Published on
Image description
Piemonte er eitt virtasta vínræktarhérað Ítalíu og þaðan koma mörg stórkostleg vín. Innan héraðsins Piemonte, nánar tiltekið í hlíðunum umhverfis borgina Asti, má finna svæði sem kallast Langhe en þar má finna mörg af bestu vínum héraðsins, t.d. Barolo og Barbaresco. Vínræktin á þessu svæði einkennist af mörgum smáum fjölskyldureknum vínframleiðendum sem leggja ofuráherslu á gæði framleiðslunnar. Vínhúsið G.D. Vajra er þar engin undantekning og framleiðir framúrskarandi vín á borð við Barolo, Barbera d‘Alba, Dolcetto d‘Alba og Langhe Nebbiolo.

Rauðvínið G.D Vajra Barbera‘Alba er framleitt 100% úr þrúgunni Barbera sem ásamt Nebbiolo og Dolcetto eru þrjár meginrauðvínsþrúgur Piemonte. Þrúgurnar í þetta vín koma af sex mismunandi vínræktarsvæðum innan svæðisins Langhe, þ.e. Fossati, San Pietro, Passau, Fontani, Piedicucche og Bricco Bertone. Þrúgurnar eru handtýndar um miðjan september, gerjun vínsins stendur yfir í 15-20 daga en að því loknu er vínið látið þroskast í 12 mánuði, bæði í eikartunnum og stáltönkum, áður það er sett á flöskur og sett á markað.

Lýsing:
Rúbínrautt. Létt meðalfylling, þurrt, sýruríkt, mild tannín. Hindber, súr kirsuber,lauftónar.

Einkunnir ýmissa fagaðila:
Vinous Antonio Galloni: 89/100 – CellarTracker: 89/100 – Jancis Robinson: 16/20.

G.D. Vajra Barbera d'Alba DOC 2010 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 3.795.

Published on
Image description
Il Poggione er eitt af helstu og virtustu víngerðarhúsum Toscana en það er staðsett nánar tiltekið í bænum Sant‘Angelo in Colle í Montalcino. Il Poggione hefur yfir að ráða 600 hekturum af landi; á 125 hekturum er ræktaður vínviður, á 70 hekturum ólífutré og restin að miklu leyti skóglendi. Il Poggione leggur gríðarlega áherslu á ræktun vínviðarins og telur það vera lykilinn að árangri í þeirri viðleitni að framleiða stórkostleg vín. Allar þrúgur eru handtýndar eftir hefðbundnum aðferðum.

Il Poggione Brunello di Montalcino er framleitt eingöngu úr þrúgunni Sangiovese sem eru handtýndar af vínvið sem er yfir 20 ára gamall. Vínið er fyrst látið þroskast á frönskum eikartunnum í 36 mánuði áður en það er sett á flöskur og geymt í nokkurn tíma áður en það er sett á markað.

Lýsing: Múrsteinsrautt. Meðalfylling, ósætt, fersk sýra, þurrkandi tannín. Kirsuber, laufkrydd, skógarber, skógarbotn.

Einkunnir ýmissa fagaðila:

Stephen Tanzer: 95/100 – Vinous Antonio Galloni: 95/100 – James Suckling: 94/100 – Wine Enthusiast: 91/100 – Wine Spectator: 92/100 – CellarTracker: 90/100 – Decanter: 16.8/20 – Falstaff Magazine: 91/100 – Jancis Robinson: 17/20

Il Poggione Brunello di Montalcino 2007 fæst í Vínbúðinni og kostar litlar 6.680 krónur.

Gott er að umhella þessu víni með góðum fyrirvara til að gefa víninu tækifæri til að opna sig. Njótið vel með rauðu kjöti, villibráð eða þroskuðum ostum.
Published on
Image description
Vínhúsið Isole e Olena varð til þegar De Marchi fjölskyldan keypti tvær jarðir, annars vegar Isole og hins vegar Olena, á sjötta áratug síðustu aldar og sameinaði þær undir nafninu Isole e Olena. En vínhúsið Isole e Olena er staðsett í hjarta framleiðslusvæðis Chianti Classico í Toscana, nánar tiltekið mitt á milli borganna Flórens og Siena. Í dag er vínhúsið rekið af Paolo De Marchi og hans fjölskyldu. Paolo De Marchi heldur að mörgu leyti fast í sérkenni svæðisins með því að leggja mikla alúð í ræktun staðbundnu þrúgunnar Sangiovese en leitar á sama tíma stöðugt leiða til að bæta sín stórkostlegu vín.

