Ilona Staller er ítölsk-ungversk klámstjarna, sem þekktari er undir sviðsnafninu sínu, Cicciolina. Hún fæddist í Ungverjalandi en fluttist ung til Ítalíu. Cicciolina náði m.a. þeim merka áfanga að sitja eitt kjörtímabil sem þingkona á ítalska þinginu fyrir hönd Róttæka flokksins, eða Partito Radicale.
Það vakti mikla athygli um allan heim þegar Cicciolina var kjörin á ítalska þingið þar sem á þeim tíma var hún ein af þekktustu klámmyndastjörnum Ítalíu, lék m.a. á móti John Holmes í myndinni The Rise and Fall of the Roman Empress. Hún notaði ýmsar brellur til að vekja athygli á sér í kosningabaráttunni, t.d. beraði hún á sér brjóstin, fyrst kvenna, í beinni útsendingu í ítalska sjónvarpinu og hljóðritaði lag sem fjallaði eingöngu um kynfæri karlmanna. Eftir að hún var kjörin þingmaður þá beitti hún sér nær eingöngu að málum sem tengdust kynlífi á einhvern hátt en hún lagði fram heil 12 frumvörp en ekkert af þeim varð að lögum, t.d. lagði hún fram frumvarp að það yrðu opnaðir ástargarðar og ástarhótel sem styrkt yrðu af ítalska ríkinu.
Árið 2002 bauð hún sig fram til borgarstjóra í ítölskun borginni Monza og lofaði í kosningabaráttunni að breyta einni mest áberandi byggingu borgarinnar í spilavíti ef hún myndi ná kjöri. Af því varð nú ekki þara sem hún náði einungis fáeinum atkvæðum í þeim kosningum, kannski svipað og Þjóðfylkingin fékk á Íslandi í síðustu alþingiskosningum.
Í seinni tíð hefur hún vakið athygli fyrir ýmis ummæli, t.d. bauð hún Saddam Hussein, fyrrum Íraksforseta, blíðu sína í skiptum fyrir frið á jörð. Hún bauðst einnig til að láta virkilega vel að Osama Bin Laden gegn því að hann myndi hætta allri hryðjuverkastarfsemi. En Cicciolina sagði eitt sinn að kynlíf og fullnæging gætu leyst öll vandamál þessa heims.
Cicciolina hélt upp á 60 ára afmælið sitt á árinu 2011 og hóf þá að fá eftirlaun frá ítalska ríkinu fyrir störf sín sem þingmaður. Greiðslurnar eru 39.000 evrur á ári sem gera u.þ.b. 4,7 milljónir króna. Þrátt fyrir að fjölmargir mótmæltu þessum til hennar þá lét hún hafa eftir sér „Ég vann mér þetta inn og ég er stolt af því“.
Það er í sjálfu sér margt líkt með hennar ferli og margra listamanna þar sem mörkin á milli gjörningalistar og lágkúru eru ekki alltaf ljós. Það er svo sannarlega ekki á hreinu hvernig sagan muni dæma feril Cicciolina sem stjórnmálamanns, tilvonandi borgarstjóra, söngkonu og síðast en ekki síst klámmyndastjörnu.