Oft er það einfaldleikinn sem blívur, hér eru áleggin fá en svo sannarlega dásamleg. Áleggin eru í rauninni einungis tvö, annars vegar Speck sem er dásamlegt kjötálegg frá svæðinu Suður-Týról í norðurhluta Ítalíu og hins vegar gráðostur, eða gorgonzola sem margir telja vera uppruninn frá bænum Gorgonzola í nágrenni Mílanó. Þessi pizza var í einu orði sagt stórkostleg; mikill kraftur sem bæði kom úr álegginu en ekki síður úr gráðostinum. Frábær pizza sem skildi mikið eftir sig, hún einfaldlega sló í gegn.
Hráefni
1) Pizzadeig, uppskrift hægt að sjá hér. 2) Pizzasósa, uppskrift hægt að sjá hér. 3) mozzarella 4) Speck 5) gráðostur (á ítölsku "gorgonzola") 6) ólífuolía
Aðferð
1) Fletjið út pizzudeigið 2) Setjið passlegt magn af pizzasósunni á botninn. 3) Dreifið mozzarellaosti yfir sósuna. 4) Setjið síðan áleggin á pizzuna; fyrst gráðostinn, síðan speck-sneiðarnar. 5) Hellið smá slettu af ólífuolíu yfir pizzuna áður en þið setjið pizzuna inn í brennandi heitan ofninn. 6) Bakið þar til botninn er orðinn stökkur, osturinn bráðinn og pizzan lítur einfaldlega stórkostlega út. 7) Takið þá pizzuna úr ofninum og berið hana strax fram.
Gott er að notast við pizzustein, hvort sem pizzan er bökuð í ofni eða á útigrillinu. En þar sem ofnar, grill og pizzusteinar eru mismunandi að gerð og virkni þá er einfaldlega erfitt að gefa upp nákvæman bökunartíma. Svo best er að fylgjast vel með pizzunni í ofninum eða á grillinu, prófa sig áfram og ná með tímanum fullkomnun, hver við sínar aðstæður.
Pizzur eru yndislegt fyrirbæri og verða ennþá betri ef þeirra er notið í góðum félagsskap og jafnvel með glasi af léttu og ávaxtaríku rauðvíni.