Published on
Cinque Terre er nafn á fimm þorpum við ströndina vestur af La Spezia. Þorpin fimm bera nöfnin Monterosso al Mare, Vernazza, Corniglia, Manarola og Riomaggiore. Íbúar þorpanna munu vera samtals í kringum 6000 sem flestir starfa við ferðaþjónustu og víngerð þó einhverjir sæki atvinnu til nágrannaborganna La Spezia og Genúa.
 
Þetta einstaka svæði var gert að þjóðgarði árið 1999 og er ennfremur á heimsminjaskrá UNESCO vegna einstakra menningarminja um líf fyrr á öldum sem einkenndist af fiskveiðum og vínrækt. Þorpin eru byggð í bröttum fjallshlíðum, bílar eru ekki leyfðir en það gengur lest í gegnum þorpin á milli Genoa og La Spezia. Að auki siglir ferja á milli allra þorpanna nema Corniglia en hægt er að taka ferjuna frá gömlu höfninni í Genoa, La Spezia, Lerici eða Portovenere.
 
Svæðið býr yfir óviðjafnanlegri náttúrufegurð, menningu og sögu. Þorpin virðast hanga utan í hlíðunum við ströndina, fallegar hafnir með litskrúðugum fiskibátum og þröngum götum mynda dásamlega stemmingu. Á milli þorpanna liggur fjöldi göngustíga, ýmist um þverhníptar klettanasir eða um iðagrænar og ávalar hæðir sem þekktar eru vínviði og ólífutrjám.
 
ÞORPIN FIMM, HVERT ÖÐRU FALLEGRA
Þorpin fimm sem tilheyra Cinque Terre eru Monterosso al Mare, Vernazza, Corniglia, Manarola og Riomaggiore en auk þess tilheyra þorpin Groppo, Volastra og Sa Bernadino þessu dásamlega landsvæði. Hér verður fjallað um þess fimm helstu þorp Cinque Terre, þótt einungis verði stiklað á stóru.
Picture
Monterosso al Mare
Þorpið Monterosso al Mare skiptist í tvo hluta, þ.e. gamla bæinn og nýja bæinn. Gamli bærinn er lítill og fallegur með öllum sínum þröngu og heillandi götum en nýji bærinn býr eðlilega ekki yfir sömu töfrum. Í Monterosso al Mare er að finna fallegustu ströndina þar sem er dásamlegt að sleikja sólina og njóta lífisins en heillandi sandströndin nær nánast þorpið á enda.
Picture
Vernazza
Vernazza er að margra mati sá fallegasti bærinn af þeim sem tilheyra Cinque Terre. Vernazza er eini bærinn sem býr yfir náttúrulegri höfn sem varð það til þess að hann varð fljótt bæði mikilvægasti og ríkasti bærinn á svæðinu. Vernazza er gullfallegur bær sem liggur bratt upp frá höfninni með pínulítilli strönd og litríkum byggingum. Hafnartorgið er hjartað í bænum og þar getur stemmingin verið stórkostleg og á heitum sumardögum má sjá fólk synda um á milli litskrúðugra bátanna í höfninni.
Picture
Corniglia
Corniglia sker sig úr að því að hann er hvorki staðsettur í snarbröttum hlíðum né liggur að sjó. Hann er meira í við hefðbundið ítalskt þorp með dásamlegt útsýni til hafs þar sem bærinn stendur hátt og getur maður hreinlega gleymst sér í aðdáun sinni yfir því sem fyrir augun ber.
Picture
Manarola
Manarola er gullfallegur bær sem svipar að nokkru leyti til Vernazza, óvenjulega myndrænn bær sem margir telja að sé sá allra frægasti í Cinque Terre. Bærinn liggur í snarbrötttum hlíðum upp frá sjó, engin náttúruleg höfn til staðar og ströndin virkilega klettótt. Manarola er frægt fyrir sitt sæta hvítvín, Sciacchetrà,  sem er gulleitt og nokkuð þykkt, framleitt úr sérvöldum þrúgum sem látnar eru liggja á trégrindum í sólinni í 15-30 daga en þess má geta að það er áhugavert safn í bænum sem er tileinkað þessum drykk.
Picture
Riomaggiore
Riomaggiore er stærst af þorpunum fimm og leikur oft á tíðum hlutverk höfuðstöðvar hjá ferðamönnum sem heimsækja Cinque Terre. Aðalgata þorpsins heitir Via Colombo en þar sem er að finna úrval af veitingastöðum, börum og verslunum. Riomaggiore heitir eftir ánni sem rann niður gljúfrið þar sem þorpið stendur í dag. Áin er aftur á móti hvergi sjáanleg þar sem hún rennur undir þorpinu, sem aldrei fyrr.
 
SENTIERO AZZURRO EÐA BLÁI STÍGURINN
Stígurinn á milli þorpanna fimm er þekktur undir nafninu Sentiero Azzuro, þ.e. Blái stígurinn. Stígurinn er 10 kílómetra langur, hækkunin á leiðinni er 600 metrar og það tekur u.þ.b. 5 klst. að ganga leiðina. Sá hluti leiðarinnar sem liggur á milli Riomaggiore og Manarola er kallaður Via dell’Amore eða Vegur ástarinnar og er allt frá því að vera létt upp í að vera mjög erfið yfirferðar. Léttasti hluti leiðarinnar liggur á milli Manarola og Corniglia þó síðasti hluti leiðarinnar séu krefjandi 386 þrep. Þó það sé bratt á milli Cornilgia og Vernazza á vissum stöðum þá er svo sannarlega brattast á milli Vernazza og Monterosso al Mare. Þetta eru fallegar gönguleiðir sem liggja bæði um þverhníptar klettanasir eða iðagrænar og ávalar hæðir sem þaktar eru vínviði og ólífutrjám.
 
