MINITALIA
  • AFTUR HEIM
  • HÉRUÐ ÍTALÍU
    • ABRUZZO
    • BASILICATA
    • CALABRÍA
    • CAMPANÍA
    • EMILIA - ROMAGNA
    • FRIULI - VENEZIA GIULIA
    • LAZIO
    • LÍGÚRÍA
    • LOMBARDÍA
    • MARCHE
    • MOLISE
    • PIEMONTE
    • PUGLIA
    • SARDINÍA
    • SIKILEY
    • TOSKANA
    • TRENTINO - ALTO ADIGE
    • ÚMBRÍA
    • VALLE D'AOSTA
    • VENETO
  • UPPSKRIFTIR
    • FORRÉTTIR
    • PASTA
    • RISOTTÓ
    • PIZZUR
    • AÐALRÉTTIR
    • EFTIRRÉTTIR
    • BRAUÐ OG KÖKUR
    • SÓSUR OG PESTÓ
  • FERÐALAGIÐ
    • AMALFÍ
    • BERGAMO
    • BOLOGNA
    • CAPRI
    • CINQUE TERRE
    • FENEYJAR
    • FLÓRENS
    • GENÓA
    • LUCCA
    • MINORI
    • MÍLANÓ
    • PARMA
    • PISA
    • PORTOFINO
    • POSITANO
    • RAVELLO
    • SAN GIMIGNANO
    • SAN REMO
    • SIENA
    • TÓRÍNÓ
    • TRIESTE
    • VERONA
    • VIAREGGIO
  • UM MINITALIA

Pizza Quattro Stagioni

1/21/2016

0 Comments

 
Þetta er ein af þessum klassísku pizzum sem nánast er hægt að finna á matseðli hverrar einustu pizzeriu um gjörvalla Ítalíu. Þessi pizza ber nafnið Quattro Stagioni, á íslensku Árstíðirnar fjórar: ætisþistlarnir endurspegla vorið, ólífurnar sumarið, sveppirnir haustið og skinkan að lokum endurspeglar veturinn.
Picture
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) Mozzarella 4) Ætisþistlar 5) Svartar ólífur 6) Skinka 7) Ólífuolía

Aðferð
1)
Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósu á botninn. 3) Dreifið mozzarella yfir sósuna. 4) Setjið síðan áleggin fjögur á pizzuna, hvert á sinn fjórðung hennar. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áðaur en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 6) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út.

Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill  og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
 
Pizzur eru yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni..
0 Comments



Leave a Reply.

© 2013 Minitalia.is - Allur réttur áskilinn - [email protected]