Áttundi desember kallast hvorki meira né minna en Dagur hins flekklausa getnaðar eða á ítölsku Festa dell‘Immacolata Concezione. Þennan dag fyrir langalöngu varð Anna, móðir Maríu meyjar, ólétt af henni, þ.e. þennan dag hafi María mey verið getin án erfðasyndarinnar. Á þessum degi sem er almennur frídagur má segja að jólaundirbúningur Ítala hefjist fyrir alvöru.
Samkvæmt gamalli hefð setur slökkviliðsmaður blómsveig á Maríustyttuna, sem er skammt frá Spænskutröppunum í Róm, ár hvert í tilefni af Degi hins flekklausa getnaðar. Ennfremur er kveikt á jólaskreytingum á götum úti og jólaundirbúningur Ítalía fer að taka á sig mynd.