Í HNOTSKURN
Cinque Terre, eða löndin fimm, er stórfenglegt landsvæði með óendanlega fallegum þorpum með iðandi mannlífi sem gerir mann gjörsamlega orðlausan.
Published on
San Remo er lítil borg með rétt um 57.000 íbúa, staðsett á ítölsku rivíerunni við Miðjarðarhafið, nánar tiltekið í héraðinu Lígúría. San Remo er vinsæll ferðamannastaður á ítölsku rivíerunni, einungis 38 kílómetrum frá landmærunum við Frakkland. Borgin gengur iðulega undir nafninu „Blómaborgin“ þar sem borgin er stór alþjóðlegur blómaframleiðandi. Í borginni má finna hið fræga spilavíti, Casino San Remo, ásamt því að borgin er þekkt fyrir að vera gestgjafar stærstu tónlistarhátíðar Ítalíu og lengstu hjólreiðakeppni heimi, Milano-San Remo, sem fer öll fram á einungis einum degi.
Picture
Casino San Remo
Borgin er þekkt fyrir sitt heimsfræga spilavíti sem kallast einfaldlega Casino San Remo. San Remo er í hugum margra Ítala þeirra eigin Mónakó. Spilavítið hefur verið starfrækt allt frá árinu 1905 í mikilfenglegri byggingu í „Art Nuoveau“ stíl.

Festivale della canzone Italiana di Sanremo
Borgin er líka fræg fyrir sína árlegu tónlistarhátíð, Festivale della canzone italiana di Sanremo, sem fyrst var haldin í borginni árið 1951. Hátíðin hefur verið mikilvægur liður í ítölsku tónlistarlífi en margar af helstu stjörnu Ítalíu slógu í gegn í kjölfar þátttöku sinnar á hátíðinni, t.d. Andrea Bocelli, Laura Pausini og Eros Ramazzotti. En þess má geta að sigurvegari hvers árs tekur þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fyrir hönd Ítalíu.

Milano-San Remod
Hjólreiðakeppnin Milano-San Remo, gengur oft undir nafninðu La Classicissima, hefur verið haldin ár hvert, allt frá árinu 1905. Lagt er af stað frá borginni Mílanó og brunað sem leið liggur til San Remo, alls 298 kílómetrar sem gerir keppnina að þeirri lengstu í heimi sem öll fer fram á einum degi.
San Remo er í hnotskurn líflegur ferðamannastaður með miklu úrvali af veitingastöðum og skemmtistöðum sem opnir eru langt fram á nótt.
Published on
Genóa er sögufræg hafnarborg við Miðjarðarhafið, höfuðborg héraðsins Lígúría, með tæplega 600 þúsund íbúa. Borgin er löng, mjó og liðast í 30 kílómetra eftir ítölsku ríveríunni. Genóa, sem áfangastaður fyrir ferðamenn, hefur oft og iðulega verið í skugganum af borgum eins og Feneyjum og Róm þrátt fyrir glæsilega sögu, áhrifamikil kennileiti og mikla menningararfleið. Borgin hefur lengi verið kölluð „La Superba“, eða sú stolta, vegna sinnar ríku arfleiðar og glæsilegu sögu.

Genóa myndar ásamt borgunum Mílanó og Tórínó hinn svokallaða iðnaðarþríhyrning sem er eitt allra mikilvægasta iðnaðarsvæði Ítalíu og eru þar að finna mörg af stærstu fyrirtækjum landsins.
Picture
Stór hluti af gamla bænum í Genóa var settur á heimsminjaskrá UNESCO árið 2006. En þetta er stærsti borgarhluti í Evrópu sem varðveist hefur frá miðöldum. Þessi gamli borgarhluti einkennist af þröngum götum sem kallast „carruggi“ en það er svo sannarlega þess virði að þræða þessar götur, fylgjast með mannlífinu og upplifa stemminguna. Maður uppgötvar endalaust lítinn fjársjóð á bak við næsta horn, hvert einasta horn.

Genóa er mikil menningarborg, framarlega á sviði lista, tónlistar og matargerðar, og varð borgin m.a. þess heiðurs aðnjótandi að vera menningarborg Evrópu árið 2004. En Genóa er fæðingarstaður manna á borð við Christopher Columbus og Niccolo Paganini.
Helstu merkisstaðir borgarinnar
Torgið Piazza De Ferrari er staðsett í hjarta borgarinnar með glæsilegum gosbrunni á miðju torginu.

Eitt frægasta kennileiti borgarinnar er vitinn La Lanterna sem gnæfir yfir borgina. Lanterna var talinn hæsti viti í heimi frá byggingu hans árið 1543 og allt til ársins 1902.

Carruggi kallast hinar fjölmörgu þröngu götur sem einkenna gamla borgarhlutann. Það er mikil upplifun að þræða þessar götur og anda að sér stemmingu liðinna alda.

Boccadasse er lítið fiskiþorp í útjaðri borgarinnar sem þekkt er fyrir sína litskrúðugu fiskibáta og áhugavert mannlíf.

Gamla hertogahöllin, Palazzo Ducale, var eitt sinn heimili hertogans af Genóa en hýsir í dag listasafn og ýmis konar menningarviðburði.

Sædýrasafnið í Genóa, Acquarium di Genova, er eitt það allra glæsilegasta í allri Evrópu. Það er staðsett við gömlu höfnina sem nú hefur verið endurgerð frá grunni. Safnið er yfir 3.100 fermetrar að flatarmáli og koma þangað meira en 1,2 milljónir gesta á hverju ári.

