Published on
Miðnæturmess á aðfangadag er fastur liður i jólahaldi flestra Ítala en fjölbreytileikinn í jólaréttunum er meiri en við eigum að venjast. Mikil áhersla lögð á kræsingar jólahaldsins, réttirnir fjölbreyttir og ólíkir milli héraða.
Picture
Aðfangadagur Jóla
Aðfangadagur jóla er ekki almennur frídagur á Ítalíu, frekar en á Íslandi, þó loka verslanir oft örlítið fyrr en venjulega. En vinir og fjölskylda hittast þó um kvöldið og borða saman úrval fiskrétta. Úrval fiskrétta er vinsæll á borðum Ítalía á aðfangadegi jóla þar sem hefð er fyrir því að borða ekki kjöt á þessum degi en aðfangadagskvöld er nefnt „La Vigilia di Natale“ eða aðfangadagsfasta.

Eftir kvöldverð á aðfangadagskveldi jóla fara flestir til messu en eftir þá heilögu stund er boðið upp á Panettone, hina víðfrægu ítalska jólaköku Ítala. Allir ítalir borðar Panettone yfir hátíðarnar sem upprunalega kemur frá Mílanó en með henni er að sjálfsögðu drukkið Prosecco eða Vin Santo.

Jóladagur
Jólaveislan sjálf hefst á hádegi á jóladag með mikill máltíð sem ber nafnið Il Pranzo di Natale. Hún er kannski ekki eins hátíðleg og við Íslendingar eigum að venjast en undirbúningurinn mikill og fast haldið í hefðirnar. Á þessu degi taka Ítalir extra langan tíma til að borða og njóta matarins til fullnustu. Pakkarnir eru oft teknir upp eftir matinn eða einfaldlega á milli rétta. Einn í einu en allir fyrir rest.

Víðast um Ítalíu er kjöt haft á borðum á jóladag en úrvalið ólíkt eftir héruðum. Þannig er t.d. naut á borðum í héraðinu Piemonte en lamb í nágrenni Rómar. Í Emilia-Romagna heimsþekkt er fyrir pastað sitt og þar er mikið lagt upp úr Tortellini in brodo sem eru heimagerðir tortellinií góðu soði sem hanterað hefur verið eftir kúnstarinnar reglum. Í héraðinu Veneto er aftur á móti lög mikil áhersla á silkimúka polentu sem oft er borin fram á jólum með góðu kjöti, líklega af nýslátruðu.

Eftirréttirnir eru líka fjölbreytilegir, þó að Panettone sé líklega sá eini sem er eingöngu tengdur jólunum. Panettone er upprunalega frá Mílanó, en er þó borðað víða annars staðar. Í Veneto og Verona njóta menn þess líka að borða torrone, sem er ljóst möndlunúggat, og í Toskana og Siena er panforte, dökk og þétt ávaxtakaka, vinsæl og svo eru sætar pastakúlur sem kallast Sruffoli á borðum í Napólí og þar í kring. Þá njóta Ítalir víða um land þess að fá sér Cantucci-kökur með Vin Santo yfir hátíðarnar.“

Annar í jólum
Annar á jólum sem á Ítalíu er kallaður Il giorno di Stefano er líkt og hér á landi þar sem vinir hittast, styrkja böndin og borða saman góðan mat.
Published on
Áttundi desember kallast hvorki meira né minna en Dagur hins flekklausa getnaðar eða á ítölsku Festa dell‘Immacolata Concezione. Þennan dag fyrir langalöngu varð Anna, móðir Maríu meyjar, ólétt af henni, þ.e. þennan dag hafi María mey verið getin án erfðasyndarinnar. Á þessum degi sem er almennur frídagur má segja að jólaundirbúningur Ítala hefjist fyrir alvöru.
Picture
Samkvæmt gamalli hefð setur slökkviliðsmaður blómsveig á Maríustyttuna, sem er skammt frá Spænskutröppunum í Róm, ár hvert í tilefni af Degi hins flekklausa getnaðar. Ennfremur er kveikt á jólaskreytingum á götum úti og jólaundirbúningur Ítalía fer að taka á sig mynd.
Published on
Í borginni eilífu, sjálfri Rómarborg, hafa verið teknar endalaus fjöldi kvikmynda sem slegið hafa í gegn. Það hlýtur líka að vera svo auðvelt að finna flotta tökustaði í þessari fallegu borg. Hér fyrir neðan hefur Minitalia tekið saman lista yfir tíu frægar kvikmyndir, í engri sérstakri röð, þar sem sögusviðið er hin óviðjafnanlega Róm.

