Cinque Terre er nafn á fimm þorpum við ströndina vestur af La Spezia. Þorpin fimm bera nöfnin Monterosso al Mare, Vernazza, Corniglia, Manarola og Riomaggiore. Íbúar þorpanna munu vera samtals í kringum 6000 sem flestir starfa við ferðaþjónustu og víngerð þó einhverjir sæki atvinnu til nágrannaborganna La Spezia og Genúa.
Þetta einstaka svæði var gert að þjóðgarði árið 1999 og er ennfremur á heimsminjaskrá UNESCO vegna einstakra menningarminja um líf fyrr á öldum sem einkenndist af fiskveiðum og vínrækt. Þorpin eru byggð í bröttum fjallshlíðum, bílar eru ekki leyfðir en það gengur lest í gegnum þorpin á milli Genoa og La Spezia. Að auki siglir ferja á milli allra þorpanna nema Corniglia en hægt er að taka ferjuna frá gömlu höfninni í Genoa, La Spezia, Lerici eða Portovenere.
Svæðið býr yfir óviðjafnanlegri náttúrufegurð, menningu og sögu. Þorpin virðast hanga utan í hlíðunum við ströndina, fallegar hafnir með litskrúðugum fiskibátum og þröngum götum mynda dásamlega stemmingu. Á milli þorpanna liggur fjöldi göngustíga, ýmist um þverhníptar klettanasir eða um iðagrænar og ávalar hæðir sem þekktar eru vínviði og ólífutrjám.
ÞORPIN FIMM, HVERT ÖÐRU FALLEGRA
Þorpin fimm sem tilheyra Cinque Terre eru Monterosso al Mare, Vernazza, Corniglia, Manarola og Riomaggiore en auk þess tilheyra þorpin Groppo, Volastra og Sa Bernadino þessu dásamlega landsvæði. Hér verður fjallað um þess fimm helstu þorp Cinque Terre, þótt einungis verði stiklað á stóru.

Monterosso al Mare
Þorpið Monterosso al Mare skiptist í tvo hluta, þ.e. gamla bæinn og nýja bæinn. Gamli bærinn er lítill og fallegur með öllum sínum þröngu og heillandi götum en nýji bærinn býr eðlilega ekki yfir sömu töfrum. Í Monterosso al Mare er að finna fallegustu ströndina þar sem er dásamlegt að sleikja sólina og njóta lífisins en heillandi sandströndin nær nánast þorpið á enda.

Vernazza
Vernazza er að margra mati sá fallegasti bærinn af þeim sem tilheyra Cinque Terre. Vernazza er eini bærinn sem býr yfir náttúrulegri höfn sem varð það til þess að hann varð fljótt bæði mikilvægasti og ríkasti bærinn á svæðinu. Vernazza er gullfallegur bær sem liggur bratt upp frá höfninni með pínulítilli strönd og litríkum byggingum. Hafnartorgið er hjartað í bænum og þar getur stemmingin verið stórkostleg og á heitum sumardögum má sjá fólk synda um á milli litskrúðugra bátanna í höfninni.

Corniglia
Corniglia sker sig úr að því að hann er hvorki staðsettur í snarbröttum hlíðum né liggur að sjó. Hann er meira í við hefðbundið ítalskt þorp með dásamlegt útsýni til hafs þar sem bærinn stendur hátt og getur maður hreinlega gleymst sér í aðdáun sinni yfir því sem fyrir augun ber.

Manarola
Manarola er gullfallegur bær sem svipar að nokkru leyti til Vernazza, óvenjulega myndrænn bær sem margir telja að sé sá allra frægasti í Cinque Terre. Bærinn liggur í snarbrötttum hlíðum upp frá sjó, engin náttúruleg höfn til staðar og ströndin virkilega klettótt. Manarola er frægt fyrir sitt sæta hvítvín, Sciacchetrà, sem er gulleitt og nokkuð þykkt, framleitt úr sérvöldum þrúgum sem látnar eru liggja á trégrindum í sólinni í 15-30 daga en þess má geta að það er áhugavert safn í bænum sem er tileinkað þessum drykk.

Riomaggiore
Riomaggiore er stærst af þorpunum fimm og leikur oft á tíðum hlutverk höfuðstöðvar hjá ferðamönnum sem heimsækja Cinque Terre. Aðalgata þorpsins heitir Via Colombo en þar sem er að finna úrval af veitingastöðum, börum og verslunum. Riomaggiore heitir eftir ánni sem rann niður gljúfrið þar sem þorpið stendur í dag. Áin er aftur á móti hvergi sjáanleg þar sem hún rennur undir þorpinu, sem aldrei fyrr.
SENTIERO AZZURRO EÐA BLÁI STÍGURINN
Stígurinn á milli þorpanna fimm er þekktur undir nafninu Sentiero Azzuro, þ.e. Blái stígurinn. Stígurinn er 10 kílómetra langur, hækkunin á leiðinni er 600 metrar og það tekur u.þ.b. 5 klst. að ganga leiðina. Sá hluti leiðarinnar sem liggur á milli Riomaggiore og Manarola er kallaður Via dell’Amore eða Vegur ástarinnar og er allt frá því að vera létt upp í að vera mjög erfið yfirferðar. Léttasti hluti leiðarinnar liggur á milli Manarola og Corniglia þó síðasti hluti leiðarinnar séu krefjandi 386 þrep. Þó það sé bratt á milli Cornilgia og Vernazza á vissum stöðum þá er svo sannarlega brattast á milli Vernazza og Monterosso al Mare. Þetta eru fallegar gönguleiðir sem liggja bæði um þverhníptar klettanasir eða iðagrænar og ávalar hæðir sem þaktar eru vínviði og ólífutrjám.
Í HNOTSKURN
Cinque Terre, eða löndin fimm, er stórfenglegt landsvæði með óendanlega fallegum þorpum með iðandi mannlífi sem gerir mann gjörsamlega orðlausan.