Í Genóa eru hvorki fleiri né færri en 42 hallir, staðsettar í borginni, sem ganga undir nafninu Palazzi dei Rolli. Ef þið ætlið einungis að skoða eina af þessum höllum þá ætti Palazzo Reale að verða fyrir valinu.

Í borginni eru ennfremur að finna fjölmargar kirkjur sem vert er að skoða, t.d. Cattedrale di San Lorenzo, Santa Maria Assunta, Santa Maria di Castello og Chiesa di Sant‘Agostino.

Helstu söfn borgarinnar
Musei di Strada Nuova er eitt safn sem staðsett er í þremur höllum, þ.e. Palazzo Rosso, Palazzo Bianco og Palazzo Tursi.

Museo di Villa Croce er samtímalistasafn þar sem er að finna yfir 3.000 málverk frá tímabilinu 1939-1980.
Áhugaverðir staðir í nágrenni borgarinnar
Í nágrenni við Genóa er að finna stórkostlega strandbæi á borð við Camogli, Portofino, Santa Margherita Ligure, Rapallo, Sestri Levante og síðast en ekki síst hið fræga og stórkostlega fjallasvæði Cinque Terre.
Published on
Mílanó er nútímalegasta borg Ítalíu, að margra mati táknmynd fyrir hina nýju Ítalíu. Þeirri Ítalíu sem er á fljúgandi ferð út úr gömlum viðjum, tekur opnum örmum á móti nýjum hugmyndum og grípur öll tækifæri sem gefast til framþróunar. Það er einhvern veginn allt að gerast í borginni og allt á fullri ferð en á sama tíma er hún svo afslöppuð og notaleg.
Picture
Mílanó er mikilvægasta iðnaðar- og viðskiptaborg Ítalíu ásamt því að vera fjármálamiðstöð landsins en í borginni er að finna höfuðstöðvar stærstu banka og fyrirtækja landsins. Mílanó er ein af þremur helstu tískuborgum veraldar ásamt því að vera í fararbroddi á sviði húsbúnaðar- og húsgagnahönnunar. Í borginni eru haldnar tískuvikur nokkrum sinnum á hverju ári ásamt fjölmörgum risastórum sýningum á sviði húsbúnaðar- og húsgagnahönnunar.
Picture
Í Mílanó er ennfremur að finna glæsileg söfn og heimsfrægar byggingar, leikhús og óperuhús, styttur og listaverk. Það er engin tilviljun að yfir 6 milljónir ferðamanna heimsækja borgina á hverju ári því það er einfaldlega upplifun að ganga um verslunargötur á borð við Via Montenapoleone og Via della Spiga; skoða vöruúrvalið, fólkið og jafnvel bílana. Dómkirkjan er líka mikilfengleg og mannlífið fjölbreytt á dómkirkjutorginu. Eftir góðan dag í Parco Sempione, stærsta almenningsgarði borgarinnar, er vel þess virði að kíkja á hönnunarsafnið Triennale sem stendur við jaðar hans. Síðan er náttúrulega skylda fyrir hvern einasta unnanda góðrar knattspyrnu að kíkja á San Síró og upplifa hörkuslag milli nágrannanna í AC Milan og Inter Mílanó.

Mílanó er lifandi og skemmtileg borg sem hefur endalaust margt að bjóða fyirr öll skilningarvitin.
Mílanó í hnotskurn
Mílanó er næst fjölmennasta borg Ítalíu á eftir Róm en Mílanó hefur stækkað mikið á undanförnum árum og áratugum. Þrátt fyrir það að það búi eingöngu 1,3 milljónir manna í borginni sjálfri þá búa rúmlega 4,6 milljónir manna á borgarsvæði hennar (metropolitan area).

Mílanó er nútímalegasta borg Ítalíu, að margra mati táknmynd fyrir hina nýju Ítalíu. Þeirri Ítalíu sem er á fljúgandi ferð út úr gömlum viðjum, tekur opnum örmum á móti nýjum hugmyndum og grípur öll tækifæri sem gefast til framþróunar. Það er einhvern veginn allt að gerast í borginni og allt á fullri ferð en á sama tíma er hún svo afslöppuð og notaleg.
Að komast til og frá Mílanó
Það tilheyra borginni tveir alþjóðlegir flugvellir, annars vegar Malpensa og hins vegar Linate, og ennfremur er oft flogið til Orio al Serio sem er staðsettur í Bergamo, ca. 45 km austur af Mílanó. Meira
Að komast um Mílanó
Það er auðvelt að komast um borgina skjótan og öruggan hátt, þökk sé þéttriðnu kerfi neðanjarðarlesta, sporvagna, strætisvagna og leigubíla sem rekið er af fyrirtækinu ATM. Á heimasíðu þess er hægt að fá allar upplýsingar um tímatöflur og leiðakerfið. Meira
Að fá sér að snæða í Mílanóborg
Það er gott að fara út að borða í Mílanó, mikið og fjölbreytt framboð af veitingastöðum, kaffihúsum og börum. En að sjálfsögðu eru staðirnir mismunandi góðir og verðlagið upp og niður allan skalann. Langflestir af veitingastöðum borgarinnar bjóða upp á hið ítalska eldhús en að sjálfsögðu er líka að finna veitingastaði í borginni frá öllum heimshornum. Meira
Að versla í Mílanóborg
Það er ekki tilviljun að Mílanó sé talin vera ein af helstu tískuborgum veraldar. Þar er endalaust úrval af guðdómlega fallegum verslunum, gríðarstórar tískuvikur haldnar nokkrum sinnum á ári og áttavilltar fyrirsætur á hverju strái. Meira
Að kíkja á söfn í Mílanó
Það er alveg þess virði að kíkja á nokkur söfn í Mílanóborg, hún er kannski engin Flórens eða Róm en þar má samt finna mörg söfn í háum gæðaflokki. Meira
Að kíkja út á lífið í Mílanóborg
Það er margt í boði þegar kemur að næturlífi í Mílanó og allir geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi, hvort sem maður ætlar að kíkja í eitt glas á rólegum bar eða dansa undir dúndrandi takti fram á rauða nótt. Meira
Áhugaverðir staðir í nágrenni Mílanó
Það er stutt í svo ótal margt frá Mílanó, hvort sem við erum að tala um falleg vötn, fallegar borgir eða eitthvað allta annað. Meira
Published on
Kjartan Sturluson, ritstjóri MINITALIA, hefur sett saman lista yfir sjö uppáhaldsstaðina sína á Ítalíu. Þetta eru borgir, strandlengja, vatn, eyjar og meira að segja eitt hérað í heild sinni. Þetta eru hans uppáhaldsstaðir á Ítalíu en hverjir eru þínir?

