MINITALIA
  • AFTUR HEIM
  • HÉRUÐ ÍTALÍU
    • ABRUZZO
    • BASILICATA
    • CALABRÍA
    • CAMPANÍA
    • EMILIA - ROMAGNA
    • FRIULI - VENEZIA GIULIA
    • LAZIO
    • LÍGÚRÍA
    • LOMBARDÍA
    • MARCHE
    • MOLISE
    • PIEMONTE
    • PUGLIA
    • SARDINÍA
    • SIKILEY
    • TOSKANA
    • TRENTINO - ALTO ADIGE
    • ÚMBRÍA
    • VALLE D'AOSTA
    • VENETO
  • UPPSKRIFTIR
    • FORRÉTTIR
    • PASTA
    • RISOTTÓ
    • PIZZUR
    • AÐALRÉTTIR
    • EFTIRRÉTTIR
    • BRAUÐ OG KÖKUR
    • SÓSUR OG PESTÓ
  • FERÐALAGIÐ
    • AMALFÍ
    • BERGAMO
    • BOLOGNA
    • CAPRI
    • CINQUE TERRE
    • FENEYJAR
    • FLÓRENS
    • GENÓA
    • LUCCA
    • MINORI
    • MÍLANÓ
    • PARMA
    • PISA
    • PORTOFINO
    • POSITANO
    • RAVELLO
    • SAN GIMIGNANO
    • SAN REMO
    • SIENA
    • TÓRÍNÓ
    • TRIESTE
    • VERONA
    • VIAREGGIO
  • UM MINITALIA

Panna Cotta með súkkulaði

9/10/2014

0 Comments

 
Panna cotta er einn allra vinsælustu eftirréttum Ítalíu, uppruninn frá svæðinu Langhe sem staðsett er í héraðinu Piemonte sem er frægt fyrir vín á borð við Barolo og Barbaresco. Panna Cotta er einfaldur, fljótlegur og bragðgóður eftirréttur. Í grunninn er rétturinn alltaf eins en síðan má bæta við hinu og þessu og fá út óendanlega margar útgáfur af honum. Súkkulaði er í aðalhlutverki í þessari útgáfu sem er sannkölluð veisla fyrir súkkulaðisælkerann.
Picture
Hráefni, handa fjórum
1) 150 gr af súkkulaði af góðri tegund, allt eftir smekk 2) 100 gr sykur 3) 8 gr matarlím, c.a. 3-4 blöð)4) 500 ml rjómi 5) Súkkulaðispænir til skreytingar

Aðferð

1) Leggið matarlímið í kalt vatn í ca. 10 mín. 2) Bræðið súkkulaðið í góðum potti 3) Hellið rjómanum í lítinn pott og hitið við lágan hita en án suðu. 4) Bætið rjómanum rólega út í brædda súkkulaðið og hrærið vel á meðan. 5) Setjið allan sykurinn út í blönduna góðu og hitið við lágan hita en án suðu. 6) Vindið vel matarlímsblöðin, setjið þau út í blönduna og hrærið vel þar til þau eru algjörlega uppleyst. 7) Undirbúið fjögur mót með því að bleyta þau að innan með vatni. 8) Hellið blöndunni nú í mótin fjögur, gott er að nota ausu við þetta. 9) Setjið mótin inn í ískáp og geymið þar í að minnsta kosti 5-6 klukkustundir. 10) Til þess að ná hinu eina sanna Panna cotta úr forminu er best að dýfa forminu ofan í heitt vatn í ca. 2-3 sek. Snúa því svo á hvolf ofan á disk, halda því saman og hrista það nokkrum sinnum. Endurtakið eftir þörfum. 11) Að lokum má skreyta réttinn með súkkulaðispæni.
0 Comments



Leave a Reply.

© 2013 Minitalia.is - Allur réttur áskilinn - [email protected]