Published on
Pestó með klettasalati, eða Pesto di rucola, er fersk og bragðmikil sósa sem hentar vel með mörgum tegundum af pasta, t.d. spaghettí, penne og rigatoni. Þessi sósa er líka frábær sem sósa með ýmsum fisk- og kjötréttum. En hún er ekki bara góð heldur er hún bæði auðveld og fljótleg í framkvæmd, svo er hún líka bráðholl.
Picture
Hráefni
1) 100 gr rucola 2) 50 gr furuhnetur 3) 50 gr parmesan 4) 50 gr pecorino 5) 2 stk hvítlauksrif 6) 100-150 ml ólífuolía 7) Salt

Aðferð
1) Setjið rucola í matvinnsluvél. 2) Bætið furuhnetunum saman við 3) og setjið svo út í bæði parmesan og pecorino.
4) Bætið að lokum út í tveimur hvítlauksrifum 5) og látið matvinnsluvélina vinna þetta saman. 6) Bætið nú við ólífuolíunni saman við og látið matvinnsluvélina vinna þetta áfram þar til sósan er orðin passlega þykk og áferðin eins og þið viljið hafa hana.
2 Comments
Eydís - 11 years ago
Hvað er og hvar færðu pecorino? Kv Eydís
Minitalia - 11 years ago
Pecorino er ítlskur ostur, framleiddur úr sauðamjólk. Hann fæst t.d. í Hagkaup og er oftast við hliðina á Parmigiano Reggiano (parmesan) í ostakælinum.

Hérna geturðu lesið miklu meira um Pecorino: http://www.minitalia.is/matur/hinn-bragsterki-pecorino-romano

Kv, Kjartan