1. Mílanó - nútímaleg en á sama tíma svo afslöppuð
Ég hef búið í þrígang í borginni Mílanó og er hún einfaldlega borgin mín. Það er einhvern veginn allt að gerast í borginni og allt á fullri ferð en á sama tíma er hún svo afslöppuð og notaleg. Það er upplifun að ganga um verslunargötur á borð við Via Montenapoleone og Via della Spiga; skoða vöruúrvalið, fólkið og jafnvel bílana. Dómkirkjan er mikilfengleg og mannlífið fjölbreytt á dómkirkjutorginu. Mannlífið er líka fjölbreytt við Naviglio Grande en þar er að finna endalaust úrval af veitingastöðum, t.d. mæli ég með Officina 12, La Fabbrica og Pizzeria Premiata. Eftir góðan dag í Parco Sempione, stærsta almenningsgarði borgarinnar, er vel þess virði að kíkja á hönnunarsafnið Triennale sem stendur við jaðar hans. Síðan er náttúrulega skylda fyrir hvern einasta unnanda góðrar knattspyrnu að kíkja á San Síró upplifa góðan nágrannaslag milli AC Milan og Inter Mílanó.
Picture
2. Róm - borgin eilífa
Það er mikil upplifun að koma til “borgarinnar eilífu”, sjálfrar Rómar. Allar leiðir liggja til Rómar segir málshátturinn. Það stenst engin borg samanburð við Róm þegar kemur að sögufrægum stöðum og byggingum líkt og Péturskirkjuna, Vatíkanið, Sixtínsku kapelluna, Foro Romano, Coloesseum, Pantheon og Piazza Navona svo fátt eitt sé nefnt. Ég mæli líka sérstaklega með hverfinu Trastevere sem er virkilega heillandi með sínar þröngu götur sem geyma fjölmarga bari og veitingastaði.
Picture
3. Toscana - endalaus uppspretta alls þess besta
Toscana er stórkostleg, hvernig sem litið er á héraðið. Þar er að finna borgir á borð við Flórens með öll sín söfn og sögufrægu byggingar, Siena sem á miðöldum barðist við Flórens um völdin í héraðinu, Lucca með sína virkisveggi ásamt Pisa með sinn fræga skakka turn. Toscana er eitt allra frægasta vínræktarhérað landsins og eru Chianti, Montalicino, Bolgheri, Montepulciano og Maremma helstu svæðin. Óteljandi fjöldi víngerðarhúsa bjóða upp á skoðunarferðir og jafnvel gistingu og hefur víngerðarhúsið Castello Banfi verið að mörgu leyti í fararbroddi á þessu sviði. Svo ef menn vilja bregða undir sig líflega fætinum er náttúrulega hægt að kíkja í strandbæi á borð við Viareggio og Forti dei Marmi.
Picture
4. Ítalska ríverían - dásamlegir strandbæjar, fullir af sjarma
Liguria er þekkt sem ítalska riverían vegna fjölmargra strandbæja sem þekja strandlengjuna beggja vegna við Genóa. Strandlengjan vestan við Genóa kallast Riveria di Ponente en strandlengjan sem liggur í austur frá Genóa kallast Riveria di Levante. Það er sérstaklega skemmtilegt að þræða þann hluta sem kallast Riveria di Levante og upplifa fallega strandbæi á borð við Camogli, Portofino, Santa Margherita Ligure, Rapallo, Sestri Levante og síðast en ekki síst hið fræga og stórkostlega fjallasvæði Cinque Terre.
Picture
5. Feneyjar - stórbrotin borg sem sígur hægt og hljótt
Feneyjar eru stórbrotnar í allri sinni fegurð. Það er hrein upplifun að sigla niður Canale Grande og virða fyrir sér stórhýsi og glæsihallir liðinna tíma, kíkja í kaffi á eitt af aldagömlu kaffihúsunum við Markúsartorg og dást að stórfenglegum byggingum á borð við Markúsarkirkju, Hertogahöllina og klukkuturninn Il Campanile. Ég mæli með að fara til Feneyja að vori eða hausti en forðast þennan svokallaða háannatíma. Sneiðið hjá dagsferðum og bókið eina til tvær nætur á litlu sjarmerandi hóteli í hliðargötu. Njótið sólarupprásar og sólarlags á þessum stórfenglega stað.
Picture
6. Lago Maggiore - þvílík náttúrufegurð
Lago Maggiore, skiptist á milli héraðanna Piemonte og Lombardia og er austurbakkinn í Piemonte en vesturbakkinn í Lombardia. Á austurbakkanum má finna bæi á borð við Stresa og Verbania og ennfremur eyjurnar Isole Borromee sem samanstanda af nokkrum eyjum, þ.e. Isola Bella, Isola Madre,Isola dei Pescatori og Isolino di San Giovanni. Lago Maggiore er rétti staðurinn til að upplifa stórfenglega náttúrufegurð með endalausum útivistarmöguleikum, hvort sem maður vill hjóla, sigla, hlaupa, fara á seglbretti eða sjóskíði, gönguferðir eða einungis endurnærast við sundlaugarbakkann.
Picture
7. Tórínó og nágrenni - stórkostlegir kastalar og mögnuð vín
Í Tórínó og víðar í héraðinu Piemonte er að finna söguleg heimkynni Savoy-fjölskyldunnar, fyrrum valdhafa landsins, sem skildu eftir sig stórkostlegar hallir og kastala frá miðöldum sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. Í því samhengi má t.d. nefna hallirnar Palazzo Reale, Palazzo Carignano og Palazzo Madama og kastalann Castello del Valentino. Í borginni er ennfremur að finna knattspyrnufélagið Juventus og er alveg þess virði að kíkja á spánýjan heimavöll félagsins, sérstaklega þar sem það eru allir smá Juventini inn við beinið. Og fyrst maður er kominn til Tórínó á annað borð þá er tilvalið að heimsækja bæi á borð við Barolo, Barbaresco, Asti og Alba en þar eru framleidd mörg af bestu rauðvínum landsins úr þrúgum á borð við nebbiolo og barbera.
Picture
Published on
San Gimignano er falleg miðaldaborg í hjarta Toskana, mitt á milli borganna Siena og Flórens. San Gimignano er borg sem hefur varðveist virkilega vel og er miðbær hennar á heimsminjaskrá UNESCO. Borgin er það lítil að auðvelt er að skoða hana á einum degi  en íbúar borgarinnar telja einungis tæplega 8.000 manns. Það er þó svo sannarlega þess virði að dveljast lengur í San Gimignano, ganga um þröngar götur borgarinnar og upplifa stemmingu og andrúmsloft löngu liðinna tíma.
Picture
San Gimignano er fræg fyrir sína háu og fallegu turna sem gefa henni sitt einkennandi útlit. Í lok miðalda voru þessir turnar hvorki fleiri né færri en 72 en einungis 14 hafa varðveist til dagsins í dag. En þessir turnar voru byggðir af ríkustu fjölskyldum borgarinnar sem merki um völd þeirra og ríkidæmi. Þetta var svolítil keppni á milli fjölskyldna í þeirri viðleitni að sýnast vera ríkari, stærri og valdameiri en hinar fjölskyldurnar.
Picture
Helstu merkisstaðir borgarinnar
Piazza del Duomo er dómkrikjutorg borgarinnar sem umkringt er þúsund ára gömlum turnum.

