MINITALIA
  • AFTUR HEIM
  • HÉRUÐ ÍTALÍU
    • ABRUZZO
    • BASILICATA
    • CALABRÍA
    • CAMPANÍA
    • EMILIA - ROMAGNA
    • FRIULI - VENEZIA GIULIA
    • LAZIO
    • LÍGÚRÍA
    • LOMBARDÍA
    • MARCHE
    • MOLISE
    • PIEMONTE
    • PUGLIA
    • SARDINÍA
    • SIKILEY
    • TOSKANA
    • TRENTINO - ALTO ADIGE
    • ÚMBRÍA
    • VALLE D'AOSTA
    • VENETO
  • UPPSKRIFTIR
    • FORRÉTTIR
    • PASTA
    • RISOTTÓ
    • PIZZUR
    • AÐALRÉTTIR
    • EFTIRRÉTTIR
    • BRAUÐ OG KÖKUR
    • SÓSUR OG PESTÓ
  • FERÐALAGIÐ
    • AMALFÍ
    • BERGAMO
    • BOLOGNA
    • CAPRI
    • CINQUE TERRE
    • FENEYJAR
    • FLÓRENS
    • GENÓA
    • LUCCA
    • MINORI
    • MÍLANÓ
    • PARMA
    • PISA
    • PORTOFINO
    • POSITANO
    • RAVELLO
    • SAN GIMIGNANO
    • SAN REMO
    • SIENA
    • TÓRÍNÓ
    • TRIESTE
    • VERONA
    • VIAREGGIO
  • UM MINITALIA

Ítalskar hefðir um áramót - eldrauð nærföt á nýjársnótt

12/30/2014

2 Comments

 
Á Ítalíu er gamlársdagurinn kenndur við hinn helga páfa San Silvestro. Þessi síðasti dagur ársins er almennur vinnudagur, rétt eins og aðfangadagur, en aftur á móti er nýársdagur almennur frídagur á Ítalíu. Sjálf áramótin eins og við köllum þau kallast á Ítalíu „capodanno“ sem dregið er af orðunum capo di anno sem myndu útleggjast á íslensku „upphaf árs“.
Picture
Við þessi tímamót halda Ítalir að sjálfsögðu stórar veislur fyrir vini og vandamenn sem kallast La Festa di San Silvestro. Matur og vín spila ávallt stórt hlutverk þegar Ítalir halda veislur og hér er engin undantekning gerð á þeirri reglu. Um kvöldið er borðaður margréttaður kvöldverður þar sem mikilvægasti rétturinn er bjúgnabaunasúpa sem á ítölsku nefnist Cotechino di lenticchie en baunirnar eiga að gefa manni ríkidæmi og heppni á nýju ári.

Að miðnætti er venjan að fagna nýju ári með flugeldasýningum. Flestir bæir á Ítalíu skipuleggja flugeldasýningu á bæjartorginu en að sjálfsögðu er flugeldum einnig skotið upp í einkasamkvæmum um gjörvalla Ítalíu. Í mörgum bæjum er dansað á bæjartorginu á undan flugeldasýningunni og ennfremur eru haldnir stórir útitónleikar í borgum á borð við Róm, Mílanó, Bologna, Palermo og Napolí.

Að sjálfsögðu fagna Ítalir nýju ári með því að skála í Vino spumante eða Prosecco. Þessar veislur á gamlárskvöld standa yfirleitt yfir fram undir morgun til þess að geta horfa á fyrstu sólarupprás ársins.

Og síðast en ekki síst má alls ekki gleyma að klæðast rauðum nærfötum um áramót þar sem það boðar heppni á nýju ári.
2 Comments
Tómas Joð Þorsteinsson link
12/29/2014 09:07:54 pm

Ég var sjálfur ekki búinn að pæla í hvaða nærbuxum ég ætlaði að klæðast í upphafi ársins 2015 en við þennan lestur er ég klárlega orðinn hlynntari við að velja rautt!

Reply
Kjartan Sturluson
12/29/2014 09:32:08 pm

Engin spurning, það er hér með ákveðið að þú, Tómas Joð, munt klæðast rauðum nærfötum um þessi áramótum :-)

Reply



Leave a Reply.

© 2013 Minitalia.is - Allur réttur áskilinn - [email protected]