1. La Dolce Vita (1960) í leikstjórn Federico Fellini
Dolce Vita er ein allra frægasta mynd Fellini með Anitu Ekberg og Marcello Mastroianni í aðalhlutverkum sem fjallar blaðamann sem ráfar um borgina innan um ríka og fræga fólkið í leit að tilgangi lífsins.
Picture
2. Kleópatra (1963) í leikstjórn Joseph Mankiewicz og Ruben Mamoulian
Hér er um að ræða stórmynd um sjálfa Kleópötru, drottningu af Eygyptalandi, sem leikin er af hinni einu og sönnu Elizabeth Taylor. Magnaðar senur, frá mögnuðum tíma og magnaðri borg.
Picture
3. Englar og djöflar (2009) í leikstjórn Ron Howard
Englar og djöflar með Tom Hanks í aðalhlutverki gerist að stórum hluta í sjálfri Rómarborg. Myndin er gerð eftir samnefndri bók og er sjálfstætt framhald kvikmyndarinnar Da Vinci lykillinn.
Picture
4. Boccaccio (1962) í leikstjórn Vittorio De Sica, Federico Fellini, Mario Monicelli og Luchino Visconti
Fjórir leikstjórar segja fjórar sögur, þ.e. sögurnar Renzo e Luciana, Le tentazioni del dottor Antonio, Il lavoro og La riffa, en myndin skartar stjörnum á borð við Sophia Loren og Anita Ekberg í aðalhlutverkum. 
Picture
5. La Grande Bellezza (2013) í leikstjórn Paolo Sorrentino
Stórfengleg mynd sem fékk óskarsverðlaunin árið 2014 sem besta erlenda myndin en sögusvið hennar fer vítt og breitt um hina mögnuðu Róm.
Picture
6. The way of the Dragon (1972) í leikstjón Bruce Lee
Hver man ekki eftir Bruce Lee berjast á móti Chuck Norris í sjálfu Colosseum í Róm í myndinni The way of the Dragon? Ógleymanleg sena.
Picture
7. Ieri Oggi Domani ( 1965) í leikstjórn Vittorio De Sica
Eftirminnleg mynd frá leikstjóranum Vittorio De Sica með Giovanni Ridolfi og hinni íðilfögðu Sophia Loren í aðalhlutverkum.
Picture
8. Roman Holiday (1953) í leikstjórn William Wyler
Hver man ekki eftir prinsessunni Audrey Hepburn og blaðamanninum Gregory Peck í einni frægustu ástarsögu allra tíma?
Picture
9. To Rome with Love (2012) í leikstjórn Woody Allen
Auðvitað er Woody Allen búinn að taka upp kvikmynd í borginni eilífu. Ekta Woody Allen þar sem fléttast saman ólíkar en mjög svo áhugaverðar sögur í dásamlegu umhverfi.
Picture
10. The Talented Mr. Ripley (1999) í leikstjórn Anthony Minghella
The Talented Mr. Ripley segir sögu Tom Ripley sem er sendur til Rómar í þeim tilgangur að sækja glaumgosann Dickie Greenleaf. Óviðjafnanlegar senur frá óviðjafnanlegri borg.
Picture
Picture