Piazza della Cisterna er aðaltorg borgarinnar. Þetta er gullfallegt torg, umkringt glæsilegum miðaldabyggingum með fornum steinbrunni á miðju torginu. Þess má geta að á torginu er alltaf útimarkaður á fimmtudögum.

Porta San Giovanni er annað af tveimur fornum borgarhliðum San Gimignano en þar gott að leggja bílnum ef komið er keyrandi.

Pinacoteca Civica er lítið en gullfallegt listasafn er vel þess að skoða.

Torre Grossa er hæsti turn borgarinnar en hann er 54 metrar á hæð og er að finna á dómkirkjutorginu, Piazza del Duomo.
Í lokin má ekki gleyma þeirri staðreynd að í nágrenni San Gimignano eru framleidd virkilega góð hvítvín úr þrúgunni Vernaccia sem henta m.a. vel með forréttum og ýmsum fiskréttum.
Published on
Bergamo er heillandi borg, staðsett við rætur ítölsku alpanna í héraðinu Lombardía. Íbúar borgarinnar telja í kringum 120.000 sem gerir hana að fjórðu stærstu borg héraðsins.  Borgin skiptist í tvo hluta, annars vegar gamla hlutann sem kallast „città alta“ og hins vegar nýja hlutann sem kallast „città bassa“.
Picture
„Città alta“
„Città alta“ er gamli hluti borgarinnar sem er umlukin borgarmúr sem reistur var á 16. öld. Það er virkilega gaman að ganga um þröngar götur gamla bæjarins, skoða litlar sérverslanir,  og upplifa stemminguna. Það er upplifun að ganga eftir borgarmúrunum og virða fyrir sér stórkostlegt útsýni yfir héraðið Lombardia. Fasteignaverð í „Città alta“ er með því hæsta sem fyrirfinnst á Ítalíu en fermetraverðið í gamla bænum er frá 750.000 krónum  og allt í 1.800.000 króna.
Picture
„Città bassa”
Nýi borgarhluti Bergamo kallast „Città bassa” en sá hluti borgarinnar skilgreinist sem nútímalegi hluti hennar. Þessi hluti borgarinnar varð til þegar byrjað var að reisa byggingar meðfram helstu leiðunum inn í borgina og með tímanum urðu til borgarhverfi sem nú hafa orðið þeim hluta sem í dag kallast „Città bassa” Helstu hverfin heita Borgo Palazzo sem myndaðist í kringum leiðina til Brescia, Borgo San Leonardo myndaðist meðfram leiðinni til Mílanó og Borgo Santa Caterina myndaðist meðfram leiðinni til Valle Seriana.
Picture
Áhugaverðir staðir
Torgið Piazza Vecchia er hjartað í gamla bænum, „Città alta“. Gullfallegt torg, umkringt fallegum byggingum á borð við Palazzo della Ragione og Campanone. Basilica Santa Maria Maggiore er gullfalleg kirkja sem lengi var talin ein allra mikilvægasta bygging borgarinnar. Að auki erum við að tala um byggingar á borð við Cappella Colleoni, La Rocca og La Cittadella. En það má með sanni segja að öll „Città alta“ sé áhugaverður staður og nánast hægt að minnast sérstaklega á hverja einustu byggingu.

