Hið þekkta vínhús, Tommasi Viticoltori, kemur upprunalega frá héraðinu Veneto á Ítalíu en hefur á undanförnum árum og áratugum fært út kvíarnar með kaupum á öðrum vínhúsum í öðrum héruðum landsins, t.d. í héruðunum Toskana og Púglía. Vínhúsið Tommasi Viticoltori var stofnað af Giacomo Tommasi árið 1902 í Pedemonte í hjarta svæðisins Valpolicella Classico, vestur af borginni Verona en í dag er fjórða kynslóð fjölskyldunnar við stjórnvölinn. Tommasi Viticotori framleiðir í Veneto fræg vín á borð við Amarone della Valpolicella, Valpolicella Ripasso, Soave og Bardolino.
Það vín sem hér um ræðir heitir Valpolicella Ripasso DOC 2014 og er framleitt úr þrúgunum Corvina Veronese (70%), Rondinella (25%) og Corvinone (5%). Þetta vín er framleitt með ripasso-aðferðinni sem er mjög algeng í héraðinu Veneto en þá er safinn skilinn frá í lok gerjunarinnar á vínum sem kennd eru við Amarone della Valpolicella og hratinu, sem er þykkur sætur massi, blandað saman við ungt Valpolicella-vín og þannig fer gerjunin í gang á nýjan leik. Þegar þessu ferli er lokið er vínið látið þroskast í slóvenskum eikartunnum í u.þ.b. 15 mánuði áður en því er tappað á flöskur og sett á markað.
Vínið er rúbínrautt og tekur margslunginn anganin á móti manni með kryddi og kirsuberjum. Mikill rauður ávöxtur, kirsuber, svolítið kryddað, jafnvel sveskjur, fíkjur, rúsínur. Öflugt vín, með mikla fyllingu og nokkuð langt eftirbragð. Mjúk tannín og mikið jafnvægi einkenna þetta flotta matarvín vín.
Tommasi Ripasso DOC 2014 fær fjórar stjörnur - GÓÐ KAUP á þessu verði en það kostar kr. 3.199 í vínbúð allra landsmanna.
Þetta er virkilega flott matarvín sem hentar vel með nautakjöti, villibráð, t.d. rjúpu, önd og gæs, og einnig flott með bragðmiklum pastaréttum.