lago Maggiore, aðeins 49 ferkílómetrar að stærð, en einungis 37% af vatninu tilheyrir Ítalíu en 63% af því tilheyrir Sviss.
Picture
Lago di Como
Svo er röðin komin að Lago di Como sem er 146 ferkílómetrar að stærð, þriðja stærst af ítölsku vötnunum. Lago di Como er af mörgum talið það fallegasta af þeim og margir vilja meina að það sé það fallegasta í Evrópu. Það er óendanlega djúpt, hvorki meira né minna en 400 metrar og er talið að botn þess liggi 200 metrar undir sjávarmáli.

Lago di Como er umkringt húsum ríka fólksins, vínekrum og skrautgörðum en vatnið hefur verið vinsælt meðal þeirra ríku og frægu allt frá tímum rómverja og í dag á margt frægt fólk glæsihýsi við vatnið, t.d. George Clooney, Richard Branson, Madonna, Julian Lennon og Sylvester Stallone.
Picture
Lago d‘Iseo
Þá er röðin komin að fjórða stærsta vatninu, Lago d‘Iseo, sem er rúmlega 65 ferkílómetrar að stærð. Á Lago d‘Iseo er að finna stóra eyja sem kallast Monte Isola og tvær minni sem eru í einkaeigu, Isola di San Paolo og Isola di Loreto. Þrátt fyrir að vatnið sé staðsett á miklu iðnaðarsvæði milli borganna Bergamo og Brescia þá er umhverfið í kringum það gríðarlega fallegt og tilkomumikið.
Picture
Lago d‘Idro
Örlítið austar er að finna vatnið Lago d‘Idro sem er einungis tæplega 12 ferkílómetrar að stærð og liggur í um 370 metra hæð yfir sjávarmáli. Lago d‘Idro er fallegt vatn, umlukið tignarlegum fjöllum sem eru skógivaxin upp í hæstu toppa.
Picture
Published on
Ítalía er einkennist af mikilli náttúrufegurð, sögu og endalausri fjölbreytni. Rakst á áhugavert myndband þar sem brugðið er upp svipmyndum frá öllum héruðum landsins, allt frá ölpunum í norðri, niður eftir appeníuskaganum og sem leið liggur allt suður til Sikileyjar. Njótið!!!
Picture