Söfn og leikhús í borginni
Ekki er komið að tómum kofanum þegar kemur að söfnum en í borginni er að finna söfn á borð við samtímalistasafnið GAMeC, myndlistasafnið Accademia Carrara sem sérhæfir sig í málverkum frá endurreisnar- og barroktímabilinu og Museo Donizettiano en það safn er tileinkað frægasta syni Bergamo, sjálfum Gaetano Donizetti. Að auki er í borginni að finna leikhús á borð við Teatro Donizetti, nefnt í höfuðið á stórskáldinu, og Teatro Sociale.

Að versla í Bergamo
Í „Città alta“ er mikið um litlar sérverslanir með handverki, sælkeravörum og listmunum. Í „Città bassa” er aftur á móti að finna helstu verslunargötu borgarinnar sem heitir Via XX Settembre en þar er að finna verslanir á borð við Max Mara, Zara, Stefanel, Sisley, Furla, Benetton og Fratelli Rosetti. Rétt fyrir utan borgina, nálægt flugvellinum Orio al Serio, er að finna Oriocenter, stærstu verslunarmiðstöð Ítalíu með yfir 200 verslanir. En þar er að finna verslanir á borð við Diesel, H&M, Zara, Pull & Bear, Bershka, Hilfiger, Massimo Dutti og Replay.
Picture
Að komast til og frá Bergamo
Í Bergamo er að finna alþjóðaflugvöllinn, Orio al Serio, en þangað fljúga fjölmörg lággjaldaflugfélög, t.d. Ryanair. Það er því leikur einn að fljúga frá Íslandi til Bergamo með millilendingu í London. Að auki er innan við klukkustundar akstur til borgarinnar frá Mílanó, þangað sem bæði Wow Air og Icelandair fljúga í beinu flugi yfir sumarmánuðina.

Bergamo heillandi borg sem er svo sannarlega þess virði að heimsækja á auðveldan og ánægjulegan hátt.
Published on
Trieste er tiltölulega lítil borg með rúmlega 205 þúsund íbúa og auðvelt að komast um hana á tveimur jafnfljótum. Borgin er róleg með afslöppuðu andrúmslofti. Trieste er falleg borg með mikilfenglegum byggingum, stóru torgum og breiðu götum. Stórfenglegt útsýni, bæði til hafs og upp til fjalla.
Picture
Trieste, núverandi höfuðborg héraðsins Friuli-Venezia Giulia, var eitt sinn mikilvæg hafnarborg hins landlukta veldis Habsborgaraættarinnar. Þetta er gullfalleg borg, staðsett á mjórri landræmu með landamæri Slóveníu á aðra höndina og Adríahafið á hina. Borgin er einungis í 10 kílómetra fjarlægð frá landamærum Slóveníu og einungis í 35 kílómetra fjarlægð frá landamærum Króatíu. Auðvelt er að taka strætó frá miðborg Trieste bæði til Slóveníu og Króatíu. Ennfremur er stutt til Feneyja en einungis tekur einn og hálfan tíma að keyra þangað. Það er tilvalið að kíkja við og skoða þessa fallegu borg í nokkra daga áður en haldið er áfram til annarra  áfangastaða, sérstaklega þar sem Heimferðir mun hefja beint flug til borgarinnar á næsta ári.
Picture
Trieste er undir miklum austurrískum og ennfremur austur-evrópskum áhrifum þar sem hún var um aldir hluti af veldi hinnar frægu Habsborgaraættar, ólík mögum öðrum ítölskum borgum að mörgu leyti. Ennfremur bera íbúar borgarinnar, hinir svokölluðu Triestini, oft á tíðum ættarnöfn sem maður tengir ekki í fljótu bragði við ítalska tungu. Borgin Trieste er oft kölluð „Litla Vín við hafið“, eða „Una piccola Vienna sul Mare“.
Picture
Áhugaverðir staðir
Gamli bærinn, città vecchia, er virkilega heillandi bæjarhluti með sínum þröngu göngugötum og skemmtilegu mannlífi.
 
Piazza Unità er risastórt torg, umkringt mikilfenglegum byggingum. Þar er að finna mikið úrval af börum og veitingahúsum og þar er því tilvalið að setjast niður og njóta lífsins í fallegu umhverfi.
 
Dómkirkjan San Giusto, í nágrenni við Piazza Unità, er gullfalleg kirkja sem á sér sögu allt aftur til fjórtándu aldar. Á bak við Piazza Unità, við fótskör San Giusto, er að finna rómverska leikhúsið, Roman Trieste, sem byggt var á fyrstu öld eftir krist en þar eru stundum haldnir tónleikar á fallegum sumarkvöldum.
 
Kastalinn Castello Miramare er eitt frægasta aðdráttarafl borgarinnar sem staðsettur fimm kílómetrum fyrir utan borgina, upphaflega byggður fyrir erkihertogann af Mexíkó, Maximilian I, erkihertoga af Mexíkó. Castello Miramare er gullfallegur kastali sem stendur á kletti sem er svo sannarlega þess virði að heimsækja.
 
Ennfremur er að finna í borginni nokkur áhugaverð söfn, t.d. Museo Revoltella, Museo di Storia, Arte e Orto Lapidario og Museo di Storia Naturale.

