MINITALIA
  • AFTUR HEIM
  • HÉRUÐ ÍTALÍU
    • ABRUZZO
    • BASILICATA
    • CALABRÍA
    • CAMPANÍA
    • EMILIA - ROMAGNA
    • FRIULI - VENEZIA GIULIA
    • LAZIO
    • LÍGÚRÍA
    • LOMBARDÍA
    • MARCHE
    • MOLISE
    • PIEMONTE
    • PUGLIA
    • SARDINÍA
    • SIKILEY
    • TOSKANA
    • TRENTINO - ALTO ADIGE
    • ÚMBRÍA
    • VALLE D'AOSTA
    • VENETO
  • UPPSKRIFTIR
    • FORRÉTTIR
    • PASTA
    • RISOTTÓ
    • PIZZUR
    • AÐALRÉTTIR
    • EFTIRRÉTTIR
    • BRAUÐ OG KÖKUR
    • SÓSUR OG PESTÓ
  • FERÐALAGIÐ
    • AMALFÍ
    • BERGAMO
    • BOLOGNA
    • CAPRI
    • CINQUE TERRE
    • FENEYJAR
    • FLÓRENS
    • GENÓA
    • LUCCA
    • MINORI
    • MÍLANÓ
    • PARMA
    • PISA
    • PORTOFINO
    • POSITANO
    • RAVELLO
    • SAN GIMIGNANO
    • SAN REMO
    • SIENA
    • TÓRÍNÓ
    • TRIESTE
    • VERONA
    • VIAREGGIO
  • UM MINITALIA

Risotto agli asparagi

1/14/2014

0 Comments

 
Risotto agli asparagi er ferskur, fíngerður og mjög ljúfengur réttur ættaður frá Veneto og er að mörgu leyti einkennandi fyrir héraðið. Í þessum rétti er uppistaðan risottogrjón, aspas og parmesan. Það er best að nota ferskan aspas en einnig er hægt að nota frosinn aspas þegar minna er um þennan  ferska í verslunum landsins.
Picture
Hráefni
1) 400 gr risotto-grjón 2) 1-1,5 líter grænmetissoð 3) 500 gr ferskur aspas 4) 1 laukur 5) 2 hvítlauksgeirar 6)
3 msk ólífuolía 7) 30 gr smjör 8) 30 gr Parmigiano Reggiano 9) salt

Aðferð
1) Hitið ólífuolíu á pönnu og steikið saxaðan laukinn ásamt hvítlauknum við lágan hita í u.þ.b. 10 mínútur. Laukurinn má alls ekki verða brúnn heldur á að steikja hann þar til að hann verður gegnsær. 2) Bætið grjónunum á pönnuna, hækkið hitann, steikið í tvær mínútur og hrærið vel á meðan 3) Lækkið hitann og setjið út í eina ausu af soði á pönnuna. 4) Saxið ferskan aspasinn í ca ½ cm sneiðar, setjið toppana til hliðar en bætið aspasnum á pönnuna. 5) Haldið áfram að bæta við soði og hrærið annað slagið í ca 12-15 mínútur. 6) Skerið toppana langsum í helminga og bætið þeim við á pönnuna síðustu 2-3 mínúturnar. 7)Saltið eftir þörfum. 8) Fjarlægið pönnuna af hitanum og hrærið smjörinu saman við. 9) Að lokum er ostinum bætt við og öllu hrært vel saman.

Njótið til hins ýtrasta í góðra vina hópi sem fyrsta rétt eða jafnvel sem aðalrétt.
0 Comments



Leave a Reply.

© 2013 Minitalia.is - Allur réttur áskilinn - [email protected]