- Published on
Librandi Ciro Rosso DOC 2014 er framleitt að öllu leyti úr þrúgunni Gaglioppo sem upprunin er frá Calabria og má líkja henni að nokkru leyti við frönsku þrúguna Pinot Noir. Þetta vín er fyrst látið þroskast á stáltönkum til að viðhalda unggæðingslegum karakter þess áður en það er látið þroskast í nokkra mánuði á flösku áður en það er sett á markað.
Ekki láta blekkjast þótt litur þessa víns sé nokkuð ljós, svolítið í anda Pinot Noir, því hér er um að ræða hörkuvín sem svíkur engan. Angan af rauðum ávexti, pínulítið kryddaður, ásamt trönuberjum og plómum. Þroskuð tannín, ágætis fylling, fersk sýra og ljúft eftirbragð. Auðmjúkt og afslappað vín.
Þetta er virkilega gott matarvín sem passar vel með bragðmiklum ítölskum pastaréttum, t.d. Spaghetti alla scarpariello eða Spaghetti alla puttanesca, smellpassar líka með lambakjöti og jafnvel léttri villibráð.
Librandi Ciro Rosso DOC 2014 fær fjórar stjörnur - FRÁBÆR KAUP á þessu verði en flaska af þessu víni kostar einungis kr. 2.295 í vínbúð allra landsmanna.

0 Comments