Í hnotskurn má segja að Trieste er gullfalleg borg með afslöppuðu andrúmslofti og munið að borgin er tiltölulega lítil þannig að það vel hægt að skoða hana nánast alla á tveimur jafnfljótum.
Published on
Picture
Bologna, höfuðborg héraðsins Emilia-Romagna, er sjöunda fjölmennasta borg Ítalíu með rúmlega 384 þúsund íbúa. Borgin er staðsett á suðurhluta Pósléttunnar við rætur Appeníafjallgarðsins. Bologna er falleg og afslöppuð borg með jákvæða orku. Gullfalleg matarkista, stútfull af dásamlegri matargerð og má segja að það sé erfitt að fá slæma máltíð í þessari borg.
Elsti hluti borgarinnar er virkilega vel varðveittur, einn sá stærsti á Ítalíu sem varðveist hefur frá miðöldum. Arkitektúr borgarinnar er stórkostlegur með allar sínar múrsteinsbyggingar en í múrsteinsflóru borgarinnar má sjá endalaus rauð og appelsínugul litbrigði. Það er ekki skrýtið að borgin sé kölluð „Bologna la rossa“ eða hin rauða Bologna.

Helstu merkisstaðir borgarinnar
Torre Asinelli/Torre dei Garisenda, eru eitt af helstu kennileitum borgarinnar. Þessi tveir skökku eru annars vegar hinn 97 metra hái Torre Asinelli og hinsvegar hinn 48 metra hái Torre della Garisenda sem upphaflega 60 metrar á hæð.

Fontana di Nettuno er svo sannarlega eitt af kennileitum borgarinnar en á Piazza del Nettuno safnast fólk saman með tilheyrandi stemmingu.

Santuario della Modonna di San Luca er glæsileg dómkirkja sem staðsett er í hlíðum borgarinnar en þar er flottur útsýnisstaður yfir borgina.

I Portici eru 38 km löng bogagöng, þ.e. yfirbyggðir gangar, við götuna Via dell‘Indipendenza sem liggur frá Piazza Maggiore. Upphaflega voru göngin byggð til að hýsa aðkomufólk og aðra sem áttu ekki í nein hús að venda.

Basilica San Petronio stendur við Piazza Maggiore en hún geymir mikinn fjölda listaverka, þ.á.m. verk eftir Cassini og Domenico Guglielmini og eins kapelluna Bolegnoni.

Giardini Margherita er glæsilegur garður í borginni en yfir sumartímann er starfræktur skemmtistaður í stórri villu sem staðsettur í garðinum.

Orto Botanico er flottur grasagarður þar sem er að finna yfir 5000 plöntur af hinum ýmsu tegundum.
Matargerð borgarinnar er víðfræg, „La cucina Bolognese“. En borgin er mikil matarkista og algjör paradís fyrir sælkera heim að sækja. Borgin og nágrenni hennar státar m.a. af réttum á borð við lasagne verdi alla bolognese, tagliatelle al ragú bolognese, tortellini di Bologna og cotoletta bolognese, pastategundir á borð við tagliatelle og tortellini og svo má náttúrulega ekki gleyma mortadella, balsamic edik, hráskinkunni, parmesanostinum og áfram mætti endalaust telja.
Bologna er mikil háskólaborg en í borginni er m.a. starfræktur elsti háskóli Evrópu, stofnaður árið 1088. Háskólar borgarinnar lokka til sín mikinn fjölda stúdenta sem setja líflegan blæ á borgarlífið, næturlíf borgarinnar er fjörugt og fjöldinn allur af tónleikum haldnir í borginni á hverju ári.
Helstu söfn borgarinnar
Það er vel þess virði að kíkja á mikið úrval af söfnum borgarinnar, hægt er að kaupa aðgangskort, Carta  Bologna dei Musei, sem veitir aðgang að öllum helstu söfn borgarinnar. Aðgangskortin er hægt að nálgast á öllum söfnum og upplýsingaskrifstofum fyrir ferðamenn, hægt er að kaupa dagskort á 6 evrur og þriggja daga kort kostar 8 evrur.

En helstu söfn borgarinnar eru Morandi safnið (Museo di Morandi) - Fornleifasafnið (Museo Civico Archeologico di Bologna) - Gyðingasafn Bologna (Museo Ebraico) - Nútímalistasafn Bologna (Galleria da Arte Moderna) - Þjóðarlistasafn Bologna (Pinacoteca Nazionale di Bologna) - Ducatisafnið (Museo Ducati)
Picture
Að versla í Bologna
Litlar sérverslanir, óreglulega staðsettar, einkenna miðborg Bologna. Úrvalið af slíkum verslunum er mikið en maður þarf að vera með opin augun og fara víða. Helstu verlsunargötur borgarinnar eru Via dell‘Indipendenza, Via Ugo Bassi, Via Rizzoli og Via D‘Azeglio sem liggja allar út frá torginu Piazza Maggiore.

Í verslunarmiðstöðinni Galleria Cavour er að finna úrval af verslunum frá mörgum af helstu tískuhúsunum , t.d. Armani, Gucci, Louis Vuitton og Prada.

Áhugaverðir staðir í nágrenni Bologna
Í nágrenni Bologna er að finna marga áhugaverða staði sem hægt er að kíkja til í dagsferðir, t.d. til strandbæja á borð við Rimini og Riccione og eins borga á borð við Reggio-Emilia, Modena, Ferrara, Parma, Ravenna og svo er ekkert svakalega langt til Flórens.
Published on
Verona er ein elsta og fegursta borg Ítalíu, næststærsta borg héraðsins Veneto. Þetta er borg menningar, lista og ekki síst rómantíkur, sviðsmynd einnar frægustu ástarsögu allra tíma, Rómeó og Júlía eftir Shakespeare, en að auki gerast tvö önnur verk Shakespeare í borginni, þ.e. The Two Gentlemen of Verona og The Taming of the Shrew.
Image description
Verona er staðsett nánast mitt á milli Mílanó og Feneyja, nálægt austurhluta vatnsins Garda, og varð borgin snemma mikilvæg samgönguleið milli ítölsku alpanna og Pósléttunnar. En í borginni er að finna magnaðar minjar frá tímum Rómarveldis, t.d. hringleikahúsið Arena. Í gegnum borgina rennur áin Adige og hefur borgin þróast frá því að vera lítið þorp sem byggðist upp við bakka hennar í að verða fullvaxta borg með u.þ.b. 265 þúsund íbúa.