Isole e Olena Chianti Classico 2010 er framleitt úr þrúgunum Sangiovese 80%, Canaiolo 15% og Syrah 5%. Vínið er fyrst látið þroskast á eikartunnum í 12 mánuði og að lokum látið þroskast í 3-4 mánuði á flöskum áður en það er sett á markað.

Lýsing: Kirsuberjarautt. Meðalfylling, þurrt, fersk sýra, miðlungstannín. Rauð ber, kirsuber, skógarbotn.

Einkunnir ýmissa fagaðila:
Stephen Tanzer: 91/100 – James Suckling: 90/100 – CellarTracker: 89/100 – Jancis Robinson: 16,5/20 - Vinotek: 4,5 stjörnur.

Isole e Olena Chianti Classico 2010 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 3.695.

Njótið þessa góða matarvíns t.d. með góðri nautasteik, lambakjöti eða léttri villibráð.
Published on
Image description
Hvítvínið Castello Banfi Le Rime Chardonnay & Pinot Grigio er framleitt úr frönsku þrúgunni Chardonnay og ítölsku þrúgunni Pinot Grigio. Vínið er framleitt af Castello Banfi sem er fjölskyldurekin víngerð, sett á stofn af Mariani fjölskyldunni árið 1978, og hefur á skömmum tíma orðið að einum þekktasta vínframleiðanda í Toscana.

Lýsing: Ljóssítrónugult. Létt fylling, þurrt, fersk sýra. Sítrus, melóna, pera.

Einkunnir ýmissa fagaðila:
Wine Enthusiast: 85/100 - Vinotek: 3,5 stjörnur

Banfi Le Rime Chardonnay & Pinot Grigio fæst í ÁTVR og kostar kr. 1.999 sem verður að teljast nokkuð góð kaup. Njótið vel í góðra vina hópi, hentar vel sem fordrykkur eða með ýmiskonar fiskréttum.
Published on
Image description
Á 170 hektara svæði í hlíðunum umhverfis þorpið Montalcino í Toscana framleiðir vínframleiðandinn Castello Banfi vínið sitt Brunello di Montalcino sem er nokkurs konar stolt víngerðarinnar. Castello Banfi er fjölskyldurekin víngerð, sett á stofn af Mariani fjölskyldunni árið 1978, og hefur á skömmum tíma orðið að einum þekktasta vínframleiðanda í Toscana.

Castello Banfi Brunello di Montalcino er framleitt eingöngu úr þrúgunni Brunello sem er afbrigði af þrúgunni Sangiovese. Vínið er fyrst látið þroskast tvö ár, aðallega í frönskum eikartunnum en að til hluta í slóvenskum eikartunnum. Síðan hefur vínið verið látið þroskast í tvö ár á flösku áður en það var sett á markað. Sumir segja að það þurfi að geyma vín þessarar tegundar í allt að tíu ár til þess að þau nái sínum hæstu hæðum.

Lýsing: Múrsteinsrautt. Þétt meðalfylling, þurrt, fersk sýra, þétt tannín. Rauð ber, krydd, jörð, eik.

Einkunnir ýmissa fagaðila:
James Suckling: 94/100 –  Wine Enthusiast: 92/100 – Wine Spectator: 90/100
CellarTracker: 89/100 – Decanter: 16.5/20 – Vinotek: 5 stjörnur

Banfi Brunello di Montalcino 2007 fæst í Vínbúðinni og kostar kr. 5.898.

Gott er að umhella víninu með að minnsta kosti klukkutíma fyrirvara til að gefa víninu tækifæri til að opna sig. Njótið vel með rauðu kjöti, villibráð eða þroskuðum ostum.