Scaligeri-fjölskyldan komst til valda í Verona snemma á 13. öld, nánar tiltekið árið 1226, og réð þar ríkjum næstu 150 árin. Á því tímabili reis borgin til vegs og virðingar, og þá sérstaklega sviði menningar og lista. Í dag er hægt að skoða glæsilegar hallir sem fjölskyldan lét reisa ásamt mörgum ómetanlegum listaverkum sem prýða borgina.

Picture
Veróna er eins og áður segir fræg fyrir allar sínar fallegu byggingar og ómetanleg listaverk, borgin státar af sögulegri arfleið miðalda, tíma endurreisnarinnar og þannig mætti áfram telja. Þar er því áhugavert að skoða hvernig arkitektúr borgarinnar skiptist í söguleg tímabil.

Helstu merkisstaðir borgarinnar:
Arena, hið rómverska hringleikahús í Verona, er byggt á 1. öld e.k., stendur við torgið Piazza Bra. Á sumrin eru þar haldnar óperusýningar undir berum himni með mörgum af helstu stjörnum óperuheimsins.

Piazza Erbe er glæsilegt torg, umlukið stórkostlegum byggingum. Þar er að finna fjölskrúðugt mannlíf, líflega útimarkaði og flott kaffihús. Hérna var Forum Romano til forna.

Piazza dei Signori er glæsilegt torg, umlukið glæsilegum byggingum, t.d. höll Scaligeri-fjölskyldunnar ásamt íburðarmiklum gröfum þeirra. Á torginu miðju er að finna styttu af hinum eina sanna Dante Alighieri.

Piazza Bra er gríðarstórt torg með fjölda mörgum veitingastöðum, börum og kaffihúsum. Þarna er gott að setjast niður, fá sér glas af víni og skoða mannlífið.

Basilica di San Zeno er gullfalleg kirkja, byggð í rómönskum stíl, og af mörgum talin vera ein allra fallegast kirkja sem byggð hefur verið í þessum stíl á Ítalíu.

Casa di Giulietta, húsið hennar Júlía í sögunni frægu eftir Shakespeare, er að finna við götuna Via Cappello. Húsið hennar Júlíu er staðsett í litlu og eru frægu svalirnar þar að finna. Um að gera að nudda brjóstið á styttunni af Júlíu en sagt er að það veiti manni heppni í framtíðinni.

Tomba di Giulietta
, gröf sjálfrar Júlíu, er staðsett við Via Shakespreare.

Santuario Madonna di Lourdes er helgi- og griðastaður, skammt  ofan við Verona, með óendanlegu fallegu útsýni yfir borgina og nágrenni hennar.

Torre dei Lamberti í nágrenni við Piazza delle Erbe er góður útsýnisstaður yfir borgina. Góð líkamsrækt er að þramma upp stigana en að sjálfsögðu má alltaf greiða auka krónu og taka lyftuna upp á toppinn á turninum.
Að versla er veisla í Verona
Í Verona er að finna mikið úrval af verslunum en þar má finna verslanir frá öllum helstu tískuhúsunum ásamt fjölda annarra sérverslana af ýmsu tagi. Aðalverslunargatan heitir Via Mazzini, göngugata sem liggur á milli torganna Piazza Bra til Piazza Erbe. alls ekki gleyma að þræða allar hliðargöturnar sem liggja út frá Via Mazzini. Um að gera að kíkja á útimarkaðinn á Piazza delle Erbe, laugardagsmarkaðinn fyrir utan íþróttaleikvanginn og svo er áhugaveður antikmarkaður haldinn þriðja hvern laugardag á torginu við Basilica San Zeno. Þrátt fyrir að borgin sé ekki stór þá leynist margt í henni, endalaust hægt að finna nýjar litlar verslanir í ennþá minni hliðargötum með einhverju dásamlegu.
Áhugaverðir staðir í nágrenni Verona
Í nágrenni Verona er að finna marga áhugaverða staði sem gefa óendanlega möguleika á upplifun og afþreygigu. Í fyrsta er náttúrulega skylda að fara upp til Gardavatns sem er í 30 km fjarlægð frá Verona og því tilvalið að kíkja þangað yfir dag eða tvo, leyfa krökkunum að kíkja í Gardaland og dýragarðinn Parco Natura Viva. Svo er um að gera að upplifa og mergsjúga stemminguna í litlu sjarmerandi bæjunum umhverfis vatnið, t.d. Sirmione, Peschiera og Desenzano. Í öðru lagi er tilvalið að kíkja í dagsferð til Feneyjar og upplifa drottningu Adríahafsins í allri sinni dýrð. Í þriðja lagi er alveg kjörið að kíkja í dagsferðir til áhugaverðra nágrannaborga á borð við Mantova, Vicenza, Brescia og Padova. Að síðustu er algjör skylda að kíkja í vínsmökkun í Valpolicella, t.d. til Negrar sem er 17.000 manna þorp í hjarta Valpolicella í einungis 12 km fjarlægð frá Verona.
Verona er sem sagt nálægt því að vera fullkominn áfangastaður fyrir alla fjölskylduna. borgin er passlega stór, stútfull af menningu og listum, frábært úrval af góðum veitingastöðum, mikil afþreyging fyrir alla fjölskylduna og fjölskrúðugt mannlíf.
Picture